Morgunblaðið - 08.12.1990, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990
Morgunblaðið/Sverrir
Félajgsheimili karlakórsins Þrasta í Hafnarfirði var vígt 1. desemb-
er. A myndinni er einn kórfélaga, Páll Þorleifsson, eiginkona háns,
Olafía Einarsdóttir og Helgi Þórðarson, formaður kórsins.
Elsti karlakór lands-
ins í eigið húsnæði
TONLIST
Blindflug á Tveimur vinum
* # .
Súld á sviðinu í Tveimur vinum.
Jasshljómsveitin Súld, sem einnig
hefur verið kennd við „bræð-
ing“, fönk, rokk og þjóðlega tón-
list, sendi nýverið frá sér sína aðra
breiðskífu, sem heitir Blindflug á
íslensku, en á ensku Flying on
Instruments. Enska nafnið er til
komið vegna þess að platan er ætl-
uð fjölmörgun aðdáendum sveitar-
innar ytra, þ. á m. í Kanada, en
þar hefur hljómsveitin leikið á jass-
hátíðum undanfarið, síðast fyrir
50.000 manns í Montreal.
Súld hélt útgáfutónleika vegna
Morgunblaðið/Sverrir
plötunnar í Tveimur vinum sl. mið-
vikudagskvöld, og Iék þar lög af
plötunni fyrir fullu húsi. Komust
færri að en vildu, en sveitin hyggst
halda fleiri tónleika til að kynna
plötuna og annast eftirspurn.
Nýtt félagsheimili karlakórsins
Þrasta í Hafnarfirði var vígt
laugardaginn 1. desember. Þetta
er í fyrsta sinn sem þessi elsti karla-
kór landsins kemst í eigið húsnæði.
Félagsheimili Þrastanna er á 2.
hæð hússins að Flatahrauni 21 í
Hafnarfirði, en húsnæði kórsins er
200 fermetrar að stærð. Kórinn
festi kaup á húsnæðinu í september
á síðasta ári og hefur verið unnið
við það síðan, að mestu leyti í sjálf-
boðavinnu kórfélaga. í húsinu verð-
ur aðstaða til æfínga fyrir kórinn
og til annarrar félagsstarfsemi
hans.
Karlakórinn Þrestir er elsti starf-
andi karlakór landsins, stofnaður
19. febrúar árið 1912, af Friðrik
Bjamasyni.
Cassandra mætir í myndatöku.
LJOSMYNDUN
Þokkagyðjan
Cassandra
ekki öll þar
sem hún er séð
Þegar fóru að birtast töluvert
erótískar myndir af fyrir sætu
sem einungis var nefnd Cassandra
í áströlskum blöðum urðu marg ir
Ijósmyndarar þar í landi og víðar
til þess að hafa upp á ljósmyndaran-
um Wally Herzfeld og fá símanúm-
er og heimilisfang Cassöndm. Hún
þótti í meirá lagi leyndardómsfull,
því á sama tíma og forkunnarfagur
vöxtur hennar fór ekki á milli mála,
sá aldrei almennilega í andlitið og
því var ungfrúin frá upphafi sveipuð
nokkrum ævintýraljóma.
Wally sagði öllum sem satt var,
að Cassandra gerði allt sem hann
legði til og sæti og stæði eftir geð-
þótta hans. Misstu þá sumir ljós-
myndararnir áhugann, en aðrir
vildu ólmir fá að mynda þokkagyðj-
una. Wally tók þeim vel og fékk
hver og einn bókaðan tíma. Þeir
urðu skrýtnir á svipinn er þeir urðu
þess vísari að Cassandra væri ekk-
ert annað en „vel smíðuð“ gína!
Wally hafði gaman af og selur nú
fleiri myndir af Cassöndru en
nokkru sinni fyrr.
Jólasveinarnir eru á leiðinni í bæinn og verða
komnir á Laugaveginn eftir hádegi í dag.
Grýla og Leppalúði mæta
með jólasveinana sína.
Við höfum frétt að þeir muni
vera með mikið glens og
gaman og dreifa fyrstu
jólapökkunum til góðu
barnanna.
Paddington og
Pétur Pókus verða líka
ífylgd jólasveinanna.
Allar verslanir opnar frá
kl. 10-18 ídag.