Morgunblaðið - 16.12.1990, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1990
35
að ég gengi að nýju inní yfirlæknis-
stöðu mína á Vogi. Þetta gekk eft-
ir og í framhakk af því hætti Óttar
störfum hjá SÁÁ. Honum var fyst
boðin staða sem yfirlæknir á Sogni
og við göngudéildina, en hann
hafnaði því og fór. Jon Magnússon
og Ingólfur Margeirsson gengu úr
framkvæmdastjórn.
Þessi átök_ voru um margt
óvenjuleg í SÁÁ. Margir af fyrri
forystumönnum samtakanna voru
mjög vissir í sinni sök og það hvein
í þegar þeir áttust við. En alltaf
höfðu menn í huga að málstaðurinn
og samtökin gengju fyrir öllu.
Flestir sem hafa komið nálægt SÁÁ
hafa gætt þess vandlega að skaða
ekki samtökin. Þegar hér var kom-
ið sögu varð þó brestur á hvað það
snerti, þótt e.t.v. hafi menn ekki
hugsað það mál til enda þegar far-
ið var af stað. Farið var með trún-
aðarskjöl út af fundum og úr bók-
haldi og birt í blöðum, hvað þá
annað. Upplýsingar úr þessum
skjölum voru settar fram á mjög
tortryggilegan hatt og meira að
segja dauðsfall eins vistmanns á
Staðarfelli var dregið inn í málið í
þessu skyni. Ég get ekki fært sönn-
ur á hver gerði þetta en ég gruna
þessa þrjá menn um að eiga þar
hlut að máli. Á Staðarfelli dó sjúkl-
ingur og það sorglega atvik reyndu
þeir að gera mjög tortryggilegt.
En sá málflutningur er mjög ósann-
gjarn. Það er þvert á móti ástæða
til að vera þakklátur fyrir það hve
heppnir við hjá SÁÁ höfum verið
öll þessi ár hvað þetta snertir.
Slíkar baráttuaðferðir sem þess-
ar höfðu aldrei fyrr tíðkast í SÁÁ,
en þær tíðkast kannski í völundar-
húsi stjórnmálanna. Menn' beittu
þarna baktjaldamakki og Ijölmiðla-
tafli. Eins og sumir fjölmiðlar haga
sér í dag er mjög auðvelt að tefla
valdatafl á vettvangi þeirra. Slíkt
hafði hins vegar aldrei verið gert
fyrr hjá SÁÁ. Mér er enn ekki orð-
ið ljóst hvað mér var raunverulega
gefið að sök í þessu máli. Mér varð
hins vegar ljóst að ég var kominn
í ákveðið tafl, sem ég kunni ekki,
en varð að læra mjög fljótt. I hita
þessa leiks var furðulegasta fólk
farið að hafa skoðanir á því hvern-
ig meðferð á Vogi skyldi hagað.
Þarna átti hlut að máli fólk sem
lítið sem ekkert vissi um þau mál.
Þegar þessi orusta var yfirstaðin
féll allt slíkt tal niður og allt datt
í dúnalogn. Það lævi blandna and-
rúmsloft sem ríkt hafði hjá stofnun-
inni meðan á átökunum stóð hreins-
aðist út. Við urðum öll afskaplega
glöð að vera laus við það pestarloft.
Það hafa vafalaust margvíslegar
ástæður legið til grundvallar því
að þessir þrír menn tóku sig saman
um að komast í valdaaðstöðu í
SÁÁ. Jón Magnússon hefur átt í
nokkrum „tilvistai-vanda" í íslensk-
um stjórnmálum. Líklega stóð hug-
ur hans til þess að vera formaður
SÁÁ og það hefði hann vafalaust
orðið hefði hann ekki gripið til fyrr-
Ingólfur
Margeirsson
í ræðustól.
greindra bolabragða. Óttar hefur
vafalaust viljað verða yfirlæknir
SÁÁ. Ingólfur hefur alltaf verið
einsog hann er. Það var auðvitað
mikil óhamingja fyrir SÁÁ þegar
menn úr hopi helstu forsvarsmanna
samtakanna lentu í málaferlum
vegna Hafskips og Hendrik Bernd-
■sen varð gjaldþrota. Þessi menn
höfðu styrkt SAÁ ótæpilega bæði
með vinnu og fjárframlögum. Þeg-
ar svona illa var komið fyrir þeim
kom Ingólfur Margeirsson til sög-
unnar. Hilmar Helgason, Björgúlf-
ur Guðmundsson og Hendrik
Berndsen höfðu reynst Ingólfi mjög
vel í mörgu tilliti, það veit ég.
Meðal annars hlustaði ég á þegar
Björgúlfur lofaði að flytja búslóðina
hans Ingólfs heim frá Noregi.
Nokkru síðar fór Helgarpósturinn
þar sem Ingólfur var ritstjóri, allt
í einu að skrifa af miklum eldmóð
um þessa menn og þeirra málefni
í æsifréttstíl. Ekki fannst manni
þetta alveg í anda drengskaparins.'
Halldór Halldórsson bað mig um
þetta leyti að koma í viðtal við
Helgarpóstinn. Ég afsagði að fara
í viðtal í því blaði. Ég neita því
ekki að mér hafði stundum sárnað
málflutningur blaðsins um félaga
mína. Meðal annars var ég með
þessari ákvörðun að taka upp
hanskann fyrir Hilmar Helgason
sem Ingólfur hafði tekið viðtal við
þegar hann stóð mjög höllum fæti.
I þessu viðtali talaði Hilmar um
íjölskyldu sína og mér sveið að
Ingólfur skyldi notfæra sér það sem
hann sagði á þann hátt að birta
opinberlega. Mér fannst það
ódrengilegt. Hilmar átti alla tíð í
miklum erfiðleikum og vandræði
hans voru þau að hann gat ekki
hætt að drekka. Örlög hans urðu
þau að gangast upp í harmi sínum.
Hann var mjög sjúkur af alkóhól-
isma. En Hilmar var merkilegur
maður, hann átti sér allskonar
drauma sem okkur hinum þóttu
fráleitir og hann hafði mikla for-
stöðuhæfileika. Reyndar hafa sum-
ir draumar hans þegar ræst.
Óttar Guðmundsson tók við mig
viðtal sem hann birti í Vikunni. Þar
sagði Óttar mig hafa verið glað-
hlakkalegan yfir því að hafa neitað
viðtali við Helgarpóstinn. I fram-
haldi af því hringdi Ingólfur Mar-
geirsson í mig og það var ekki
skemmtilegt samtal. Hann fór fljót-
lega að ógna mér og notaði aðferð-
ir sem mér voru ekki kunnar. Sagð-
ist vita sitthvað um mig og SAÁ
og dylgjaði fleira í þeim dúr. Ég
vissi að ég hafði ekkert að fela og
sagði honum að hann ætti bara að
skammast sín. Hann hefndi sín með
því að taka rannsóknir sem ég
hafði verið að vinna að í nokkur
ár og notaði upplýsingar og tölur
úr þeim -í viðtali við Óttar Guð-
mundsson.
Vafalaust hefur þessum þremur
heiðursmönnum þótt ég vera dott-
inn úr móð og tími til kominn að
nýmóðins menn tækju við.
f _
FKAJvlKr
JÓVJIBOí)
RBYLGJUOFNUM
'0 ■
_ <$> _ n
Wi&jwm
E
EUROOARD
Pl
w MUh ▼ -o LÁN
V/SA
GoldStar
ER-6515 D örbylgjuofnar eru 17 ltr., 650 W,
með 5 styrkstill. og 30 mín. klukku. Hvítir
eða brúnir. H: 275 x B: 487 x D:326 mm.
Verð: 24.270,-
Jólaverð: 19.800,- kr. eða 17.800,- stgr.
GoldStar
ER-5054 D örbylgjuofnar eru 20 lítra, 530 W,
með 7 styrkstillingum og 30 mín. klukku.
Fást hvítir eða drapplitir. H: 324 x B: 495 x
D: 353 mm. Verð: 28.140,-
Jólaverð: 25.900,- xr. eða 22.900,- stgr.
JML i- —_
^IGíoIcIStar
ER-535 MD örbylgjuofnar eru 20 lítra, 530 W,
með 10 styrkstillingum og 99 mín.
tölvuklukku. Fást hvítir eða drapplitir. H:
243 x B: 430 x D: 300 mm. Verð: 32.000,-
Jólaverð: 28.900,- kr. eða 25.900,- stgr.
GoldStar
ER-654 MD örbylgjuofnar eru 28 lítra, 650
W, með 10 styrkstillingum og 99 mín.
tölvuklukku. Fást hvítir eða brúnir. H: 326
x B: 544 x D: 377 mm. Verð: 38.620,-
Jólaverð: 34.900,- kr. eða 31.400,- stgr.
ll -. ^ % ^ i
HpðjMliHSsJ 3 "7 O
GoldStar
(33
ER-9350 D örbylgjuofnar eru 25 lítra, 650
W, með 7 styrkstill, 60 mín. klukku og grilli,
til að brúna og baka matinn, Fást hvítir
eða brúnir. H: 362 x B: 546 x D: 437 mm.
Verð: 58.160,-
Jólaverð: 49.900,- kr. eða 44.900,- stgr.
greiðslukjör til allt aö 12 mán.
SKIPHOLTI 19
SÍMI 29800