Morgunblaðið - 18.01.1991, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.01.1991, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUII 18. JANUAR 1991 Nikólína G. Konráðs- dóttir - Minning Drottinn minn gefi dánum ró, en hinum líkn sem lifa. (Úr Sólarljóðum.) Móðursystir okkar, Nikólína Guðfinna Konráðsdóttir, fædd í Vestmannaeyjum 12. maí 1912, lést 9. janúar á Dvalarheimili Hrafnistu í Reykjavík eftir erfið veikindi síðustu árin. Lína frænka, eins og hún var ávallt kölluð af okkur, kom úr stórum systkinahópi. Þessi systk- inahópur ólst ekki allur upp saman í foreldrahúsum eins og algengt var í þá daga. Innan við tvítugt kom hún til Reykjavíkur á heimili móður sinnar, Guðrúnar Sigríðar Einars- dóttur, sem ættuð var af Austfjörð- um. Síðar bættust hin í hópinn hvert af öðru. í Reykjavík tengdust þau öll afar sterkum fjölskylduböndum og var oft glatt á hjalla. Móðir okk- Hallfreður G. Bjama- son - Kveðjuorð Fjöisky 10 kjúkling; TILBOÐ A FJOLSKYLDUPOKKUM I heilan mánuð bjóðum við nú 20% afslátt af fjölskyldupökkum sem innihalda kjúklinga, franskar, sósu og salat. skyldupakki fyrír 5. úklingabitar, franskar, sósa og salat. Verð áður 2520 kr. Verð nú 2000 kr. Athugið. Aðeins 400 kr. á mann. Fjölskyidupakkí fyrír 3. 6 kjúklingabitar, franskar, sósa og salat. Verð áðnr 1640 kr. Verð nú 1300 kr. Pakkí fyrír L 2 kjúklingabitar, franskar, sósa og salat. Verð áðnr 610 kr. Verð nú 490 kr. Sími 16480 Þú getur bæði tekið matinn með þér heim eða borðað hann á staðnum. ar hefur oft sagt frá þessum tíma, hversu ánægjuieg upplifun það var í lífi hennar að endurheimta þessi eldri systkini sem höfðu aðeins ver- ið til í frásögn. Mjög sérstakt var að sjá hversu einlægt og traust samband myndaðist milli þessara systkina sem ekki höfðu alist upp saman í æsku. Lína giftist Kristni Sveinssyni og eignuðust þau einn son, Svein. Þau bjuggu lengst af á Laugateigi 8 í Reykjavík. A heimili þeirra hjóna var alltaf gaman að koma. Það sem fyrst kemur upp í hugann er hversu fallegt heimili þau áttu. Það bar vott um myndarskap og listfengi Línu frænku. Handa- vinna og föndur var stórt áhugamál hjá henni. Hún lætur eftir sig marga fallega hluti. Jólaboðin hjá Línu og Stenna verða alltaf sterk í minningu okkar, jólaborðið hlaðið góðgæti, smápakki fyrir hvert barn, söngur og spilagaldrarnir hans Stenna. Lína frænka var ákaflega sterkur og traustur persónuleiki. Hún hafði alltaf góð áhrif þar sem hún var, hjálpleg og ósérhlífin. Við söknum okkar elskulegu frænku, sem við kveðjum í dag. Við sendum samúðarkveðju til Stenna, Svenna og hans fjölskyldu. Megi guð styrkja ykkur öll. Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár. Minn sáttmáli við guð um þúsund ár. (Halldór K. Laxness) Sirrý, Magga, Birna og Konni Fæddur 18. janúar 1917 Dáinn 14. desember 1990 Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Við hefðum heldur viljað óska elsku afa okkar, Hailfreði G. Bjarnasyni, til hamingju í dag með afmælið. Það er svo ótrúlega sárt að hann skuli vera dáinn. Hann var ákaflega barngóður, hlýr og þolin- móður. Hann hafði alltaf nógan tíma ef við vorum annars vegar, fyrir það viljum við þakka. Hann hafði yndi af söng og þegar við vorum yngri söng hann fyrir okk- ur, sagði sögur eða fann eitthvað sem við gátum haft gaman af. Hann bjó líka til vísur og ijóð sem hann fór gjarnan með fyrir okkur. Er við uxum úr grasi, hvatti hann okkur og gaf góð ráð er til hans var leitað, en sagði jafnan ef eitt- hvað fór úrskeiðis „ekki skal sýta orðinn hlut“. Þau missa mikið Gunnar Ingi- berg og Snædís Góa, og sakna sárt langafa síns, það urðu alltaf miklir fagnaðarfundir eru þau komu í heimsókn í Hvassaleitið til langafa og langömmu. Við kveðjum nú elsku afa í hinsta sinn en minning- in um hann mun verma hjörtu okk- ar um ókomna framtíð. Guð blessi minningu hans og styrki ömmu á þessum erfiðu stund- um. Díana Dröfn, Heimir Logi og Guðlaug Harpa. Reykjaneskjördæmi: Framboðslisti Al- þýðnflokks ákveðinn Á FUNDI kjördæmisráðs Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi sem haldinn var mánudaginn 14. janúar sl. var einróma samþykktur framboðslisti flokksins við næstu alþingiskosningar. Listann skipa: 1. Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Seljabraut 15, Seltjarnamesi. 2. Karl Steinar Guðnason alþingismaður, Heiðar- brún 8, Keflavík. 3. Rannveig Guð- GÆÐASTJ ORNUN b YG GINGAMEISTARAR - VERKTAKAR Opinn fundur um gæðastjórnun í byggingaiðnaði verður haldinn í fundarsal Meistara- og verktakasambands byggingamanna, Skipholti 70 í Reykjavík miðvikudaginn 23« janúar kl. 14:00 Á fundinum verður Qallað um gæðakerfi í Danmörku, hvaða áhrif þau hafa haft, t.d. á hagnað fyrirtækja, byggingakostnað, skipulagningu verka og áætlanagerð. FRUMMÆLANDI: HALLDÓR GUÐMUNDSSON, verkfræðingur og deildarstjóri við Byggingatæknideild Iðntæknistofnunar Danmerkur. Halldór er í stjórn Gæðasíjórnunarfélags Danmerkur, varaformaður í byggingadeild Evrópska gæðaráðsins og stjórnar námskeiðahaldi í gæðamálum byggingaiðnaðar í Danmörku. ^ M-V-B ^ MEISTARA OG VERKTAKASAMBAND BYGGINGAMANNA LANDSSAMBAND IÐNAÐARMANNA mundsdóttir alþingismaður, Hlíðar- vegi 61, Kópavogi. 4. Guðmundur Árni Stefánsson bæjarstjóri, Suð- urhvammi 5, Hafnarfirði. 5. Petrína Baldursdóttir fóstra, Heið- arhrauni 22, Grindavík. 6. Jón Gunnarsson oddviti, Akurgerði 13, Vogum. 7. Gizur Gottskálksson læknir, Ægisgrund 20, Garðabæ. 8. Erna Fríða Berg skrifstofustjóri, Miðvangi 161, Hafnarfirði. 9. Gréta Aðalsteinsdóttir hjúkrunarforstjóri, Reykjalundi, Mosfellsbæ. 10. Þrá- inn Hallgrímsson skrifstofustjóri ASÍ, Helgubraut 13, Kópavogi. 11. Hilmar .Hafsteinsson bygginga- meistari, Hæðargötu 13, Njarðvík. 12. Heimir Karlsson íþróttafrétta- maður, Lækjarhvammi 24, Hafnar- firði. 13. Soffía Ólafsdóttir banka- maður, Skólabraut 12, Garði. 14. Gestur G. Gestsson nemi, Langeyr- arvegi 5, Hafnarfirði. 15. Kristín Jónsdóttir forstöðumaður, Vall- hólma 24, Kópavogi. 16. Jón Norð- fjörð framkvæmdastjóri, Vallar- götu 29, Sandgerði. 17. Helena Karlsdóttir laganemi, Hlíðarbyggð 44, Garðabæ. 18. Guðfinnur Sigur- vinsson bæjarfulltrúi, Háaleiti 13, Keflavík. 19. Guðmundur Oddsson bæjarfulltrúi, Fögrubrekku 39, Kópavogi. 20. Róbert Arnfinnsson leikari, Hófgerði 8, Kópavogi. 21. Jóna Ósk Guðjónsdóttir forseti bæjarstjórnar, Öldutúni 6, Hafnar- firði. 22. Hörður Zóphaníasson skólastjóri, Tjarnarbraut 13, Hafn- arfirði. mýttsímanúmer ^UGIÝSHGADEIIDÆ anti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.