Morgunblaðið - 18.01.1991, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR U191
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúarritstjóra
Fréttastjórar
Árvakur, Reykjavík
FlaraldurSveinsson.
MatthíasJohannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Sóknin
hafin gegn Irökum
Allt frá því að Saddam Huss-
ein, einræðisherra í írak,
hóf stríðsaðgerðir við Persaflóa
með innrás í Kúveit 2. ágúst
hefur legið í loftinu, að innrás-
inni yrði svarað með valdbeit-
ingu. Hefur heimurinn haft
marga mánuði til að búa sig
undir gagnsóknina og hófst hún
í fyrrinótt um 19 klukkustund-
um eftir að fresturinn sem ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna
gaf Hussein til að hverfa frá
Kúveit rann út. Þessi þróun er
hörmuleg. Saddam Hussein er
upphafsmaður stríðsins sem nú
er háð við Persaflóa. Því lýkur
ekki fyrr en hann gefst upp eða
hörfar frá Kúveit.
Það er til marks um styrk
heraflans sem hefur verið stefnt
gegn Hussein, að í fyrstu árás-
arlotunni, sem stóð í um þijár
klukkustundir, voru gerðar um
400 loftárásir á skotmörk í
Bagdad og á 60 öðrum stöðum
í Kúveit og Irak. Lotan var
ekki annað en liður í stríðsáætl-
un herafla fjölda þjóða, sem
beitir valdi í samræmi við heim-
ild Sameinuðu þjóðanna. Önnur
árásarlota Eyðimerkurstorms-
ins, eins og áætlunin er kölluð,
hófst þegar birti af degi í
Bagdad og var haldið áfram í
gær. Við blasir að hörð átök
eru að hefjast. Verði að þeim
staðið með sömu festu og hing-
að til gegn Hussein á hann sér
tæplega viðreisnarvon.
Alls eru um tólf hundruð
þúsund manns undir vopnum á
átakasvæðinu. Með fjölþjóða-
hemum hefur verið stefnt sam-
an mesta herstyrk sögunnar
síðan á dögum síðari heims-
styrjaldarinnar. Tæknin sem
herforingjarnir hafa á valdi sínu
er með ólíkindum. Þrátt fyrir
að fjölmiðlamenn séu í aðstöðu
til að fylgjast náið með því sem
gerist í átökunum fær almenn-
ingur aldrei að kynnast allri
tækninni sem beitt er við hem-
aðinn. Um allan heim munu
menn hins vegar fylgjast náið
með mannfalli og öðra tjóni,
sem verður í stríðinu. Með sama
hætti og menn báðu fyrir því,
áður en stríðið hófst, að unnt
yrði að semja um frið, hljóta
menn nú að sameina hugi sína
í bæn fyrir að á skömmum tíma
takist að koma á réttlátum friði.
Aður en átökin hófust höfðu
verið nefnd hrikaleg dæmi um
hættuna, sem þeim kynni að
fylgja fyrir saklausa borgara
utan átakasvæðisins sjálfs. Þar
bar hæst, að menn óttuðust að
Hussein kynni að senda flug-
skeyti^ með eitursprengjum
gegn ísraelum. Sem betur fer
virðist flugvélum fjölþjóðahers-
ins hafa tekist að eyðileggja
skotpalla þessara flugskeyta í
írak. Þá var því einnig spáð að
írakar kynnu að grípa til ör-
þrifaráða við olíulindir og bera
að þeim eld, sem hefði varanleg
umhverfisspjöll í för með sér.
Engar fréttir hafa borist um
slík ógnarverk. Lýsingar vest-
rænna fréttamanna í Bagdad
benda til þess, að tekist hafi
að beina árásum á hemaðarlega
mikilvæg skotmörk og mann-
fall hafi verið eins lítið eins og
frekast má vænta, þegar jafn
miklum sprengjumætti er beitt.
Um allan heim hræðast menn
afleiðingar þessa stríðs. Meðal
þjóðanna sem hafa sent her-
menn til átakasvæðanna óttast
menn um líf ættingja og vipa.
Nágrannaþjóðir era kvíðnar og
í fjarlægari ríkjum búa menn
sig undir hættu af hryðjuverk-
um eða almennum neikvæðum
áhrifum af því að barist sé um
hinar mikilvægu orkulindir við
Persaflóa. Hér á landi sem ann-
ars staðar hafa stjómvöld grip-
ið til gagnráðstafana. Öryggis-
gæsla hefur verið hert og þess
gætt að nægar birgðir nauð-
synja séu í landi.
Alvara stríðsins er mikil.
Fjölmiðlamenn og aðrir verða
hins vegar að forðast að gera
meira úr hættuniii af því en
staðreyndir gefa ástæðu til
hveiju sinni. Skaðvænlegar af-
leiðingar stríðs felast ekki að-
eins í því tjóni, sem era sýnileg
og áþreifanleg. Sálræn áhrif,
ekki síst á börn á viðkvæmum
aldri eða aðra sem eru tilfinn-
inganæmir, geta orðið mikil og
varanleg. Stríð hefur alltaf ill
áhrif og gera á allt sem í mann-
legu valdi stendur til að koma
í veg fyrir að það hefjist. Að-
stæður geta hins vegar gert
átök óhjákvæmileg og þá á að
bregðast við þeim á þann veg,
að tjónið verði alls staðar sem
minnst. Þetta verða þeir sem
hæst hafa talað um frið á
undanförnum dögum ekki síður
að hafa í huga en aðrir. Þegar
rætt er um stríð og frið er
grannt á tvískinnungi í mál-
flutningi margra. Enginn vill
átök eins og nú era hafin. Þau
geta hins vegar orðið nauðsyn-
leg, ef farið er fram með óþol-
andi ofbeldi eins og Saddam
Hussein hefur gert.
Fyrsta styrjaldarnóttin;
Reuter
Flugmaður bandarískrar F-4 Phantomþotu tekur við árnaðaróskum
sprengjuhleðslumanns í flugstöð bandamanna í Saudi-Arabíu að lok-
inni árásarferð til Iraks.
Iröskum hernaðar-
skotmörkum eytt
með sprengjuregni
Washingfton, London, Riyadh, Bahrain. Reuter. Daily Telegfraph.
YFIRMENN fjölþjóðahersins við Persaflóa sögðu í gær að
loftárásir á skotmörk í Irak og Kúveit hefðu tekist vonum
framar. Fulltrúar bandaríska varnarmálaráðuneytisins
sögðu að lofther Iraka hefði verið nánast gjöreytt og sömu
örlög hefðu beðið sérsveita forsetans, lýðveldisvarðanna.
Bandamenn hefðu strax náð yfirburðum í lofti og loftvarn-
ir Iraka hefðu verið máttlitlar en Tom King varnarmálaráð-
herra Bretlands varaði við of mikilli bjartsýni um að stríðinu
kynni að ljúka á stuttum tíma og sagði litlar loftvarnir íraka
aílt eins geta þýtt að þeir væru að spara vopnin. Svo virð-
ist þó sem vígtennurnar hafi verið dregnar úr Saddam íraks-
forseta fyrstu átakanóttina en hann hafði hótað að að eyða
herjum bandamanna í Saudi-Arabíu og „brenna“ Israel á
svipstundu kæmi til átaka við Persaflóa.
Dick Cheney varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna sagði að á
hádegi i gær að íslenskum tíma,
eða á fyrstu 14 tímum átakanna,
hefðu flugvélar verið búnar að fara
rúmlega 1.000 árásarferðir til íraks
og Kúveits og meira en 100 Toma-
hawk-stýriflaugum verið skotið frá
herskipum. Mun þá 18.000 tonnum
af sprengjum hafa verið varpað á
skotmörk í löndunum tveim. Cheney
sagði að 80% þeirra vopna sem lagt
hefði verið upp með hefðu hæft
skotmörkin en sumar vélar munu
hafa komið með vopn til baka þar
eð flugmenn höfðu fengið ströng
fyrirmæli um að beita þeim ekki
nema með mikilli vissu um að þau
hæfðu fyrirfram ákveðin skotmörk
en t.a.m. ekki íbúðarhverfi. Hernað-
arsérfræðingar sögðu allt benda til
að sprengjur bandamanna hefðu
hitt skotmörkin af afar mikilli ná-
kvæmni.
Loftárásir á Bagdad hófust um
miðnætti í fyrrinótt að íslenskum
tíma en samtímis voru gerðar
sprengjuárásir á fjölda skotmarka
annars staðar í landinu og í Kú-
veit. Munu fyrstu sprengjumar hafa
fallið til jarðar kl. 23.30 að íslensk-
um tíma. Skömmu eftir að aðgerðir
hófust, eða klukkan tvö í fyrrinótt
að ísl. tíma, fiutti George Bush
Bandaríkjaforseti sjónvarpsávarp
þar sem hann skýrði frá aðgerðum
og sagði tilganginn að tortíma
eiturvopnaverksmiðjum og kjam-
orkutilraunastöðvum íraka.
Mörg hundmð bandarískar,
breskar, saudi-arabískar og fran-
skar flugvélar frá herstöðvum í
Saudi-Arabíu og Bahrain og flug-
móðurskipum á Persaflóa tóku þátt
í fyrstu árásarferðunum sem hófust
50 mínútum eftir miðnætti að stað-
artíma í írak, kl. 21.50 að ísl. tíma
í fyrrakvöld. Einnig tóku þátt í árás-
unum flugvélar kúveiska lofthersins
sem'komust til Saudi-Arabíu eftir
innrás íraka í Kúveit. Fyrsta lota
árásanna stóð yfir í um þrjár stund-
ir en að loknu nokkurra stunda hléi
hófust aðgerðir aftur að nýju í
gærmorgun klukkan 6,35 að ís-
lenskum tíma eða 9,35 að íröskum
tíma. Hermt var að um 100 íraskir
herflugvellir hefðu verið lagðir í
rúst og lítil sem engin mótspyrna
verið veitt. Einnig að um 18.000
tonnum að sprengjum hefði verið
varpað á írak og Kúveit fyrstu nótt-
ina.
Varnarmálaráðuneytið í
Bagdad jafnað við jörðu
Þijár fylkingar flugvéla komu inn
yfir Bagdad í fyrsta áfanga loft-
árásanna og stóð sprengjuregnið
yfir linnulaust í 45 mínútur. Leið
aðeins tæpur hálftími þar til næsta
hrina hófst. Hálftíma eftir að árás-
irnar hófust var borgin almyrkvuð.
í árásunum á Bagdad var bygging
varnarmálaráðuneytisins Iögð í
rúst. Ein álma ráðuneytisins var
jöfnuð við jörðu, önnur hrundi að
hluta og sú þriðja stóð í björtu báli
í gærmorgun. Höfuðstöðvar stjórn-
arflokksins, Baaths-flokksins, voru
stórlaskaðar. Ennfremur rigndi
sprengjum yfir helstu olíuhreinsun-
arstöð borgarinnar og stóð hún í
Ijósum logum í gær. Sprengjur
hæfðu fjarskiptamiðstöð borgarinn-
ar. Sprengjum var einnig varpað á
herflugvöll sem er við hlið alþjóða-
flugvallarins sem var látinn ósnort-
inn. Hins vegar hafði forsetahöllin
sloppið. íraska útvarpið sagði í
gærmorgun að loftárásimar hefðu
beinst að íbúðarhverfum borgarinn-
ar en því hefur verið mótmælt af
hálfu bandamanna.
Risastórum bandarískum B-52
sprengjuflugvélum mun hafa verið
beitt gegn sérsveitum Saddams,
lýðveldisverðinum, .skammt innan
írösku landamæranna en þar er um
að ræða úrvalshermenn Irakshers.
Fullyrt var að þessum sveitum hafi
verið meira og minna eytt.
Þriggja flugmanna og tveggja
orrustuflugvéla saknað
í árásum eftir dögun í gær var
tveggja flugvéla saknað, breskrar
Tornado-þotu og bandarískrar F-18
þotu. Sú bandaríska var skotin nið-
ur yfir írak á fyrstu 10 stundum
loftárásanna og er talið að flugmað-
urinn hafi ekki komist af.
Tom King varnarmálaráðherra
Bretlands staðfesti í gær að bre-
skrar Tornado-sprengjuþotu með
tveimur mönnum væri saknað á
vígvellinum við Persaflóa. Kviknað
hefði í hreyflum þotunnar en ekki
hefði fengist staðfest hvort það
mætti rekja tif lofttarna Iraka. ír-
akar héldu því fram að þeir hefðu
skotið niður 14 flugvélar en fulltrú-
ar fjölþjóðahersins báru það til
baka.
Milli 45 og 50 breskar Tornado-
þotur lögðu upp frá Bahrain klukk-
an 2 eftir miðnætti að staðartíma
í fyrrinótt, 11 að kvöldi þriðjudags
á íslandi, og voru hálfa fjórðu
klukkustund á lofti í fyrri ferðinni.
Tóku þær eldsneyti á flugi frá Vict-
or-eldsneytisflugvélum í leiðangrin-
um en sneru svo til stöðva þar sem
vopn þeirra voru endurnýjuð. Skot-
mörkum þeirra vár haldið Ieyndum
en þau munu hafa verið bæði í
Kúveit og írak.
Fjórar franskar Jagúar-þotur
urðu fyrir skotum er sveit 12 slíkra
flugvéla gerði árás á A1 Jaher her-
Léttir í ísrael en
hættan á árás
er ekki liðin hjá
Palestínumenn leyna ekki vonbrigðum sínum
Jerúsalem. Reuter.
ÍSRAELAR vörpuðu öndinni léttar í gær eftir erfiða vökunótt.
Ekkert hafði orðið af eldflauga- og efnavopnaárásum íraka en
herinn skipaði þeim, sem voguðu sér út á götu, að halda sig heima;
hættan væri ekki liðin hjá. A hernumdu svæðunum er útgöngubann
og Palestínumenn geta ekki leynt vonbrigðum sínum með frammi-
stöðu íraska hersins.
ísraelski herinn skipaði fólki að
halda sig innan dyra í gær og hafa
ávallt gasgrímurnar við höndina.
Nokkuð var þó um, að fólk væri á
stjái og jókst heldur þegar á Ieið
daginn, til dæmis í Tel Aviv, sem
írakar sögðu vera helsta skotmark-
ið. Fólk virðist trúa því, að eldfiaug-
um íraka hefði verið eytt í loftárás-
um bandamanna en fyrr í vikunni
sagði talsmaður ísraelska flughers-
ins, að írakar réðu líklega yfir 30
föstum eldflaugapöllum, 30 hreyf-
anlegum og um 20 efnavopna-
hleðslum.
„Við vitum, að eldflaugapallar
hafa verið sprengdir upp og verðum
að vona, að tekist hafi að eyða
þeim öllum,“ sagði ísraelskur leyni-
þjónustumaður en lagði um leið
áherslu á, að hættan væri ekki lið-
in hjá þótt hún minnkaði með
hverri stundinni, sem liði.
ísraelar eru að vonum ánægðir
með árangursríkar árásir fjölþjóða-
hersins á hernaðarmannvirki í írak
en Palestínumenn á hernumdu
svæðunum eru hálflamaðir, svo
mikil eru vonbrigðin. Þeir eiga bágt
með að trúa því, að „stríðsmaður-
inn mikli", Saddam Hussein, skuli
ekki einu sinni hafa getað borið
hönd fyrir höfuð sér, að allt hans
herveldi skuli gufa upp í einni svip-
an. Þeir höfðu vonað, að eitthvað
meira væri á bak við digurbarka-
legar yfirlýsingar hans um „frelsun
Palestínu", en nú finnst mörgum
öll von úti.
MORGUNBLAÐIÐ FGSTUDAGUR18. JANÚAR 1-9,9þ
23
Fyrsti sólarhringurinit
þar. Taka ber þó fram að fregnir af svæðinu eru óljósar og heimildir ekki
óvallt jafntraustar og æskilegt væri. Þannig eru sumar borgir í Irak merktar
sem skotmörk, þrótt fyrir að þær hafi ekki verið nafngreindar.
stöðina í Kúveit ásamt sveit banda-
rískra F-16 flugvéla, en talið er að
írakar hefðu komið fyrir SAM-6
loftvamarflugskeytum og Scud-
flaugum í A1 Jaher, að sögn Jean-
Pierre Chevenements varnarmála-
ráðherra Frakka. Komust þoturnar
fjórar til baka til stöðva sinna
skammt frá Dhahran í Saudi-
Arabíu en þær höfðu orðið fyrir
loftvarnarskothríð í leiðangrinum
til Kúveit. í gærkvöldi var viðgerð
lokið og þær tilbúnir til bardaga á
ný. Chevenement sagði að líklega
hefðu flugskeytin og flaugarnar
verið eyðilagðar þar sem þeim hefði
ekki verið skotið er árásin var gerð.
íraskri þotu grandað yfir
Bagdad á fyrstu mínútunum
Flugmaður bandarískrar F-15
þotu, Steve Tate, skaut niður íraska
Mirage F-1 þotu yfir Bagdad á
fyrstu mínútum styijaldarinnar.
Var hann í fyrstu flugsveitinni sem
kom yfir -borgina á miðnætti að ísl.
tíma, klukkan 3 að staðartíma, og
var hlutverk hennar að veita
sprengjuflugvélum vernd. Sveitin
fór á loft klukkan 22.30 að ísl. tíma
frá flugstöð í austurhluta Saudi-
Arabíu. Er hún hringsólaði yfir
Bagdad sá Tate skyndilega íraska
þotu nálgast flugvél eins þriggja
félaga sinna. Sagðist hann hafa
„læst“ Sparrow-flugskeyti á óvina-
vélina og hleypt af. Áugnabliki síðar
hefði hún sprungið í tætlur og við
það myndast'eldhnöttur á himni.
Gerðist þetta kl. 3:15 í fyrrinótt,
eða 15 mínútum eftir miðnætti að
ísl. tíma. Aðrir flugmenn sem voru
í hópi þeirra sem gerðu fyrstu loft-
árásirnar á Bagdad sögðu að fimm
íraskar þotur sem sendar hefðu
verið til móts við vélar bandamanna
hefðu snúið við, forðað sér í norður-
átt og ekki komið til baka.
írösk kona sem flýði fótgangandi
til írans í gær sagði að flugvélar
bandamanna hefðu haldið uppi
linnulausum árásum á hafnarborg-
ina Basra í suðurhluta íraks en hún
er næst stærsta borg landsins.
Hefði síma- og fjarskiptastöð borg-
arinnar verið eyðilögð.
Skotpallar Scud-flauga
eyðilagðir
Tvær íraskar herstöðvar, H-2 og
H-3, sem eru skammt frá jórdönsku
landamærunum, stóðu í ljósum log-
um í fyrrinótt eftir mjög harðar
sprengjuárásir, að sögn íbúa í jórd-
önsku borginni Ruwesheid. Talið
er að þar hafi írakar verið með
Scud-flaugar á skotpöllum er skjóta
hefði mátt á ísrael. „Sprengjuárásin
var mjög hörð, eldblossarnir teygðu
sig til himna og þu'ngir sprengju-
dynkir kváðu við,“ sagði bæjarbúi.
Talsmaður ísraelska hersins sagði
að bandamenn hefðu grandað eld-
flaugasýotpöllum f vesturhluta ír-
aks en ísraelumJaafði staðið beygur
af þeim og óttast efnavopnaárás
enda höfðu írakar hótað að skjóta
fyrst á skotmörk í Israel brytust
út átök við Persafióa. Sam Nunn,
formaður hermálanefndar öldunga-
deildar Bandaríkjaþings, sagði í
gærmorgun að bandamenn hefðu
náð því takmarki að eyðileggja alla
Scud-skotpalla íraka i fyrstu lotu
stríðsaðgerða.
Loftvarnarflaugur voru þeyttar í
Riyadh, höfuðborg Saudi-Arabíu,
klukkan 3.20 í fyrrinott að stað-
artíma og fjöldi borgarbúa leitaði
skjóls í loftvarnarbyrgjum. Neitað
var orðrómi um að lrakar hefðu
skotið Scud-flaugum á borgina og
fullyrt var að engar íraskar herþot-
ur hefðu rofið lofthelgi Saudi-
Arabíu.
írakar gerðu þó tveggja stunda
stórskotaliðsárás í fyrrinótt á olíu-
hreinsunarstöð á landamæraborg-
ina Khafji í austurhluta Saudi-
Arabíu frá stöðvum sínum í Kúveit.
Embættismenn sögðu að tjónið
hefði verið óverulegt þar sem aðeins
nokkrar sprengikúlur hefðu hæft
tóma tanka í útjaðri stöðvarinnar.
Framleiðslutækin hefði ekki sakað
og starfsemi stövðarinnar hefði
haldið áfram eins og ekkert hefði
í skorist. í gær var svo þyrlusveit
bandamanna send inn í Kúveit og
var hún sögð hafa gjöreyðilagt stór-
skotaliðsvopn þau sem notuð voru
til árása á Khafji.
Landhernaður ekki hafinn
Talsmaður bandarísku herstjórn-
arinnar í Saudi-Arabíu sagði að um
hádegisbilið í gær hefðu bardagar
á jörðu niðri ekki enn hafist -en -
orðrómur þess efnis hafði verið á
kreiki. Hersveitir væru hins vegar
að koma sér fyrir við írösku og
kúveisku landamærin og búist við
að þær yrðu senda til átaka þegar
öruggt væri talið að lofther og loft-
varnir íraka hefðu verið lagðar í
rúst.