Morgunblaðið - 19.12.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.12.1990, Blaðsíða 2
 MORGUNBLAÐIБMIÐYIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990 Sigurjón Hannesson til vinstri og Ingi Þór Ólafsson til hægri á bryggjunni í Njarðvík á staðnum þar sem bifreiðin fór fram af. Bíll hafnaði út í sjó í Keflavík: „Fór að gleypa sjó og gafst upp en þá kippti Ingi Þór í mig“ Keflavík. „ÉG VAR með meðvitund allan tímann. Þegar bíllinn kastaðist út í sjó náði ég að halda mér, en Ingi Þór kastaðist til og frá. Bíllinn lenti á hvolfi og sjór flæddi inn í hann að aftan og hann sökk eins og steinn. Það eina sem ég sá var endurkast frá ljósunum og ég reyndi allt hvað ég gat til að komast út. En það tókst ekki, ég fór að gleypa sjó og gafst upp en þá kippti Ingi Þór í mig og það næsta sem ég man var að ég var á leiðinni upp,“ sagði Sigurjón Hannesson, 17 ára Keflvíkingur, sem bjargaðist giftusamlega úr Njarðvíkurhöfn á mánudagskvöldið ásamt félaga sínum Inga Þór Ólafssyni, 18 ára, sem einnig er búsettur í Keflavík. Ingi Þór ók bifreiðinni sem er Lada Samara skutbíll og sagðist hann hafa verið að snúa við á hafnargarðinum þegar hann missti stjórn á bifreiðinni sem hefði kastast afturábak fram af bryggjunni. „Ég man eftir högg- inu en síðan ekki fyrr en ég rank- aði við mér þegar bíllinn var sokk- inn til botns. Ég held að bíllinn hafi verið á hvolfi og ég var fast- ur í petulunum. Mér tókst að iosa mig og þreifaði eftir leið til að komast út sem gekk eftir og þá fann ég fyrir Siguijóni og kippti honum með mér. Þegar mér skaut upp sá ég bryggjuna og dekkin sem eru utan á henni, en áræddi ekki að synda að bryggjunni þar sem ég var ekki viss um að finna stiga. Þess í stað synti ég upp í fjöruna sem er skammt frá. Þetta gekk vel og úr fjörunni komst ég upp á hafnargarðinn þar sem Sig- uijón var kominn. Þá fyrst fann ég fyrir kuldanum og við drifum okkur af stað til að leita hjálpar. Siguijón sagði að hann hefði ekki orðið var við Inga Þór eftir að hann hefði kippt sér út úr bílnum. „Ég man vel eftir mér þegar ég flaut upp, ég hugsaði um að vera rólegur og andaði frá mér með nefinu. Mér skaut upp við stiga og gekk vel að komast. upp á bryggju. Þá þyrmdi yfir mig af kulda og ég man lítið þar til Ingi Þór kom. í fyrstu datt okkur í hug að fara um borð í nærliggjandi báta en hættum við það og ákváðum að komast í hús sem eru fyrir ofan höfnina. í fyrstu gekk okkur illa að ganga sökum kulda, en um síðir vorum við farnir að hlaupa. Þeir félagar knúðu dyra hjá Teiti Örlygssyni sem býr við Sjáv- argötu 26 og er kunnur körfu- knattleiksmaður. Þar var vel tekið á móti þeim, þeir settir í heita sturtu og þurr föt. Þeir voru síðan fluttir í sjúkrahúsið í Keflavík en fengu fljótlega að fara heim. Bíllinn náðist upp síðdegis í gær og er hann talinn ónýtur. BB Fjárlagafrumvarp tafsamt á Alþingi: Fiskeldi: Pharmaco tekur íslandslax á leigu PHARMACO hf. hefur gert samkomulag við samninganefnd á vegum Fiskveiðasjóðs og Framkvæmdasjóðs um að taka fiskeldisstöð ís- landslax við Grindavík á leigu til fjögurra ára. Ennfremur kaupir Pharmaco þann lax sem er í stöðinni af þrotabúi íslandslax. Áform- að er að Pharmaco taki við rekstrinum strax og sjóðstjórnir hafa samþykkt samninginn endanlega, að sögn Werners Rasmussonar stjórnarformanns Pharmaco. Pharmaco tók Laxalind á leigu um miðjan nóvember, til tíu mán- aða, í framhaldi af kaupum fyrir- tækisins á íslenskum matvælum. Var það aðallega gert til að tryggja hráefni síðarnefnda fyrirtækisins, að sögn forráðamanna þess. Að- spurður sagði Wemer að ástæðan fyrir því að þeir hygðust taka ann- að laxeldisfyrirtæki á leigu væri hinn stuttr leigutími Laxalindar. „íslensk matvæli hafa lengi slátrað laxi og verkáð'hann bæði fyrir ís- Stöð 2: Minnihlutinn ræð- ir nýtt lögfræðiálit FULLTRUAR minnihluta eigenda Stöðvar 2 fjölluðu i gær um lögfræði- álit sem þeir hafa aflað sér um viðskipti meirihluta eigenda við Stöð 2. skipti og komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé ástæða til að gera athuga- semdir við þau. Steingrímur Ellingsen tók sæti í stjórn Stöðvar 2, eftir að Hreinn Loftsson sagði sig úr stjórninni fyrir rúmri viku. Þorgeir og Ellert: Hugmyndir um lausn á fjár- hagsvanda Á FUNDI í Byggðastofnun í gær, um málefni skipasmíðastöðvar Þorgeirs og Ellerts á Akranesi, voru lagðar fram hugmyndir um hvernig leysa mætti fjárhags- vanda fyrirtækisins, en eins og fram hefur komið liggur fyrir gjaldþrotabeiðni frá lifeyrissjóð- unum. Steingrímur Ellingsen, sem situr í stjórn Stöðvar .2, óskaði eftir áliti Jóns Steinars Gunnlaugssonar lög- manns á þeim viðskiptum fjögurra hluthafa í Stöð 2, að kostnaður við víxla vegna hlutafjárkaupa var greiddur af viðskiptareikningi, sem inn á var logð þóknun vegna skulda- ábyrgða. Víxlakostnaðurinn var jafnan hærri en ábyrgðaþóknunin og því var reikningurinn neikvæður. Þessum reikningi hefur nú verið lok- að og mismunurinn greiddur. Steingrímur vildi í gær ekki upp- lýsa hver niðurstaða lögmannsins var, en Morgunblaðið hefur upplýs- ingar um að hann telji þessi við- skipti geta brotið í bága við þá grein hlutafjárlaga, sem kveður á um að félög með neikvætt eigið fé geti ekki lánað eigendum sínum fjár- muni. Gestur Jónsson lögmaður Stöðvar 2 hefur einnig fjallað um þessi við- landslax og Laxalind, því þótti okk- ur þetta eðlilegt framhald með til- liti til hráefnisöflunar fyrir íslensk matvæli. Seiðin í Laxalind eru að vaxa upp til að verða sláturhæf, en hjá íslandslaxi er nú þegar slátr- að vikulega 4-6 tonnum." Werner sagði ennfremur að reiknað væri með að stöðvarnar yrðu samnýttar að svo miklu leyti sem hægt væri. Á þessu stigi máls- ins væri ekki vitað annað en rekst- ur hennar yrði óbreyttur. Óvíst að takist að ljúka þingstörfum á föstudag „Ég er vonbetri eftir þennan fund,“ sagði Þorgeir Jósefsson hjá Þorgeiri og Ellert í gærkvöidi. „Það er a.m.k. ljóst að við erum ekki að gefa upp öndina í augnablikinu. Hins vegar er ljóst að við höfum verið í kapphlaupi við tímann. Það voru lagðar fram ákveðnar hugmyndir á þessum fundi og menn ákváðu að taka sér tíma til að skoða þær,“ sagði Þorgeir. EKKI er enn Jjóst hvort tekst að ljúka störfum á Alþingi fyrir jól á föstudag. Svo gæti farið að þinghald verði fram á laugardag og jafnvel milli jóla og nýjárs, þar sem seint hefur gengið að ljúka vinnu við fjárlagafrumvarpið og ágreiningur er meðal stjórnarliða um frumvarp um tryggingagjald. Framsóknarmenn höfðu samþykkt að frumvarpið yrði lagt fram með breytingum, sem ekki voru síðan í því. „Ég fullyrði ekkert um að það takist að yúka þinginu á föstudag- inn, en að þvi er stefnt ennþá,“ sagði Páll Pétursson formaður þing- flokks Framsóknarflokksins í gær. Stjórnarandstaðan hefur gagn- rýnt fjárlagafrumvarpið harðlega. „Að mínum dómi er engin spurn- ing að fjármál ríkissjóðs eru nú í verri hnút og við blasa rniklu alvar- legri erfiðleikar heldur en nokkru sinni fyrr sem ég man eftir,“ sagði Pálmi Jónsson, Sjálfstæðisflokki, í gær. Sighvatur Björgvinsson formað- ur fjárveitinganefndar kveðst reikna með að fjárlagafrumvarpið verði afgreitt fyrir jólin. „Þriðja umræðan verður vonandi á fimmtu- dag, síðasta lagi á föstudag. Við sjáum fyrir endann á þessu núna, það eru nokkur stór mál sem á eft- ir að útkljá. Ríkisstjómin er að ræða um þau.“ Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra kvaðst í gær telja að takast muni að afgreiða fjárlaga- frumvarpið á tilsettum tíma. „Hins vegar, því miður, hefur ekki ennþá tekist að ná tekjum upp í þá lækk- un sem hefur orðið. Það hefur orð- ið lækkun um einn og hálfan millj- arð milli ára, því miður hefur ekki tekist að ná því saman og ég lít á það sem afar mikilvægan þátt sam- komulags, bæði þjóðarsáttar og ríkisstjórnar, að halda skattheimt- unni í þessum 27%.“ Hann sagði að á ríkisstjórnar- fundi í gærmorgun hefði verið ákveðið að leggja ekki áherslu á önnur mál en tryggingagjald fyrir áramót, fyrir utan fjárlög. Hann kvaðst gera ráð fyrir að þing kæmi saman á ný eftir áramót ekki síðar en 14. janúar. Pálmi Jónsson sagði að tekjuhlið fjárlaganna væri enn mjög á floti. „Meira að segja það frumvarp sem komið er frá ríkisstjórninni um 500 milljóna nýjan skatt í svokölluðu tryggingagjaldi sýnist vera með þeim hætti að þar sé stjórnarliðið ekki sammála," sagði hann. Pálmi sagði ennfremur að mjög stórir útgjaldaliðir væru enn ótaldir sem gætu aukið halla ríkissjóðs mjög mikið frá annarri umræðu, þá var hann um 4,6 milljarðar. Pálmi telur líklegt að hallinn verði ekki minni en 6-7 milljarðar króna. Ágreiningur er meðal stjórnar- liða um tryggingagjaldið. Fram- sóknarmenn heimiluðu að frumvarp um það yrði lagt fram með breyt- ingum, sem síðan voru ekki í frum- varpinu og deildu meðal annars ijármálaráðherra og Páll Pétursson um það á Alþingi í gær. Sjá þingfréttir bls. 36. Jólalesbók komin út JÓLA-Lesbók Morgunblaðsins er komin út og hefur verið borin til kaupenda blaðsins. Þau mistök urðu að setningin „Ekki er gerður greinarmundur á breiðum og grönnum sérhljóða" er látin fylgja Verðlaunakrossgátunni en á við um Verðlaunamynda- gátuna. Eru ráðendur beðnir um að athuga það. Upplýsingar um bætur almanna- trygginga Frá og með deginum í dag mun Morgunblaðið birta upp- lýsingar um greiðslur í helstu bótaflokkum almannatrygg- inga. Þessar upplýsingar verður að finna daglega í blaðinu framvegis á fyrstu opnu fyrir aftan miðju. Sjá nánar á bls.35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.