Morgunblaðið - 30.11.1990, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990
5T
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖ5TUDAGS
jiUítaaáMSkMBUm,
Bankar, hvar er ykkar ábyrgð?
Til Velvakanda.
I allri þeirri umræðu, sem verið
hefur undanfarið um breyttar for-
sendur í peningamálum, hefur lítt
eðá ekki komið fram þáttur banka
í harmsögum einstaklinga í þessu
landi. Við, þessi fámenna þjóð, sem
hreykjum okkur á hátíðarstundu
af sameiginlegri þjóðarsál, þekkj-
um næstum hver og einn einhvem,
sem farið hefur illa út úr fjármálum
á undanförnum mánuðum og árum
og getum ekki látið eins og okkur
komi þetta ekkert við. Þessi „ein-
hver“ er bróðir eða mágkona, vinur
eða kunningi, tengdur, skyldur eða
kunnugur á einhvern veg í svona
smáu samfélagi.
Staðreyndin er sú að bankar
halda ótrúlega lengi áfram að lána,
jafnvel eignalausu og atvinnulausu
fólki, ótrúlegar fjárupphæðir,
löngu eftir að ljóst er að venjuleg-
ar tekjur standa engan veginn
undir afborgunum af þeim. Hvers
vegna? Ef til vill vegna vorkunn-
semi og kunningsskapar. Ef til vill
vegna þess að þetta nauðstadda
fólk fær betur stæða aðstandendur
eða vini til þess að „skrifa upp á“.
Það þarf sannarlega að hafa stein-
hjarta til þess að neita nánum
ættingja um uppáskrift, þegar ekk-
ert blasir við annað en að hrekjast
allslaus út á götu jafnvel með van-
sæl og taugaveikluð börn, sem
Látið úti-
ljósin loga
Blaðburðarfólk fer þess á leit við
áskrifendur að þeir Iáti útljósin loga
á morgnana núna í skammdeginu.
Sérstaklega er þetta brýnt þar sem
götulýsingar nýtur lítið eða ekki við
tröppur og útidyr.
manni þykir vænt um og kemur
við. Þá þakkar maður guði fyrir
eigin hag og vonar bara að þetta
blessist einhvern veginn.
En innst inni veit maður vel að
þetta er rangt að farið og aðeins
til að lengja í hengingarólinni og
gjaldþrotið verður bara stærra
þegar að því kemur. Ætli bankam-
ir lánuðu svo mikið og lengi, ef
' þetta ábyrgðarmannakerfi væri
ekki til staðar og fólk fengi aðeins
lánað „út á andlitið á sér“? Fólk
yrði þá að afla sér lánstrausts með
því að standa í skilum í hinum
daglega rekstri. Bankamir gætu
líka hæglega haft sameiginlegan
skuldalista, svo hægt væri að sjá
á einums stað hve mikið einstakl-
ingurinn skuldaði og hvernig skil
væra á þeim lánum.
Sannleikurinn er nefnilega sá
að fólk berst oft um á hæl og
hnakka og margfaldar botnlausar
og vonlausar skuldir sínar aðeins
vegna þess að því þykir óbærilegt
að ábyrgðarmennirnir, sem gerðu
því greiða og eru oftar en ekki
nánir venslamenn og vinir, lendi í
því að verða að greiða þessar
skuldir fyrir það oft með miklum
áföllnum kostnaði. Það er hreint
út sagt óhugnanlegt hve auðvelt
er að verða stórskuldugur í þessu
neysluþjóðfélagi okkar, þar sem
lægstu laun eru ekki í neinu sam-
hengi við brýnustu þarfir og okkur
öllum til skammar og háðungar.
Er nú ekki kominn tími til að
bankarnir, næstum einu fyrirtækin
sem skila verulegum arði á þessum
síðustu og verstu tímum, axli sína
ábyrgð og taki þátt í þessum
þrengingum fólks, til dæmis með
stofnun neyðarsjóðs, sem komi
örvæntingarfullum einstaklingum
til hjálpar með beinum fjárfram-
lögum? Þama yrði ekki um hundr-
uðir milljóna að ræða, eins og í
HUGLEIÐSLA
Ég heiti Ásgrímur Björnssón og
stundaði hugleiðslu í fimm mánuði.
Síðan byijaði ég að hugleiða allan
daginn og gerði það í þijá mánuði
í viðbót. Ég náði því að komast í
hugljómun þegar ég vildi og aðeins
meira en það, eins og t.d. margfalt
betri einbeitingu, auknum þroska
og breitt skilningarvit sem lýsti sér
þannig að ég skynjaði „karma“
meira.
Karma þýðir örlög eða forlög. í
hindúatrú og búddatrú táknar
karma það að allar gjörðir lífvera
í tilvistarstigum, sem fylgja hvert
á eftir öðru, verði ákvarðandi fyrir
örlög lífverunnar í framtíðinni og
við endurholdgun.
En svona tel ég að karma virki:
Karma er lögmál sem gerir það að
verkum að hvernig þú lætur öðrum
líða mun þér sjálfum líða. Svo fær
maður líka suma hegðun til baka í
sama formi, eða eins og sagt er,
maður uppsker eins og maður sáir.
Auk þess tel ég að ég hafi skerpt
gáfur mínar og stjórnað myndun
hugsana. Það sem ég á við er það
að ég hefði ekki öðlast þetta án
þess að stunda hugleiðsluna nema
e.t.v. gáfur og þroska en ekki ná-
lægt því eins mikið og af því að
stunda hugleiðslu.
Nú ætla ég að segja ykkur hvern-
ig þið getið farið að því að stunda
hugleiðslu. Sittu í stól og einbeittu
þér að einhveiju t.d. eldspýtustokk,
sjáðu hann fyrir þér með lokuð
augun. Ef hann fer að snúast í
huganum haltu honum þá kyrrum
eða snúðu honum til baka og losaðu
þig við sem flestár hugsanir.
Svo er önnur aðferð, hún er þann-
ig að þú einbeitir þér að mynd með
opin augun og ímyndaðu þér að þú
andir að þér ljósi úr myndinni og
atvinnurekstrinum heldur lægri
upphæðir, sem samt mundu skipta
sköpum fyrir til dæmis einstætt
foreldri með böm á framfæri, sem
einhver fjármálasérfræðingurinn
ráðlagði eindregið að kaupa frekar
en leigja og nú sér framtíðina sem
ókleifan vegg og myndi fara með
sængina sína og pilluglas upp á
heiði ef það ætti ekki börn, sem
engan annan eiga að. Það eru
margir í þessari vonlausu aðstöðu
og það þarf að hjálpa þeim ekki
seinna en strax! Bankamönnum
hefur nefnilega ekkert gengið bet-
ur en öðrum að átta sig á því hvaða
breytingar raunveruleg endur-
greiðsla lána hefur í för með sér.
Við erum öll að læra en aðlögun
tekur tíma. Einnig er lögfræði- og
innheimtukostnaður hrein svívirða
og þarfnast sannarlega endurskoð-
unar. Upplausn heimila og hrakn-
ingar bama skipta máli. Eigum við
ekki að vera sammála um að ein-
staklingar skipti meira máli en
dauðir aurar?
Ein áhyggjufull
Gestaíbúð
Vílla Bergshyddan
i
íbúðin (3 herbergi og eldhús í endurbyggðu
18. aldar húsi) er léð án endurgjalds þeim,
sem fást við listir og önnur menningarstörf
í Helsingfors, Kaupmannahöfn, Ósló eða
Reykjavík, til dvalar um tveggja til fjögurra
vikna skeið á tímabilinu 15. apríl til 1. nóv.
Umsóknir um dvöl í Villa Bergshyddan, þar
sem fram komi tilgangur dvalarinnar og hvaða
tíma sé óskað, svo og upplýsingar um um-
sækjanda, skal senda til Hásselby slott, Box
520, S-162 15 Vállingby, fyrir 28. febrúar nk.
Ekki eru notuð sérstök umsóknareyðublöð.
Nánari upplýsingar fást hjá skrifstofu borg-
arstjóra, sími 18800.
myndin andi á móti þér. Andaðu
svo frá þér vanlíðan, þ.e.a.s. ef það
er einhver vanlíðan sem hugurinn
gerir, inn í myndina. Ég vil meina
að menn geti fengið hart líf sem á
upptök sín í líkamanum eða um-
hverfinu en hugurinn geti magnað
það.
Ég mæli með hvorri aðferð í tutt-
ugu mínútur tvisvar á dag fyrir
allt fólk. Svo er hægt að hugleiða
meðan maður er að vinna, einfald-
lega losa sig við hugsanir á meðan
með því að einbeita sér að því sem
maður er að gera eða einhveiju
öðru. Ég tel að íþróttamenn verði
betri í sínu fagi ef þeir stunda hug-
leiðslu.
Það er ykkar karma að stunda
hugleiðslu eða stunda hana ekki.
Það er mitt álit að þið verðið full-
komnari og ykkur líði betur ef þið
gerið það. Eins og Miehael Jackson
sem er á móti því að dýr séu drep-
in og hegðar sér vel, þar af leið-
andi gott karma. Michael sem er
búinn að gleyma því hvernig er að
fá kvef. Hegðar sér svo vel að hon-
um gengur vel og draumar hans
rætast. Enda beitir hann engu of-
beldi, hann fær útrás fyrir tilfínn-
ingar sínar á sviðinu.
Það sagði maður við mig sem
veit mjög mikið um hvernig karma
virkar að ef maður fremur sjál|s-
morð, þá hljóti maður slæmt karma.
Og þá ekki bara af því hvernig
maður lætur öðrum líða heldur líka
hvemig maður fer með sjálfan sig.
Það sem ég tel að dugi við streitu
í n útímaþjóðfélagi er hugleiðsla,
jákvæðar staðhæfingar og líföndun.
Þ.e.a.s. þú verður að læra að hugsa
öðruvísi en þú gerir í streituástandi.
Ásgrímur Björnsson
— —"i.r1;11 —■——" - ■ ....... 1111 1, ■m.v, !i.;;gl;1 r<
--------- ... ........................................... ..................................................................
TEG. BERGEN HORNSOFI, 6 SÆTA
RAÐGREIÐSLUR 10 MANUÐIR
IEURO
KREPIT
V/LDARK/OR
Erum að taka í hús nýja sendíngu af Bergen
hornsófum í mörgum lítum og verðíð er hreínt
ótrúlegt.
Bergen hornsófinn er klæddur með krómsút-
uðu anilín-gegnumlítuðu nautsleðrí á öllum
slitflötum og með leðurlíki á grínd utanverðri.
í púðum er polyester og dacronló. Stærðir:
b. 210x1. 265.
EKKI MISSA AF ÞESSU
Húsgagnaiiöllin
REGENT MÖBEL Á ÍSLANPI
BÍLDSHÖFÐI 20 112 RKYKJAVÍK