Morgunblaðið - 24.01.1991, Qupperneq 4
Q
4-----
ieer æauiíai .ii- íhjuaq jtmmh <íiga.i.tíuohoií
MÖRGUNBLAÐIÐ 'FIMMTUITÆGUR 'ZTOJANÚAK 1H91'------------------
Loksins
kom stóra
síldin
E»kifirði.
LOKSINS kom stóra síldin.
Guðrún Þorkelsdóttir SU 211
hefur verið að fá mjög' stóra
og fallega síld í Reyðarfirði
undanfarna daga. Hún fékk
fyrst 41 tonn þann sextánda,
36 tonn tveimur dögum seinna
og 96 tonn þann tuttugasta.
Síldin er kjörin fyrir Japans-
markað og hefur aðallega farið
til frystingar hjá Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar en einnig til söltunar
og flökunar hjá sama fyrirtæki.
Unnið hefur verið á vöktum við
að frysta sfldina. Þetta hefur kom-
ið sér mjög vel því að Hólmatind-
ur, togari Hraðfrystihússins, hef-
ur verið bilaður frá því um ára-
mótin, og Hólmanesið hefur
fiskað lítið vegna mjög lélegs
tíðarfars.
Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson
Demantssíldin hefur bæði verið
fryst og söltuð, en hér er unnið
að frystingu í Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar.
Starfsmenn kaupa þrota-
bú Pólstækni á Isafirði
Isafirði.
ALLIR starfsmenn Pólstækni hf. á ísafirði hafa stofnað lilutafé-
lag um kaup á þrotabúi félagsins að fasteign þess undanskil-
inni. Samningur liggur fyrir við skiptaráðandann og samið hefur
verið við viðskiptabanka Pólstækni, Landsbankann, um bankavið-
skipti.
slíkur rekstur er góð viðbót við
annars einhæft atvinnulíf.
- Úlfar.
Starfsmennirnir leita nú eftir
frekara hlutafé en Byggðastofnun
hefur lofað fyrirgreiðslu takist
það. Nýja hlutafélagið heitir Póls
Rafeindavörur hf., Albert Högna-
son er stjómarformaður, en með
honum í stjórn eru Ingólfur Eg-
gertsson hönnuður og Grétar Pét-
ursson verkstjóri í framleiðslu-
deild. Siguijón Siguijónsson iðn-
rekstrarfræðingur hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri.
Pólstækni var úrskurðað gjald-
þrota að beiðni stjórnar þess rétt
fyrir jólin. Bústjóri ákvað að halda
áfram rekstri þar sem fyrir lágu
pantanir á rafeindabúnaði, sem
þegar var í vinnslu, samfara því
sem hann auglýsti eignir .búsins
til sölu. Þijú tilboð bárust í eignim-
ar, eitt í fasteignina og tvö í rekst-
VEÐUR
urinn og tækin. Auk starfsmanna
Pólstækni bauð norskt fyrirtæki í
búnað og tæki. í framhaldi af því
ákvað bústjóri að taka upp viðræð-
ur við ísfirðinga og liggur nú fyr-
ir samningur sem áformað er að
undirrita hér á ísafirði á föstudag.
Fram kom í máli Harðar Ing-
ólfssonar, fyn-verandi fram-
kvæmdastjóra, að framleiðsluvör-
ur fyrirtækisins væru vel sam-
keppnisfærar á markaði. Hann
segir bága afkomu á síðasta ári
því að kenna, að Eimskip sem var
orðinn stærsti hluthafi í Póls-
tækni, ákvað í fyrra að selja Mar-
el hlut sinn í fyrirtækinu. Fyrir-
huguð sameining Pólstækni og
Marels, helsta samkeppnisaðilans,
endaði þannig að framkvæmda-
stjóri Marels varð stjórnarformað-
ur Pólstækni, án þess að Póls-
tækni ætti nokkra aðild að rekstri
Marels, að sögn Harðar.
Mjög mikilvægt má teljast fyrir
ísafjörð að takist að halda fyrir-
tækinu í byggðarlaginu, þar sem
Þjóðminjasafnið:
70milljónir
til viðgerða
SVAVAR Gestsson, mennta-
málaráðherra, lagði á þriðju-
dag fram tillögu í ríkissljórn-
inni um að hafist verði handa
við viðgerðir á Þjóðminja-
safninu. Til að byrja með
verður ráðstafað til þess 70
milljónum.
Svavar sagði að af þessu fé
kæmu 40 milljónir af ráðstöf-
unarfé ríkisstjórnarinnar, 10
milljónir frá menntamálaráðu-
neytinu og 20 milljóna yrði afl-
að með fjáraukalögum síðar á
árinu. „Af þessum 70 milljónum
fara 20 milljónir til þess eins
að stöðva leka í húsinu,“ sagði
Svavar. „Það verður reynt að
lagfæra það sem brýnast er,
en ekki verður ráðist í stór-
framkvæmdir fyrr en endurbót-
um á íjóðleikhúsinu er lokið.“
Ríkisstjórnin:
Samþykkir tillögur um
aðhald í ríkisrekstri
FJARMALARAÐHERRA kynnti
á ríkisstjórnarfundi í vikunni til-
lögur sem miða að því að efla
markvisst hagsýslu- og hagræð-
ingarstarf í sljórnkerfinu. Er
gert ráð fyrir því að verkin séu
unnin í samstarfi ráðuneyta og
með hjálp sjálfstæðra ráðgjafa
þegar ástæða þykir til, en undir
yfirsljórn og eftirliti miðstöðvar
i fjármálaráðuneytinu.
Er ætlunin að 3 - 5 starfsmenn
fjármálaráðuneytisins einbeiti sér
að þessu verkefni, en auk þeirra
taka starfsmenn annarra ráðuneyta
þátt í starfinu eftir viðfangsefni
hveiju sinni.
Meðal verkefna eru athUgun á
rekstri valinna ríkisstofnana og
endurskoðun á þörf fyrir starfsem-
ina, könnun á vandamálum ein-
stakra stofnana, vinna að stefnu-
mótun um skipulagsbreytingar sem
auka hagkvæmni í ríkisrekstrinum
og almenn fræðsla um rekstur og
stjórnun. Þá á að marka stefnu í
upplýsingaogtölvumálum ríkisins.
Var ákveðið í ríkisstjórninni að
hrinda þessum tillögum í fram-
kvæmd.
Kona af íslenskum
VEÐURHORFUR í DAG, 24. JANÚAR
YFIRLIT ( GÆR: Fyrir austan land er minnkandi hæðarhryggur en
970 mb lægð við strönd Grænlands, vestur af Reykjanesi og hreyf-
ist norður. Um 700 km suðvestur af Nýfundnalandl er vaxandj 986
mb lægð sem hreyfíst allhratt norðaustur.
SPÁ: Fremur Ijæg suðlæg átt og úrkomulítlð fram eftir morgni en
síðan vaxandí sunnanátt og fer að rigna um sunnanvert landið.
Norðanlands þykknar upp síðdegis og gæti farið að rigna norðvest-
antil á landinu einnig undir kvöld. Sums staðar vægt frost í morg-
unsárið en síðan hlýnandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðaustlæg eða suðlæg átt, víða nokkuð
hvöss. Rigning um sunnan- og vestanvert landið en úrkomulítið
norðaustanlands. Hlýtt í veðri.
HORFUR Á LAUGARDAG: Suðvestan átt og kólnandi í bili. Bjart
veður austantil á lanðinu en slydduél vestanlands.
TAKN:
<3
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
skýiað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vlndstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ • * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir
Él
Þoka
Þokumóða
Súld
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
V
*
V
? 5
oo
K
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri +1 skýjað
Reykjavík 5 súld
Bergen 8 súld
Helsinki 5 hálfskýjað
Kaupmannahöfn 4 aiskýjað
Narssarssuaq 0 slydda
Nuuk +11 snjókoma
Osió +1 skýjað
Stokkhólmur 3 skýjað
Þórshöfn 8 heiðskfrt
Algarve 11 léttskýjað
Amsterdam 1 Þokumóða
Barcelona 11 léttskýjað
Berlín 1 alskýjað
Chlcago vantar
Feneyjar S þokumóða
Frankfurt 3 alskýjað
Glasgow 6 rigning á s. klst.
Hamborg 0 alskýjað
Las Palmas vantar
London 6 skýjað
Los Angeles 8 heiðskírt
Luxemborg 1 skýjað
Madrfd 7 skýjað
Malaga 10 rigning
Mallorca 11 skýjað
Montreal vantar
New York vantar
Orlando vantar
Par/s 3 alskýjað
Róm 10 þokumóða
Vfn +1 kornél
Washington +7 léttskýjað
Winnipeg vantar
ættum í herþjón-
ustu í Saudi Arabíu
KONA af íslensku bergi brotm,
Kristina Rannveig Diener, er nú
í öryggislögreglusveit banda-
ríska flughersins við ótilgreind-
an herflugvöll í Saudi Arabíu.
Kristina, sem er tveggja barna
móðir, var í varaliði Nýju Mex-
ikó, fylkis í Bandaríkjunum.
Þann 30. nóvember sl. var hún
kölluð í herinn og 11. desember
var hún send til Saudi Arabíu
þar sem hún þefur verið síðan.
Kristina Rannveig er dóttir
Rannveigar Sveinsdóttur og
Fredricks Diener, sem búa í Albu-
querque í Nýju Mexíkó. Rannveig
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að það væri hernaðarleyndar-
mál hvar Kristina væri, en það sé
ekki nálægt víglínunni milli fjöl-
þjóðahersins og íraks, og dóttir
hennar væri ekki í beinni hættu
af árásum íraka.
.Kristina vinnur sem öryggis-
vörður hjá fyrirtækinu Wells,
Fargo & Co. sem sér m.a. um pen-
ingasendingar. Rannveig sagði að
dóttir hennar væri því vön að hand-
leika byssur, en sér hefði þó ekki
orðið um sel þegar hún lagði af
stað til Saudi Arabíu, með riffil í
höndunum, skammbyssu á mjöð-
minni og hníf í skónum.
„Við hjónin bjuggum í Marokkó
Kristina Rannveig Diener.
í þrjú ár, en mér datt aldrei í hug
að ég myndi eignast dóttur sem
endaði sem hermaður í stríði á
þessum slóðum," sagði Rannveig.
Hún bætti við að það tæki á
taugarnar að vita af dótturinni
þarna. Hún væri þó ekki óvön slíku
þar sem maður hennar hefði verið
í hernum í 24 ár. „En maður veit
aldrei hvað gerist næst, við svona
kringumstæður, og það er óskandi
að þessu fari að ljúka,“ sagði Rann-
veig Sveinsdóttir.