Morgunblaðið - 18.01.1991, Page 1
64 SIÐUR B/C/D
14. tbl. 79. árg.
FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
ELDFLAUG UMIRAKA
SKOTIÐ Á ÍBÚÐAR-
HVERFI í TEL AVIV
Heiftarlegar næturárásir bandamanna á skotmörk í Irak o g Kúveit
Reuter
Fram að eldflaugaárásum ír-
aka á ísrael í nótt höfðu þær
fréttir einar borist af mót-
stöðu herafla Saddams Hus-
seins að gerðar hefðu verið
stórskotaliðsárásir á olíu-
hreinsunarstöð í Saudi-
Arabíu. - Saddam Hussein
biðst fyrir í Bagdad.
Nikosíu, Washington, Bagdád, Lundúnum, Jerúsalem, Ankara. Reuter, Daiiy Telegraph.
IRAKAR skutu eldflaugum á Tel Aviv, stærstu borg Israels, og
fleiri staði í landinu í gærkvöldi. Útvarpsstöðvar fluttu tilkynningar
þar sem fólki var fyrirskipað að setja á sig gasgrímur og halda sig
í lokuðum herbergjuin til varnar eiturefnavopnum. Embættismenn
í Saudi-Arabíu sögðu að Scud-eldflaugum hefði verið skotið á her-
stöð bandamanna í Dhahran í Saudi-Arabíu en óvíst var hvort ísrael-
ar hefðu þegar hafið hefndarárásir. Herþotur bandamanna héldu
uppi hörðum árásum á hernaðarmannvirki í Irak og Kúveit í gær-
kvöldi og nótt.
„Það er neyðarástand í Tel Aviv,
ég heyri sprengingar,“ sagði frétta-
maður bandaríska sjónv’arpsins
CNN í beinni útsendingu frá borg-
inni. Haft var eftir háttsettum ísr-
aelskum embættismanni að ratsjár
hefðu ekki greint eldflaugarnar,
sem taldar voru af gerðinni Scud,
en fyrsta sprengingin var sögð
hafa kveðið við klukkan 2.10 að
staðartíma. Bandaríska varnar-
málaráðuneytið sagði að "5tta eld-
flaugum hefði verið skotið á landið,
þijár hefðu lent utan íbúðarhverfa,
tvær í Tel Aviv, ein í Haifa, en
ekki var vitað hvar tvær lentu.
Ekki var vitað með vissu um tjón
af völdum þeirra. Talið er að flaug-
arnar hafi ekki borið eiturefna-
hleðslur.
Moshe Arens, varnarmálaráð-
herra ísraels, hafði varað við því
að hættan á árásum á landið frá
írak væri ekki afstaðin þótt banda-
rískar þotur hefðu grandað föstum
skotpöllum með eldflaugum í vest-
urhluta íraks, sem miðað væri á
landið. ísraelsher hafði talið hættu
á árásum frá hreyfanlegum eld-
flaugaskotpöllum Iraka. Þá hafði
belgíska útvarpið BRT fyrr í gær-
kvöldi eftir íraska sendiherranum
í Belgíu að írakar hefðu enn í
hyggju að gera efnavopnaárás’ á
ísrael.
Herþotur frá fjórum ríkjum -
Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakk-
landi og Saudi-Arabíu - gerðu í
gær linnulausar árásir á hernaðar-
mannvirki í írak og Kúveit - her-
flugvelli, eldflaugnaskotpalla, efna-
vopnaverksmiðj ur, stj órnstöð var
hersins og jafnvel skotmörk í hjarta
Bagdad-borgar.
Dick Cheney, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði að
gerðar hefðu verið meira en 1.000
loftárásir og ríflega hundrað stýri-
flaugum hefði verið skotið frá her-
skipum og valdið miklu tjóni á hern-
aðarmannvirkjum íraka. Hann var-
aði þó við því að stríðið kynni að
verða langvinnt og mannskætt.
Þing Tyrklands heimilaði Banda-
ríkjamönnum að nota herflugvelli
landsins til að gera árásir á íraka.
Bandaríska sjónvarpið CNN skýrði
frá því að bandarískar sprengjuþot-
ur af gerðinni B-52 hefðu gert árás-
ir á Irak frá Tyrklandi og Diego
Garcia á Indlandshafi í gærkvöldi.
Sjá fréttir af Persaflóastríð-
inu á bls. 18-23.
Olafur Noregs-
konunöTir látmn
Ósló. Iíeuter. ^ ^
ÓLAFUR V Noregskonungur lést í gær á 88. aldursári á sveitasetri
sínu skammt fyrir utan ðsló. Hann dó úr hjartaslagi. Við völdum
tekur Haraldur krónprins en hann hefur gegnt konungsverkum frá
því faðir hans fékk hjartaáfall í maí í fyrra.
Ólafur tók við völdum af föður
sínum Hákoni VII árið 1957 er
hann var 54 ára og réð því ríkjum
í 34 ár en faðir hans sat á valda-
stóli í 52 ár. Haraldur ríkisarfi er
53 ára.
Ólafur konungur var annálaður
íþróttamaður, einkum fyrir skíða-
iðkun en ennfremur hlaut hann
gullverðlaun í siglingakeppni
Olympíuleikanna í Amsterdam árið
1928. Hann var nokkurs konar tákn
norsku þjóðarinnar um andspyrn-
una gegn nasistum sem lögðu Nor-
eg undir sig í stríðinu. Konungsfjöl-
skyldan slapp naumlega undan
heijum nasista er hún flýði til Bret-
lands rétt eftir innrásina 1940.
Ólafur kom hingað til lands sem
gestur íslensku þjóðarinnar á
Snorrahátíðina í Reykholti árið
1947. Afhjúpaði hann m.a. Snorra-
styttuna sem þar er. Kom hann í
opinbera heimsókn til landsins 1961
Morgunblaðið/Ólafui' K. Magnússon
Ólafur V Noregskonungur við Almannagjá á Þingvöllum 1974.
og 1974. Síðast kom Noregskon-
ungur til Islands árið 1988 og gaf
hann þá fjármuni til endurreisnar
Snorrastofu í Reykolti.
Eftir að andlát konungs fréttist
felldu útvarps- og sjónvarpsstöðvar
norska ríkisins niður útsendingu
dagskrár og léku sorgarlög.
Vitum
ekkert
- segirZeev
Ofiri, blaðamaður
í Tel Aviv, í sam-
tali við Morgun-
blaðið í nótt
„ÉG sit einn í einangraða
herberginu í íbúðinni minni
og hef gasgrímuna á andlit-
inu. Ég veit mjög lítið hvað
er að gerast í landinu, út-
varpsþulirnir segja fólki að-
eins hvernig það á að haga
sér, en ekki nákvæmlega
hvað hefur gerzt. Við bíðum
bara milli vonar og ótta,;1
sagði Zeev Ofiri, ísraelskur
blaðamaður í Tel Aviv, í sam-
tali við Morgunblaðið klukk-
an tvö í nótt að íslenzkum
tíma, tveimur klukkustund-
um eftir að fyrstu fregnir
bárust af eldflaugaárásum
íraka á íbúðarhverfi í Tel
Aviv. „Ég á marga góða vini
á íslandi. Ég vildi að ég væri
í Reykjavík núna, lengra frá
eldflaugunum,“ sagði Ofiri.
„Þú veizt áreiðanlega meira
en ég um ástandið, hér er upp-
lýsingum haldið leyndum af
öryggisástæðum. Við vitum að
eldflaugum hefur verið skotið,
en ekki hve mörgum eða hvar
þær hafa lent. Hafa einhveijir
særzt?“ spurði Ofiri blaðamann
Morgunblaðsins. Hann sagðist
hafa heyrt gífurlega spreng-
ingu klukkan tvö að ísraelskum
tíma. Loftvarnaflautur hefðu
farið í gang og vælt látlaust í
um klukkustund.
„Göturnar eru galtómar og
fólk heldur sig inni við. Þannig
hefur það verið allt síðdegið og
fram á kvöld. Gluggum og dyr-
um er harðlokað vegna efna-
vopnanna. Fólk situr í lokuðum
herbergjum sínum og enginn
veit hvað er að gerast fyrir ut-
an. Ekkert mun gerast fyrr en
í fyrramálið, þegar ríkisstjórnin
ákveður hvernig á að bregðast
við. Sennilega munu ekki marg-
ir falla, en ég óttast að árásirn-
ar muni aðallega vinna mönnum
sálrænan skaða.“