Morgunblaðið - 18.01.1991, Blaðsíða 26
~>
MORGUNBLAÐIÐ I’OSTUDAGUR 18. JANUAR 1991
HifiiÉHI
' . -""V;
i
Sautjánda Heklugosið frá landnámi
Fólk, sem lagði leið sína að hrauninu, stóð agndofa gagnvart ofurmætti náttúruaflanna.
Morgunblaðið/RAX
>
Gullinn slæðudans
elds, hrauns og skýja
ELDTUNGURNAR teygðu sig upp úr nýrri hraunsprungunni
í hlíðum Heklu og sleiktu skýjaslæðurnar þegar leiguflugvél
frá Sverri Þórðarsyni, með Morgunblaðsmenn innanborðs,
sveimaði yfir Heklu á níunda tímanum í gærkveldi. Sú sjón
sem blasti við, þegar loksins rofaði til, var ólýsanlega tilkomu-
mikil, þar sem samspil elds, íss, fljótandi hrauns, skýjaslæðna
og gosbólsturs var síbreytilegt, síkvikt en alltaf ægifagurt
þann stundarfjórðung sem útsýnið varði.
Laust fyrir kl. 19.30 í gær- gosið hafði varað í góðar tvær
kveldi, þegar við nálguðumst
Heklu úr lofti, sást aðeins örlitill
rauður bjarmi í austri, en þá gekk
á með éljum og vindur var af suð-
vestan. Eftir að hafa sveimað í
stóra hringi yfír Suðurlandsundir-
lendi um allnokkra hríð opinberaði
Hekla skyndilega nýjasta gjörning
sinn. Þá var klukkan 20.22 og
stundir. Lauslega áætlað var gull-
in hraunbreiðan þá 3 til 4 kílómetr’-
ar á lengd og um 500 metrar á
breidd. Hraunbreiðan virtist skríða
ofurhægt fram, séð úr 2500 feta
hæð, og þaðan var þessi sjón einn-
ig einkar sakleysisleg og erfitt að
gera sér í hugarlund hversu ógn-
vænlegur kraftur og eyðingar,-
máttur gat verið þarna á ferð. Það
var helst að slíkt hVarflaði að
blaðamönnum þegar Árni Sæberg
ljósmyndari opnaði gluggann til
þess að munda myndavélina - þá
varð brennisteinsfnykurinn ofur
megn.
Skemmst er frá því að segja
■að þessi einþáttungur Heklu stóð
aðeins í stundarfjórðung, og þegar
skýin urðu að mekki á nýjan leik,
þannig að ekki bjarmaði einu sinni
fyrir gosinu, var eins og leiktjaldið
hefði fallið. Logagullnum slæðu-
dansi skýja, elds og hrauns var
lokið - hann yrði aldrei dansaður
á nákvæmlega sama hátt á ný.
A.B.
Logandi hrauntungan ruddist fram og var um sex kílómetrar um
miðnætti í gær. Á myndinni sést bærinn Galtalækur með logandi
hraunelfur að baki.