Morgunblaðið - 18.01.1991, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.01.1991, Blaðsíða 15
Clio Fullkommr yfirburðir Frumsýning laugardag og sunriudag kl. 10 - 17 Elskuleg mágkona mín, Guðrún Kristjánsdóttir, eða Dúna í Smára- hvammi eins og hún var alltaf köll- uð, andaðist aðfaranótt 12. þ.m. Með henni er gengin ein sú besta kona sem ég hef kynnst. Dúna var fædd og uppalin í Álfs- nesi á Kjalamesi, ein af 15 börnum hjonanna Kristjáns Þorkelssonar, bónda og hreppstjóra og Sigríðar Guðnýjar Þorláksdóttur. Ekki kann ég vel að rekja ævifer- il Dúnu, þar sem hún var um fímm- tugt þegar leiðir okkar lágu saman, er ég giftist Vernharði, bróður henn- ar, og hún ekki mikið fyrir að tala um sjálfa sig. Þó veit ég að eftir að hún hleypti heimdraganum var hún einn vetur í Húsmæðraskólanum á ísafirði. Árið 1936 giftist hun Kristj- áni ísakssyni frá Fífuhvammi. Kristján var mjög sérstæður maður, sem ég mat mikils, greindur vel og athugull, listasmiður, hann var gam- ansamur og góður maður. Hann lést 1973 og hafði þá átt við langvar- andi vanheilsu að stríða. Fyrstu hjúskaparárin voru þau í Fífuhvammi, en reistu síðan nýbýlið Smárahvamm út úr Fífuhvamms- landi 1942 og voru þar með nokkum búskap. Á þessum árum voru Fífuhvamm- ur og Smárahvammur býsna úrleiðis og samgöngur aðrar en nú. Þægindi voru lítil sem engin og lífíð örugg- lega ekki alltaf dans á rósum hjá Dúnu minni. Þegar tímar liðu kom í ljós að þau höfðu reist skála um þjóðbraut þvera, því þama varð nokkurskonar fjölskyldumiðstöð, þar sem ungir og aldnir hittust. Ekki var hvað síst gestkvæmt haust og vor, þegar kartöfluræktin stóð sem hæst og næstum var keppni um hver fengi bestu uppskeruna. Oft var glatt á hjalla, því allir komu inn til Dúnu og nutu gestrisni hennar og góðvildar, sem alltaf var hin sama, þótt vínnudagurinn hefði ver- ið langur og erilsamur. Margar vora ferðir okkar hjóna suður í Smárahvamm enda mjög kært með þeim systkinum, og þegar við skruppum á kvöldin fyrir hátt- inn, var okkur tekið sem langþráðum gestum, þó fullt hefði verið út úr dyram allan dagjnn. Að skilnaði var oft stungið að manni poka með nýs- Bílaumboðið hf Krókhálsi 1 -3, Reykjavík, sími 686633 KENAULT rerá kostum MQKGUNBLADIÐ FÖSTUDAGUR,18.,JAhjýAR 199.1 teiktum kleinum eða nýprjónuðum vettlingum á litlar hendur. Þannig var Dúna, henni var sælla að gefa en þiggja. Gjafmildari og notalegri manneskja er vandfundin. Kærleiksfaðmurinn hennar Dúnu var stór, hann rúmaði ekki aðeins bömin hennar og barnabörn og bamabamabörn heldur ótal fleiri, m.a. barnabömin mín, og alla mína fjölskyldu. Þau Kristján og Dúna eignuðust fimm böm: Þóranni, Kristján, Helgu, Sigurð og Gunnar Smára. Það var mikið áfall þegar Sigurður fórst af slysföram frá konu og þremur ung- um börnum. Dúna var ekki fyrir að kvarta eða bera sín mál á torg. Æðraleysi, þrek og kjarkur ásamt hjartahlýju og gjafmildi vora þeir eiginleikar, sem mér fannst einkenna hana mest. Ég sagði oft a.m.k. við sjálfa mig, þeg- ar dætur mínar vora ungar, að ef þær yrðu eins góðar manneskjur og Dúna mætti ég vera þakklát. Það urðu mikil þáttaskil í lífí hennar á sl. ári þegar hún flutti úr Smárahvammi eftir öll þessi ár og það urðu viðbrigði fyrir marga, þeg- ar Smárahvammur sem slíkur heyrði sögunni til. Dúna flutti að Hlíðar- hjalla 6 í litla, fallega íbúð. Þar bjó hún í góðu skjóli Þórunnar dóttur sinnar og Hilmars Guðjónssonar, tengdasonar síns. Hún naut ekki aðeins umhyggju þeirra og ástríkis heldur einnig barna sinna allra og fjölskyldu þeirra. Það var alltaf gaman þegar Álfs- nessystkinin komu í heimsókn. Þá var sólskin í stofunni minni, söngur og gleði, þetta góða fólk með ósvikna innri gleði og lífsþrótt. En allt er í heiminum hverfult og er Dúna tíunda Álfsnessystkinið sem kveður. Mér fannst einhvern yeginn að hún ætti alltaf að vera til, en nú er hún horfin sjónum okkar. Þó veit ég að hún mun halda áfram að lifa í böm- um sínum og afkomendum og öðrum sem þekktu hana, því alls staðar bar hún birtu og yl og sáði fræi góðleik- ans. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. . (V. Briem.) Vilja mágkona HELGARFERÐIR I JANUAR FEBRUAR OG MARS Skemmtiskrepp um helgi, kostar ekki mikið... ...með Flugleiðum. BALTIMORE/ Washington og Baltimore eru borgir sem hafa allt aö hjóöa sem íslendingar vi^a Frábær hótel, risastórar Kringlur, einn besta tengiflugvöll Bandaríkjanna, veitingastaði, þekktar byggingar, heillandi umhverfi, söfn og skemmtigarða. Það er hægt að gera góð kaup í Washington og Baltimore og dollarinn verður ekki lægri... FÖSTUDAGUR TIL MÁNUDAGS LOMBARDY/ WASHINGTON DC TVEIR í HERB. KR. 33.580 Á MANN FLUGLEIÐIR Þjónusta alla leið Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu ?, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir í síma 6 90 300. Allar nánari upplýsingar færðu ásöiuskrifstofum FÍugíeiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.