Morgunblaðið - 16.12.1990, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR/INNLENT
MORGÚNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16,'DESEÍVTÉER 1990
Tegnndir sem taldar voru
„drasl“ orðnar rándýrar
„FISKTEGUNDIR, sem kallaðar voru drasl, eru orðnar rándýrar
núna, enda herramannsmatur,“ segir Helgi Kristjánsson útgerðar-
stjóri Sjólastöðvarinnar í Hafnarfirði um gulllaxveiðar togarans
Vestmannaeyjar VE, sem er í eigu Bergs-Hugins sf. I Vestmannaeyj-
um. Helgi segir að hugsanlegt sé að frystitogarar Sjólastöðvarinn-
ar, Sjóli HF og Haraldur Krisljánsson HF, fari aftur á gulllaxveið-
ar ef þær gangi vel hjá Vestmannaey VE.
bæjarbúa síðastliðin þijú ár. Hver
bátur getur veitt 17 tonn af háfi á
viku og 40-70 krónur fást fyrir
kílóið. Háfurinn þykir mikið lostæti
í Frakklandi og Ítalíu og víðar í
Suður-Evrópu en vegna hárra tolla
Evrópubandalagsins á unnum sjáv-
arafurðum er hann fluttur ísaður
í kössum til Danmerkur og Þýska-
lands, þar sem hann er flakaður
og tilreiddur fyrir markaðinn.
Helgi Kristjánsson hjá Sjólastöð-
inni segir að gulllax verði aldrei
veiddur að neinu marki nema tog-
arar, sem séu á karfaveiðum á
gulllaxslóðum, fái að hafa smárið-
inn poka um borð fyrir gulllaxveið-
ar.
„Við vitum að það er oft fullt
af gulllaxi á slóðinni, þar sem ver-
ið er að veiða karfa. Hins vegar er
í gildi gömul reglugerð, sem segir
að um borð í togurunum megi ekki
vera net með riðli, sem er smærri
en 135 millimetrar og þessu þarf
að breyta. Menn þurfa að hafa
poka með 70 millimetra riðli til að
gulllaxinn haldist í botnvörpunni
en á karfaveiðum er notaður 135
millimetra riðill, þannig að menn
verða að hafa poka um borð og
skella honum undir, þegar gulllax
er á slóðinni. Það hefur ekki feng-
ist nema í ákveðnum tilraunatúrum
og þá er ef til vill enginn gulllax
á slóðinni," segir Helgi.
„Gulllaxinn er bara eins og aðrar
fisktegundir, sem gefa sig til á
ákveðnum tímum. Þama hefur ver-
ið ríkjandi sú hræðsla að menn
misnoti smáriðna poka ef þeir eru
með þá um borð en gulllaxinn veið-
ist langt fyrir neðan 200 faðma og
þar er ekki um neinn smáfisk eða
seiði að ræða. Hins vegar veiðist
oft stór karfi með gulllaxinum og
Sjóli og Haraldur Kristjánsson
veiddu gulllax frá Vest
mannaeyjum að Skerjadýpi árið
1988. Sjóli fékk þá rúm 100 tonn
af gulllaxi í tveim veiðiferðum en
Haraldur Kristjánsson var bara 8
daga á þessum veiðum rétt fyrir
jólin 1988,“ segir Helgi Kristjáns-
son.
Vestmannaey VE fór á gulllax-
veiðar síðdegis á sunnudag og hafði
um hádegisbilið á föstudag veitt
um 35 tonn af gulllaxi, 26 tonn
af karfa, 3 tonn af blálöngu og 1,5
tonn af langhala. Aflinn fékkst á
340-440 faðma dýpi um 25 sjómíl-
ur suður af Vestmannaeyjum að
Grindavíkurdýpi. „Það er ekki að
marka þennan afla, því það var
vitlaust veður fyrri hluta veiðiferð-
arinnar," segir Birgir Þór Sverris-
son skipstjóri á Vestmannaey VE.
„Vestmannaey er á sóknarmarki
og er búin með sóknarmarksdaga
sína,“ segir Birgir. „Það er verið
að athuga hvort ekki finnist mark-
aðir fyrir vannýttar tegundir, eins
og gulllax og kvótaleysið sendir
mann út. í svona veiðar. Við heil-
frystum gulllaxinn en þetta eru
bara tilraunaveiðar og sjávarút-
vegsráðuneytið leyfði okkur að
skoða þetta í átta daga. Sölumið-
stöðin selur gulllaxinn fyrir okkur
en Danir og Japanir hafa sýnt
áhuga á að kaupa hann.“
Birgir segir að einnig hafi veiðst
smávegis af geirnyt, eða rottu-
fiski, í þessari veiðiferð en hægt
sé að selja hann hausaðan til Jap-
ans fyrir 110-120 krónur kílóið.
„Við höfum einnig fengið dálítið
af svartháfí en ekki hirt hann,“
segir Birgir.
I bænum Rörvik í Norður-Noregi
hefur háfurinn staðið undir afkomu
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Togarinn Vestmannaey VE hefur verið á gulllaxveiðum við Suður-
land undanfarna daga.
ef menn eru með karfakvóta dregst
þessi karfi auðvitað frá kvótanum,"
segir Helgi Kristjánsson.
Reynt að koma vannýtt-
um fisktegundum í verð
Einar Þór Bjamason, forstöðu-
maður Aflakaupabankans, segir að
með minnkandi aflakvótum reyni
menn nú frekar en áður að koma
þeim físktegundum í verð, sem
ekki hafi verið veiddar hér að neinu
marki og Aflakaupabankinn hafi
boðið frystitogurunum að kaupa
af þeim þær tegundir, sem þeir
geti ekki selt sjálfir.
„Þar hefur mest borið á tinda-
bikkju, gulllaxi, langhala, skráp-
flúru og öfugkjöftu og eitthvað
hefur borist af háfí. Við höfum
verið að leita markaða fyrir þessar
tegundir og þær hafa ýmist verið
seldar hálfunnar eða fullunnar éft-
ir óskum kaupendanna. Sumir vilja
fá gulllaxinn heilfrystan en aðrir
gulllaxmarning, sem er nánast full-
unnin vara og hann hefur verið
seldur þannig hér innanlands.
Einnig virðist vera markaður fyrir
gulllaxmarning í Danmörku,. Nor-
egi og Þýskalandi," segir Einar
Þór.
Hann upplýsir að marningur úr
gulllaxi hafí betri bindieiginleika
en til dæmis þorskmarningur og
þyki því eitt af bestu hráefnunum,
sem notuð séu í unnar sjávarafurð-
ir, til dæmis fískstauta og fiskborg-
ara.
„Af þessum vannýttu tegundum
hefur hins vegar mest verið selt
af tindabikkjunni en hún hefur
verið seld fullunnin til Frakklands,
Belgíu og Svíþjóðar. Vérið er að
skoða sölumöguleika á langhala,
bæði í Asíu og Evrópu en Austur-
Þjóðverjar og Rússar veiddu tölu-
vert magn af honum í Norður-Atl-
antshafi fyrir 20-30 árum. Nú í
haust sóttust Frakkar eftir því að
■ fá að veiða langhala í okkar lög-
sögu, þannig að ég held að hægt
sé að selja þennan fisk í Frakkl-
andi.“
Einar Þór segir að íslenskir út-
gerðarmenn hafi séð arðsemi í kol-
munnaveiðum áður en þeir fóru að
veiða úthafsrækju. Eldborg frá
Hafnarfirði hafí til dæmis veitt
40-50 tonn af kolmunna á sólar-
hring árið 1982 og þær veiðar hafi
borgað sig. Eidborg heitir nú
Hólmaborg SU og Hraðfrystihús
Eskifjarðar gerir skipið út á loðnu-
og rækjuveiðar.
' „Stór færeyskur frystitogari
veiddi kolmunna og gulllax í fyrra,
meðal annars í færeysku lögsög-
unni og þessar tegundir voru flak-
aðar og frystar um borð í togaran-
um. Togarinn veiddi 2.500 tonn af
gulllaxi á 2-3 mánuðum í fyrrasum-
ar og úr aflanum fengust 750-800
tonn af flökum. Þau voru seld í
marning í Þýskalandi og Bretlandi
en um 100 krónur fengust fyrir
kílóið af frystum marningi fyrir
einu ári,“ segir Einar Þór Bjarna-
son.
Bókmenntafélagið byggir íLækjargötu
Hið íslenska bókmenntafélag er að láta reisa nýbyggingu í Lækjargötu
4. Það er byggingafyrirtækið ístak sem sér um verkið. Húsið verður fimm
hæða, á þremur efstu hæðunum verða íbúðir en skrifstofur og verslanir
á fyrstu og annarri hæð hússins. Hið íslenska bókmenntafélag verður þar
til húsa í framtíðinni en það er nú með starfsemi sína í Síðumúla 21.
Meðfylgjandi teikning er af húsinu og á ljósmyndinni sést að vinna við
uppsteypu er þegar hafin en í bakgrunni er bakhlið Hótel Borgar.
Jakob R. Möller
hættir hjá ÍSAL
JAKOB R. Möller starfsmanna-
stjóri ÍSAL hefur látið af störfum
þar og gengið til liðs við elstu
starfandi málflutningsskrifstofu
landsins. _ Jakob verður áfram
ráðgjafi ÍSAL í vinnuréttarmál-
um. Eftirmaður hans hefur ekki
verið ráðinn en ábyrgð á starfs-
'mannamálum verður fyrst um
sinn skipt milli einstakra sljórn-
enda fyrirtækisins.
Jakob R. Möller sagði við Morg-
unblaðið að honum hefði í vor
boðist að gerast félagi í Málflutn-
ingsskrifstofu Guðmundar Péturs-
sonar, Péturs Guðmundarsonar og
Hákonar Árnasonar. „Ég er nýlega
orðinn fimmtugur og búinn að
starfa hjá ÍSAL í 20 ár. Því eru
nú síðustu forvöð að breyta til. Ég
hafði í sjálfu sér ekki í hyggju að
skipta um starf, en ég komst að
þeirri niðurstöðu að möguleiki sem
þessi byðist ekki aftur,“ sagði Jak-
ob.
Jakob hefur lengst af starfsferli
sínum hjá ÍSAL borið ábyrgð á
gerð kjarasamninga sem oft hefur
reynst erfið fyrir fyrirtækið. Þegar
Jakob var spurður hvaða samninga-
lota hefði verið erfiðust, nefndi
hann vinnudeilu árið 1988 þegar
Reykingabann á Ríkisspítölum frá eftir áramót:
Heimilt að veita sjúklingnm undanþágnr
500 starfsmenn rita undir mótmælaskjal
Starfsmönnum og gestum ríkisspítala verður með öllu óheimilt
að reykja í húsnæði Ríkisspítalanna frá 1. janúar. Sjúklingum verð-
ur ekki heimilt að reykja nema með sérstakri undanþágu sem með-
ferðarlæknar viðkomandi lækninga- og hjúkrunarsviðs geta veitt.
Ekki verður gert ráð fyrir sérstakri aðstöðu vegna reykinga sjúkl-
inga, en starfsfólki á viðkomandi deild verður falið að sjá um að
það valdi sem minnstum óþægindum. Ekki ríkir einhugur á ríkissp-
ítölunum um fyrirhugað reykingabann og hafa 500 af 3000 starfs-
mönnum þeirra skrifað undir mótmælaskjal vegna þess.
Eidhætta, slæmt fordæmi og
óþrifnaður eru helstu ástæð
urnar fyrir reykingabanninu, að
sögn Þorsteins Blöndal, yfírlæknis
á sérfræð ings á lyflækningadeild
Landsspítalans.
„Um 20.000 manns leggjast inn
á ríkisspítalana á hveiju ári. Ef
þetta fólk sér að reykingar eru iðk-
aðar á göngum spítalans eins og
ekkert sé þá áiyktar það að þetta
sé ekki svo varasamt eftir allt sam-
an. Þetta snertir líka það að reykur
innanhúss í göngum og almenningi
skapar varasamt vinnuumhverfi. í
Bandaríkjunum hafa komið dæmi
um að fólk sem fengið hefur
lungnakrabbamein, en reykir ekki
sjálft, stefni fyrirtækinu sem það
starfar hjá ef það hefur þar þurft
að þoia nauðreykingar," sagði Þor-
steinn Blöndal í samtali við Morgun-
blaðið.
„Okkur fínnst að þetta reykinga-
bann ætti ekki að vera mikið átaka-
mál gagnvart gestum og starfs-
fólki. Hins vegar geta komið upp
erfið mál með sjúklinga og þá er
þessi undanþágumöguleiki inni,“
sagði Þorsteinn.
Að hans sögn hefur ekki verið
hugsað út í það hver viðurlögin
verði við því að óhlýðnast banninu
en benti á að þrír af hveijum fjórum
reyki ekki og verði því nokkurs
konar eftirlitsaðilar með því að sá
fjórði reyki ekki.
Að sögn Sigurðar Karlssonar,
gæslumanns á geðdeild Landsspít-
alans, er ekki einhugur um fyrir-
hugað reykingabann og um fímm
hundruð manns hafa skrifað undir
mótmæli gegn því.
„Starfsfólkið sem er óánægt með
reykingabannið er ekki að hugsa
um sinn hag heldur sjúklinganna.
Við sjáum ekki að það sé hægt að
neita sjúklingum sem eru á geð-
deildum um að reykja, en margir
þeirra hafa ekki einu sinni leyfi tií
að fara út úr herbergjum sínum,“
sagði Sigurður í samtali við Morg-
unblaðið.
minnstu hafí munað að álverið
hætti rekstri.
„Maður hefur auðvitað tilhneig-
ingu til að gleyma því hvað vinnu-
deilur eru erfiðar þegar þær eru
afstaðnar. Hins vegar hefur orðið
mikil breyting á þessum samskipt-
um á síðustu misserum. Menn vita
nú að ÍSAL er fullgildur aðili á
íslenskum vinnumarkaði og verður
að lúta sömu lögmálum og önnur
fyrirtæki þar, en er ekki eyja á ein-
hveiju innhafí sem losnar við þær
öldur sem leika um fslenskt efna-
hagslíf. Sá hugsunarháttur var
mjög landlægur á árum áður og
gerði þessi samningamál hér oft
mjög erfið, og því er það mjög þýð-
ingarmikill áfangi að þar hefur orð-’
ið breyting á,“ sagði Jakob R. Möll-
er.
Kammersveitin:
Ungir einleik-
arar spila bar-
okktónlist á
jólatónleikum
KAMMERSVEIT Reykjavík
heldur jólatónleika sína í dag,
sunnudag, klukkan 17 í Ás-
kirkju í Reykjavík. Fimm ungir
einleikarar leika með hljóm-
sveitinni.
Efnisskrá jólatónleika Kammer-
sveitarinnar verða helgaðir
barokktónlist, samkvæmt hefð
hljómsveitarinnar. Leiknir verða
fimm einleikskonsertar og eru ein-
leikarar ungir atvinnumenn, sem
allir hafa nýlega lokið framhalds-
námi erlendis. Þeir eru Áshildur
Haraldsdóttir, flautuleikari,
Bryndís Halla Gylfadóttir, selló-
leikari, Eiríkur Örn Pálsson,
trompetleikari, Guðmundur Krist-
insson, lágfiðluleikari og Sigurður
Þorbergsson, básúnuleikari.
Grafarvogssókn
Barna- og fjölskyldumessan í dag
er kl. 11 en ekki kl. 14 eins og stóð
í blaðinu í gær.