Morgunblaðið - 08.12.1990, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.12.1990, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990 Morgunblaðið/KGA Skrifað undir samninga um kaup Sæbergs á hlutabréfum í Hraðfrystihúsi Olafsfjarðar hf., f.v.: Lárus Jónsson og Ólafur Nilsson fulltrúar kaupenda og Guðmundur Malmquist og Friðþjófur Karls- son fulltrúar Hlutafjársjóðs Byggðastofnunar. Hraðfrystihús Ólafsfjarðar: Gengið frá kaupum Sæbergs á hlutabréfum Hlutafjársjóðs GENGIÐ hefur verið frá kaup- um Sæbergs hf. á Ólafsfirði á hlutabréfum Hlutafjársjóðs Byggðastofnunar í Hraðfrysti- húsi Ólafsfjarðar hf. Skrifað var undir samningana í gær. Kaupverðið var 29 milljónir króna og hefur það verið greitt, segir í fréttatilkynningn frá Hlutafjársjóðnum. Nafnverð hlutabréfanna var 96 milljónir kr., sem er 49% af hlut- afé félagsins. Jafnframt kaupun- um var gert samkomulag um að Sæberg hf. auki hlutafé í Hrað- frystihúsi Ólafsfjarðar um 50 milljónir kr. á næstu tveimur árum. Sæberg hf. gerir út togarana Mánaberg og Sólberg. Hraðfrysti- húsið er aðaleigandi Útgerðarfé- lags Ólafsfjarðar hf. sem gerir út togarann Ólaf Bekk. Ennfrem- ur á HÓ frystihús, rækjuverk- smiðju og mjölverksmiðju. Með þessari sölu telur stjórn Hlutafjár- sjóðs að lagður sé grundvöllur að aukinni hagræðingu í sjávarút- vegi á Ólafsfirði. Trésmiðafélag Akureyrar: SS-Byggir fær viður- kenningu fyrir góða að- stöðu fyrir starfsmenn TRESMIÐAFÉ- lag Akureyrar hefur veitt byggingafyrir- tækinu SS- Byggi viður- kenningu fyrir góða aðstöðu fyrir starfs- menn. Fyrir- tækið hefur síðustu mánuði byggt átta hæða fjölbýlishús við Tröllagil, en starfsmenn þess hafa aðstöðu í stóru og vist- legu eininga- húsi skammt frá. Morgunblaðið/Rúnar Þór Guðmundur Ómar Guðmundsson formaður Tré- smiðafélags Akureyrar afhenti þeim Sigurði Sig- urðssyni og Heimi Jóhannssyni frá SS-Byggi viður- kenningu félagsins fyrir góða vinnuaðstöðu á byggingastað við Tröllagil í fyrradag. Þetta er í fyrsta sinn sem félagið veitir slíka viðurkenningu. Viðurkenningin sem SS-Byggi var veitt er sú fyrsta sem félagið afhend- ir og sagði Guðmundur Omar Guð- mundsson formaður Trésmiðafélags Akureyrar að hún markaði ákveðin tímamót í sögu félagsins. Er hann veitti viðurkenninguna ræddi hann nokkuð um vinnuumhverfi og nefndi m.a. að ef litið væri 25 ár aftur í tímann hafi salerni, kaffistofur, handlaugar og aðstaða til að þurrka blaut föt ekki tíðkast á bygginga- vinnustöðum. Ymislegt hefði verið Umboðsmaður Alþingis skrifar samgönguráðherra: Oskar upplýsinga uin heimild skiptaráðanda til að opna póst gert á liðnum árum til að bæta ástandið, m.a. með fræðslu og áróðri. „Hver sættir sig við það í dag að fara út undir vegg^iil að pissa eins og menn gerðú fyrr á öldum, eða aka í annan bæjarhluta til að kom- ast á á salemi. Þetta er því miður það sem margir byggingamenn búa við í dag,“ sagði Guðmundur Ómar. Hann sagði félagið nú vera að reyna nýjar leiðir með því að veita viður- kenningu og vonast væri til að það mætti vekja þá sem enn svæfu þyrni- rósarsvefni. Sigurður Sigurðsson einn eigenda SS-Byggis sagði er hann tók við við- urkenningarskjalinu að fyrirtækið kappkostaði að búa vel að starfs- mönnum sínum. Fólk sem ynni úti þyrfti ekki síður en aðrir að hafa góða aðstöðu á vinnustað. „Þetta er kærkomin viðurkenning, við erum stoltir af því að taka við henni og munum kappkosta að bæta úr starfs- mannaaðstöðu okkar eftir föngum," sagði Sigurður. UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur ritaði samgönguráðherra, Steingrími J. Sigfússyni, bréf þar sem hann óskar eftir því að ráðuneyti hans skýri afstöðu sína varðandi það, við hvaða heimild í póstlögum reglu- gerð um póstþjónustu sem sett var í mars á þessu ári, styðjist. Þá hefur hann einnig óskað eftir að ráðuneyti láti í té upplýsingar um hvernig háttað hefur verið framkvæmd þessa reglugerðarákvæðis af hálfu póstafgreiðslna. Forsaga málsins er sú, að Asvaldur Friðriksson á Akureyri kvartaði við umboðsmann yfir því að Póst- og símamála- stofnunin á Akureyri hafi að beiðni skiptaráðandans á Akureyri, í tilefni af gjaldþrotaskiptameðferð á búi Ásvaldar, afhent sjciptaráð- anda bréf og annan póst merktan honum. Ásvaldur F'riðriksson sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að hann hefði gefið ítarlega skýrslu um fjárhag sinn hjá bæjarfógetanum á Akur- eyri, eftir að fyrirtæki hans varð gjaldþrota snemma á þessu ári, „taldi meira að segja upp 18 króna TISSOT GÆÐIOG GLÆSILEIKI inneign í sparisjqði," sagði Asvaldur „samt sem áður er gramsað í póstin- um mínum, þó svo ég teldi mig hafa gert grein fyrir því að ég ætti ekk- S. 96-25400 Þar sem jólagjafirnar fást Lesum og bros- um í Sam- komuhúsinu SVAVAR Gestsson, mennta- málráðherra, flytur ávarp við upphaf bókmenntadag- skrárinnar Lesum og bros- um sem hefst í Samkomu- húsinu á Akureyri kl. 10 í dag, laugardag. Efnt er til þessarar dagskrár i tilefni af ári læsis. Fyrir hádegi verðá fluttir fyrirlestrar um ýmislegt er lýt- ur að efninu, m.a. málþroska og undirbúning lestrarkennslu, en eftir hádegi stilla börn úr leik- og grunnskólum bæjarins og leikarar saman strengi sína og lesa upp, en á milli verður boðið upp á tónlistaratriði. Þá sýna nemendur Myndlistar- skólans verk sín í húsinu, en dagskráin stendur yíir fram til kl. 16. ert útistandandi og því ekki eftir neinu að slægjast.“ Ásvaldur telur að öll bréf er hon- um bárust á sex mánaða tímabili hafi borist embætti bæjarfógeta á Akureyri og verið opnuð þar. Bréf sem send voru út frá bæjarfógeta- embættinu voru endursend því aftur og segir Ásvaldur að til að bréf fóg- eta kæmust til skila hafi þau verið sett í stórt umslag og merkt föður hans. Hann hafi hins vegar á þessum tíma starfað í Reykjavík og verið á sjó þannig að langur tími hafi á stundum liðið þar til honum barst póstur sinn. Ásvaldur fékk í gær bréf frá umboðsmanni Alþingis þar.sem fram kemur að kvörtun hans á hendur skiptaráðanda á Akureyri lúti að meðferð hans á gjaldþrotamáli, sem hann fari með sem dómari, ákvarð- anir hans teljist til dómsathafna og falli því utan starfssviðs umboðs- manns. Hins vegar hefur umboðs- maður ritað samgönguráðherra bréf og farið fram á að útskýrt verði við hvaða lög reglugerð frá því í mars á þessu ári styðjist, en skiptaráðandi hafi vísað í umrædda reglugerð. I umræddri reglugerð segir m.a. að hafi maður orðið gjaldþrota og bú hans tekið til skiptameðferðar, megi afhenda skiptaráðendum, að þeirra beiðni, allar lokaðar bréfa- og bögglasendingar til hans, svo og póst- og póstkröfuávísanir, nema almenn bréf sem árituð eru „einka- bréf“ eða á annan hátt bera það með sér að vera einkabréf. Ásvaldur segist líta svo á að öll bréf sem honum berist séu einkabréf, ekki tíðkist hér á landi að rita sérstaklega utan á bréf að um sé að ræða einka- bréf og því setji hann spurninga- merki við þessa grein í reglugerðinni. Á góðum bata- vegi eftir umferðarslys BERGÞÓR Ásgrímsson, ungi mað- urinn sem lenti í umferðarslys í Eyjafjarðarsveit aðfaranótt sunnudags, er á góðum batavegi. Fram kom í frétt Morgunblaðsins fyrr í vikunni að hann hefði lamast vinstra megin eftir umferðarslysið, en hann er nú óðum að endurheimta máttinn að nýju og hefur sýnt ótrú- legar framfarir, áð sögn lækna. Hundur Bergþórs, Alex, þykir hafa sýnt mikla greind er hann hljóp heim að bæ í sveitinni eftir slysið og sótti hjálp. Viðbrögð hundsins telja menn að rekja megi til góðrar þjálfunar hans. Dalvík: Útsvarsálagning verður 7,5% Fulltrúar minnihlutans vildu 7,1% álagningu Á SÍÐASTA fundi bæjarstjórnar DaJVíkur var samþykkt að útsvarsá- lagning skyldi verðá 7,5% á næsta ári. Þetta var samþykkt með 4 atkvæðum meirihlutans, en fulltrúar minnihlutans greiddur atkvæði á móti. Með þessu móti helst útsvars- álagning óbreytt á milli ára. Kom fram hjá fulltrúum meirihlutans að þeir töldu ekki forsendur fyrir lækk- un útsvarstekna bæjarins að þessu sinni, þar sem bærinn stæði í fjár- frekum framkvæmdum sem þyrfti að Ijúka á næstu árum. Fram kom í máli bæjarfulltrúa óánægja með eftiráinnheimtu útsvars. Sú regla hefur verið viðhöfð við staðgreiðslu útsvars hjá sveitarfélögum, en hún nam á þessu ári 6,94%. Það hlut- fall er notað í staðgreiðsluna en við uppgjör er þá ógreiddur hluti út- svars í þeim sveitarfélögum sem hafa ákveðið álagningarstuðulinn hærri. Mismunurinn kemur því til greiðslu eftir á og hafa margir út- svarsgreiðendur lýst yfir óánægju sinni með þetta. Til að draga út eftirálagningu útsvars vildu fulltrúar minnihlutans að útsvarsálagningin yrði 7,1% en til að mæti tekjutapi tæki bærinn upp holræsagjald og að endurskoð- aðar yrðu reglur um álagningu að- stöðugjalda á fyrirtæki. Holræsa- gjald hefur ekki verið innheimt á Dalvík en mörg sveitarfélög hafa nýtt sér þann skattstofn. Fréttaritari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.