Morgunblaðið - 18.01.1991, Qupperneq 41
- - MÖ}iaÍí4Bt,'AÍ)ÍÐ~4sÖSTÚÐÁö ÍR 18.-
joáofi'
-1991 -
41
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
VÍÐA POTTUR BROTINN
Til Velvakanda.
Eftir að hafa hlustað á hádegis-
fréttir á Bylgjunni mánudaginn 14.
janúar skipti ég yfir á fréttir RUV,
enda mikið í fréttum þennan dag.
Að loknum fréttum slökkti ég ekki
strax á útvarpinu, lofaði því að
dingla, án þess þó að hlusta. Varð
ég þó var yið að verið var að flytja
endurtekinn þátt frá Akureyri. Guð-
rún nokkur Frímannsdóttir var í
þaula að spyija vangefna einstakl-
inga. Ég hafði ekki neinn beinan
áhuga á efninu, en hrökk þó við
og „sperrti eyrun“ þegar spyijand-
inn varpaði fram eftirfarandi spurn-
ingu: — Hvemig finnst þér að vera
vangefinn? Skömmu síðar önnur
spurning: Eru allir þínir vinir van-
gefnir? Mig setti hljóðan, slökkti á
útvarpstækinu, spurði sjálfan mig:
Hvor var vangefinn, spyrillinn eða
hinn spurði?
Ég hafði hugsað mér að missa
ek_ki af fyrsta þætti Spaugstofu
RÚV síðastliðið laugardagskvöld.
Þátturinn auglýstur í dagskrá kl.
20.40. Engin Spaugstofa birtist á
skjánum, þess í stað hinn útþvætt-
aði þáttur um fyrirmyndarföðurinn,
sem flestir era hættir að horfa á.
Ekki var borið við að biðja afsökun-
ar á niðurfellingunni, sjálfsagt ekki
talin þörf á að beygja sig í duftið
fyrir þolendum lögskipaðra afnota-
gjalda.
Síðan mér var, aldurs vegna, lagt
við hinn lögboðna atvinnuleysis-
stjóra, hefur mín aðal afþreying
verið að hlusta á tónlist frá íslensku
útvarpsstöðvunum. Á milli stöðv-
anna virðist gæta nokkurrar keppni
um efnisval, en þrátt fyrir það hafa
þær flestar dottið í sama brunninn
hvað íslenskt efni snertir.
„Söngstjörnu" Sykurmolanna
hefur haldist það uppi óátalið að
skrumskæla lög og texta íslenskra
höfunda. Á ég þar alveg sérstaklega
við lög og texta Sigfúsar Halldórs-
sonar.
Sigfús Halldórsson hefur sungið
sig inn í hug og hjörtu íslendinga
með sínum hljómfögru lögum og
heillandi textum um áratuga skeið.
Ég skil ekki hvernig nokkur íslensk
útvarpsstöð getur fundið köllun hjá
sér til að demba yfir þjóðína skrum-
skælingu stelpu, sem ekkert kann
að syngja, enda þótt hún kunni að
hafa talið sér einhveija frægð í því
að heilla einhveija rokkdýrkenda-
hópa vestur í Ameríku.
Þórður E. Halldórsson
Tvenns konar ferming
Til Velvakanda.
í Lesbók Morgunblaðsins laugar-
daginn 5. janúar birtist óvejjjurætin
grein eftir Siglaug Brynleifsson um
borgaralega fermingu. Bar hún
fræðilegt yfirbragð framan af, enda
höfundurinn víðlesinn. En óneitan-
lega fór hann fijálslega með þekk-
ingu sína. Honum var augljóslega
{ nöp við borgaralega fermingu og
tengdi hana við óviðfelldin söguleg
fyrirbæri eins og nasisma, stalín-
isma og aðrar ógnarstjórnir. En þar
með var ekki öll sagan sögð. Meðal
annars vildi hann gera frú Hon-
ecker, fyrrverandi forsetafrú í
Austur-Þýskalandi, að guðmóður
borgaralegrar fermingar hér. Enn-
Þessir hringdu ...
Gott safnaðarstarf
S.J. hringdi:
„Ég vil þakka fyrir það starf
sem unnið er í Hallgrímskirkju,
bæði starf fyrir eldri borgara og
einnig þá nýbreytni að annan
hvem sunnudag í hveijum mánuði
er seldur matur eftir messu. Það
er mjög notalegt að geta keypt
góðan heimilismat á góðu verði
og blanda geði við þá sem þetta
notfæra sér. Auk þess virðist
kirkjan vera opin alla daga og
geta því allir farið og sest inn í
kirkjuna og farið með bænir hvort
sem er fyrir sjálfum sér, friði eða
öðru.“
Gleraugu
Gleraugu töpuðust í grennd við
Hlemmtorg milli jóla og nýárs.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 36137.
Lykill
Lykill af tegundinni Silca,
merktur 44NN, fannst á mótum
Kapplaskjólsvegar og Hring-
brautar á þriðjudag. Upplýsingar
í síma 12528.
Trefill
Grænn trefill fannst í Há-
skólabíói eftir 9 sýningu sunnu-
daginn 13. janúar. Upplýsingar í
síma 641788.
Kettlingar
Fimm kettlingar fást gefins.
Upplýsingar í síma 44245.
Hanskar
Skinnhanskar fundust við Ás-
braut í Kópavogi um jólin. Upplýs-
ingar í síma 42026.
fremur taldi hann málefnið vera
afkvæmi Alþýðubandalagsins, ekki
síst Svavars Gestssonar mennta-
málaráðherra. Svavar var svo vin-
samlegur að flytja ávarp við fyrstu
borgaralegu ferminguna 1989, sem
menntamálaráðherra, en að öðru
leyti hefur hann ekki komið nálægt
Siðmennt.
Þegar maður les svona vitleysu
veit'maður fýrst ekki hvernig á að
bregðast við. Hins vegar er ekki
úr vegi að geta þess að fermingar-
starfið gengur vel. Góður hópur
þátttakenda er þetta þriðja ár. Þau
fóru í helgarferð í haust og eru nú
byijuð á námskeiði. Við teljum okk-
ur starfa í samræmi við tíðarand-
ann. íslendingar era að afkristnast.
Kirkjubekkimir eru tómir, nema
helst á stórhátíðum.
Félagið Siðmennt vill ekki starfa
gegn trúfélögum, það vill að allir
einstaklingar lifi samkvæmt sinni
sannfæringu. Stór hluti lands-
manna, raunar meirihluti sam-
kvæmt vísindalegri könnun guð-
fræðideildar Háskólans, hefur efa-
semdir um hinar viðteknu skoðanir
þjóðkirkjunnar. Og ef einhver hluti
hans kýs að fermast borgaralega
þá ber honum réttur til þess.
H.S.
LOFTASTODIR
BYGGINGA-
MEISTARAR
Eigum nú á lager loftastoðir á
mjög hagstæðu verði.
Góðir greiðsluskilmálar.
Leigjum einnig út loftastoðir.
Pallar hf.
VINNUPALLAR - STIGAR -
VÉLAR - VERKFÆRI
DALVEGI 16, FÍFUHVAMMI,
KÓPAVOGI, SÍMI 641020 OG 42322
í
- Hárlos
- Kláði
- Flasa
- Litun
- Permanent
MANEX
Jóna Björk
Grétarsdóttir:
Ég missti megnið af hár-
inu 1987 vegna veikinda.
Árið 1989 byrjaði hárið
fyrst að vaxa aftur, en
það var mjög lélegt; það
var svo þurrt og dautt
og vildi detta af.
Síðan kynntist ég Manex
hársnyrtilínunni og það
urðu mjög snögg um-
skipti á hári mínu til hins
betra. Eftir 3ja mánaða
notkun á Manex prótein-
inu, vítamíninu og
sjampóinu er hár mitt
orðið gott og enn í dag
finn ég nýtt hár vera að
vaxa.
vítamín
sérstaklega fyrir
hár, húð og neglur.
Fæst í flestum apótekum
hárgreiðslu- og rakara-
stofum um land allt.
MANEXsjampó
MANEX næring
Dreifing:
s. 680630. amÞrosía
AL AN
f s t í d a g
Polarn&Pyret*
KRINGLUNNI8-12, SÍMI681822, OPIÐ MÁNUD.-FÖSTUD. KL. 10:00-19:00 OG LAUGARD. KL. 10:00-14:00