Morgunblaðið - 16.12.1990, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1990
■ ■■■>..> -i—?t-f', ftf FH&erttrt?-:& x.rir:t?»-;-————
49
ATVINNU
BORGARSPÍTALINN
Læknaritari
óskast í 100% starf frá 1. febrúar nk.
Upplýsingar gefur læknafulltrúi í síma
696402 milli kl. 10-12.
Öskjuhlíðarskóli
frá
óskar að ráða eftirtalið starfsfólk
1. janúar 1991:
Sérkennara, heil staða árdegis.
Handmenntakennara (smfðar) vegna veik-
indaforfalla, 2h staða síðdegis.
Uppeldisfulltrúa, hálf staða árdegis.
Nánari upplýsingar veita skólastjóri og yfir-
kennari í skólanum og í síma 689740.
Skólastjóri.
HEILSUGÆSLUSTÖÐIN ÁISAFIRÐI
Hjúkrunarfræðingar!
Okkur bráðvantar heilsugæsluhjúkrunar-
fræðing við heilsugæslustöðina á Suðureyri
v/Súgandafjörð.
Góð starfskjör f boði.
Hafið samband við framkvæmdastjóra í síma
94-4500 og aflið frekari upplýsinga.
Frá Fjölbrauta-
skólanum við Ármúla
íslenskukennara vantar á vorönn 1991.
Umsóknarfrestur er til 21. desember nk.
Nánari upplýsingar eru veittar í skólanum í
síma 84022.
Skólameistari.
RÍKISSPITALAR
Reyklaus vinnustaður frá 1. jan. 1991
Þroskaþjálfar -
hjúkrunarfræðingar
Um áramótin vantar hjúkrunarfræðing eða
þroskaþjálfa á næturvaktir. Starfshlutfall
er samkomulagsatriði. Æskilegt er að við-
komandi geti hafið störf eigi síðar en 15.
janúar nk. Starfið felur m.a. í sér yfirumsjón
með heimiliseiningum staðarins, veita næt-
urvöktum stuðning og skila „rapporti" að
morgni.
Nánari upplýsingar gefa Hulda Harðardóttir,
yfirþroskaþjálfi og Sigríður Harðardóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 602700.
Grunnikóll Eyrariveltar
Kennarar
Vegna forfalla vantar íslenskukennara við
Grunnskólann í Grundarfirði frá 1. janúar
1991.
Upplýsingar hjá skólastjóra í símum
93-86637 og 93-86802.
Skólanefnd.
Reykjavík
Hjúkrunarfræðingar
sjúkraliðar
starfsstúlkur
Okkur vantar hjúkrunarfræðinga á heilsu-
gæslu á kvöld- og helgarvaktir. Einnig vantar
hjúkrunarfræðinga á stakar vaktir á hjúkr-
unardeildir. Spennandi verkefni eru framund-
an með tilkomu hjúkurnarskráningar.
Sjúkraliðar
Sjúkraliða vantar til starfa í janúar í 100%
starf.
Starfsstúlkur
Starfsstúlkur óskast til starfa í aðhlynningu
í fullt starf og til afleysinga í janúar.
Athygli er vakin á að Hrafnista rekur barna-
heimili fyrir starfsfólk.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri, ída
Atladóttir, í síma 35262, og hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, Jónína Níelssen, í síma
689500.
Viðskiptafræðing-
u r/hagf ræði ng u r
Ráðuneyti óskar eftir að ráða viðskiptafræð-
ing eða hagfræðing nú þegar.
Starfið felst í sérhæfðum verkefnum, einkum
skýrslugerð og úrvinnslu talnagagna.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu.
menntaðir viðskipta- eða hagfræðingar.
Æskilegt er að viðkomandi hafi lagt stund á
þjóðhagfræði. Starfsreynslu er ekki krafist,
en áhersla er lögð á að viðkomandi séu
áhugasamir og sjálfstæðir í vinnubrögðum.
Umsóknarfrestur er til og með 21. desem-
ber nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysmga- og radningaþionus'ui
Lidsauki hf.
Skotdvordustig /a - W1 fíevk/uv'k
Skrifstofustarf
Fóstrufélag íslands óskar eftir starfsmanni
á skrifstofu félagsins í 50% starf frá áramót-
um^eða eftir samkomulagi.
Umsækjandi þarf að hafa tölvukunnáttu, vald
á norrænu tungumáli og ensku og geta unn-
ið sjálfstætt.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „N - 8196“ fyrir 30. desember nk.
l&nskólinn í Reykjavík
Verkfræðingar
- tæknifræðingar
Skólinn óskar að ráða til kennslu verkfræð-
inga, tæknifræðinga og iðnfræðinga með
þekkingu og reynslu í málmiðnum, rafiðnum
og tölvugreinum.
Plötusmiðir
Óskað er eftir plötusmið á verkstæði í Hafn-
arfirði.
Leitað er að manni, sem er þaulvanur í
nýsmíði og viðgerðum, aðallega í skipaiðn-
aði, og getur unnið sjálfstætt.
Upplýsingar í síma 51548 á kvöldin.
Verkstjóri
Fyrirtæki í matvælaiðnaði í Kópavogi óskar
eftir að ráða verkstjóra. Viðkomandi þarf að
vera hreinlegur og eiga gott með að umgang-
ast fólk. Reynsla í meðferð véla nauðsynleg.
Æskilegur aldur 30-40 ár.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
24/12, merktar: „V - 8785“.
Linuhönnun h=
veRkFRædistopa
SUÐURLANDSBRAUT 4A - SÍMI 680180
Bygginga-
verkfræðingur
Við leitum að byggingaverkfræðingi til starfa
með áhuga eða reynslu á eftirfarandi sviðum:
★ Stærðfræði.
★ Hönnun með aðstoð tölva.
★ Mannvirkjahönnun.
Eftirtaldir eiginleikar eru æskilegir:
★ Skapandi kraftur.
★ Gott lunderni.
★ Röggsemi.
Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að leggja'
hart að sér við lausn óvenjulegra verkfræði-
legra verkefna.
Skriflegum umsóknum um starfið skal skila
á Línuhönnun fyrir 4. janúar 1991.
RADAUGl YSINGAR
BATAR-SKIP
Kvóti - kvóti
Okkur vantar framtíðarkvóta fyrir togarana
okkar, Arnar og Örvar.
Upplýsingar í síma 95-22690.
Skagstrendingur hf.,
Skagaströnd.
Loðnunót til sölu
Lengd 185 faðmar, dýpt 44 faðmar. Góð til
síldveiða.
Upplýsingar í síma 98-11700.
OSKASTKEYPT j
Flatningsvél óskast
Óskum eftir að kaupa flatningsvél Baader
440 ásamt hausara. Þarf að vera í góðu
standi.
Upplýsingar í símum 623870 og 666765 á
kvöldin.
KVOTI
Til sölu
30 tonna þorskkvóti þessa árs.
Upplýsingar í síma 97-81544.
Garðey hf.
Kvóti
Til solu er þessi kvóti: Þorskur 6854 kg, ýsa
236 kg, ufsi 967 kg.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Kvóti - 6912“.
HUSNÆÐIOSKAST
Garðabær - einbýlishús
Einbýlishús óskast til leigu í Garðabæ. Þarf
að hafa 4-5 svefnherbergi.
Leigutími samkomulag.
Upplýsingar í síma 652659 um helgina eða
eftirkl. 17.00 virka daga.