Morgunblaðið - 18.01.1991, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 18.01.1991, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ KÖSTODAGUR 18. JANÚAR 1991 33 an um Malínu og elskulega í]öl- skyldu Eiríks Hjartarsonar. Eftir að Guðrún flutti til Reykjavíkur átti ijölskyldan á Seli víst athvarf hjá henni í bæjarferðum. Oft var henni skrifað og hún beðin að útvega hvaðeina sem vantaði. Um þetta vitna gömul bréf sem varð- veist hafa. Árið 1942 urðu þáttaskil í lífi Guðrúnar. Björn bróðir hennar stóð þá einn með tvö lítil börn, Sigurð og Sigríði á fyrsta og öðru ári. Björn fluttist suður til systur sinnar með börnin. Guðrún tók þeim opnum örmum, hélt heimili með bróður sínum og annaðist börnin sem besta móðir. Sigurður ólst upp hjá þeim að öllu leyti og Sigríður systir hans dvaldist hjá þeim langdvölum, eink- um á vetuma eftir að hún komst á skólaaldur. Guðrún og Björn tóku einnig aldr- aða móður sína til sín árið 1945 og önnuðust hana þar til hún lést árið 1959. Þau bjuggu á Baldursgötu 18 til ársins 1958. Þá fluttu þau á Njáls- götu 71 og bjuggu þar í 11 ár ásamt Sigurði og fjölskyldu hans. Árið 1969 festi Sigurður kaup á húsinu Efstasundi 31. Þangað fluttu þau öll og hafa búið þar síðan. Björn andaðist árið 1989 og hafði notið einstakrar umhyggju þeirra í þung- um veikindum. Guðrúnu varð að ósk sinni að dvelja heima til æviloka og geta séð um sig sjálf undir verndar- væng fjölskyldu sinnar. Hún dvaldi tvo daga á Landakotsspítala og and- aðist þar að morgni 11. j anúar 1991. Guðrúnu gafst ekki kostur á langri skólagöngu, en hún var góð- um gáfum gædd, víðlesin og minn- ug. Hún gat því miðlað yngri kyn- slóðinni fróðleik úr bókum og reynslu frá langri ævi. Hún sagði vel frá og var skemmtileg heim að sækja. Greind hennar nýttist vel. Bjartsýni, æðruleysi, góðvild og hjálpsemi tók hún í arf frá móður sinni. Það voru hennar aðalsmerki og verkuðu hvetj- andi á vinahópinn. Hún helgaði öðr- um líf sitt og veitti af auðlegð hjarta síns. Uppskeran varð líka eins og til var sáð. Þegar lífsþróttur fór að minnka og heilsan að bila reyndist Sigurður fóstm sinni vel, eins og hún reyndist honum alla tíð. Dvald- ist hún í skjóli hans og konu hans Elsu Óskarsdóttur. Það varyndislegt að sjá hve hugulsöm þau voru og óspör á tíma sinn, svo líðan hennar gæti verið sem best. Fyrir það er þeim nú þakkað í hennar nafni og einnig börnum þeirra, Guðrúnu, Berglind, Birni Smára og Hjördísi, fyrir elskulegt viðmót og hjálpsemi við hana. Guðrún var þeirra ástkæra amma sem alltaf var til taks heima með hjartahlýju og aðhlynningu og var svo líka orðin langamma litlu sólargeislanna sinna, Elsu Óskar og Matthíasar. Ferð hennar til fyrirheitna lands- ins veldur því að tómlegra er heima og söknuðurinn mikill. En hún var okkur sem eftir lifum góð fyrirmynd sem margt var og er hægt að læra af. Þess vegna verður hún enn hjá okkur í þeim skilningi og hjálpar okkur að leita þess góða í lífinu. Hlutverk hennar hér á jörð var stórt og fagurlega af hendi leyst. Hún var alltaf tilbúin að hjálpa vin- um og vandamönnum þegar erfið- leikar steðjuðu að. Þá hugsaði hún síst um eigin hag. Hennar hamingja var fólgin í því að gleðja og hjálpa. Til hennar var alltaf hægt að koma án þess að gera boð á undan sér. Við vorum öll svo velkomin. Ómetanlegt var það athvarf og umhyggja sem hún veitti okkur móðurlausum systrum á bamsaldri og alla tíð síðan. Og þegar lítil Þórdís þurfti pössun var ekkert sjálf- sagðara en vakna fyrr á morgnana, eiginlega um miðja nótt, til að ljúka vinnu utan heimilis við þrif í Stjórn- arráði íslands, og vera svo komin til okkar inn í Laugarneshverfi með strætisvagni fyrir kl. 9 að morgni til að gæta frænku sinnar, sem eign- aðist þá líka hlutdeild í þessari elsku- legu ömmu. Fyrir þetta allt þökkum við nú með hryggð og söknuð í hjarta, en samgleðjumst henni jafn- framt að vera leyst frá þrautum og hafa fengið að sjá dýrð Guðs í æðri heimi. Við kveðjum elsku Gunnu okkar með virðingu og þökk og sendum ástvinum hennar dýpstu samúðar- kveðjur. Sigrún Minning: Gunnar S. mundsson Fæddur 11. nóvember 1898 Dáinn 12. janúar 1991 Góður vinur og ástríkur afi er látinn. Gunnar Guðmundsson lést laugardaginn 12. janúar á Drop- laugarstöðum á nítugasta og fjórða aldursári. Okkar fyrstu kynni voru þau þegar ég kynntist syni hans árið 1955, frá þeim tíma hefir aldrei borið skugga á okkar vináttu. Ég fluttist inná hans heimili og bjó þar í 11 ár. Hann var einstaklega um- gengnisgóður og skipti aldrei skapi, nema þegar ég var að skamma strákana mína, þá sagði hann hvasst: Það er óþarfi að skamma drengina, þeir hafa ekkert gert af sér. Þeir áttu vissa málsvörn þar sem afi þeirra var. Er ég fluttist til Egilsstaða kom hann í heimsókn, því hann gat ekki hugsað sér að missa samband við afadrengina sína. Gunnar var góður afi við öll sín barnabörn og var mjög annt um þau. Gunnar var mjög mikið snyrtimenni og sýndi sig það í mörgu, svo sem garðinum hans þar sem við áttum margar stundir við að fegra umhverfið. Ég gleymi ekki þegar honum Guð- trésmiður fannst ég fara óhönduglega með hamar og nagla við að hengja upp myndir: Ertu að hugsa um að bijóta niður allá púsningu í húsinu Bogga? Síðan sagði hann mér til. Svona var Gunnar og orðin voru ekki fleiri. Gunnar átti systur, mág og frænku í Granaskjóli þar áttum við margar ánægjulegar stundir sem aldrei gleymast. Þegar ég kynntist seinni manni mínum myndaðist vinátta á milli þeirra, sem sást best á því að þegar þeir hittust tóku þeir utan um hvern annan. Svona var hann við alla mína vini, enda var hann mér sem faðir. Gunnar var góður smiður kom það sér vel fyrir marga því hann var alltaf boðinn og búinn til að hjálpa öðrum. Minningarnar hrannast upp um góðan vin. Þá kemur upp í huga minn kvæðið Við leiði vinar. Þó að fundum fækki, er fortíð ekki gleymd. í mínum muna og hjarta þín minning verður geymd. Heima í húsi þínu sig hvíldi sálin mín ég kem nú, kæri vinur, með kveðjuorð til þín. (K.N.) Bogga t Faðir okkar, afi og langafi, INGIBERGUR SVEINSSON, lést á St. Jósefsspítala 17. janúar sl. Börn, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVAVA HARALDSDÓTTIR, Asparfelli 10, Reykjavík, lést á heimili sínu 16. janúar. Fyrir hönd aðstandenda, Haraldur Bjarnason. t Móðir mín, tengdamóðir og amma okkar, ELIN MARGRÉT JÓNSDÓTTIR, Borgarbraut 37, Borgarnesi, lést á heimili sínu sunnudaginn 13. janúar. Útförin fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 19. janúar kl. 14.00. Gunnar Ragnarsson, Guðbjörg Ingólfsdóttir og barnabörn. + Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG L. GUÐMUNDSDÓTTIR, Kötlufelli 3, lést á heimili sínu miðvikudaginn 16. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Mágnús Stephensen Danielsson, Áslaug K. Magnúsdóttir, Agnar Eide, Jórunn I. Magnúsdóttir, Stefán H. Stefánsson, Jón S. Magnússon, Kolbrún Viggósdóttir, Arnhildur S. Magnúsdóttir, Jón Guðbjörnsson, Ingibjörg L. Magnúsdóttir, Sveinn Isebarn, Sigríður Magnúsdóttir, Magnús Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, KRISTlN INGVARSDÓTTIR, Drápuhlíð 2, Reykjavík, lést á Landspítalanum þann 16. janúar. Bjarni, Ingvar og Örnólfur Ólafssynir. Fyrstu ár ævi minnar bjuggum við, ég og fjölskylda mín, í Karfa- voginum ásamt ömmu, Gunnari afa mínum og frændum mínum. Við vorum mörg börnin á bænum enda var oft glatt á hjalla, ekki síður þegar nágrannabörnin slógust í leikinn. Oft greip afi í taumana og í augum viðkvæmrar stúlku var hann strangur afi. í einfeldni minni áleit ég hann ekkert vera gefinn fyrir litlar stúlkur. En þá áttu enn eftir að líða mörg ár þar til er ná- inn vinátta okkar hófst. Á unglingsárum mínum jókst áhugi rninn á að kynnast afa og þar eð ég fann að-hann kunni að meta félagsskap minn fór ég að venja komur mínar í Karfavoginn. Eftir því sem árin liðu urðu kynni okkar æ nánari og ég gat rætt við hann um alla hluti. Ég var vön að segja frá því er var að gerast í mínu lífi og yfir kaffibolla tókst mér oft að fá hann til að segja sög- ur af sjálfum sér, af bemskuárum sínum í Breiðafirði, lífí og starfi í Reykjavík, búskap og barnauppeldi. Við ræddum einnig trúmál og ég deildi með honum trú minni á Jesúm Krist og þeim áhrifum sem persónu- legt samfélag mitt við hann hefði á líf mitt. í fyrstu var afi efasemdar- maður er taldi sig ekki hafa sér- staka þörf fyrir nánari kynni af sakaparanum. En loks gerðist sá dásamlegi atburður er við báðum saman til Drottins að hann bauð Kristi inn í líf sitt sem persónuleg- um frelsara og vini og með tárum bað hann um fyrirgefningu allra misgjörða sinna. Gunnar afi var ekki þekktur fyrir að flíka tilfinn- ingum sínum og ávallt hafði harkan borið hann áfram. En ég fékk að sjá afa gráta. Ég veit að hann naut þeirra bænastunda sem við áttum saman. Þar varpaði hann öllum áhyggjum sínum til Drottins. Saddur lífdaga kveður afi nú þessa jörð en við tekur eilíft líf í Kristi, því eins og Guðs orð segir: Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. Og hver sem lifir og trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja. (Jóh. 11:25.) Ég vil þakka afa mínum alla þá ást og hlýju er hann veitti mér, vináttu sem aldrei mun líða mér úr minni. Bryndís Rut + Sonur minn og bróðir okkar, ALEXANDER GÍSLASON, Ölkeldu, verður jarðsettur að Staðastað laugardaginn 19. janúarkl. 14.00. Vilborg Kristjánsdóttir og systkini. + Ástkær móðir okkar og fóstra, GUÐBJÖRG ÞORSTEINSDÓTTIR, Hásteinsvegi 15b, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Landakirkju laugardaginn 19. janúar kl. 14.00. Marteinn Guðjónsson, Ósk Guðjónsdóttir, Bergur Elías Guðjónsson. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HALLFREÐS BJARNASONAR bifvélavirkja, Hvassaleiti 58, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Guðbjörg Einarsdóttir, Halldóra Hallfreðsdóttir, Gunnar Guðmundsson, Hánna Hallfreðsdóttir, Hjálmar Haraldsson, Einar Hallfreðsson, Margrét Ingólfsdóttir, Bjarni Hallfreðsson, Gerður Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför eigin manns míns, föður, fósturföður og bróður, ÞORSTEINS ERÍKSSONAR, Borgarvegi 11, Ytri-Njarðvík. Arný Þorsteinsdóttir, Margrét Þorsteinsdóttir, Þóra Guðmundsdóttir, Gyða Eiríksdóttir, Sigurður G. Eiríksson, Hanna Hersveinsdóttir, Sigurður Sigurðsson, Ævar R. Kvaran, yngri, Meinert Nilssen, Ása Ásmundsdóttir. Lokað í dag vegna jarðarfarar BJARNAI. KARLSSONAR. Radíóþjónusta Bjarna, Síðumúla 17.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.