Morgunblaðið - 18.01.1991, Síða 2
2
MORGUNBLÁÍmÓ ’ FOSTtlDAGÍJÉ^ 18. 'ÍÁ'flÖ’ÁRT iM
Toppfundi Atlantsáls og Islands í New York frestað:
Evrópsku forstjórun-
um bannað að ferðast
FUNDI þeim sem hefjast átti í New York í dag með forstjórum álfyr-
irtækjanna þriggja sem mynda Atlantsál og Jóni Sigurðssyni, iðnaðar-
ráðherra, dr. Jóhannesi Nordal formanns samninganefndar og Halld-
óri Kristjánssyni hefur verið frestað um ótiltekinn tima vegna stríðsins
við Persaflóa. Van der Ros, aðstoðarforsijóri hollenska álfyrirtækisins
Hoogovens sagði í samtali við Morgunblaðið i gær: „Fundinum hefur
verið aflýst og við fáum ekki að ferðast af öryggisástæðum." Sömu
sögu er að segja af Per Olaf Aronsson, forstjóra sænska fyrirtækisins
Granges.
Van der Ros sagði að ekki væri
vitað hversu mikið styrjaldarástand-
ið kæmi til með að tefja samninga-
viðræðurnar um nýtt álver á ís-
landi. „Hugsanlega verður hægt nú
eftir helgina að ákveða hýja dagsetn-
ingu, en um það get ég þó ekki full-
yrt neitt á þessu stigi,“ sagði Van
der Ros.
„Evrópuforstjórarnir eru í ferða-
banni hjá sínum fyrirtækjum og
komust þess vegna ekki til fundar-
ins,“ sagði Jón Sigurðsson iðnaðár-
ráðherra. Jón sagði að forstjórar
fyrirtækjanna, þeir Evans og Drack
frá Alumax og Aronsson og Koker
frá Gránges og Hoogovens mynduðu
yfirnefnd viðræðnanna af hálfu Atl-
antsál. Þeír hefðu ætlað að hafa
samráðsfund í New York, áður en
þeir hittu íslenska ráðamenn og
færu yfír stöðuna. „Okkar fundur
með þeim hefur enga merkingu, fyrr
en þeir eru búnir að ráða ráðum
sínum og því var ekki um annað að
ræða en fresta fundinum," sagði Jón.
Ráðherra sagði að þetta hefði
ekkert með álmálið að gera, „en er
auðvitað bagalegt eins og fleira sem
fyigir þessum skelfilegu atburðum.
Akvörðun um næsta fundartíma
hefur ekki verið tekin, en Paul
Drack, formaður yfirnefndarinnar
er að leita að hentugum fundartíma.
Bandaríkjamennimir töldu ekkert
því til fyrirstöðu að halda svona
fund, en þeir segjast skilja ástæður
evrópsku forstjóranna,“ sagði Jón.
Menntamálaráðuneytið:
Þýðingarreglum breytt
varðandi fréttatengt efni
GEFIN hefur verið út reglugerð um útvarpsrekstur er felur í sér
breytingar á þýðingarreglum þegar um fréttatengt efni er að ræða
um gervihnött. Svavar Gestsson menntamálaráðherra segir að regl-
ur um þýðingar hafi. eingöngu verið skoðaðar en útvarpslögin séu
meingölluð. Mun hann leggja til við ríkisstjórnina að þau verði endur-
skoðuð á næstu dögum. Þorvarður Elíasson sjónvarpsstjóri Stöðvar
2 segir það skref í rétta átt að breyta reglugerðinni með þessum
hætti. Tilraunasendingum CNN verður því haldið áfram og er gert
ráð fyrir að útskýringar fylgi á íslensku og þær birtar á auglýs-
ingatíma CNN.
í reglugerðinni er gert ráð fyrir
að efni á erlendu máii, sem sýnt er
í sjónvarpsstöð, skuli jafnan fylgja
íslenskt tal eða texti á íslensku eft-
ir því sem við á hverju sinni. Það
eigi þó ekki við þegar dreift er við-
stöðulaust um gervihnött og mót-
tökustöð fréttum eða fréttatengdu
efni sem sýnir að verulegu leyti
atburði sem gerast í sömu andrá.
Við þær aðstæður skal sjónvarps-
stöð eftir því sem kostur er láta
endursögn fylgja eða kynningu á
íslensku. Skal lögð áhersla á að
allt tal og texti sé á lýtalausu
íslensku máli.
í frétt frá ráðuneytinu segir, að
stefnt verði að því að innlent efni
verði að minnsta kosti helmingur
sjónvarpsefnisins og að þeir sem
stunda sjónvarpsrekstur skuli einu
sinni á ári gera útvarpsréttamefnd
og íslenskri málnefnd greiii fyrir
þróun innlendrar dagskrárgerðar á
stöðvum sínum.
Að sögn Þorvarðar Elíassonar
verður útsendingum Stöðvar 2 á
efni frá CNN haldið áfram endur-
gjaldslaust fram í miðjan febrúar.
Eftir það mun eftirspurn áskrifenda
segja til um hvort henni verður
haldið áfram og þá í sérstakri
áskrift.
Jón Baldvin fær árit-
un til Eystrasaltslanda
JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra fær vegabréfsáritun til
Eystrasaltslandanna, ásamt fylgdarmanni og fréttamönnum. Svar
þessa efnis barst til utanríkisráðuneytisins frá sovéska sendiráðinu á
tíunda tímanum í gærkvöldi. Utanríkisráðherra fer í dag frá Helsinki
í Finnlandi, þar sem hann er staddur, til Stokkhólms og þaðan til Riga
í Lettlandi, þaðan sem hann fer til Vilnius, höfuðborgar Litháens.
Heimsókn Jóns Baldvins er sam- að sögn Þorsteins Ingólfssonar,
kvæmt boði frá Landsbergis forseta • ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneyt-
Litháens, frá utanríkisráðherra Eist- inu. Þorsteinn sagði heimsóknina
lands og frá stjómvöldum í Lett- ekki hafa verið skilgreinda sem opin-
landi. Ekki var í gær ljóst hvort tak- bera eða einkaheimsókn.
ast mundi að heimsækja öll löndin, Heimsóknin hefst í kvöld og lýkur
á sunnudag, 20. janúar, þegar ráð-
herra ásamt fylgdarliði fer frá Riga
til Stokkhólms.
Með Jóni Baldvin fer Amór
Hannibalsson, sem sérfræðingur um
Eystrasaltslöndin. Þá eru með í för
fréttamenn frá Morgunblaðinu,
Sjónvarpinu, Stöð 2 og DV og áttu
þeir að fara utan í morgun og verða
samferða ráðherra frá Stokkhólmi
síðdegis í dag.
Efnahagsleg staða Reykja-
víkurborgar er afar traust
segir Davíð Oddsson borgarstjóri
FYRRI umræða um fjárhags-
áætlun Reykjavikurborgar fyrir
árið 1991 fór fram á fundi borgar-
stjórnar í gær. Samkvæmt frum-
varpi að fjárhagsáætlun, sem
Vegna frétta Morgunblaðs-
ins af gosinu í Heklu og stríðinu
við Persaflóa varð að breyta
niðurröðun efnis. Fastaefni eins
og Peningamarkaður og Fisk-
markaðir er ekki í blaðinu í dag
og hefðbundnar fréttasíður frá
Akureyri og Alþingi urðu einn-
ig að víkja.
borgarsljóri kynnt.i á fundinum,
verða heildartekjur borgarinnar
á árinu rúmir tólf milljarðar,
rekstrargjöld átta og hálfur millj-
arður og gjöld til eignabreytinga
þrír og hálfur milljarður.
Stærsti tekjuliður borgarinnar
samkvæmt frumvarpi að fjárhags-
áætlun verða útsvör, sem áætlað er
að skili 5.855.000.000 krónum til
borgarinnar. Þá er gert ráð fyrir að
aðstöðugjöld skili borginni
2.530.000.000 kr. og fasteignagjöld
1.880.000.000 krónum. Stærstu
gjaldaliðir borgarinnar verða gatna-
og holræsagerð, félagsmál og al-
mannatryggingar, skólamál og dag-
vistarmál.
Davíð Oddsson, börgarstjóri,
sagði við umræðuna í borgarstjórn,
að fjárhagsáætlunin beri með sér,
að Reykjavíkurborg sé afar öflugt
fyrirtæki, sterkasta ■þjónustueining
landsins, með afar trausta efnahags-
lega stöðu. Sagði hann það fagnað-
arefni, að hægt hefði verið að standa
að mikilli uppbyggingu í borginni á
undanfömum árum, án þess að borg-
arbúum hafi verið íþyngt með nýjum
sköttum og án þess að borgin hafi
sökkt sér í skuldafen.
Seinni umræða um fjárhagsáætl-
unina fer fram í febrúar og verða
þá meðal annars til umræðu breyt-
ingartillögur borgarfulltrúa minnr--
hlutaflokkanna.
Sjá nánar frétt á bls. 7.
Sautjánda Heklugosið frá landnámi
„Tilkomumikil sjón
og fjallið uppljómað“
„ÞETTA var mjög tilkomumikil sjón, fjallið var allt uppljómað og
hraunelfurin rann niður eftir allri suðurhlið þess,“ sagði Baldur
Ingólfsson, flugstjóri hjá Flugleiðum, en hann sá Heklugosið vel er
hann var í áætlunarflugi frá Hornafirði kl. rúmlega 18 í gær.
Baldur sagði að þeir hefðu verið
í 7-8 kílómetra hæð og séð ijallið
mjög vel sunnan megin. „Það virt-
ist vera sprunga eftir endilöngu
fjallinu og hraunelfurin rann niður
alla suðurhliðina í fjölmörgum læn-
um. Þá virtust einnig vera smágos
austan til í hlíð fjallsins. Gosmökk-
urinn virtist mjög hár, allt upp í
12 kílómetra og hann barst í norður
eða norðaustur," sagði Baldur.
Er vélin var á leið austur á
Homafjörð var allt með kyrmm
kjöram, en strax og komið var upp
fyrir jökulröndina á leið suður aftur
sáu flugmennirnir gosmökkinn.
Baldur sagði að vel hefði verið
hægt að fylgjast með gosinu á leið-
inni frá Homafirði, en í útsýnisflugi
í gærkvöld sást lítið vegna élja-
gangs. Baldur sagði að í áætlunar-
flugi til Akureyrar seint í gærkvöldi
hefði bjarmi eldgossins sést nokkuð
vel.
„Mér brá auðvit-
að alveg rosalegau
Selfossi.
„ÞETTA var alveg stórkostleg sjón, mér brá auðvitað alveg rosalega
og hljóp út,“ sagði Inga Nielsen, húsmóði í Stóra-Klofa í Landsveit,
sem ekki hefur áður orðið vitni að Heklugosi. Hún og maður henn-
ar, Kristján Árnason, sátu við eldhúsborðið þegar tilkynning um
gosið kom I útvarpinu. Þau höfðu ekki orðið vör við neitt áður en
tilkynningin kom.
Kristján sagði að hraunstraum-
urinn hefði fljótlega komið í Jjós
niður úr skýjahulunni á fjallinu.
Hann sagði gosið hafa vaxið mjög
hratt og það virtist liggja öðru vísi
í fjallinu en við síðasta gos.
Mikil umferð var upp Landveg
að Galtalækjarskógi, en þaðan sást
vel til gossins. Milli élja á fjallinu
mátti sjá kröftuga logandi eld-
sprungu vestan í því og aðra í aust-
urátt, sem var tilkomumikil sjón.
Sig. Jóns.
Áfram SV-átt í dag
SPÁÐ er áframhaldandi suðvest-
anátt í dag og er því ekki hætta
á öskufalli frá Heklugosi í byggð
á Suður- eða Vesturlandi. Veður-
stofan spáir hins vegar breytingu
í suðaustanátt um helgina og
skýrist í dag hvort breytingin
verður í nótt eða á morgun.
Ekki er þó víst að öskufall verði
mikið í uppsveitum Suðurlands eða
á Vesturlandi því mesti gosmökkur-
inn var í byijun eldgossins.