Morgunblaðið - 16.12.1990, Page 5

Morgunblaðið - 16.12.1990, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1990 • igiHa T /I3JH3 STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR Steinunn Sigurðardóttir hefur á undanförnum árum unnið marga sigra með ritverkum sínum, sögum og ljóðum og hlotið fyrir þau mikið lof. Síðasta orðið er viðamikið og frumlegt skáldverk þar sem hún leikur sér listilega að máli og stíl eins og henni einni er lagið. IÐUNN Að landlæknisdótturinni glæsilegu, Öldu Ivarsen, standa sterkir stofnar valmenna og kvenskörunga. Hér stfga ættmenni hennar ffam á sjónarsviðið, eitt af öðru, séð með augum samferðarmanna sinna. Þetta er mikill ættbogi, „þrútinn af lítillæti, manngæsku og stórhug,“ en byrgir bresti sína og leyndarmál bak við luktar dyr. í þessari margslungnu og áleitnu skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur er saga þessa fólks sögð í eftirmælum, greinum og sendibréfum héðan og að handan. Öll er sú saga ofin ísmeygilegri kímni, nöpru háði og einlægri samúð. Og eins og oft gerist í eftirmælum segir það sem ósagt er látið einatt hálfa söguna. ♦ VANDAÐAR BÆKUR í 45 Á R ♦ GARÐAR SVERRISSON Mynd af einum mesta listamanni sem íslenska þjóðin hefur eignast; jámsmiðnum frá Akureyri sem fómar öllu fyrir óvissa framtíð í hörðum heimi óperunnar þar sem honum tekst með fágætum viljastyrk að komast í fremstu röð í heiminum. Maðurinn, listamaðurinn og eldhuginn er viðfangsefni þessarar tæpitungulausu frásagnar. Kristján rekur hér af einstakri hreinskilni og hispursleysi æsku sína og uppvöxt, segir frá vonbrigðum sínum og glæstum sigrum á sviði og utan, frá ástríðu og sorgum, ljóma sviðsljósanna og skugga öfundar og umtals. IÐUNN Garðar Sverrisson vakti mikla athygli fyrir metsölubókina „Býr Islendingur hér“ en saga hans um Kristján jóhannsson er grípandi og feikilega vel skrifuð. VANDAÐAR BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.