Morgunblaðið - 18.01.1991, Blaðsíða 3
3
MOJRGUNBLAÐIÐ; FÖSTUPAGUR ,18,., J.ANýAR JL.991,
Hekla var eins og þriggja
arma gígastjaki á miðnætti
Heklueldar 1991 Morg-unblaðið/Kristján Jónsson
Skarði í Landsveit, frá Árna Johnsen, blaðamanni Morgnnblaðsins.
Á MIÐNÆTTI var Hekla eins
og þriggja arma gígastjaki og
það vár stórkostlegt að sjá
hraunstrókana úr sprungun-
um í eldfjallinu. Hraunið rann
hægt og sígandi niður Heklu-
hlíðar og sandöldurnar undir
Heklurótum. Við vorum
staddir vestan við Heklu þar
sem hraunelfurin var um sex
kílómetra löng og 300 metra
breið. Um fimm til sex metra
þykkur hraunkambur ruddist
fram.
Það var seiðandi niður í
hraunfloðinu og um klukkan 22
jókst hraunrennsli í norðurátt
með sprengingum í gígunum.
Þá rann hraun í vestur, norður
og austur í átt til Vatnafjalla,
en þeim megin höfðu engir kom-
ist að í nótt. Það var augljóslega
mikið gos í íjallinu, hreint hraun-
rennsli og sást greinilega á rnilli
élja.
Þórhallur Ólafsson, tækni-
fræðingur á Selfossi, sem var
með fyrstu mönnum upp að
hraunstraumnum, sagði að gosið
hefði breyst mjög er leið á kvöld-
ið, því að hraunsúlurnar í gígun-
um jukust eftir því sem leið á
kvöldið á öllum þremur stöðun-
um. Það var mikill straumur bíla,
sérstaklega jeppabifreiða, upp
að Heklurótum eftir því sem leið
á nóttina, og freistuðu sumir
þess að aka upp hlíðar Heklu
að hraunelfunum.
Við komum við á nokkrum
bæjum í nágrenni Heklu og hvar-
vetna fylgdist fólk með af mikl-
um áhuga. Auðheyrilega var fólk
áhyggjuminna, þar sem aðeins
hafði orðið vart við mjög lítið
öskufall í upphafi gossins og
hreinn hraunstraumur virtist
vera ríkjandi. En hraunelfurin
vestan megin í fjallinu rann yfir
gamla Hekluhraunið frá 1947.
SÁU GOSMÖKK OG
SÍÐAR MIKLA BLOSSA
Morgunblaðið/Þorkell
Heklugosið séð frá Skarði í
Landssveit.
„ÞAÐ var dálítið skýjað, en
skyndilega sá ég greinilegan
gosmökk skilja sig frá skýjun-
um. Hann virtist .síðan hætta
að stíga eftir smástund, hann
eyddist í loftinu og varð svart-
ur, eins og af ösku,“ sagði
Eiríkur Jónsson í Eystra-Geld-
ingaholti Gnúpverjahreppi í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, sem var einn af fyrstu
sjónarvottunum að Heklugos-
inu, sem hófst í gær.
Frásögn Eiríks ber saman við
lýsingu Sigrúnar Runólfsdóttur í
Botnum á Meðallandi. Hann seg-
ist hafa séð mökkinn birtast um
það bil sjö mínútur yfir fimm.
Sigrún sagði í samtali við Morgun-
blaðið að klukkan fimm mínútur
yfir fimm hefði hún séð gildan
gosstólpa stíga hratt upp frá
Heklu. Hann hefði hægt á sér er
vindurinn beygði hann, en bjarm-
að neðan í hann af eldunum í fjall-
inu.
Eiríkur fór aftur að fylgjast
með gosinu er tilkynning kom um
það í útvarpinu. „Þá sá ég eldinn
aftur, það hefur verið um sexleyt-
ið, en ég heyrði engar drunur.
Ég var að tala í símann upp úr
klukkan sex og þá kom gífurlegur
blossi, og síminn datt út í nokkrar
sekúndur. Ég ffétti ofan úr Búr-
felli að þessu hefði fylgt mikil
þruma,“ sagði Eiríkur. Bergur
Pálsson, bóndi í Hólmahjáleigu í
Austur-Landeyjum, segist einnig
hafa séð eldingu í byrjun gossins.
Sjá viðtöl við sjónarvotta bls.
26.