Morgunblaðið - 08.12.1990, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 08.12.1990, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990 ... undirföt sem vinna með þér Þau eru að sjálfsögðu mjög hlý. Þau stinga ekki og eru fislétt. Þau eru níðsterk og það sem gerir þau svona sérstök er að þau hrinda frá sérraka, þannig að þau og þú eruð alltaf þurr. Fyrir vikið setur ekki að þér hroll þegar þú slappar af á milli afreka. Þetta eru íslandsmeistorarnir okkar á skíðum ... þau þekkja benger Valdimar Valdimarsson benger... ekkert annað kemur til greina Guórún H. Kristjánsdóttir benger... það besta sem ég hef prófað benger -bú&in Kringlan 4, II hæ& Sími: 91-33222 Lettneskur sendi- ráðsmaður hvarf Kristján Pétursson segir frá njósnum og gagnnjósnum í bók sinni KRISTJÁN Pétursson, fyrrver- andi yfirmaður tollgæzlunnar og útlendingaeftirlitsins á Kefla- víkurflugvelli, fjallar m.a. um njósnir í bók sinni „Margir vildu hann feigan“. I einum kafla, sem nefnist „Sendiráðið", segir hann m.a. að tugir rússneskra sendi- ráðsmanna hafi virzt tengjast leyniþjónustu KGB. Kristján skýrir m.a. frá grun- semdum um, að rússneska sendi- ráðið hafi flutt inn ólöglegar vöru- sendingar í svonefndum „dipló- matapósti", oft ótrúlegt magn. I þeirri frásögn kemur fram, að Kristján hafi vingazt við einn starfsmann sendiráðsins, sem oft þurfti að fara suður á flugvöll til að taka á móti sendiboðum, sem komu með sendiráðspóstinum. í frásögn Kristjáns segir m.a.: Nafnlaust lík „Einn starfsmaður sendiráðsins, - ættaður frá Lettlandi, var þó opin- skár og vingjarnlegur og tefldum við stundum nokkrar skákir. Fyrir kom' að hann heimsótti mig í Reykjavík og hafði þá gjarnan með sér vodkaflösku sem við drukkum saman. Ég veitti því fljótlega at- hygli að í hvert sinn sem hann kom sá ég bifreið frá rússneska sendi- ráðinu í húsasundi skammt frá. Ég vakti athygli Lettans á þessu en hann lét sér fátt um finnast, hafði þó á orði að þeim væri annt um velferð sína. Eftir því sem kynni okkar urðu meiri varð hann opinskárri um einkahagi sína og smám saman varð mér ljóst að hann hafði í hyggju að flýja héðan og reyna að komast til Bandaríkjanna, þótt Kristján Pétursson hann segði ekki svo berum orðum. Liðu svo nokkrar vikur, Lettinn var hættur að heimsækja mig. Ég spurðist fyrir um hann í sendiráð- inu og fékk þau svör að hann væri farinn til Moskvu vegna veikinda fjölskyldu sinnar. Ekki voru þessar upplýsingar sannfærandi þar sem hann hafði greint mér frá því að hann væri ókvæntur og ætti aðeins móður á lífi. Satt best að segja kom þetta mér ekki á óvart því síðast þegar hann heimsótti mig lét hann þess getið að KBG-mennirnir í sendiráðinu væru sísnuðrandi kringum sig, þeir treystu engum nema félögum sínum í Moskvu- klíkunni. Ég saknaði þessa manns af ástæðum sem ekki verða tilgreind- ar hér en það sem síðar vakti óhug minn og efasemdir um afdrif hans var að um svipað leyti var á vegum sendiráðsins sent lík með flugi til Moskvu. Hiim látni var ekki nafn- greindur. Ég kannaði brottfarir rússneskra sendiráðsmanna á þessu tímabili en þar var nafn Lett- ans hvergi að finna. Itrekað spurði ég blaðafulltrúa sendiráðsins hvert hann hefði farið þar sem ég vildi gjarnan skrifa honum en svarið var ætíð hið sama. „Hann.fór heim til sín.“ Ég spurði sama aðila af hveiju hann hefði ekki verið bókaður úr landi og skilað tilskildu korti til vegabréfaskoðunar við brottför. Svarið var stutt og einfalt. „Það hljóta að hafa orðið einhver mistök í þeim efnurn." Þetta er miskunnarlaus heimur þar sem mörg myrkraverkin eru unnin í leynum.“ Gagnnjósnir í kaflanum um „Sendiráðið" seg- ir Kristján frá ýmsum öðrum atvik- um, m.a. þegar hann í samráði við bandarísku leyniþjónustuna reyndi fyrir sér sem gagnnjósnari. Kristján átti fund með Rússa nokkrum, sem hér var gestkomandi og reyndist síðar einn af æðstu mönnum KGB á Norðurlöndum. Að sögn Kristjáns vildi Rússinn fá hann til starfa fyrir sig og virt- ist megintilgangur hans að njóta aðstoðar Kristjáns við að koma mönnum á vegum KGB inn og út úr landinu, framhjá útlendingaeft- irlitinu, án þess að þeir væru nokk- urs staðar á skrá. Að sögn KGB- foringjans var það auðleyst mál, að láta nöfn viðkomandi manna hverfa úr bókunarkerfi og farþega- skrám flugfélaganna, ef nöfn þeirra hyrfu úr gögnum útlend- ingaeftirlitsins. MARTROÐ Á MIÐNÆTTI eftir Sidney Sheldon Sidney Sheldon, sem er mest lesni skáldsagnahöfundur í Bandaríkjun- um, sendir nú frá sér nýja skáld- sögu og tekur upp þráðinn um BOKflFORLflGSBOKJ lc*Bn<tenum rtri 00 tti Kirkjudagnr Seljakirkju ÁRLEGUR kirkjudagur Selja- kirkju verður haldinn sunnudag- inn 9. desember. Þá er einnig aðventukvöld safnaðarins. Dag- skrá kirkjudagsins hefst með barnaguðsþjónustu kl. 11.00 og kl. 14.00 er guðsþjónusta í kirkj- unni. Aðventukvöldið hefst kl. 20.30. Þá verður fjölbreytt dagskrá til þess' ætluð að þátttakendur geti undirbúið jólahátíðina eins og ber. Kirkjukór Seljakirkju mun flytja aðventulög undir stjórn organista kirkjunnar, Kjartans Sigurjónsson- ar. Einnig mun kór Ölduselsskólans syngja aðventulög undir stjórn Margrétar Danheim. Félagar úr Æskulýðsfélagi kirkjunnar flytja helgileik í umsjá sr. Irmu Sjafnar Óskarsdóttur, sem einnig flytur hugvekju. Jón S. Gunnarsson les’ sögu og aðventuljósin verða tendruð af kirkjugestum öllum. Að loknu aðventukvöldinu bera konur úr Kvenfélagi Seljakirkju fram veitingar í safnaðarsalnum. íbúar Seljahverfis og aðrir eru hvattir til að koma til þátttöku í kirkjudeginum. (Fréttatilkynning)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.