Morgunblaðið - 19.12.1990, Blaðsíða 13
AUCLÝSINCASMIÐJAN FLJÓTT • FLJÓTT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990
13
. Hm Bi Sf 5L' "X ' N 'I .
í I í F . Saga
a g | 5 Islands
Pómsdaguf
hcbir mrnn ,i Hóium
Skálholt
Saga
íslands V
Saga (slands er ýtarleg umfjöllun um hagi landsmanna,
atvinnuhætti, menningu og Kfshætti á hverjum tíma. Þetta
fimmta bindi fjallar aðallega um 15. öld - ensku öldina - vaxandi
umsvif Englendinga allt þar til Danakonungi tókst endanlega að
tryggja yfirráð sín. Greint er frá eflingu kirkjunnar, rakið hvernig
(sland tengdist sögu landafundanna miklu. Bókmennta- og
myndlistarsögu tímabilsins eru gerð rækileg skil. Fjöldi mynda
prýðir bókina. Höfundar eru Björn Þorsteinsson, Guðrún Ása
Grímsdóttir, Sigurður Lfndal, Jónas Kristjánsson
og Björn Th. Björnsson. Ritstjóri er Sigurður Líndal.
Skálholt II. Kirkjur
Þetta er þriðja bindið í ritröðinni Staðir og kirkjur. Bókin fjallar
um allar þekktar kirkjur sem staðið hafa í Skálholti frá öndverðu.
Leitast er við að gefa sem gleggsta mynd af hverri kirkju, höfundi
hennar og byggingarsögu. Höfundurinn, Hörður Ágústsson,
hefur endurgert nokkrar þeirra utan og innan í teikniformi, m.a.
miðaldakirkju þá, sem stærst var timburkirkna á Norðurlöndum.
( bókinni eru á þriðja hundrað mynda og teikninga.
iæfeijjf
Bókvnenntafélagsins
e/ii lifxujJi brunnur
fróðieiks
og juDíjjjíijnar
Steypa lögð og steinsmíð rís
Þetta er fimmta bókin í bókaflokknum Safn til
iðnsögu (slendinga, hinu merka framlagi til
atvinnuháttasögu þjóðarinnar. Rakin er saga og
þróun steinsteyptra mannvirkja hérlendis f máli
og myndum. Höfundur er Lýður Björnsson og
ritstjóri bókaflokksins er Jón Böðvarsson.
Nipmuivl Freud
UNDIR OKI
SIÐMENNINGAR
UPPLÝSINGIN
A ÍSLANDI
Tíu iHflef01'
* ' ■ \
r > ;Ci í- 0J-
Eitt umdeildasta og mest
lesna rit Freuds
Megin viðfangsefni bókarinnar Undir oki
siðmenningarinnar er frelsið, staða
mannsins í heiminum sem einstaklings og
samfélagsþegns. Samfélagið leggur
skyldur á herðar mannsins sem sker-ða
það frelsi sem hann þráir svo mjög.
Sigmund Freud samdi bókina fyrir rúmum
60 árum og hún á fullt erindi ennþá til
hverrar hugsandi manneskju.
Lærdómsrit
Þrjár bækur bætast nú í hóp þessa
stórmerka flokks sígildra rita:
Manngerðir eftir Þeófrastos, rituð fyrir
um 2000 árum.
Lof heimskunnar sem Erasmus frá
Rotterdam skrifaði fyrir nærfimm öldum.
Saga tímans eftir Stephen W.
Hawking, sem hefur skipað efstu sæti
metsölulista víða um lönd.
Upplýsingin á íslandi
(slenskir fræðimenn gera grein fyrir áhrifum
upplýsingarinnar, hinnar alþjóðlegu
hugmyndastefnu hér á landi, er gætti mest
á tímabilinu 1770-1830. Með bókinni er
fyllt upp í eyðu, sem verið hefur í íslenskri
sagnfræði allttil þessa. Bókin er prýdd fjölda
Ijósmynda. Ritstjóri er Ingi Sigurðsson.
Saga tímans
„Það er ástæða til að hafa nokkurt
mál um þessa bók vegna þess, að
hún er glæsileg afurð mannlegrar
hugsunar og áreiðanlega
bitastæðasta bók sem kemur út á
Islandi á þessu ári."
GHF. Mbl. 12. des. 1990
1. prentun uppseld
2. prentun væntanleg
Hið íslenzka
_ bókmenntafélag
SÍÐUMÚLA 21, SlMI 679060