Morgunblaðið - 19.12.1990, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDÁGUR 19'. DESEMBER 1990
ÚTGEFANDI: STOFN
DREIFING: VAKA-HELGAFELL
TOYGGVI EMILSSON
Blá augu og biksvört hempa er
örlagasaga einstaklinga og
þjóðar þar sem raunsannir
atburðir og þjóðsagnakenndir
renna saman í eina listræna
heild. Þetta er sagan af
prestinum sem missti hempuna
vegna vinnukonunnar meö bláu
augun. Frásagnarlist Tryggva er
einstök, tungumálið f jöl-
skrúðugt, gaman og alvara
haldast ávallt i hendur.
DLÁ AUGU
OG DIKSVÖRT HEMPA
eftir Tryggva Emilsson
Tryggvi Emilsson varð þjóðkunnur þegar
bók hans Fáteekt fólk kom út. Nú
kemur hann enn á óvart með skáldsögu
um stórbrotin örlög og sterkar persónur..
VVÍB
VERÐBRÉFASJÓÐIR VERÐBRÉFAMARKAÐS ÍSLANDSBANKA HF.
kt. 540489-1149
Ármúla 13a, 108 Reykjavík
Þýskalandssj ó ður
Sjóður 7
Gjalddagi l.mars 2007
Sala Sjóðsbréfa 7 hófst 17. desember 1990
Umsjón: Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Símsvari 68 16 25.
Komumst vonandi
aftur til Kúvæt
- segir Sameh Issa
eiginmaður Kristín-
ar Kjartansdóttur
sem verið hefur
verkfræðiprófessor
íKúvætí Í6ár
„ÞAÐ vona auðvitað allir að deilan
um Kúvæt leysist friðsamlega því
allir aðilar bæru skaða af hernað-
arátökum og svonefndri hernað-
arlegri lausn gæti fylgt ný spenna
í Miðausturlöndum með ófyrirsjá-
anlegum afleiðingum,“ sagði
Sameh Issa, íslenskur ríkisborg-
ari, sem búið hefur ásamt fjöl-
skyldu sinni í Kúvæt í 16 ár, í
samtali við Morgunblaðið. Kom
hann til landsins frá Jórdaníu á
sunnudag en eiginkona hans,
Kristín Kjartansdóttir, kom til
landsins ásamt börnum þeirra
fjórum fyrir hálfum þriðja mán-
uði. Komust þau frá Kúvæt 19.
september með sérstakri flugvél
sem þangað sótti bandaríska og
kanadíska þcgna.
Sameh Issa sagði að hann hefði í
sjálfu sér getað farið fyrr frá Kúvæt
en innrás Iraka hefði komið öllum í
opna skjöldu. Enginn hefði verið
undir hana búinn og menn hefðu
ekki vitað hvert þeir ættu að fara.
Peningar fólksins hefðu læst í kúv-
æskum bönkum og auralausir kæ-
must menn ekki langt. Einnig hefði
fjölskyldan verið vel sett í bústað
sínum á háskólalóðinni sem væri eins
og heimur útaf fyrir sig. Væri lóðin
umgirt og verðir við öll hlið sem
hleyptu engum inn sem ekki ætti
þangað erindi. Því hefði engin ástæða
verið til að hraða sér, heldur að búa
sem best um hnútana fyrir ijölskyld-
una.
„Auðvitað hafði maður viss óþæg-
indi vegna ástandsins í landinu.
Matvæli voru til dæmis orðin af
skornum skammti og mjög dýr. Þjón-
usta öll var rýr þar'sem enginn var
til að sinna henni. Varahiutir í bíla
voru orðnir illfáanlegir en ég komst
þó ferða minna og gat farið það sem
ég vildi,“ sagði Issa.
Hann sagðist hafa getað ferðast
um nánast óhindrað og þannig fór
hann tvisvar til Jórdaníu með búslóð
þeirra hjóna og persónulega muni,
fyrri ferðina um miðjan október og
seinni ferðina mánuði síðar. Hann
sagði að allir útlendingar af arabísk-
um uppruna hefðu haft fullt ferða-
frelsi í Kúvæt og írak.
Sameh Issa sagði að þeir Gísli
Sigurðsson læknir sem nýlega fékk
brottfararleyfi frá Bagdad hefðu
drepið tímann saman eftir að eigin-
konur þeirra og börn fóru til ís-
lands. „Við skiptumst á að elda og
þraukuðum saman í gegnum erfið-
leikana,“ sagði hann.
Kúvætar vilja að írakar hverfi
á brott með heri sína
„Ég vona að þegar fundin hefur
verið lausn á deilunni um Kúvæt
takist vinátta á ný með landsmönn-
um og írökum," sagði Issa. Að hans
sögn kom innrásin íbúum Kúvæt í
opna skjöldu. Spenna hefði vissulega
farið vaxandi milli ríkjanna en fjöl-
miðlar höfðu ekki gefið neitt til
kynna um að svo væri.
Hveragerði:
Slökkviliðið mótmælir
fréttaflutningj af bruna
Hveragerði.
SLÖKKVILIÐ Hveragerðis var fyrir skömmu kvatt að húsinu
númer 32 við Heiðarbrún, en þar var eldur laus á efri hæð. Kvikn-
að hafði vegna sprengingar í sjónvarpstæki. Greiðlega gekk að
slökkva eldinn. Eigendur hússins eru hjónin Stefán Stefánsson
matreiðslumeistari og Erna Valdimarsdóttir fóstra. Húsið sem er
nýbyggt, er mikið skemmt og tjón þeirra tilfinnanlegt.
Sagt var frá eldsvoða þessum í
fjölmiðlum, m.a. á Stöð 2. Er hér
í Hveragerði mikil óánægja með
þann fréttaflutning og er af mörg-
um talinn hróplega rangur. Frétta-
ritari sneri sér til slökkviliðsstjóra
Hveragerðis, Snofra Baldursson-
ar, og bað hann að greina frá
málsatvikum, Snorri sagði svo frá:
„Rétt upp úr kl. 17 var slökkvi-
liðið kallað að húsinu við Heiðar-
brún 32, sem er tveggja hæða
parhús. Þegar komið var á staðinn
logaði eldur út um glugga á efri
hæð hússins og íbúðin full af reyk.
Greiðlega gekk að ná tökum á
eldinum eða á 15 mín. og var
slökkvistarfi lokið á hálfri klukku-
stund. Þá var hafist handa við að
bjarga lausum munum frá vatns-
skemmdum og sjúga vatn upp af
gólfum. Yfirgaf slökkviliðið húsið
um kl. 20. Alls mættu 14 slökkvi-
liðsmenn til starfa. Eldsupptök
voru í sjónvarpstæki sem var í
notkun og brann timburveggur
sem tækið stóð við, einnig urðu
skemmdir af vatni og sóti.“
Fréttaritari spurði Snoira hvort
hann hefði verið ánægður með
framgang slökkviliðsins?
Snorri sagði: „Menn mega aldr-
ei vera fyllilega ánægðir. Oft kem-
ur í ljós að eitthvað hefði mátt
betur fara, en eitt er víst að allir
leggja sig fram í svona tilfellum.
Við fengum t.d. slæma umfjöll-
un á Stöð 2, þar sem því var hald-
ið fram að við hefðum verið seinir
á staðinn, þessu vísa ég algerlega
á bug. Eins og flestir vita er
slökkviliðið í Hveragerði byggt
upp af mönnum sem stunda fulla
vinnu annars staðar, eins og ger-
ist víðast hvar á landinu.
Þegar lögreglan fékk vitneskju
um brunann var lögreglubíllinn
staddur í um 1 km fyrir utan Sel-
foss og var hann þegar sendur til
Hveragerðis, sem er um 13 km
leið. Samtímis hringir lögreglan
út slökkviliðið en þá er hver mað-
ur við sína vinnu.
Kom fyrsti bíllinn frá slökkvilið-
inu örlítið á eftir lögreglunni á
eldstað.
Nú getur hver maður reiknað
hvað tekur langan tíma að aka
bíl á vel yfir 100 km hraða 13 km
leið. Tíminn er ekki yfir 5 mínút-
ur, sem er vel innan þeirra marka
sem er reiknað með.
í lokin vil ég geta þess að út-
kallssími slökkviliðsins er 21220,
sem er neyðarsími lögreglunnar á
Selfossi og hefur þetta númer ver-
ið kynnt í mörg ár á dagatali
Hjálparsveitar skáta og dreift í öll
hús í Hveragerði.en einhvers mis-
skilnings virðist hafa gætt.“
Fréttaritari hafði samband við
Stefán Stefánsson eiganda hússins
sem skemmdist og spurði hann
um þetta mál. Hann kvaðst ein-
ungis vilja koma á framfæri inni-
legu þakklæti til allra þeirra sem
unnu að hjálpárstarfi og margs-
konar velvilja sem þau hjónin
hefðu mætt í þessum erfiðleikum.
Sigrún