Morgunblaðið - 08.12.1990, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990
JM---I-I-M|----|---L
NÝTTs
★ Tilbúnir
★ gamaldags
★ trérammar
r
f • Alhliða
• innrömmun
s - r
PLAGGATA-
SÝNING
laugardaga írá
kl. 10-17 .
sunnudaga frá
kl. 13-17
_________!______r
OPID LAUGARDAGA
OG SUNNUDAGA
FRAM TIL JÓLA
RAMMA____________
MIÐSTOÐIN SIGTÚNI 10-SÍMI 25054
Bók um Stöð 2 eftir
Jón Óttar Ragnarsson
IÐUNN hefur sent frá sér bók
Jóns Óttars Ragnarssonar, fyrr-
-um sjónvarpstjóra, A bak við
ævintýrið.
í kynningu útgefanda segir að í
bókinni greini hann „frá því ævin-
týri sem stofnun og uppbygging
Stöðvar 2 var og lýsir fólkinu sem
gerði þetta ævintýri að veruleika,
auk þess sem hann segir frá því
sem gerðist á bak við tjöldin. Hann
ségir frá glyshátíðum og skemmti-
ferðum, frá árekstrum og umtali,
frá sögulegum heimsóknum er-
lendra stórlaxa og frá stórkostleg-
um skýjaborgum og bláköldum
veruleika.
Á bak við ævintýrið er sagan af
stórbrotnasta viðskiptaævintýri
sem þekkst hefur í íslensku samfé-
lagi, mögnuðu og flóknu samspili
sem átti sér margar og óvæntar
hliðar. Við þá sögu hafa margir
komið, sumir úr margslungnum
heimi íslenskra fjármála, aðrir af
sviði stjórnmálanna, enn aðrir jafn-
vel heimskunnir menn. Jón Ottar
segir hér frá stofnun, uppbyggingu
og lífróðri Stöðvar 2, en ekki síst
Jón Óttar Ragnarsson
frá lífi fólksins á bak við ævintýrið,
ástum þess og örlögum.“
Bókin er prentuð í Odda hf.
■ SKJALDBORG hefur gefið út
fjölfræðibókina um Spádóma og
spásagnalist. í kynningu útgef-
anda segir m.a.: „Upphafskaflinn
segir frá lífí og spádómum nokk-
urra þeirra sem skarað hafa fram
úr á þessu sviði. Á eftir þessum
inngangskafla koma níu kaflar sem
hver um sig ljallar um sérstakar
aðferðir til að spá um ókomna at-
burði; tarotspil, kínverska og vest-
ræna stjörnuspeki, talnaspeki, spár
með venjulegum spilum, lófalestur,
skyggningu, rúnir og ai-Ching. I
lokakafla þessarar bókar er drepið
á aðrar minna þekktar spásagnaað-
ferðir. Rýnt hefur verið í hina miklu
listrænu erfðaauðlegð spásagnalist-
arinnar og hún notuð til skýringar
hverjum kafla. Einnig eru teikning-
ar og uppdrættir óspart notaðir til
að sýna fjölbreytni einfaldra spá-
sagnaaðferða með spilum, tening-
um, dóminó, prjónum og teíaufi o.fl.
Francis X. King er víðkunnur sem
einn fremsti rithöfundur heimsins á
sviði dulspeki, óhefðbundinna lækn-
inga og sögu minnihlutahreyfinga."
í Minningabók Vigdísar Grímsdóttur niðar hafið.
Öldumar hníga jafhskjótt og þær rísa, en í sérhverri
lýsir skamma stund minning firá genginni tíð.
Lesandinn skynjar veröld sem var, með yfirbragð
trega því að hún kemur aldrei aftur. En um leið er
hún lifandi og hlý, ekki að fúllu farin, heldur nálæg,
önnur og ný í þeirri veröld sem er og verður.
Vigdís Grímsdóttir hefúr þegar skipað sér sess meðal
fremstu höfunda okkar með smásögum sínum,
skáldsögum og ljóðum.
Vigdís Grímsdóttir
VANDAÐAR BÆKTJR