Morgunblaðið - 24.01.1991, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.01.1991, Blaðsíða 28
28 MÖRGÚNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1991 ATVINNU/A UGL YSINGAR Óska eftir vinnu Er hárgreiðsludama en margt kemur til greina, jafnvel vinna úti á landi. Góð enskukunnátta. Upplýsingar í síma 53648. Yfirvélstjóri Yfirvélstjóri óskast á bv. Tálknfirðing BA 325. Upplýsingar í símum 94-2530 og 94-2518. Útkeyrsla/ verslunarstörf Vantar mann til útkeyrslu og almennra versl- unarstarfa. Tilboð óskast send á auglýsingadeild Mbl. merkt: „Útkeyrsla - 12593“ fyrir 28. janúar. Hitaveita Siglufjarðar Starf aðstoðarmanns verkstjóra Hitaveitu Siglufjarðar er laust til umsóknar. Æskileg er menntun vélstjóra eða hliðstæð verkkunnátta. Laun samkvæmt kjarasamningi SMS og bæjarstjórnar Siglufjarðar. Nánari upplýsingar gefur Sverrir Sveinsson, veitustjóri, símar 96-71700 og 96-71414. FJÓROUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Læknaritarar Lausar eru stöður læknaritara, læknafulltrúa I og læknafulltrúa II frá 1. febrúar nk. Upplýsingar veita Ingi Björnsson, fram- kvæmdastjóri, og Vignir Sveinsson, skrif- stofustjóri. Skriflegar umsóknir sendist Inga Björnssyni fyrir 26. janúar nk. Matreiðslumaður/ matráðskona óskast til að veita forstöðu mötuneyti (70-100 manna) opiriberrar stofnunar í Reykjavík. Starfið felur í sér'mannaforráð og rekstur mötuneytisins, sem er vel tækjum búið og í góðu húsnæði. Umsóknir skilist inn til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „M - 1019“. Fullum trúnaði heitið. Prentsmiður Morgunblaðið, framleiðsludeild, vill ráða prentsmið til starfa við umbrot. Starfið er laust strax. Vaktavinna. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eingöngu veittar á skrifstofu Guðna Jóns- sonar, Tjarnargötu 14. Umsóknarfrestur er til 2. febrúar nk. GijðntTónsson RÁÐCJÖF & RÁÐN I NCARNÓN USTA TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 Hjúkrunarfræðingar Tveir hjúkrunarfræðingar óskast sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi, til starfa við Sjúkrahúsið á Seyðisfirði. í boði eru góð laun, góður ferðastyrkur, hús- næði á staðnum og barnagæsla, ásamt góð- um og metnaðarfullum starfsanda. Sjúkrahúsið á Seyðisfirði er 26 rúma sjúkra- hús með fimm stöðugildi hjúkrunarfræðinga. Sjúkrahúsið er nú í gömlu húsnæði en flutt verður í nýtt húsnæði seinna á þessu ári. Öll aðstaða til hjúkrunar og umönnunar verð- ur mjög góð í hinu nýja húsnæði. Aðalviðfangsefnin eru á sviði öldrunarhjúkr- unar, en einnig er fengist við margskonar læknisfræðileg vandamál, bæði bráð og langvarandi. Ýmis.sérstök heilbrigðisvandamál eru einnig tekin til meðferðar á sjúkrahúsinu. Nætur- vaktir hjúkrunarfræðinga eru í formi bak- vakta, heima. Seyðisfjörður er 1000 manna byggðarlag í fallegum austfirði með glæsta og fjölbreytta sögu að baki. Aðalatvinnuvegir tengjast fiskvinnslu og út- gerð, ásamt vélsmíði. Verslun og fjölbreytt þjónustufyrirtæki eru á staðnum. Sjúkrahús og heilsugæslustöð eru einnig mikilvægir vinnustaðir. Bílferjan Norröna kemur hér vikulega allt sumarið frá Evrópu og á Egils- stöðum verður kominn millilandaflugvöllur í byrjun næsta árs. Á Seyðisfirði er grunnskóli með framhálds- deild auk tónlistarskóla. Menntaskóli er á Egilsstöðum í 26 km fjarlægð. Á staðnum er ágæt aðstaða til leikfimi og íþróttaiðkana innanhúss, auk sundlaugar og tilheyrandi. Fjölbreytt íþrótta- og félagsstarf er á staðnum. í Seyðisfirði er fjölbreytt náttúrufegurð með ýmsum tækifærum til útivistar, s.s. fallegum gönguleiðum, góðri aðstöðu til skíðaiðkana og stutt í silungsveiði. Hafir þú áhuga á skemmtilegu en oft krefj- andi starfi með góð laun, í hinu sérstaka umhverfi lítils útgerðarbæjar, hafðu þá sam- band við Ástríði (hjúkrunarforstjóra), Lárus (framkvæmdastjóra) eða Atla (lækni) í síma 97-21406, sem gefa nánari upplýsingar. Sjúkrahús Seyðisfjarðar. Rafmagnsverk- fræðingur/ -tæknifræðingur/ viðskiptafræðingur (163) Traust þjónustufyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að ráða tæknimenntaðan stjórnanda „markaðsmála". Starfið: - Uppbygging og endurskipulagning mark- aðs- og þjónustumála. - Dagleg stjórnun þjónustumála. - Tæknileg ráðgjöf. - Samvinna við aðra starfsmenn fyrirtækis- ins varðandi tækni- og markaðsmál. - Spennandi starf með mikla framtíðar- möguleika fyrir réttan aðila. Við leitum að manni með: - Rafmagnsverkfræði- eða rafmagnstækni- fræðimenntun. - Eða viðskiptafræðingi með tæknilegan bakgrunn. - Málakunnátta (Norðurlandamál + enska). - Frumkvæði, áhuga og skipulagshæfileika. - Reynsla. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarmiðlunar Ráðgarðs merktar „163“ fyrir 2. febrúar. Umsóknareyðubjöð og nánari upplýsingar veitir Adolf Ólafsson í síma 679595. RÁÐGARÐURHE STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88 ÖRVI Starfsþjálfunarstaður Kársnesbraut 110, 200 Kópavogi, Félagsráðgjafi Vinnustaðurinn Örvi, sem sinnir starfsþjálfun fatlaðra, óskar að ráða félagsráðgjafa til starfa. Umsóknum skal skila til Örva, Kársnesbraut 110, 200 Kópavogi. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 43277. Blaðberar - ísafjörður Blaðberar óskast á Seljalandsveg, í Miðtún, Sætún og Stakkanes. Upplýsingar í síma 94-3527, ísafirði. RAD AUGL YSINGAR Fyrirtæki í matvælaiðnaði óskast til kaups Fjársterkur aðili hefur falið undirrituðum að leita eftir kaupum á fyrirtæki í matvælaiðn- aði. Rekstur þess verður að vera þeim eigin- leikum búinn að hægt sé að flytja hann. Því kemur ekki til greina að kaupa fasteignir. Þeir, sem hafa áhuga, vinsamlegast sendið undirrituðum skriflegt tilboð fyrir 5. febrúar nk. Ólafur Axelsson, hæstaréttarlögm., Höfðabakka 9, 112 Reykjavík. TIL SÖLU Hlutabréf til sölu Ferðamálasjóður auglýsir hér með eftir til- boðum í hlutabréf sín í Hótel Ólafsfirði hf. Bréfin eru að nafnvirði kr. 3.000.000,-. Heild- arfjárhæð hlutafjár er kr. 10.000.000,-, en auk þess liggur fyrir heimild til aukningar hlutafjár í félaginu um 5.000.000,-. Tilboð um kaupverð og greiðsluskilmála skil- ist til Ferðamálasjóðs, Rauðarárstíg 25, Reykjavík, í síðasta lagi 1. febrúar 1991. Ferðamálasjóður. —— ATVINNUHÚSNÆÐI Hafnarfjörður Til leigu skrifstofuhúsnæði, 105 fm, iðnaðar- húsnæði, 60 fm og 150 fm, sem skiptanlegt er í tvær einingar, verslunar- og lagerhús- næði, 105 fm, 130 frh, 205 fm og 280 fm. Upplýsingar í síma 652260, og 42613 á kvöldin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.