Morgunblaðið - 30.11.1990, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990
FELAGSMAL
mótin fara fram í stikulaugum og
hún verður að gera eins og þjálfar-
inn segir. „Hann er þrjóskur, en
við sjáum til.“
ÚRSLIT
Körfuknattleikur
NBA-DEILDIN:
Charlotte Hornets—Milwaukee.118:111
(Eftir framlengingu).
Golden State Warriors—Cleveland .. 110:108
Detroit Pistons—New York Knicks.. 90: 83
MiamiHeat—New Jersey Nets.... 97: 79
Philadelphia 76ers—Indiana..116:106
Chicago Bulls—Washington.....118: 94-
Dallas Mavericks—LA Clippers.107: 88
Utah Jazz—Houston Rockets....103: 92
LA Lakers—San Antonio........ 97: 80
Handknattleikur
HEIMSMEISTARAKEPPNI
KVENNA:
Úrslit í milliriðlum, hálfleikstölur i sviga:
Frakkland—Angóla..........24-20 (11-7)
Póiland—Kína..............31-17 (19-7)
Austurríki—Þýskaland A...24-20 (11-12)
Júgóslavía—Suður-Kórea....28-24 (12-9)
Svíþjóð—Kanada............21-16 (11-8)
Sovétríkin—Búlgaría.....33-23 (15-13)
Þýskaland B—Rúmenía........15-15 (9-7)
Noregur—Danmörk............20-16 (9-8)
Tennis
í gær var dregið fyrir úrslitaleik Davis-bik-
arsins í tennis milli Bandaríkjanna og Ástr-
alíu sem fram fer í St. Petersburg í Flórída.
(Bandarísku nöfnin fyrst):
Ándre Agassi—Richard Fromberg
Michael Chang—Darren Cahill
Rick Leach/Jim Pugh—Pat Cash/J. Fitzgerald
Andre Agassi—Darren Cahill
Michael Chang—Richard Fromberg
■ CARLOS Garcia Cuervo,
þjálfari spænska liðsins Sporting
Gijon, hefur verið sagt upp vegna
lélegs árangurs liðsins í deildar-
keppninni. Við stöðu hans tekur
Criaco Cano, sem lék áður með
félaginu. Cuervo, sem er fyrrum
markvörður liðsins, er þriðji þjálfar-
inn í spænsku úrvalsdeildinni sem
fær að ijúka á tímabilinu. Hinir
eru: John Toshack frá Real
Madrid og Julio Cardenosa lijá
Real Betis í Sevilla.
■ BANDARÍSKA frjálsíþrótta-
sambandið hefur ákveðið að halda
ekki meistaramót í þeim þremur
fylkjum sem ekki halda hátíðlegan
Martin Luther King daginn. Þrjú
fylki í Bandaríkjunum gefa ekki
frí á þessum degi: Arizona, Mont-
ana og New Hampshire. Fyrir
skömmu var ákveðið að halda úr-
slitaleik NFL-deildarinnar ekki í
Phoenix, sem er í Arizona, af sömu
sökum.
■ NICKFaldo, sem talinn er einn
besti kylfingur heims, átt í miklum
vændræðum á fyrsta degi opna
ástralska meistarmótsins sem fram
fer í Sydney. Hann lék á 74 högg-
um og þrípúttaði á tveimur síðustu
holunum. Hann neitaði að tala við
blaðamenn og fór strax á æfinga-
flötina. Chris Gray, 22 ára heima-
maður sem hefur aðeins keppt sem
atvinnumaður í tæpan mánuð, er
efstur með 69 högg ásamt Vijay
Singli frá Fiji-eyjum. Greg Nor-
man er í 3. sæti með 70 högg.
■ MATTHÍAS Sveinsson var
kjörinn formaður Skíðafélags
Reykjavíkur á aðalfundi félagsins
fyrir skömmu. í haust var haldið
námskeið f meðferð gönguskíða.
Kennari var Agúst Björnsson. Eft-
ir áramótin verður haldið námskeið
fyrir stökkdómara í Reykjavík.
■ VUJADIN Boskov, þjálfari
Sampdoria, verður að fylgjast með
liði sínu úr áhorfendapöllunum
næsta mánuðinn. Hann var dæmdur
í bann af ítalska knattspyrnusam-
bandinu fyrir að hrópa ókvæðisorð
að leikmönnum og áhorfendum er
lið hans sigraði Cremonese í bikar-
keppninni í síðustu viku. Boskov
er flórði þjálfarinn sem fengið hefur
slíkan dóm í vetur.
Mól fyrir Ragnheiði
Sett á sérstaklega fyrir hana til að ná lágmörkum fyrir HM
ÍÞRÚmR
FOLK
Samkeppni skólabama
um æfingagalla
Höfundur bestu tillögunnarfær
ferð á Smáþjóðaleikana í verðlaun
Aíþróttamótum erlendis, þar
sem keppt hefur verið í mörg-
um greinum eins og á Olympíuleik-
um, smáþjóðaleikum og Eyjaleik-
um, hefur íslenskt íþróttafólk vakið
athygli fyrir að vera í mismunandi
æfíngagöllum. Þessu vill Olympíu-
nefnd íslands breyta og hefur
ákveðið að láta hanna og gera eins
æfingagalla fyrir íþróttafólk, sem
keppir í nafni þjóðarinnar undir
merkjum Ólympíunefndar og
íþróttasambands Islands.
Efnt hefur verið til samkeppni á
meðal barna í 8., 9. og 10. bekk
grunnskóla og segir í verklýsingu
að börnin eigi að teikna búning, sem
minni á ísland, í fánalitunum, en
útfærslan sé þeirra. Unnið verður
út frá bestu tillögunni og höfundi
hennar boðið með á Spáþjóðaleik-
ana í Andorra í maí n.k., en þá
verða æfingagallarnir fyrst notaðir.
Guðfinnur Ólafsson, formaður
búninganefndar ólympíunefndar-
innar sagði að uppiýsingar um sam-
keppnina hefðu verið sendar til allra
myndmenntakennara í grunnskól-
um landsins og þeir beðnir um að
fylgja málinu eftir. Viðbrögð hefðu
verið mjög góð og hefðu þegar
borist margar og fjölbreyttar tillög-
ur, en skilafrestur er til 15. desemb-
er.
Gísli Halldórsson, forseti
ólympíunefndarinnar, sagði að sér-
sambönd hefðu gert sérstaka samn-
inga varðandi íþróttafatnað og því
hefði samsetningin oft verið mis-
munandi. Slíka samninga væri hins
vegar ekki hægt að gera í sam-
bandi við Ólympíuleika og stefnan
væri að öll keppnislið kæmu fram
í eins búningum. Því væri efnt til
þessarar samkeppni og geit ráð
fyrir að æfingagajlarnir verði not-
aðir fram yfir Ólympíuleikana í
Barcelona 1992.
Gísli Halldórsson, Halldór Ein-
arsson og Þorvaldur Jónasson eru
í dómnefnd og mun úrskurður henn-
ar liggja fyrir í janúar, en Ilenson
mun framleiða gallana. Höfundar
fimm bestu tillagn'anna fá verð-
launabúninginn að launum.
Þýska blaðinu Stern hefur verið
hótað málssókn vegna greinar
um lyfjanotkun austur-þýskra
íþróttamanna. Blaðið segir að
margir að fremstu íþróttamönnum
Austur-Þýskalands, s.s. sund-
dróttningin Kristin Otto, Ulf Tim-
mermann, heimsmethafi í kúluvarpi
og Heike Drechsler, Evrópumeistari
í kúluvarpi, hafa tekið inn stera sem
íþróttayfirvöld útveguðu þeini. Eng-
ar sannanir hafa þó komið fram og
stendur staðhæfing gegn staðhæf-
ingu.
„Þetta er tómt kjaftæði og lyg-
ar,“ sagði einn þeirra sem nefndir
voru í greininni. Torsten Voss, sem
er m.a. sagður hafa sett heimsmet
unglinga eftir að hafa fengið stóran
skammt, segist ætla að fara í mál'
við blaðið og krefjasta skaðabóta.
Fleiri hafa hótað málssókn.
Manfred Höppner, fyrrum að-
stoðarforstjóri austur-þýsku
íþróttalyfjadeildarinnar, gaf Stern
upplýsingar um lyfjanot.kun. Blaðið
segist hafa öruggar heimildir,
þ.á.m. lista með nöfnum og dag-
setningum 20 ár aftur í tímann en
Kristin Otto er í hópi fjölmargra
austur-þýskra íþróttamanna sem
sagðir eru hafa tekið inn stera.
ekkert slíkt var að fínna í greininni.
Willi Daume, forseti þýsku
ólympíunefndarinnar, hefur lofað
rannsókn og segir að hið sanna
verði að koma fram. „Þetta eru al-
varlegar ásakanir og við verðum
að komast til botns í málinu áður
en við veljum keppendur fyrir
Ólympíuleikana í Barcelona 1992.“
Ársþing KSÍ
Arsþing Knattspyrriusambands
íslands fer fram á Hótel Loft-
leiðum um helgina og verður sett kl.
17 í dag. Fyrir þinginu liggja liðlega
30 tillögur um breytingar á lögum
og reglugerðum. Mesta athygli vekur
tillaga um félagaskipti, leikmanna-
samninga og og afnám áhugamanna-
reglna og eins tillaga um breytingar
á bikarkeppni KSI.
Á þinginu verða tvær ráðstefnur á
morgun; sú fyrri -um unglingaknatt-
§pyrnu, sem hefst kl. 10, og hin, sem
byrjar kl. 14, um mótafyrirkomulag.
Annað kvöld verður sameiginlegur
kvöldverður á Hótel Sögu, sem er
opinn öllum félögum, þó þeir séu
ekki þingfulltrúar, en miðar verða
seldir á þinginu. Þingslit verða á
sunnudag.
Um helgina verður sett á sér-
stakt sundmót fyrir Ragnheiði
Runólfsdóttur í 50 m laug í Ala-
bama í Bandaríkjunum og er verið
að reyna að fá keppendur frá níu
háskólum til að taka þátt. Ástæðan
er sú að þetta er eini möguleiki
hennar til að ná lágmarkinu í 100
m eða 200 m bringusundi fyrir HM,
serh verður í Ástralíu í janúar.
Ragnheiður ætlaði að taka þátt
í Opna bandaríska meistaramótinu
í Indianapolis, sem hefst í dag, en
þjálfari hennar vildi ekki sleppa
henni vegna stigamóts háskóla, sem
bytjaði í gær og lýkur á morgun.
„Þetta er betra en ekkert, en
samt ekki nógu gott,“ sagði Ragn-
heiður aðspurð um málið í gær. „Ég
keppi í fimm einstaklingsgreinum
og þremur boðsundsgreinum á
stigamótinu og verð því ekki eins
vel upplögð og ég hefði kosið.“
Ragnheiður er eini íslenski sund-
Ragnheiður Runólfsdóttir ætlar að reyna að ná lágmörkunum um helgina.
maðurinn, sem á möguleika á að
ná lágmarkinu fyrir HM. Hún hefur
ekki fengið tækifæri að undanförnu
til að keppa í 50 m laug, en háskóla-
Morgunblaðið/KGA
Ólafur Eiriksson var útnefndur íþróttamaður ársins 1990 úr röðum fatlaðra
íþróttamanna og er hér með bikarinn, sem fylgir vegsemdinni.
SUND / BANDARIKIN
OLYMPIUNEFND
IÞROTTAMAÐUR FATLAÐRA
LYFJANOTKUN
A-Þjóðverjar mótmæla ásökunum Stern:
Ólafur
Eiríks-
sonút-
nefndur
Olafur Eiríksson, sundmaður,
var í gær útnefndur íþrótta-
maður ársins 1990 úr röðum fatl-
aðra íþróttamanna.
Ólafur kom, sá og sigraði á
heimsleikum fatiaðra í Hollandi í
sumar, en þar hlaut hann gullverð-
laun í þremur greinum, 200 m, 400
m og 800 m skriðsundi, og setti
heimsmet í öllum í sínum flokki. Á
nýárssundmóti ÍF vann hann besta
afrek mótsins samkvæmt stiga- og
forgjafaútreikningi og hlaut „Sjó-
mannabikarinn“.
Ólafur er 17 ára, fæddur 29.
september 1973, og hóf að æfa
sund fyrir sex árum.
ENGLAND
United gegn
Southampton
Manchester United, sem
slegið hefur út Liverpool
og Arsenal, mætir Southampton
á útivelli í 8-liða úrslitum ensku
bikarbikarkeppninnar í knatt-
spyrnu. Dregið var í gær og
Chelsea mætir Tottenham, Leeds
tekur á móti Aston Villa og Co-
ventry mætir Sheffield United eða
Derby. Leikið verður 14. janúar.
Engar sannanir
um lyfjanotkun