Morgunblaðið - 08.12.1990, Blaðsíða 45
MÖRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990
45
■ SKJALDBORG hefur gefið út
bókina Konu hjarta eftir Mayu
Angelou sem er fjórða bindi sjálfs-
ævisögu hennar. I bókinni segir frá
þegar að Maya flytur frá Kaliforníu
°g byijar nýtt líf I New York, þar
sem hún tengist samtökum svartra
rithöfunda og listamanna í Harlem.
Hún tekur sífellt virkari þátt í rétt-
indabaráttu blökkumanna og star-
far um hríð sem skipulagsstjóri fyr-
ir baráttu Martins Luther King í
New York og umhverfis. Einkalíf
hennar er jafn litskrúðugt og við-
burðaríkt og áður; hún giftist Vus-
umzi Make, suðurafrískum frelsis-
baráttumanni, eftir næsta æsilegt
tilhugalíf, þau flytjast til Egypta-
lands þar sem sambúðin fer út um
þúfur en starf hennar þlómstrar,
því hún gerist aðstoðarritstjóri viku-
ritsins Arab Observer og gegnir því
starfi þangað til hún hrökklast burt
úr Eygptalandi vegna þjóðernis síns
og verður þar Kúbudeilan milli
Kennedys forseta Bandaríkjanna
og Krúséffs Sovétleiðtoga að
nokkru orsök. Þaðan liggur leið
Mayu til Vestur-Afríku og bókin
endar þar sem sonur hennar, Guy,
hefur innritast í Ghanaháskóla en
hún sjálf hefur fengið starf sem
háskólaritari.
■ ÚT ER komin bókin Útlend
orð í ensku og nokkur viðheiti
sem Haraldur Jóhannsson hefur
tekið saman. Þorri orða í bókinni
hefur verið sóttur í A Dictionary
of Foreign Words and PhráseS in
Current English eftir A.J. Bliss sem
út kom í London 1968. í inngangi
bókarinnar er vikið að uppruna og
aldri tökuorða í enskri tungu og
segir þar meðal annars um ástæður
þess að útlend orð hafi fest rætur
í ensku: „Vöntun þykir á enskum
orðum sem til fulls koma í þeirra
stað; vel fer á útlendum orðum og
orðasamböndum við ýmis tækifæri;
breskir hermenn hafa borið útlend
orð heim með sér; fyrir siðsemi
sakir eru útlend orð stundum höfð
sem hálfkveðnar vísur; málhefð
varir í guðfræði, lögfræði og mál-
fræði; nýmæli í félagsmálum, bók-
menntum og listum bera með sér
ný orð svo og tæknilegar og vísinda-
legar nýjungar; hljóman og rithátt-
ur útlendra orða bregður upp svip-
móti framandi staða og liðinna tíma
og loks stílbrögð.“ Orðakveri þessu
er ætlað að vera handbók nemenda
og uppsláttarbók fyrir almenning.
Kverið er 90 blaðsíður og unnið í
Isafoldarprentsmiðju hif. ísafold
annast dreifíngu bókarinnar.
■ SKJALDBORG hefur gefið út
bókina Sögur úr sveitinni. Þetta
eru smásögur skrifaðar sérstaklega
fyrir byijendur í lestri. Teikningar
eru eftir Stephen Cartwright.
Sögurnar heita: Grísinn sem fest-
ist, Oþekkta kindin, Hlöðubruni
og Traktorinn sem stakk af.
■ SKJALDBORG hefur gefíð út
bókina Ófrísk - af hans völdum.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Þessi bók fjallar um Gumma sext-
án ára strák með hljómsveitardellu
á háu stigi. Þegar svarnættið eitt
er framundan kynnist hann Eddu,
ljóshærðri fegurðardís, og kemst
að sem gítarleikari í alvöru hljóm-
sveit. Og upp frá. því fara hlutirnir
að gerast.“ Bókin er fyrsta ungl-
ingabók hins þrítuga Bjarna Dags-
sonar en það er dulnefni höfundar.
■ SKJALDBORG hefur gefið út
tvær matreiðslubækur í flokknum
Bókasafn eldhússins. Bækurnar
eru eftir Mary Reynolds og heita
Itölsk matargerð og Kínversk
matargerð. í kynningu útgefanda
segir: „Mary Reynolds er þaulreynd
í því að skrifa martreiðslubækur.
Hún er matreiðslukennari að mennt
og hefur lokið námi frá Coraon
Bleu skólanum í París. Mary vinnur
nú við það að skrifa greinar um
matreiðslu í ýmis blöð og tímarit.
Hún er sérfræðingur í ítalskri mat-
argerð og hefur skrifað eigi minna
er fjórar bækur um hana.
CBÓKflFORLflGSBÓK
DEPILL GISTIR
EINA NÓTT
eftir Eric Hill
Ný barnabók um Depil, sem nú fær
að gista eina nótt hjá Stebba vini
sínum.
Eins og fyrri bækurnar um Depil, er
þessi bók tilvalin fyrir börn sem
byrjuð eru að lesa og ekki síður fyr-
ir foreldra til að lesa fyrir börnin.
Hvar er Depill? > 4. Depill fer á - flakk
Kric Hill Eric llill
Litla systir
j Depils
\ Eric ifill
I
i .vl
Umboösmenn um land allt.
ORMSSON HF
Lágmúla 8. Sími 38820
Ger&u matseldina fjölbreyttari!
Eldunartœkin frá Tefal bjóða upp á skemmtilega tilbreytingu í matseld. Þú tilreiðir
fínustu krásir á borðgrilli, í mínútugrilli eða djúpsteikingarpotti, með lítilli
fyrirhöfn. Tefal eldunartækin eru líkaþeim kostum gædd að vera örugg
og auðveld í þrifum. Taktu á þig rögg í eldamennskunni,
það verður einfalt með tækjunum frá Tefal!
rK