Morgunblaðið - 16.12.1990, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 16.12.1990, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1990 27 atriðum eru allar ár eins, því að lax- inn leitast við að liggja á svipuðum stöðum, þar sem aðstæður eru sam- bærilegar, hvort sem áin er Korpan eða í Kjós, í Aðaldalnum eða Ásun- um. Menn ættu því að einbeita sér að því að kynna sér undirstöðuna, —; ef hún er í lagi, skiptir litlu hver áin| er. ; .1 Hvernig á að renna maðki? Þórarinn Sigþórsson segist alltaf reyna að veiða frá bakkanum og forðast eins og hægt er að vaða út' í ána. Stundum verður ekki komist hjá því, en best er að forðast eins og heitan eldinn að vaða. Maður ætlar jú að veiða fleiri laxa í hylnum en þennan eina sem verið er að renna á. Menn veiða ekkert ef þeir eru vaðandi fram og aftur og sullast um allan hyl. Það er til þess eins fallið að styggja laxana. Best er að reyna að staðsetja sig þannig á bakkanum að hægt sé að renna beint á laxinn og nota strauminn í ánni til þess að flytja beituna hægt og rólega að honum. Ef laxinn er mjög styggur, þarf að fara afar gætilega. Nýgengnir fiskar eru oft afar erfíðir viðfangs. En þá er um að gera að renna mjög gætilega og færa agnið hægt og rólega fram og til baka fyrir framan fiskinn. „Égþverkasta aldrei maðki,“ segir Þórarinn. „Bæði styggir það laxinn og hann tekur miklu betur maðk sem kemur beint framan að honum í hægu rennsli, en þann sem berst framhjá með straumnum. Það er nær að þverkasta flugu, devon eða spún. Lax tekur slíkt agn miklu bet- ur en maðk sem er kastað þvert á hyl.“ Laxirin er mjög á varðbergi þar sem hann liggur. Að honum steðja margar hættur og þannig óttast lax- inn skugga sem falla á vatnið. Reynslan hefur kennt kynslóðunum að þeim stafar hætta af mörgu í ríki náttúrunnar. Þess vegna getur lax styggst fugla sem fljúga yfír, enda þótt að þingeyski laxinn láti æðar- fuglinn og endurnar á Laxá í Aðal- dal sjaldan á sig fá. En mávar og emir eru óvinir sem hann hefur lært að vera á varðbergi gegn. Það er líklega af þessum ástæðum sem laxi er illa við maðk sem sveiflast um í vatninu fyrir ofan hann. Því verður að sakka rétt, því annars getur lax- inn styggst eða jafnvel flúið af hólmi. Hvernig á maðkurinn að berast að fiskinum? Algengustu mistökin sem óvanir veiðimenn gera í maðkaveiði eru þau| að þeir láta maðkinn berast allt ofi hratt að laxinum og hvekkja hann þannig. Magnús Jónasson er -einn þeirra sem hefur í mörg ár kynnt sér mað- kveiði og hegðun laxins gagnvart því agni. Hann segir: „Það sem margir veiðimenn átta sig ekki á er það að maðkurinn verð- ur að koma í réttri hæð að laxinum. Ef maðkurinn kemur of ofarlega, það er að segja hann stendur hærra í vatninu en fískurinn sjálfur, getur laxinn orðið hræddur og styggist oft eða jafnvel flýr. Maðkurinn verður að koma beint framan að fískinum og helst í sömu hæð, en þó maðkur- inn komi örlítið of lágt, styggist físk- urinn yfirleitt ekki eins og þegar beitan kemur of hátt. Þá styggjast iðulega þeir laxar sem maðkurinn veltur framhjá á leið sinni niður hyl- inn, eftir að agninu hefur verið hent út í einhvem veginn. Þegar þverkast- að er á hyl, þá stjómar veiðimaður- inn maðkinum aðeins að mjög litlu leyti. Hann ræður minnstu um það hvert agnið fer. Þessu er öfugt farið þegar beitunni er rennt, þá er miklu auðveldara að stjórna maðkinum og þegar menn hafa náð sæmilegum tökum á aðferðinni er yfirleitt hægt að hafa fullkomna stjóm þar á.“ Hvað varðar hæðina á maðkinum í vatninu, miðað við fiskinn, má bæta því við að kunnur veiðimaður segir að vont sé að beitan berist of hátt í vatninu að fiskinum, ekki bara vegna þess að laxinn hræðist maðk- inn yfírleitt þannig, heldur líka végna hins að laxinn sækir maðkinn síður upp fyrir sig og geri hann það, fest- ist hann yfirleitt verr á önglinum. Hann varar líka við því að kasta maðkinum þvert á veiðistaðinn. En auðvitað em ótal dæmi þes^ að lax- inn taki maðk þegar veiðimaðurinn þverkastar á hyl. Raunar er það ein- ^hver algengasta veiðiaðferðin hér á I landi, um það geta fjölmargir lesend- ! ur þessarar bókar áreiðanlega vitn- að. En megin ástæða þess að laxinn tekur beituna við þær aðstæður er sú, að laxinn er þá í tökuskapi og j hefði tekið hvað sem var. En við erum ekki að miða við slíkar drauma- aðstæður hér. Við gerum ráð fyrir 1 þeim aðstæðum, sem við því miður þekkjum allt of vel, þegar mikið þarf að hafa fyrir hveijum fiski og veiði- maðurinn verður að beita allri sinni kunnáttu og fæmi til þess að beija Jupp hvern og einn físk. Það er við slíkar aðstæður þegar skilur á milli veiðimanns og fiskifælu í laxveiði. I Okkur er nú orðið ljóst að sömu reglur gilda við veiðar með maðki og flugu, í raun eru grundvallaratrið- in hin sömu; fara varlega, láta ekki sjá sig, ekki sullast út í nema nauð- Jsyn krefji, klæðast fötum samlitum umhverfinu og rejma að „lesa vatnið" til að sjá hvar mestar líkumar eru á að fískur liggi undir. Sjónrennsli Menn hafa kallað það „sjón- rennsli" þegar vanir maðkveiðimenn egna þannig fyrir lax sem þeir sjá, að þeir bókstaflega stýra beitunni að kjafti laxins. Orðið „innankjafts- húkk“ hefur oft heyrst notað í sömu andránni og rætt er um sjónrennsli, en einkum hafa þeir notað þetta orð sem reynt hafa þessa veiðiaðferð án þess að ná tökum á henni sjálfír. Auðvitað er ekkert til sem heitir „innankjaftshúkk með sjónrennsli", en þetta orðfæri hefur verið viðhaft meðal sumra stangveiðimanna um nokkurra ára skeið og með því er þess freistað að gefa hugmyndir um það hvemig snjallir maðkveiðimenn veiða. Enginn fiskur tekur agn í kjaftinn ef hann vill ekki taka. Þess vegna er orðið „innankjaftshúkk" í eðli sínu röng orðnotkun, þar sem ekki er um húkk að ræða. En nóg um það. Með orðinu sjónrennsli er átt við það að maðki er rennt að laxi sem veiðimaðurinn sér, en það krefst mikillar æfíngar. Er þá bæði átt við það að sjá laxinn, að renna til hans og meta réttilega það sem augað sér. Þegar laxinn sést, eða veiðimaður- inn veit nákvæmlega hvar hann ligg- ur, er hægt að renna með fullkomnu öryggi að fískinum. Þá verður að sakka nákvæmlega rétt til þess að hægt sé að renna beint að honum. Sannarlega veitir þessi aðferð þeim mikla ánægju sem kann með að fara, enda er þama hægt að sjá nákvæm- lega allt sem gerist undir yfírborð- inu, hvemig straumurinn fer með línu og beitu, viðbrögð fisksins við agninu og loks ef heppnin er með hvernig laxinn verður smám saman argari út í þennan óboðna gest sem hann að lokum ræðst á og gleypir. Snæbjörn Kristjánsson hefur oft orðið vitni að þessu atferli. „Sjón- rennslið veitir mér mikla ánægju og ekki síst vegna þess að hægt er að fylgjast nákvæmlega með því hvern- ig fiskurinn hegðar sér og bregst við. Það er hægt að læra mikið af því að fylgjast vel með öllum við- brögðum og athöfnum laxins,“ segir hann. En hér er gott að staldra við og gæta að, því undir vatnsyfírborðinu er ekki allt sem sýnist. Það er nauð- synlegt að átta sig á því að vegna aðstæðna í vatninu og samspils ljóss og vatns virðast hlutirnir undir vatnsyfírborðinu vera öðravísi en þeir eru í raun og jafnframt raskast fjarlægðaskyn manna. Nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir því að beitan sýnist alltaf vera neðar í vatn- inu en hún raunverulega er og hún getur jafnvel verið eitthvað til hliðar við það sem hún virðist vera. Menn verða að hafa þetta fast í minni: Beitan er nær en hún sýnist og hún getur verið til hliðar við það sem veiðimanninum virðist vera. Straumurinn gerir líka sitt tiLþess að rugla veiðimanninn og dagsljósið speglast í vatninu, að ekki sé talað um sólskinið. Allt er þetta til þess fallið að rugla menn í ríminu og láta aðstæður líta öðru vísi út en þær eru í raun og veru. En af hveiju? Ástæðan er sú að vegna ljósbrotsins í vatninu skynja menn veruleikann aðeins á skjön. Þegar tillit hefur verið tekið til skynvillunnar vegna ljósbrotsins í vatninu er hægt að einbeita sér að því að renna að laxinum. 3 af vinscelustu danshljómsveitum íslands saman á stœrsta kvöldi ársins 31. DESEMBER 1990 Hiísiö opnaö kl. 24. Forsala aögöngamiða befst þriðjuciaginn 1S. desember nk Áögöngúniiöaverð kr. 1.900,- AMurstakmark 1S ára.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.