Morgunblaðið - 08.12.1990, Side 21

Morgunblaðið - 08.12.1990, Side 21
[SIENSKA AUGLÝSINCASTOFAN HF. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990 21 Hin ótrúlega saga af stofnun, uppbyggingu og lífróðri Stöðvar 2 er saga af ævintýri sem varð að veruieika. Hér er hulunni svipt af þeim flókna fjármálavef sem spunninn hefur verið um stöðina og sannleikurinn leiddur í ljós. Hvað gerðist raunverulega á bak við tjöldin í stórbrotnasta viðskiptaævintýri aldarinnar. Hvemig var líf fólksins á bak við ævintýrið, ástir þess og örlög. ÐUNN VANDAÐAR BÆKUR I 45 A R ✓ A bak við ævintýrið Jón Ottar Ragnarsson segir hina raunverulegu sögu Stöðvar 2 GARÐAR SVERRISSON IÐUNN Mynd af einum mesta listamanni sem íslenska þjóðin hefur eignast; jámsmiðnum frá Akureyri sem fómar öllu fyrir óvissa framtíð í hörðum heimi óperunnar þar sem honum tekst með fágætum viljastyrk að komast í fremstu röð í heiminum. Maðurinn, listamaðurinn og eldhuginn er viðfangsefni þessarar tæpitungulausu frásagnar. Kristján rekur hér af einstakri hreinskilni og hispursleysi æsku sína og uppvöxt, segir frá vonbrigðum sínum og glæstum sigrum á sviði og utan, frá ástríðu og sorgum, ljóma sviðsljósanna og skugga öfundar og umtals. Garðar Sverrisson vakti mikla athygli fyrir metsölubókina „Býr Islendingur hér“ en saga hans um Kristján Jóhannsson er grípandi og feikilega vel skrifuð. VANDAÐAR BÆKUR ♦ í 45 Á R ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.