Morgunblaðið - 24.01.1991, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 24.01.1991, Blaðsíða 43
MORGU.NBLAÐIÐ, IÞRQTTIR FIMMTUDAGUR §4r 4ANÚAR ,19,91, 43 HANDBOLTI || SKÍÐÍ Sísý boðið að æfa með þýska landsliðinu Hafnaði í öðru sæti á þýska meistaramótinu Guðríður Guðjónsdóttir. Sísý Malmquist, 16 ára Akur- eyringur, hefur gert það gott í Þýskalandi og verið boðið að æfa með þýska skíðalandsliðinu. Hún sigraði í svigi á unglinga- meistaramóti ÞýskalandS, 15-19 ára, í víkunni og hafnaði í 2. í svigi sæti á landsmóti fullorðinna. í framhaldi af því var henni boðið að æfa með þýska landsliðinu. Sísý er skiptinemi í Lutensheit í Þýskalandi, í grennd við Aust- urríki, _ og hefur getað æft af kappi. í fjölskyldu'nni sem hún býr hjá er skíðaþjálfari sem hefur aðsþoðað hana við æfingar. Á sunnudaginn sigraði hún í svigi á unglingameistaramóti Þýskalands og daginn eftir hafn- aði hún í 2. sæti í stórsvigi. Henni var þá boðið að taka þátt í þýska meistarmótinu, 20 ára og eldri. í fyrradag keppti hún í svigi og hafnaði í 2. sæti, en á mótinu eru margir bestu skíðamenn Þýska- lands. Sísý hefur keppt í fleiri mótum Sísý Malmquist. og hafnaði m.a. í 6. sæti á FIS- móti á Ítalíu í desember. Fyrir skömmu fékk hún skeyti frá þýska skíðasambandinu þar sem henni var boðið að æfa með þýska landsliðinu og taka þátt í keppnis- ferðum á vegum þess. Gudríður meðí landsliðs- slaginn Guðríður Guðjónsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér að nýju í landsiiðið í handknattleik. Hún hefur ekki leikið með liðinu um nokkurt skeið en ákvað í gær að gefa kost á sér að nýju. „Það hefur verið mikil pressa á okkur gömlu að koma aftur í liðið enda mikið í húfi í C-keppninni. Fimm efstu liðin fara áfram og við viljum skilja við liðið á góðum stað,“ sagði Guðríður. Fleiri landsliðskonur sem voru hættar eru að velta því fyrir sér að koma aftur inní liðið en mikil- vægt að það nái góðum úrslitum í C-keppninni. iÞRÖmR FOLK ■ MARK Hughes skoraði öll þijú mörk Manchester United sem vann Southampton, 3:2, í 8-liða úrslitum ensku deildarbikarkeppn- innar í gærkvöldi á Old Trafford. Félagið mætir Leeds í undanúrslit- um - heima og heiman. ■ JIMMY Case, fyrirliði Sout- hampton, var rekinn af leikvelli fyrir brot á Bobby Robson, sem lék á ný með United. ■ TOTTENHAM mátti þola skell á heimavelli - tapaði, 0:8, fyrir Chelsea, sem mætir Sheffield Wednesday í undanúrslitum. Andy Townsend, Kerry Dixon og Dennis Wise skoruðu mörk Chelsea. HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KVENNA Morgunblaðið/Árni Sæberg Ragnheiður Stephensen úr Stjörnunni og Hafdís Guðjónsdóttir, Fram, eigast við í Garðabæ í gærkvöldi. Fram styrkir - stöðuna ÍSLANDSMEISTARAR Fram í 1. deild kvenna styrktu stöðu sína í gær með sigri á Stjörn- unni, 17:16, í miklum baráttu- leik í Garðabæ. Umdeilt víta- kast réð úrslitum á spennandi lokamínútunum en Stjarnan á hrós skilið fyrir mikla baráttu í síðari hálfleik, þegar staðan virtist vonlaus. Eg hafði alltaf trú á að við gæt- um þetta og þetta var mikil- vægur sigur,“ sagði Guðríður Guð- jónsdóttir, fyrirliði Fram. „Við stöndum betur en þó er ekkert öruggt. Við eigum marga leiki eftir og þurfum að leika tvisvar í viku næsta mánuðinn. Það verður erfitt enda geta allir'*sigrað alla,“ sagði Guðríður. I leikhléi var staðan 6:5, Fram í vil, en síðari hálfleikurinn var kafla- skiptur. Fram virtist hafa leikinn í hendi sér og náði fimm marka for- skoti. En þegar 13 mínútur voru eftir og staðan 15:11, Fram í vil, breyttu Stjörnustúlkur um varnar- leik. Þær tóku Guðríði úr umferð og Fram gerði ekki mark næstu 11 mínúturnar. Vöm Stjörnunnar var sterk og hraðaupphlaupin vel Logi Bergmann Eiðsson skrifar nýtt. Með baráttu náði Stjarnan forystunni, 16:15, þegar rútnar fjór- ar mínúrur voru eftir. Þá var Guðný «■»' Gunnsteinsdóttir vikið af leikvelli og Guðríður jafnaði þegar tvær mínútur voru eftir. Guðríður gei'ði svo sigurmarkið þegar 40 sekúndur voru eftir úr umdeildu vítakasti og í kjölfarið var Margrét Theodórs- dóttir rekin útaf. Einum færri átti Stjarnan litla möguleika en hefði þó getað gert betur úr síðustu sókn- inni. „Þetta var alls ekki víti og svekkjandi að fá svona dóm,“ sagði Guðný Gunnsteinsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar. „Vörnin brást í lokin og við hefðum kannski átti að taka Guðríði fyrr úr umferð. Það var slæmt að tapa þessum leik og nú verðum við að stóla á önnur lið,“ t- ' sagði Guðný. Framliðið lék mjög vel lengst af en gerði mörg mistök T sókninni í síðari hálfleik. Guðríður átti góðan leik og bar uppi sóknarleik liðsins. Kolbrún Jóhannsdóttir varði vel og Inga Huld lék vel í síðari hálfleik. Erla Rafnsdóttir lék lítið með fram- anaf en í síðari hálfleik reif hún lið Stjömunnar upp með baráttu og krafti. Herdís ,og Guðný áttu einnig góðan leik og Fjóla Þórisdóttir varði vel í lokin. KNATTSPYRNA Reglugerðarbreytingarfrá Alþjóðasambandinu: Hjólabuxur á bannlista Ormarr Örlygsson, þjálfari og leikmaður KA, og Janni Zilnik, Víkingi, verða annað hvort að fá sér síðari stuttbuxur eða leggja hjólabuxunum fyrir næsta sumar. .....---------------------------------...----------------............. j Alþjóða knattspymusambandið Jiefur ákveðið að breyta reglum sínum. Knattspyrnusamband íslands hefur sent bréf til knatt- spyrnufélaga landsins og tilkynnt um brejtingarnar sem taka gildi í sumar. Hjólabuxqr eða hitabuxur eru bannaðar, nái þær niður fyrir skálm- ar sluttbuxna. AUir leikmenn skulu nota legghlífar og hafa sokkana uppi. Reglum um rangstöðu hefur einnig verið breytt og leikmaður, sem er. .samsíða aftasta varnarmenni þegar knetti er spyrnt, er ekki rangstæður. Að lokum er þess getið að ef leikmanni blæðir skal hann fara af leikvelli til að fá aðhlynningu. ........................ .........................................i KARFA IMjaðvíkingarí kröppum dansi Fyrir þá var að duga eða drepast því það lið sem tapaði vax úr og þeir gáfust aldrei upp. Það var mikill taugaspenna í mönnum fyrir leikinn því við höfum titil að veija og við hefðum heldur aldrei gefist upp þó á brattan hefði verið að sækja,“ sagði Friðrik Rúnarsson þjálfari UMFN eft- ir nauman sigur, 96:’94, gegn Tinda- stól í Njarðvík í gærkvöldi. Tindastólsmenn náðu að vinna upp sextán stiga forskot heimamanna und- 4 ir lokin og voru síðustu sek. æsispenn- andi. Þegar tæpar 40 sekúndur voru eftir var staðan 93:91, Teitur skoraði þá fallega körfu fyrir heimamenn, en Einar Einarsson svaraði með glæsi- legri 3ja stiga körfu og breytti stöð- unni í 95:94. Friðriki Ragnarssyni skoraði síðustu körfu leiksins úr víta- skoti. Björii Blöndal, Keflavík .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.