Morgunblaðið - 30.11.1990, Qupperneq 59
59
MORGU.NBIAÐIÐ ÍÞRÓTTIR TOSTÚDAGUE 30. NÓVEMBER 19Ö0 '
KNATTSPYRNÁ / KSI
Hagnaður ársins 21 milljón
HAGNAÐUR á rekstri Knatt-
spyrnusambands íslands á
síðasta starfsári var um 21
milljón samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Eggert
Magnússon, formaður KSÍ,
vildi ekki staðfesta töluna í
gær, en sagði að reksturinn
hefði gengið mjög vel. Reikn-
ingar sambandsins verða
lagðir fram á ársþinginu, sem •
hefst á Hótel Loftleiðum
klukkan 17 í dag og lýkur á
sunnudag.
Eggert sagði að áhersla hefði
verið lögð á að bæta fjárhag-
inn og það hefði verið gert með
ýmsu móti.
Við lögðum áherslu á að breyta
andliti skrifstofunnar og okkur
hefur tekist að gera hana að
sterku afli fyrir hreyfínguna, sem
þjónar henrii mjög vel. Við réðum
Stefán Konráðsson sem fram-
kvæmdastjóra og hann ásamt
starfsfólki sínu hefur haldið mjög
vel á málum.
Við höfðum þá stefnu að vera
markvissir í markaðssölu meðal
annars með því að gera samstarfs-
samninga við nokkur stór og sterk
fyrirtæki. Þar lögðum við áherslu
á að samstarfið væri gagnkvæmt
og skilaði sér ekki síður til við-
komandi fyrirtækja. Þetta hefur
tekist enda vilja fyrirtæki stai-fa
með sambandi, sem er vel rekið.
Það er beggja hagur.
Við vorum lánsamir með mót-
herja í Evrópukeppni landsliða,
sem gerði okkur mögulegt að
gera sjónvarps- og auglýsinga-
samninga, sem mörkuðu þátta-
skil,. ekki aðeins hjá KSÍ heldur
hjá íslenskri íþróttahreyfingu.
Þá er jafnframt ijóst að við
höfum haft mikið aðhald í öllum
rekstri eins og áður var og við
höfum fylgst .vel með að staðið
væri við alla samninga."
Rekstur KSÍ eins og annan-a
sérsambanda ÍSÍ hefur gengið í
bylgjum og sagði Eggert að nauð-
synlegt væri að byggja upp sterk-
an varasjóð til að geta mætt áföll-
um. „Fyrir tveimur árum var
verulegt tap á rekstrinum og árið
eftir þurfti mikið þrekvirki til að
vinna það upp. Það kostaði niður-
skurð á ýmsum sviðum, en með
varasjóði eigum við að geta varist
baksveiflum.“
Að sögn formannsins verður
haldið áfram á sömu braut á
næsta starfsári. „Við stefnum
hátt og vinnum að framgangi allra
máia með áherslu á aðgæslu í
útgjöldum. Ef aðhald er ekki fyrir
hendi verður æ erfíðara að skera
niður.“
Eggert Magnússon
ÍÞRjfrmR
FOLX
■ ÞÓRÐUR Guðjónsson, semlék
16 deildarleiki með KA á íslands-
mótinu í knattspymu í sumar, hefur
skipt yfír í ÍA, en þar hefur Guð-
jón, faðir hans, tekið við stjórninni.
H RUUD Gullit og Frank Rijka-
ard skoruðu fyrir Evrópumeistara
AC Milan í 2:0 sigri gegn Evrópu-
bikarmeisturum Sampdoria í
gærkvöldi. AC Milan sigraði þar
með í meistarakeppninni, en liðin
gerðu 1:1 jafntefli í fyrri leiknum.
AC Milan sigraði Barcelona í sömu
keppni í fyrra.
H PELE lék í 17 ár með Santos
í Brasilíu og nú hefur Edinho,
sonur hans, sem er 20 ára, fetað í
fótspor föður síns. Edinho, sem er
markvörður, gerir samning við fé-
lagið í dag, en aðalmarkvörður þess
er landsliðsmarkvörðurinn Sergio.
H READING á í miklum fjárhags-
erfiðleikum eins og fleiri ensk
knattspyrnufélög og í fyrradag
ákvað stjóm félagsins að setja alla
leikmenn liðsins á
sölulista. 3. deildar
lið Bury lék sama
leik í gær, eri félagið
skuldar um 50 millj-
ónir ÍSK.
H MICK MiIIs tók í gær við þjálf-
arastarfi hjá Coventry og verður
undir stjórn félaga síns, Terry
Butchers en þetta hafði legið í loft-
inu eins og greint hefur verið frá.
Félagamir léku saman hjá Ipswich.
Frá
Bob
Hennessy
i Englandi
H WILLIE Miller, sem er 35 ára
og á 65 landsleiki að baki fyrir
Skotland, hefur lagt skóna á hill-
una vegna hnémeiðsla. Aberdeen
leikur fjáröflunarleik fyrir hann á
þriðjudag gegn „heimsliðinu“.
H EYJÓLFUR Sverrisson verður
í byijunarliðinu hjá Stuttgart um
næstu helgi ef marka má þýska
blaðið Bild. Þar er einnig að finna
!■■■■■■ viðtal við Cristoph
FráJóni Daum, þjálfara liðs-
H. Garöarssyni ins, sem segist vera
iÞýskalandi mjög ánægður með
Eyjólf. „Við þurf-
um leikmenn eins og hann sem
kunna að beijast. Hann fer í
boltann hvar sem er og það er
mikilvægt fyrir liðið,“ sagði
Daum. Stuttgart mætir 2. deildar-
liðinu Preusen Miinster um næstu
helgi í bikarkeppninni. Matthias
Sammer leikur ekki með Stuttgart
vegna meiðsla og er búist við að
Gaudino taki sæti hans.
ÚRSLIT
Blak
1. deild karla:
HK—Þróttur R......0:3 (5:15 13:15 6:16)
■ Einn leikur er í kvöld I 1. deild karla.
Völsungur og Víkingur leika á Húsavík kl.
20.
KORFUBOLTI / URVALSDEILDIN
Morgunblaöið/Einar Falur
Astþór Ingason átti góðan leik í gær og hér er hann kominn framhjá Birni
Steffensen.
KR - Njarðvík 86:90
Laugardalshöllin, úrvalsdeildin í körfuknattleik, ömmtudaginn 29. nóvember 1990.
Gangur leiksins: 6:4, 23:16, 25:25, 35:31, 39:43, 48:49, 53:51, 63:53, 66:57, 70:71,
73:83, 78:86, 81:88, 84:88, 84:90, 86:90.
Stig KR: Jonathan Bow 19, Matthías Einarsson 17, Páll Kolbeinsson 15, Lárus Ámason
12, Björn Steffensen 10, Axel Nikulásson 9 og Hörður Gauti Gunnarsson 4.
Stig Njarðvíkur: Rondey Robinson 34, Teitur Örlygsson 26, Ástþór Ingason 14, Kristinn.
Einarsson 6, Hreiðar Hreiðarsson 6 og Friðrik Ragnarsson 2 og ísak Tómasson 2.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Leifur Garðareson. Höfðu ekki nógu góð tök á leiknum.
Áhorfendur: Um 250.
Sterk staða Njarðvíkinga
Njarðvíkingar styrktu stöðu sína á toppi A-riðils úrvalsdeildarinnar er
þeir sigruðu KR-inga í undarlegum en skemmtilegum leik í Laugardals-
höllinni. Miðað við að þarna áttust við tvö af bestu liðuni deildarinnar var
ótrúlegt að sjá hve margar sendingar fóru forgörðum og á köflum engu líkara
en að menn væru að sjá körfubolta i fyrsta sinn. KR hafði
Logi lengi vel undirtökin en góður baráttukafli Njarðvíkinga í síðari
Bergmann hálfleik lagði grunninn að sigri þeirra.
Eiösson „Þetta var barningur, eins og við var að búast í svona leik,“
skritar sagði Friðrik Rúnarsson. „Við höfum staðið okkur vel í síðustu
leikjum, einkum ef tekið er mið af því að við byrjuðum rúmum mánuði á eft-
ir öðrum liðum. En það er mikið eftir og deildin er gífurlega erfíð.“
Rondey Robinson átti mjög góðan leik með Njarðvíkingum. Hann var sterkur
undir körfunni og hitti vel, þrátt fyrir að fá lítin frið. En maðurinn á bakvið
sigur Njarðvíkinga var þó Teitur Órlygsson. Hann barðist af miklum krafti
allan leikinn og vann vel í vörn og sókn. Ástþór átti einnig góðan leik og
greinilegt er að liðið hefur tekið miklum framförum síðustu vikumar.
Páll Kolbeinsson lenti í villuvandræðum og án hans er lið KR vart svipur hjá
sjón. Jonathan Bow fór útaf með fímm villur þegar sex mínútur voru eftir og
þá var leikurinn nánast tapaður. Matthías Einarsson átti góða spretti.
Fjöldi Njarðvíkinga var í Höllinni og hvöttu þeir sína menn duglega en þeir
fáu KR-ingar sem sáu sér fært að mæta eyddu mestri orku í fúkyrði í garð
dómara. Það hefuf aldrei unnið leik.
Alfreð Gislason
HANDBOLTI
„Fer ekki til
Dankersen“
-segir Alfreð Gíslason
Þýska liðið Dankersen, sem leik-
ur í 2. deild, vantar skyttu
vinstra megin og hefur haft auga-
stað á Alfreð Gíslasyni eins og
greint hefur verið frá. Félagð hefur
hins vegar ekki talað við Alfreð og
hann hefurekki áhuga á að skipta.
„Ég hef ekkert heyrt frá félaginu
og þó það hefði samband væri það
tilgangslaust,“ sagði Alfreð. „Ég
er samningsbundinn hér hjá Bid-
asoa út keppnistímabilið og nenni
hreinlega ekki að hugsa um að fara
neitt,“ bætti hann við.
KNATTSPYRNA / FRAKKLAND
„Fœ launin greidd“
- segirArnór Guðjohnsen vegna fjárhagserfiðleika Bordeaux
ÚRVALSDEILDIN
A-RIÐILL
Fj.leikja u 1 T Mörk Stig
NJARÐVÍK 12 9 0 3 089: 944 18
KR 13 8 0 5 056: 020 16
HAUKAR 12 6 O 6 994: 003 12
SNÆFELL 12 2 0 10 902: 061 4
ÍR 12 1 0 11 903: 127 2
B-RIÐILL
Fj.leikja U 1 T Mörk Stig
TINDASTÓLL 12 ÍBK 12 GRINDAVÍK 13 ÞÓR 12 VALUR 12 10 0 2 194:070 20 9 0 3 172:072 18 9 0 4 132:074 18 4 0 8 127: 108 8 3 0 9 977:067 6
Franska knattspyrnuliðið
Bordeaux á við mikla fjár-
hagserfiðleika að stríða, en þeir
hafa ekki komið niður á Arnóri
Guðjohnsen, leikmanni.
„Eg fæ launin greidd á réttum
tíma og það hefur ekki verið
vandamál,“ sagði Arnór við Morg-
unblaðið. „Félagið er stórskuld-
ugt, en það hefur ekki bitnað á
mér ogég veit ekki annað en leik-
mennirnir fái almennt greitt það
sem þeim ber.“
Arnór sagði sennilegt að borgin
tæki skuldir félagsins á sig og
síðan yrði stokkað upp í stjórn-
inni. „Þetta hefur verið öflugt
félag í gegnum árin og ég trúi
ekki öðru en að því verði bjargað
frá gjaldþroti og það fljótt. Félag-
ið hefur verið í fréttum undan-
farnar vikur vegna þessara erfið-
leika og það hefur haft áhrif á
leikmenn og gengi liðsins.“
Arnór tognaði í síðasta leik og
taldi ólíklegt að hann yrði með
gegn Auxerre um helgina. Hann
var ekki löglegur í fyrrakvöld,
þegar liðið tapaði 5:0 gegn AS
Roma í fyrri leik liðanna í 16 liða
úrslitum Evrópukeppni félagsliða,
en hefði mátt leika í næstu um-
ferð — sem er of seint.