Morgunblaðið - 08.12.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.12.1990, Blaðsíða 4
4- MORáUNBLÁRlÖ LAÚGARDÁGUR18. :DÉ5ÉMB'ER 1990 Gísli Runólfsson yHpstjórí á loðnuskipínu Bjama Ólafssyni AK: Hótað veiðibanni ef við færum ekki strax í land Rannsóknaskipið Árni Friðriksson fer í loðnuleit í dag „Sjávarútvegsráðuneytið hótaði okkur loðnuveiðibanni ef við færum ekki strax í iand,“ segir Gísli Runólfsson á loðnuskipinu Bjarna Ólafs- syni AK en hann og Helga II RE fóru á loðnuveiðar á fimmtudags- kvöld. Gísli segir að skipin hafi ekki verið komin á loðnumiðin við Kolbeinsey fyrr en í gærmorgun og því enga loðnu veitt en þar hafi fengist stór loðna undanfarið. Sjávarútvegsráðherra ákvað í gær að rannsóknaskipið Árni Friðriksson færi nú þegar í loðnuleit en ákveðið hafði verið að rannsóknaskipin Bjarni Sæmundsson og Arni Friðriks- son færu bæði í loðnuleiðangur 2. janúar nk. Loðnuskipaflotinn sigldi i land á miðvikudag, samkvæmt tilmælum sjávarútvegsráðherra, þar sem loðnuveiðistofninn er nú einungis 370 þúsund tonn en talið er að 400 þúsund tonn af hrygningárloðnu þurfi til að viðhalda eðlilegum loðnu- veiðistofni. Bæjarstjómir Akureyrar og Siglufjarðar, bæjarstjórinn í Bolung- arvík og hreppsnefndir Raufarhafnar sendu í gær sameiginlega ályktun til sjávarútvegsráðherra, þar sem segir meðal ánnars: „Við viljum vekja athygli sjávarútvegsráðherra á því að það veldur mikilli röskun í at- vinnumálum þessara byggðarlaga og verulegum rekstrarerfiðleikum hjá loðnuverksmiðjum þessara staða að loðnuveiðum skuli nú vera hætt. Bræðsla Ioðnu, ásamt ýmsri þjónustu við loðnuflotann, er mikilvægur þátt- ur í atvinnulífi þessara staða. Bæjar- félög eru því í hópi hagsmunaaðila, eins og útgerðarmenn og sjómenn. Ofanritaðir eru sammála því að ekki megi ganga of nærri loðnustofn- inum með ofveiði eða smáloðnuveið- um og telja því heimildir um skyndi- lokanir góðan kost í þessum efnum, ásamt því að stöðva veiðar fyrr á vorin, þegar komið er að hrygningu loðnunnar. Nú er upplýst að ekki verður fylgst með loðnugöngum fyrir Norðurlandi fram yfir áramót en áður hefur það sýnt sig að skjótt skipast veður í lofti í þessum efnum. Þess vegna skora ofanritaðir á þig sem sjávarút- vegsráðherra að þú beitir þér fyrir því að nú þegar verði rannsóknaskip- um haldið úti og jafnframt verði þrjú til fjögur loðnuveiðiskip styrkt til áframhaldandi leitar á miðunum fyr- ir Norðurlandi það sem eftir lifir til áramóta." Gísli Runólfsson segir að greini- legt sé að sjávarútvegsráðuneytið vilji ekki að loðnuskipin leiti að loðnu VEÐUR Heimild: VeOurslofa islands (Byggt á voöurspá Kl. 16.15 í gær) VEÐURHORFUR í DAG, 8. DESEMBER YFIRLIT í GÆR: Yfir sunnanverðu Grænlandshafi er víðáttumikii 1.044 mb. hæð sem þokast suðaustur. Við austurströnd Græn- lands er að myndast lægðardrag sem mun hreyfast austur eða norð-austur og dýpka. SPÁ: Vestankaldi eða stinníngskaldi. Súld eða slydduél vestan- lands. Él við norðurströndina en annars þurrt. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG: Suðvestlæg átt og hlýnandi veður, súld eða rigning um vestanvert landið en annars þurrt. HORFUR Á MÁNUDAG: Vestan- og norðvestanátt og kólnandi veður, úrkomulítið suðaustanlands, en él í öðrum landshlutum, eink- um þó fyrir norðan. TÁKN: Heiðskírt Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■\ 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus Skúrir = Þoka = Þokumóða 5, ’ Súld OO Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavík hltl +8 +7 veður skýjað hálfskýjað Björgvin 0 snjóél Helsinki S rignlng Kaupmannahöfn 4 rigning Narssarssuaq S alskýjað Nuuk 8 alskýjað Ósló 4 skýjað Stokkhólmur 7 rigning Þórshöfn +4 snjóél Algarve 17 léttskýjað Amsterdam 4 léttskýjað Barcelona 11 mistur Berlih 0 þokumóða Chicago r6 heiðskírt Feneyjar vantar Frankfurt 1 heiöskirt Glasgow 2 slydda Hamborg 3 skýjað Las Palmas 22 skýjað London 7 léttskýjað Los Angefes 16 heiðskírt Lúxemborg +1 léttskýjað Madrid 3 lágþokublettir Malaga 16 skýjað Mallorca 13 skýjað Montreal +2 léttskýjað NewVork 3 hálfskýjað Orlando 13 lóttskýjað Paris vantar Róm 7 skýjað V/n 4-3 alskýjað Washington 3 alskýjað Winnipeg +3 helðskírt Bjarni Ólafsson AK 70 fór til loðnuveiða á finimtudagskvöld, en er nú kominn aftur til hafnar. fyrr en eftir áramótin. „Við höfðum áhuga á að fylgjast með loðnunni við Kolbeinsey en menn hafa ekki séð loðnu þar fyrr en núna. Ráðu- neytið lofaði okkur hins vegar að við mættum fara á loðnuveiðar strax 2. janúar næstkomandi. Það hafa ein- ungis um 20 íslensk skip verið á loðnuveiðum í haust en eftir áramót- in fer væntanlega allur íslenski loðnuflotinn, um fimmtíu skip, á loðnuveiðar. Þá hafa erlendu skipin, sem stund- að hafa loðnuveiðar í okkar lögsögu, alveg gleymst í þessari umræðu um lélega loðnuveiði. Hvers vegna í ósköpunum erum við að útvega út- lendingum físk þegar við erum í vandræðum sjálfir? Erlendu skipin hafa enga loðnu veitt fyrir utan okk- ar landhelgi undanfarið og þeim verður væntanlega leyft að veiða hér loðnu eftir áramótin, því þau eru á sömu kjörum og við,“ segir Gísli Runólfsson. Loðnukvótinn á þessari vertíð er 600 þúsund tonn og þar af mega íslensk skip veiða 475 þúsund tonn. Endanlegur loðnukvóti á vertíðinni verður hins vegar áð öllum líkindum ákveðinn í janúar næstkomandi. ís- lensk skip hafa veitt um 80 þúsund tonn af loðnu í haust en erlend 27.590 tonn, þar af veiddu færeysk skip 4.530 tonn og norsk 23.060 tonn. Samkomulag íslendinga, Grænlendinga og Norðmanna um nýtingu loðnustofnsins gildir til þriggja ára frá og með 1. júlí 1989 en samkvæmt því fá íslendingar 78% af loðnukvótanum, Grænlendingar 11% og Norðmenn 11%. Hitaveita Reykjavíkur: Jarðhýsi byggt við útsýnishúsið FULLTRÚAR minnihlutaflokkanna gagnrýndu harðlega fram- kvæmdir við byggingu jarðhýsis i tengslum við útsýnishús Hita- veitunnar á Öskjuhlíð á fundi borgarsljórnar á fimmtudaginn. Fram kom, að ekki hefði verið fjallað um jarðhýsið í stjórn veitustofnana borgarinnar og lét borgarstjóri stöðva fram- kvæmdir þar til hún hefði fjallað um málið. Á fundi stjórnarinn- ar í gær var bygging jarðhýsisins samþykkt og hefjast fram- kvæmdir að nýju eftir að borgarráð og byggingarnefnd hafa fjallað um málið í næstu viku. Fyrirhugað er að í jarðhýsinu verði aðstaða fyrir starfsfólk útsýnishússins auk geymslurýmis. Á fundi borgárstjórnar á fimmtudag vöktu borgarfulltrúar minnihlutaflokkanna, þær Guð- rún Ágústsdóttir, Ólína Þorvarð- ardóttir og Sigrún Magnúsdóttir, athygli á framkvæmdum við byggingu jarðhýsis í tengslum við útsýnishús Hitaveitu Reykjavíkur á Öskjuhlíð. Búið væri að grafa fyrir byggingunni án þess að fyrir lægi samþykkt byggingarnefndar og um málið hefði ekki verið fjallað í stjóm veitustofnana. Gagnrýndu full- trúar minnihlutans þessa máls- meðferð harðlega. Davíð Oddsson, borgarstjóri, benti á að mjög algengt væri að verktökum væri leyft að hefja byijunarframkvæmdir þótt byggingarleyfi hefði ekki verið afgreitt, ■ þannig að ekki væri ástæða til að gera mikið úr þessu. Hins vegar væri eðlilegt að fjall- að yrði um málið í stjóm veitu- stofnana og yrðu framkvæmdir stöðvaðar þar til samþykki hefði fengist þar fyrir framkvæmdinni. Framkvæmdir við byggingu jarðhýsisins vom stöðvaðar á fimmtudagskvöld. Stjórn veitu- stofnana samþykkti fram- kvæmdirnar á föstudag og verð- ur þeim haldið áfram eftir um- fjöllun í borgarráði og bygging- arnefnd. Borgarráð fjallar um málið á þriðjudaginn og bygging- amefnd á fimmtudaginn. Tryg’ging-abætur í upphafi mánaðar: Hefur strandað hjá fjármálaráðuneytinu - segir forstjóri Tryggingastofnunar EGGERT G. Þorsteinsson, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, segir að staðið hafi á fjármálaráðuneytinu að greiðslur til bótaþega séu inntar af hendi fyrsta dag hvers mánaðar. Eggert sagði að einhver hlykkur væri á greiðslum frá Seðlabanka inn á hlaupareikning Tryggingastofn- unar, sem ylli því að ekki væri unnt að greiða út bætur fyrr en 10. hvers mánaðar. Hann sagði það gamalt baráttumál ellilífeyrisþega að fá sínar greiðslur í upphafí mánaðar, en að öðru leyti vísaði hann á fjár- málaráðuneytið til frekari skýringar á þessu máli. Þau svör bárust frá fjámálaráðu- neytinu að svona hefði fyrirkomu- lagið verið til langs tíma en ekki fengust viðhlítandi svör á ástæðum þessa fyrirkomulags.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.