Morgunblaðið - 18.01.1991, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.01.1991, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1991 29 Egill Ástbjöms- - Kveðjuorð son Fæddur 2. júní 1915 Dáinn 12. janúar 1991 Það er að vonum að manni verði stirt um stef þegar góðvinir _eru kvaddir. Samfylgd okkar Egils Ást- björnssonar er orðin spordrjúgur spölur, og enginn man nú lengur hvenær lagt var upp í þá ferð. Var það kannski árið 1941 eða hvað? Sumir koma þann veg inn í líf manns að helst er sem þeirra hafi maður lengi beðið, og þegar þeir birtast er eins og maður hafi ávallt þekkt þá. Svo var um þann góða dreng, Egil. Hugurinn reikar um gengna tíð, og mikið sólskin yfir minningunum. Við vorum samstarfsmenn um ára- bil og þá kynntist ég snyrti- mennsku, smekkvísi og fádæma elju hans. Þeir eiginleikar voru hon- um í blóð bornir og fylgdu honum alla tíð, ásamt skapfestu og skap- prýði. Það var mér mikill ávinning- ur að Egill var útivistarmaður og náttúruunnandi af lífi og sál og dreif mig frá amstri daganna á vit heiðavatna og strauma, en það var yndi okkar og munaðarauki. Um árabil áttum við stefnumót við Laxá í Þingeyjarsýslu og undum hvergi betur. Við stóðum líka á söndunum við Eldvatnið, með svarrandi brimið á bak og horfðum á sólina koma upp yfir Lómagnúp og eina feg- urstu sveit landsins opnast í sólar- glóð. Þá bjó í hjörtunum þakklæti fyrir að eiga þetta land og óskin að_ fá að fæðast aftur og enn aftur á íslandi og eiga það til eilífðarnóns með svona góðum vini. Enginn hef- ir lengur tölu á öllum þeim ám og vötnum sem seiddu okkur til sín þegar heiðríkjan hafði völd og báð- ir voru yngri. Hann hélt þó lengur út en ég og fór í síðustu veiðiferð- ina í fyrrahaust, þá orðinn sjúkur af meinsemd þeirri sem dró hann til dauða 12. janúar síðastliðinn. Egill var maður trúaður og sann- færður um að dauðinn væri ekki endalok alls og voru þau hjón, Ásta Stefánsdóttir og hann, sömu skoð- unar í því sem og flestu öðru. Þau giftust ung, glöddust með glöðum, en báru mótlætið saman með reisn og þokka, vinsæl og vel látin af öllum sem þekktu þau. Rökhyggjan segir það eitt um dauðann að hann sé endalok lífsins og honum skulum við lúta, allir sem einn, eða eins og Samuel Beckett komst að orði: „í upphafmu eru endalokin falin.“ Gegn þessu rís trúin, trúin á Guð og að kærleikur hans sé dauðanum yfirsterkari. í nýrri ljóðabók eftir Kristján Árnason (Einn dag enn) birtist þýðing höfundar á kvæði eftir Rainer Maria Rilke sem heitir „Haust“. Mér finnst sem lífssýn vinar míns sé falin öll í eftirfarandi hendingum þessarar Ijóðperlu: „Við föllum öll, sú hönd er fellur hér er hinni lík sem dæmd er þar til falls. En þó er sá sem einn að baki alls allt þetta fall í styrkri hendi ber.“ Ég votta ástvinum og ættingjum Egils Ástbjörnssonar samúð mína. Atli Már Þegar ég rita nokkur kveðjuorð vegna fráfalls vinar míns, Egils Ásbjörnssonar, þegar hann leggur í þá langferð sem við hin sem eftir lifum eigum vísa, hrannast minn- ingamar fram í hugann. Verndar- engill minn var mér hliðhollur sem fyrr og síðar þegar hann leiddi okk- ur saman 12. maí 1930. Þá hófst vinátta okkar sem stóð alla tíð síðan og bar aldrei skugga á. Hann var þá 14 ára gamall sá hinn mikli heiðursmaður allt sitt líf. Við spiluð- um saman brids í 50 vetur, veiddum á sumrin, sem veiðimaður var hann einstakur, ég sé hann fyrir mér þar Sem hann stendur með stöngina og pleyersinn sem var hans fasti fylgi- fiskur við fjallavötnin fagurblá eða straumharðar árnar. Hann var þessi rólegi veiðimaður sem var jafn glað- ur þegar fengurinn slapp eftir snarpa og tvísýna viðureign, það er á slíkum stundum sem maður kynnist innri manni veiðimannsins hvað best. Gleði hans var ekki síðri þegar við hinir vorum þeir heppnu en oftar en ekki var það hann sem var sá heppni. Þessar veiðiferðir eru okkur félögum hans hafsjór af minningum sem okkur eru dýrmæt- ar. Já, margar myndir koma fram í Lokað í dag milli kl. 13.00-15.00 vegna jarðarfarar BJARNA I. KARLSSONAR. Hljómbær, Skrifbær, Verkbær, íslensk/erlenda. hugann vetrarkvöldin í fimmtíu ár við bridsborðið þar sem hann með sinni léttu kímni kom okkur í gott skap eftir einhveija vitleysuna sem við höfðum gert. Hann hafði sínar ákveðnu skoðanir á málum en þær voru ávallt bornar fram með hátt- vísi svo engan særði. Það var oft glatt á hjalla heima hjá Ástu sem bar fyrir honum og börnunum mikla umhyggju og bjó honum indælt heimili þar sem ríkti ástúð og frið- ur. Ekki var allt líf hans dans á rósum en mótlæti var tekið með sömu stillingu, það var ekki borið á torg þó eitthvað bjátaði á. Það er mikið lán fyrir hvern þann sem eignast að vini slíka perlu sem Egill var. Við vinir hans höfum misst mik- ið, Ásta og börnin þó mest, en þau geta huggað sig við það að orðstír deyr aldrei hveim er sér góðan get- ur og það gerði hann svo sannar- lega. Minningamar um hinn mikla drengskaparmann munu lifa í hug- um okkar, þær munu ylja okkur utn ókomin ár. Ásta mín, ég sendi þér og börn- unum samúðarkveðjur við fráfall þessa góða drengs. B.J. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. Einir fara og aðrir koma í dag, því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. (Tómas Guðmundsson) Mig langar að minnast manns, dásamlegs manns, sem ég kynntist sem afa eiginmanns míns en varð afi minn, ekki í eiginlegri merkingu heldut' þannig að hann var svona eldri maður, einlægur og góður eins og afar eru, og ég kallaði hann allt- af afa. Egill hét hann, bjartur og fall- egur alveg inn að innsta beini, æðrulaus, einstaklega barngóður og gefandi án þess að æskja nokk- urs til baka. Hann vildi bara vera hreinn og beinn eins og hann var af Guði gerður, tók öllum og öllu eins og það kom og lifði með því, ekki eingöngu þægilegur heldur líka víðsýnn útfrá lífinu og útfrá sjálfum sér. Alltaf var gaman að koma til afa og ömmu og horfa upp á samheldni þeirra og ást því að hún var ein- læg, mikill er missir ömmu, barn- anna þeirra, barnabarna og tengda- barna. Látum hug okkar allra fylgja afa í framandi heim. Gullý Birtíng afmætís- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til- vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning- argreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmæl- isfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð- að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. KENNSLA Þýskunámskeið Germaníu hefjast á ný mánudaginn 28. janúar 1991. Kennsla verður sem hér segir: Byrjendur(nýir).... Byrjendur (frá fyrra ári Framhald I ........ Framhaldlll ....... Framhald IV........ FramhaldV.......... FramhaldVI ........ mánud. 20.15-21.4E þriðjud. 20.15-21.4E þriðjud. 18.45-20.1E mánud. 18.45-20.1E þriðjud. 18.45-20.1f fimmtud. 18.45-20.1t mánud. 18.45-20.1E Þing Þ.S.Í. 1. þing Þjónustusambands íslands verður haldið á Holiday Inn 17. og 18. mars 1991. Bréf þess efnis hefur verið sent aðildarfélög- um Þ.S.Í. F.h. framkvæmdastjórnar, Sigurður Guðmundsson, forseti Þ.S.I. Kennt verður í Lögbergi, Háskóla íslands, annarri hæð. Upplýsingar eru gefnar f síma 10705. Nýir þátttakendur velkomnir í alla hópa. FUNDIR - MANNFA GNAÐUR SJÁLFSTÆDISFLOKKURINN F É l. A G S S T A R F liriMDAU Ul< Kosningar framundan Kosningastjóm Heimdaliar, félags ungra sjálf- staeðismanna í Reykjavík, vegna alþingiskosninganna í vor, hefur hafið störf. Stjórnin heldur fund í Valhöll, Háaleitisbraut 1, í dag, föstudaginn 18. janúar kl. 19.00. Allir áhugasamir félagsmenn eru boðnir velkómnir. Heimdallur. Hafnfirðingar heldur fund mánudaginn 21. janúar 1991 kl. 20.30. Fundarefni: Kosning fulltrúa á Landsfund sjálfstæðis- manna sem haldinn verður 7.-10. mars. Gestur fundarins verður Gunnlaugur Guð- mundsson, stjörnuspekingur. Kaffiveitingar. Mætið vel og takið með ykkur gesti. Stjórnin. Grindavík Aðalfundur Boðað er til aðalfundar í Skýrslutæknifélagi íslands 31. janúar 1991 á Hótel Loftleiðum, kjallara, kl. 15.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. Akureyri - Akureyri Sjálfstæðiskvennafélagið Vörn Aðalfundur í Kaupangi laugardaginn 26. janúar kl. 14.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lagabreytingar. 3. Önnur mál. * Stjórnin. Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Grindavíkur verður haldinn sunnudaginn 20. janúar í félagsheimilinu Festi, litla sal, kl. 15.00. Dagskrá. 1. Almenn aðalfundarstörf. 2. Kosning landsfundarfulltrúa. 3. Káffi. 4. Bæjarmálefni. 5. Almennar umræður. Gestur fundarins verður Matthías Á. Mathiesen alþingismaður. Félagar fjölmennið. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.