Morgunblaðið - 16.12.1990, Síða 47
47
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMÁ ÓESEMBER 1990
ATVIN N U A UGL YS ll\IGA R
Sálfræðingar
Hálf staða sálfræðings er laus til umsóknar
hjá félaginu nú þegar eða eftir nánara sam-
komulagi.
Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri
félagsins í síma 15825 næstu daga milli kl.
8.30 og 10.00.
Styrktarfélag vangefinna.
Hafrannsókna-
stofnunin
Stöður útibússtjóra og eins sérfræðings við
útibú Hafrannsóknastofnunarinnar á Akur-
eyri eru lausar til umsóknar. Gert er ráð fyr-
ir að útibúið starfi í nánum tengslum við
Háskólann á Akureyri.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið háskóla-
prófi á sviði hafrannsókna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf, sendist Hafrannsóknastofnuninni
fyrir 10. janúar 1991.
Hafrannsóknastofnunin,
Skúlagötu 4,
101 Reykjavík,
sími 20240.
FJÓRÐUNGSSJÚKR AHÚSIP
Á AKUREYRI
Slysadeild
Starfsfólk í heilbrigðisþjónustunni
Við þörfnumst ykkar við uppbyggingu nýrrar
slysadeildar, sem tekur til starfa 1. apríl
1991. Auk þess að flytjast í nýtt húsnæði,
verður aukning og breyting á starfssviði
deildarinnar. Við leitum að áhugasömu og
hressu fólki til þes að undirbúa og síðan
annast bráðamóttöku allan sólarhringinn á
slysadeild FSA.
Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru nokkrar stöður til umsóknar.
Boðið verður upp á fræðslu í bráðahjúkrun
og einstaklingsbundna aðlögun. Deildar-
stjóralaunaflokkur fyrir 60% næturvaktir.
Upplýsingar gefa Svava Aradóttir, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri, og Birha Sigurbjörnsdótt-
ir, deildarstjóri, í síma 96-22100.
Aðstoðarlæknir
Starf aðstoðarlæknis við bæklunardeild FSA
er lausttil umsóknarfrá og með 01.04.1991.
Starfinu fylgir vinnuskylda við nýja slysadeild
FSA á móti öðrum aðstoðarlækni bæklunar-
deildar og aðstoðarlæknum handlækninga-
deildar. Ráðningartími er 6-12 mánuðir,
styttri tími kæmi þó til greina.
Nánari upplýsingar gefur Júlíus Gestsson,
yfirlæknir bæklunardeildar, í síma FSA
96-22100, eða heimasíma 96-21595.
Starfsstúlkur
Til umsóknaf eru stöður í almennum ræsting-
um og stöður aðstoðarfólks á næturvaktir.
Til greina kemur að ráða sérstaklega á
40-60% næturvaktir. Starfsfólk fær fræðslu
og einstaklingsbundna aðlögun.
Upplýsingar gefa Svava Aradóttir, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri, og Birna Sigurbjörnsdótt-
ir, deildarstjóri, í síma 96-22100.
Móttökuritari
Til umsóknar eru tvær 50% stöður í mót-
töku. Æskilegt er að umsækjendur hafi
reynslu af tölvunotkun.
Upplýsingar gefur Svava Aradóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, í síma 96-22100.
Umsóknarfrestur um ofantalin störf er til 15.
janúar 1991.
Frá heimspekideild
Háskóla íslands
Heimspekideild óskar eftir því að ráða tvo
kennara í íslenskri málfræði háskólaárið
1991-’92. Öðrum þeirra er ætlað að kenna
á sviði hagnýtrar málfræði og móðurmáls-
kennslu, en hitt starfið er óskilgreint nánar.
Tímabundin ráðning sem lektor kemur til
greina.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun,
rannsóknir og önnur störf, sendist Háskóla
íslands, heimspekideild, Árnagarði v/Suður-
götu, 101 Reykjavík fyrir 6. janúar 1991.
Dómarafulltrúi
Staða dómarafulltrúa við embættið er laus
til umsóknar. Laun eru samkvæmt launa-
kerfi starfsmanna ríkisins. Um er að ræða
fjölþætt starfssvið og góðan aðbúnað í hinu
nýja stjórnsýsluhúsi á ísafirði. Kostur er á
íbúð á sanngjörnu leiguverði í nágrenni sýslu-
skrifstofunnar.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu minnar
eigi síðar en 28. desember 1990.
28. nóvember 1990.
Bæjarfógetinn á ísafirði,
sýslumaðurinn íísafjarðarsýslu,
PéturKr. Hafstein.
• Reykjavík
Verkstjóri
Hrafnista í Reykjavík óskar að ráða verk-
stjóra í borðsal frá 1. febrúar 1991. Starfið
krefst góðrar skipulagshæfni og hæfileika til
að umgangast fólk.
Upplýsingar gefur Jóhanna Sigmarsdóttir í
símum 689500 og 30230 frá kl. 10-12 virka
daga.
Sjúkraþjálfari
íþróttakennari
Stórt fyrirtæki vill kanna möguleika á að
ráða starfsmann (karl eða konu) með sér-
menntun, er tengist m.a. heilsuvernd/al-
mennri vellíðan fólks, til sölu- og kynningar-
starfa. Hér er um að ræða sjálfstætt og krefj-
andi starf, sem krefst enskukunnáttu.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
okkar í fullum trúnaði.
Umsóknarfrestur er til 21. des. nk.
(rtTÐNT ÍÓNSSON
RÁÐGIÓF &RÁÐN1NCARNÓNUSTA
TIARNARGÖTU 14,101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Afgreiðslufólk
Traust fyrirtæki í matvælaiðnaði vill ráða
fólk til afgreiðslu af lager.
Við leitum að heilsuhraustum einstaklingum
sem eru: sjálfstæðir. sflindvísirog heiðarlegir.
Góður vinnustaður með gott mötuneyti og
mikla félagsstarfsemi.
Nánari upplýsingar veitir Adolf Ólason hjá
Ráðningamiðlun Ráðgarðs fyrir 22. des. nk.
RÁÐNINGAMIÐLUN
RÁÐGARÐS HF
NÓATÚNI 17, 105 REYKJAVÍK, SÍMI 67 95 95
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarheimilið Sóivangur í Hafnarfirði vill
ráða hjúkrunarfræðing til starfa nú þegar eða
eftir nánara samkomulagi.
Eingöngu er um kvöldvaktir að ræða.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 50281.
Sjúkrahúsið í Húsavík sf.
Hjúkrunarfræðingar
-sjúkraliðar
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa nú þeg-
ar eða eftir samkomulagi. Sjúkraliðar óskast
til starfa frá áramótum.
Upplýsingar veitir Aldís Friðriksdóttir, hjúkr-
unarforstjóri, í síma 96-41333.
RÍKISSPÍTALAR
Reyklaus vinnustaður frá 1. jan. 1991
Barnaspítali
Hringsins
Fóstrur og/eða þroskaþjálfar
Fóstrur og/eða þroskaþjálfar óskast til
starfa sem fyrst eða frá 1. janúar 1991.
Möguleiki er á hlutastarfi. Starfið er fjöl-
breytt og skemmtilegt fyrir þá, sem hafa
áhuga á starfi með börnum á ýmsum aldri.
Upplýsingar veitir Hertha W. Jónsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í símum
601300 og 601033.
Hjúkrunarfræðingar!
Nú er tækifæri til að prófa eitthvað nýtt! 12
vikna námskeið í gjörgæslu nýbura hefst 17.
janúar 1991. Um er að ræða 8 vikna aðlögun-
artíma með markvissri fræðslu og vikulegri
leiðsögn á vökudeild, sem reyndur hjúkrunar-
fræðingur sér um, ásamt fyrirlestrum.
Nánari upplýsingar gefa deildarstjóri vöku-
deildar, Ragnheiður Sigurðardóttir, í síma
601000/601040 og hjúkrunarframkvæmda-
stjóri, Hertha W. Jónsdóttir, í síma
601000/601033.
Hjúkrunarfræðingar - kvöldvaktir
Á barnadeild 3, sem er handlækningadeild
fyrir 13 börn, vantar okkur liðsauka strax eða
eftir áramót. Til greina koma fastar kvöld-
vaktir og þriðja hver helgi eða eingöngu
helgarvinna.
Leitið upplýsinga hjá Önnu Ólafíu Sigurðar-
dóttur, deiidarstjóra, í síma 601033/601300.
Sjúkraliðar
Á Vökudeild vantar sjúkraliða til starfa eftir
áramót. Um er að ræða tvær 50% stöður.
Upplýsingar gefur Ragnheiður Sigurðardótt-
ir, deildarstjóri, í síma 601040/601000 og
Hertha W. Jónsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 601000/601033.
Eldhús Landspítala
Matartæknar/starfsmenn
Matartæknar óskast sem fyrst í matsal
Landspítala. Vinnutími er frá 16.00 til 20.00.
Starfsmenn óskast í eldhús Landspítala.
Vinnutími frá kl. 16.00 til 20.00.
Upplýsingar gefur Jóhanna Ingólfsdóttir, for-
stöðumaður, í síma 601540.