Morgunblaðið - 18.01.1991, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1991
13
25 ár. Segja má að Bjarni hafi eytt
öllum sínum tíma í fyrirtækið, verið
þar bæði vakinn og sofinn og ég
veit að nú á kveðjustund eru það
æði margir sem hugsa til og þakka
þá þjónustu, sem Bjarni hefur veitt
þeim. Þá var oft ekki spurt að því
hvað klukkan var, hvort var virkur
dagur eða helgur, verkefnin biðu,
þeim þurfti að sinna og það var gert.
Það var mjög ákveðin skapgerð
Bjarna sem átti svo stóran þátt í
velgengni hans. Yfirborðið stundum
nokkuð hijúft en undir bjó mjög
sérstök hlýja, sem lýsti sér mjög
vel í viðmóti til þeirra sem minna
mega sín eða orðið hafa á einhvem
hátt undir í baráttu um lífsgæðin,
þeir áttu ávallt vísan vin í Bjarna.
Þetta lýsir sér svo í gegn um hans
starf að vera ávallt reiðubúinn til
að sinna viðskiptavinum sínum, sér-
staklega atvinnubílstjómm, sem
leituðu ósjaldan aðstoðar hans utan
venjulegs vinnutíma.
En þrátt fyrir langan vinnudag
tók Bjami mikinn þátt í félagsmál-
um stéttar sinnar, rafeindavirkja.
Vora honum falin ýmis trúnaðar-
störf sem hann, þrátt fyrir oft lítinn
tíma, reyndi ávallt að sinna. Sat
hann mörg ár í stjórn Meistarafé-
lags rafeindavirkja, í samninga-
nefnd þess og var formaður sveins-
prófsnefndar til fjölda ára.
Það eru og orðnir margir raf-
eindavirkjarnir í dag, sem stigu sín
fyrstu spor í faginu undir hand-
leiðslu Bjama og ég var svo lánsam-
ur að vera einn með þeim fyrstu.
Sjálfsagt hafa ekki alltaf farið sam-
an skoðanir þeirra og Bjarna sem
vinnuveitanda, en það veit ég að
hann gaf okkur öllum ríkulegt vega-
nesti, sem komið hefur okkur síðar
til góða.
Vil ég færa kveðjur og þakkir
fyrir hönd félagsmanna í Félagi
rafeindavirkja fyrir störf hans að
málefnum stéttar okkar.
Eiginkonu, börnum og öðram
ættingjum færi ég mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur. Ykkar sorg
er mikil en megi góður Guð græða
ykkar hjartasár í minningu um góð-
an dreng.
Þórir Hermannsson
Ég vissi að Bjarni frændi væri
mikið veikur, en mér brá mjög þeg-
ar ég frétti að hann væri dáinn.
Upp í hugann koma minningarn-
ar um sunnudagsbíltúrana okkar í
bæinn með viðkomu í ísbúðinni.
Frá því ég man eftir mér hef ég
komið í Ystaselið á hveiju aðfanga-
Bók um ís-
lenska mál-
hreinsun
SJÖTTA ritið í ritröð íslenskrar
málnefndar er nú komið út og
kallast fslensk málhreinsun.
Sögulegt yfirlit eftir Kjartan G.
Ottósson.
Bókin á rætur að rekja til út-
varpsþátta sem höfundur flutti
1985 undir heitinu Þættir úr sögu
íslenskrar málhreinsunar. Rakin er
saga málhreinsunar á Islandi frá
16. öld og fram á þennan dag.
Höfundur hefur dregið saman
efni úr margvíslegum heimildum,
sumum fáséðum. Fjallað er um ytri
aðstæður íslenskrar málþróunar og
hugað sérstaklega að málnotkun í
kirkjulegum ritum, stjórnsýslu og
verslun. Greint er frá baráttunni
við ásókn dönskunnar, einkum á
fyrri öldum og hvemig enn er hald-
ið áfram að veijast erlendum mál-
áhrifum jafnframt því sem nýyrða-
smíð hefur orðið sífellt mikilvægari.
Bókin er yfirlit um þetta efni
bæði fyrir almenning og fræði-
menn. Höfundur kryddar frásögn-
ina með íjölda dæma um málfar
íslendinga fyrr og síðar.
Bókarverð er 2.480 krónur til
almennings en 2.000 krónur til
áskrifenda Málfregna.
Hægt er að panta bókina hjá
íslenskri málstöð.
(Fréttatilkynning)
dagskvöldi í kvöldkaffí. Sama hefð
var á með gamlárskvöld og þá gisti
ég alltaf.
Við fórum oft í útilegur og fleiri
ferðalög saman. En minnisstæðust
er ferðin okkar með Norrænu 1987.
Þá keyrðum við um Danmörku,
Svíþjóð og Noreg þar sem við tókum
skipið heim aftur.
Við hér í Vesturbergi eram þakk-
lát fyrir að hafa fengið að vera með
Bjama heima hjá sér um síðustu
jól og áramót.
Þótt við séum sprgmædd núna
finnum við huggun í öllum góðu
miningunum sem við eigum um
Bjarna.
Vinum mínum, Bjarna, Braga,
Amari, Önnu og Öddu, sendi ég
samúðarkveðjur. Mínum 'elskulega
frænda þakka ég allar ánægju-
stundirnar sem ég vildi óska að
hefðu orðið fleiri.
Ægir
SKÓÚTSALA
Laugavegi 41,
simi 13570
Skóverslun Þórðar,
Kirkjustræti 8,
sími 14181
ÞARSEM ÞÚ GENGUR AÐ GÆÐUNUM VÍSUM
SIÐASTIDAGUR
L JÓS - G JAFAVARA - HÚSGÖGN
HÆGINDASTÓLAR, BORÐSTOFUBORÐ,
SÓFAR 0.FL. O.FL. kJlOAíC
0PIÐFRAKL. 10-17 I MTNníp
Munið opið luugardng
29. Sími 20640
I
HVÍTA HÚSID / SIA