Morgunblaðið - 18.01.1991, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1991
wcGAAnn
ll/|6
tc) 1990 Universal Press Syndicate
//
. Ef þu i/)tt oÁ eq ioJd þeereféirrnatj
er eJnsgotb áz>þti &ndargreiá)r ráer
cltt/iaad af ájaoo taat-L)nurrt."
HÖGNI HREKKVÍSI
Skautasvell-
ið á Tjöminm
Til Velvakanda.
Ég vil taka undir greinarkorn
sem birtist í Velvakanda fyrir
skömmu þar sem bent var á nauð-
syn þess að skautasvellið á Tjörn-
inni verði haldið við áfram þrátt
fyrir skautasvellið í Laugadal.
Skautasvellið þar er þarft og gott
framtak en svo löng hefð er fyrir
skautasvellinu á Tjörninni að það
má alls ekki leggjast af. Ég sé held-
ur ekki að neinn verulegur kostnað-
ur fylgi því að halda því opnu og
vissulega njóta þess margir. Þarna
er lýsing til staðar en ég hef ekki
orðið þess var að hún væri notuð í
vetur. Ég vona að skautasvellið á
Tjörninni verði vettvangur æsku-
fólki sem fyrr um ókomin vetrar-
kvöld.
Eldri borgari
Launamisrétti og þjóðarsátt
Til Velvakanda.
Mikið er skrifað og skrafað um
svokallaða þjóðarsátt um þessar
mundir og er orðið sjálft orðið dál-
ítið margþvælt. Sú ríkisstjórn sem
nú situr á heiðurinn af því að koma
verðbólguni neðar en tekist hefur
árum saman og á þjóðarsáttin
margþvælda sinn þátt í því. Ekki
er þróunin þó að öllu leyti jákvæð
þar sem hún hefur bitnað mest á
þeim sem síst skyldi, það er þeim
sem-lægst hafa lægstu launin. Það
merkilega er að lítið heyrist í þess-
um hópi og virðast foringjar lág-
launahópa ekki sjá neitt athuga-
vert. Aðrir sem hafa laun í góðu
meðallagi leggja fjármálaráðherra
hins vegar í einelti.
Um stjórn fjármála er það að
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 10 og 12,
mánudaga til fostudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa. Með-
al efhis, sem vel er þegið, eru
ábendingar og orðaskiptingar,
lyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfh, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öflu efhi til þáttar-
ins, þó að höfundur óski nafn-
leyndar. Ekki verða birt nafnlaus
bréf sem eru gagnrýni, ádcilur
eða árásir á nafhgreint fólk.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
segja að þar er margt í ólestri og
hefur lengi verið. Einkennilegt er
að rikisstjórn sem kennir sig við
félagshyggju skuli setja skattleysis-
mörkin á rúmlega 57 þúsund krón-
ur. Er einhveijum ætlað að lifa af
slíkum mánaðarlaunum? Það er
mikið réttlætismál að skattleysis-
mörkin verði hækkuð verulega. Til
að mæta þessari tekjuskerðingu
ríkisins mætti taka upp annað
skattþrep fyrir hátekjumenn. Það
getur ekki talist réttlátt að sá sem
hefur t.d. 90 þúsund krónur í tekjur
á mánuði borgi sama skatthlutfall
og sá sem hefur t.d. 700 þúsund
krónur á mánuði. Þetta ættu félags-
hyggjumenn að skoða því mikil
nauðsyn er á að draga úr launamis-
rétti hér á landi. Það hefur þreiðkað
ískyggilega, launamisréttið hér á
landi og þjóðarsáttin hefur síst
hjálpað þeim sem minnst hafa.
Jónas
Frábært j ólaball
Til Velvakanda.
Hinn 29.12. síðastliðinn var hald-
ið glæsilegt jólaball á Hótel Örk í
Hveragerði. Tekið var á móti gest-
um af elskulegheitum og alúð. Við
innganginn fengu yngri gestirnir
blöðrur, hatta og ýlur og þótti flest-
um mikið til koma, en stærstur
hópur gesta þennan dag var á aldr-
inum 2-12 ára.
Stórgóðar veitingar voru fyrir
alla aldurshópa, pylsur, gos og popp
fyrir börnin og hlaðborð fyrir full-
orðna. Mikið var sungið og dansað
og allir skemmtu sér hið besta. Þó
er mér til efs að nokkur hafi
skemmt sér betur en hótelstjórinn,
Jón Ragnarsson, sem brosti af ein-
lægni við þessum ungu gestum sem
kunnu vel að meta gestrisni hans
þennan dag. Það er mikils virði að
þurfa ekki að sækja jóiaballaþjón-
ustu í önnur byggðarlög með börn
að vetrarlagi. Vil ég þakka Jóni
þetta glæsilega framtak um leið og
ég óska honum og starfsfólki hans
velfarnaðar á nýju ári.
Margrét Ragnars
r
Látið óti-
ljósin loga
Blaðburðarfólk fer þess á leit við
áskrifendur að þeir láti útljósin loga
á morgnana núna í skammdeginu.
Sérstaklega er þetta brýnt þar sem
götulýsingar nýtur lítið eða ekki við
tröppur og útidyr.
Yíkverji skrifar
Víkveija brá nokkuð í brún þeg-
ar hann verslaði hjá íslensk-
um markaði í Leifsstöð á leið til
útlanda fyrir nokkru. Þar sem fram-
undan var nokkurra tíma flug fór
Víkveiji í verslun íslensks markaðar
og keypti ýmislegt lesefni. Þegar
búið var að reiða fram fé fyrir kaup-
unum sagði afgreiðslustúlkan, að
skiptimynt ætti hún enga, nema
dollara. Víkveija fannst þetta und-
arlegt og óþægilegt, þar sem hann
var á leið til Danmerkur. Það hefði
komið sér betur að fá til baka í
íslenskum krónum, ef danskar voru
ekki til. Því miður, sagði afgreiðslu-
stúlka íslensks 'markaðar, við eigum
ekki íslenska peninga núna! Og því
gekk Víkvetji um götur Kaup-
mannahafnar með tólf dollara í
vasanum, sem nýttust ekki þar,
enda hefði ekki borgað sig að fá
þeim skipt, með tilheyrandi kostn-
aði.
XXX
Víkveiji las í þriðjudagsblaðinu
viðtal Morgunblaðsins við
Steinar Berg Björnsson, yfirmann
í friðargæzlusveitum Sameinuðu
þjóðanna.
í viðtalinu segir Steinar m.a.:
„Það veit enginn, nema „Sören
Hansen“, eins og við kölluðum
Hussein, hvað tekur við og við
bíðum því átekta.“ Þetta rifjaði upp
fyrir Víkveija, að sagt var að Is-
lendingar, sem staddir voru í Þýzka-
landi á árum Hitiers, hafi tamið
sér, að nefna foringjann ekki á
nafn heldur kalla hann alltaf Hjalta.
„Það veit enginn, nema Hjalti,"
sögðu þeir.
Píslargöngu Víkveija með happ-
drættisvinninga SÍBS ætlar
seint að linna. Eftir hrakninga, en
sigur að lokum í Hagkaup, þar sem
vöruúttekt fékkst út á vinning, stóð
til að fagna þeim næsta með sér-
stökum hætti. Leiðin lá því í eina
af verzlunum ÁTVR með miðann,
konjakk var pantað og kom á af-
greiðsluborðið, en lengra fór það
ekki. „Því miður vinur, þú verður
að drekka út á þetta annars stað-
ar,“ var svarið og enn varð Víkveiji
að taka upp budduna og borga með
peningum.
Enn og aftur bendir Víkveiji á
nauðsyn þess að fella niður einká-
rétt Háskólahappadrættisins til
þess að greiða vinninga. út í reiðufé.