Morgunblaðið - 18.01.1991, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1991
íslendingar í Miðausturlöndum
Fólk er kvíðið
og utan við sig
ÍSLENDINGAR í Miðausturlöndum, sem Morgunblaðið ræddi við
í gær, sögðu að Persaflóastríðið hefði ekki mikil áhrif á daglegt
líf þeirra. Fólk væri þó kvíðið. „Þetta hefur mismikil áhrif á fólk.
Margir virðast vera utan við sig og það sést greinilega á umferð-
inni, fólk ekur asnalega," sagði Vígsteinn Vernharðsson sjónfræð-
ingur í Jedda í Saudi Arabíu. Fólk hefur birgt sig upp af mat og
vatni og gert ýmsar ráðstafanir sem eðlilegar þykja í stríðstímum,
límt plast fyrir glugga, keypt gasgrímur og er sem minnst á ferli.
„Ekkert hefur breyst“
„Við höfum ekki orðið vör við
neitt óeðlilegt. Hér var allt frið-
sælt þangað til klukkan hálf sex
í morgun að Ríkisútvarpið á Is-
landi hringdi í mig. Fyrr vissum
við ekki um árásina á írak,“ sagði
Heimir Hauksson tölvufræðingur
sem býr í Bahrain, eyju á Persaf-
lóa, ásamt breskri eiginkonu sinni
og tveimur börnum. Innan við 500
kílómetrar eru frá Bahrain til Kú-
veits.
„í dag fór ég niður í bæ í Man-
ama með strákunum. Umferðin var
eins og venjulega. Síðan fórum við
niður á strönd, í siglingaklúbb. Ég
varð ekki var við neitt óvenjulegt,
ekkert hefur breyst," sagði Heim-
ir. Sagðist hann ekki verða var við
hræðslu hjá fólki. Það væri kannski
kvíðið vegna þess að það vissi ekki
á hveiju það gæti átt von og hefði
•búið sig undir ýmislegt.
Heimir sagðist ekki verða var
við hernaðarátökin. Sagðist hann
hafa heyrt í útvarpi að írakar
hefðu skotið fimm eða sex eld-
flaugum í áttina að eyjunni en þær
hefðu misst marks, en sagðist ekki
vita hvað hefði valdið því
„Við höfum það ágætt hérna.
Ég er í' vinnunni, er að gera
sjónprufu og hef það fínt,“ sagði
Vígsteinn Vernharðsson sjónfræð-
ingur í Jedda í Saudi Arabíu. Jedda
er við Rauðahaf, nokkuð langt frá
iandamærum Iraks.
„Það snertir okkur auðvitað að
vita að fólk í nágrenninu líður fyr-
ir þetta. Við vitum ekki eins og
er hvort Saddam Hussein getur
svarað með einhveiju sem dregur
til okkar og margir eru kvíðnir.
Þetta hefur mismikil áhrif á fólk.
Margir virðast vera utan við sig
og það sést greinilega á umferð-
inni, fólk ekur asnalega. Sjónvarp-
ið var að ráðleggja Bandaríkja-
mönnum að fara ekki út á götu í
Saudi Arabíu. Margir þeirra eru
heima og eru því mörg fyrirtæki
rekin með hálfum afköstum, en
ég hef þó ekki orðið var yið neitt
sem gefur tilefni til ótta. Ég geng
hér um allt og lífið virðist ganga
sinn vanagang. Barnaskólarnir eru
lokaðir en þeir segja að það hafi
hvort sem er átt að vera frí í þeim
núna,“ sagði Vígsteinn.
Vígsteinn sagðist hafa gert allar
þær ráðstafanir sem mælt væri
með á stríðstímum. Hann hefði
límt plast fyrir glugga, keypt gas-
grímu og birgt sig upp af matvæl-
um og vatni. Hann sagði að ef
ástandið versnaði nær landamær-
um íraks mætti búast við að fólk
kæmi í stríðum straumum til Jedda
og ekki víst hvort þá yrði alltaf
hægt að fá nægan mat.
„Ég fer í samkvæmi hjá norska
ræðismanninum í kvöld og læt mér
Hða vel. Af hveiju ætti ég að fara?
Ég er skráður hjá norska sendiráð-
inu, sendiherrann heldur hópnum
saman. Ef það syrtir í álinn látum
við okkur hverfa og höfum til þess
ýmsa möguleika," sagði Vígsteinn.
„Fólki ráðlagt að halda sig
inni“
„Við höfum enn ekki orðið vör
við neitt hér. Fólk virðist vera ró-
legt, að minnsta kosti á yfirborð-
inu, enda er búið að undirbúa þjóð-
ina undir hugsanlegar afleiðingar
styijaldarinnar í margar vikur,“
sagði Halla Backman sem býr í
Jerúsalem í ísrael. Hún hefur búið
þar í tvö ár, er að læra málið og
vinnur á sjúkrahúsi.
Hún sagði að búið væri að gera
ýmsar varúðarráðstafanir og fólk
væri við öllu búið. Fólki væri ráð-
lagt að halda sig inni við og fylgj-
ast með fréttum. í gær voru flest
fyrirtæki og stofnanir lokaðar, til
dæmis verslanir, opinberar stofn-
anir og skólar. Fólk væri með gas-
grímur og hefði birgt sig upp af
mat og drykk.
Halla býr í gömlu borginni í
Jerúsalem og heldur kristið fólk
þar hópinn. Hún sagði að mikið
|iefði verið beðið, bæði fyrir vernd
og einnig væri beðið fyrir regni.
Hún sagði að mikill friður væru
yfír fólkinu.
Frá fundi forsætisráðherra með forystumönnum stjórnmálaflokka í
gær.
Stjórnvöld um stríðið við írak:
Mikil áhersla á að sam-
staða sé með þjóðinni
FUNDUR var haldinn með formönnum allra stjórnmálaflokkanna í
forsætisráðuneytinu síðdegis í gær þar sem Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra upplýsti formennina um það sem ríkisstjórnin
hefði gert vegna stríðsins við írak, hver birgðastaða væri í landinu
og fleira. „Við leggjum mikla áherslu á að samstaða sé um þessi
mál. Hún hefur verið það og ég treysti því að hún verði áfram,“
sagði forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær.
Ríkisstjórnin kom saman til fund-
ar klukkan níu í gærmorgun þar
sem farið var yfir stöðuna. Stuttu
eftir það átti forsætisráðherra fund
með forstöðumönnum þeirra stofn-
ana sem hafa með birgðastöðu í
landinu að gera, fjarskipti, sam-
göngur, almannavarnir, lögreglu og
hagvarnir. „Mér sýnist sem betur
fer að mál séu bara í nokkuð góðu
standi hjá okkur og vil hvetja alla
til að halda ró sinni," sagði forsætis-
ráðherra.
Jón Sigurðsson er starfandi ut-
anríkisráðherra í ijarveru Jóns
Baldvins Hannibalssonar. Hann
sagði síðdegis í gær:„Við vildum
tryggja þá samstöðu með þjóðinni
í afstöðu til þessara heimsviðburða,
sem hingað til hefur sem betur fer
haldist. Hér eru engir flokkadrættir
og þetta er áameiginlegt mál okkar
allra, sem snýst fyrst og fremst um
það að gæta sem best öryggis og
hagsmuna íslendinga. En um leið
að taka þátt í samstöðu lýðræðis-
þjóða til varnar lýðræði og sjálfsá-
kvörðunarrétti þjóða og gegn of-
beldi og hernaðaríhlutun einræðis-
manna eins og Saddams Husseins.
íslendingar hafa átt aðild að öllum
12 samþykktum Sameinuðu þjóð-
anna frá því 6. ágúst. Þetta stríð
hófst í raun og veru 2. ágúst með
innrás íraka í Kúveit. Nú er í raun
og veru gerð gagnárás til þess að
hrinda þeirri herleiðingu."
Jón sagði að þótt við værum
ekki styijaldaraðilar, þá værum við
aðilár að öllum þessum samþykkt-
um Sameinuðu þjóðanná'sem gerð-
ar hefðu verið frá því í ágúst síðast-
liðnum. „Við styðjum framkvæmd
þeirra samþykkta og ályktana sem
Sameinuðu þjóðirnar hafa gert. Sú
síðasta fól einmitt í sér heimild til
þess að grípa til þeirra ráða sem
þyrfti. Það skilja allir það þeim
skilningi að þar sé vopnavald ekki
undanskilið ,“ sagði starfandi ut-
anríkisráðherra.
sumarlistinn komiirn
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
Verð miðað við gengi í jan.’91.
Yfir 1.000 síður; fatnaður, búsáhöld, íþróttavörur, garðyrkjuvörur,
gjafavörur o.fl. o.fl. Listinn Kr 400>. an bg|
PANTANASÍMI 52866, VERSLUN, SKRIFSTOFA, HÓLSHRAUNI 2, HAFNARFIRÐI
Ólafur Ragnar um skipan seðlabankasljóra:
Kom á óvart að skip-
unin var til sex ára
ÓLAFI Ragnari Grímssyni fjármálaráðherra kom á óvart að heyra í
fréttum að nýr seðlabankastjóri hefði verið skipaður til sex ára. A
vettvangi ríkisstjórnarinnar hefði verið rætt um skipan til þriggja
ára. Kristín Einarsdóttir (Sk-Rv) spurði viðskiptaráðherra um skipan
seðlabankastjóra og voru umræður um málið á Alþingi í gær.
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra . lagsmenn hefðu gert sínar tillögur
greindi frá því að viðskiptaráðherra
hefði skipað Birgi ísleif Gunnarsson
alþingismann í þessa stöðu að tillögu
bankaráðs Seðlabankans til sex ára.
Viðskiptaráðherra lagði áherslu á
tvennt. Nú væri skipað í stöðuna til
takmarkaðs tíma. í öðru lagi hefði
nú náðst samstaða um að taka
starfsskipan bankans til endurskoð-
unar.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra sagði nauðsynlegt að
það kæmi fram, að á fundi ríkis-
stjórnarinnar í gær hefðu ráðherrar
Alþýðubandalagsins lagt fram til-
lögu um að staðið yrði að þessu
máli með öðrum hætti og þar hefði
komið fram alvarleg gagnrýni á
þessa skipan. A vettvangi ríkis-
stjórnarinnar hefði síðan verið greint
frá því að Birgir ísleifur Gunnarsson
yrði skipaður til þriggja ára. Ólafur
Ragnar kvaðst ekki myndi leyna
þingið því að honum hefði komið
mjög á óvart að heyra það í fréttum
að hann hefði verið skipaður til sex
ára.
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins gagnrýndi fjármála-
ráðherra fyrir tvískinnung; tala um
að styrkja Seðlabankann, en ráð-
herrar ríkisstjórnarinnar hefðu
gengið flestum lengra í að draga
úr sjálfstæði Seðlabankans. Ólafur
Ragnar Grímsson taldi engan
tvískinnung vera af sinni hálfu eða
Alþýðubandalags. Þeir alþýðubanda-
en þær því miður ekki hlotið stuðn-
ing. Hitt væri tviskinnugur hjá Þor-
steini Pálssyni að tala um aukið
sjálfstæði Seðlabankans þegar hann
væri í raun sá sem tilnefndi Birgi
ísleif.
Gripnir eftir
rúðubrotí
þinghúsinu
LÖGREGLAN greip tvo pilta,
rúmlega tvítuga, í miðbæ
Reykjavíkur um klukkan 1.45 í
fyrrinótt. Maður hafði hringt til
lögreglunnar og tilkynnt að pilt-
arnir hefðu brotið rúðu í Alþingis-
húsinu við Austurvöll.
Maðurinn gat gefið greinargóða
lýsingu á piltunum og voru þeir
gripnir í Aðalstræti nokkrum mínút-
um síðar. Þeir voru báðir drukknir.
Eftir nætursvefn í fangageymslum
bar annar þeirra að hann hefði verið
svo drukkinn, að hann myndi ekki
atburði, en hann væri reiðubúinn að
bæta það tjón sem hann hefði vald-
ið. Hinn pilturinn bar að þeir hefðu
verið á gangi við Austurvöll þegar
félagi hans greip stein og henti inn
um rúðu á þinghúsinu. Síðan hefðu
báðir hlaupið á brott.