Morgunblaðið - 24.01.1991, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 24. JANÚA'R 1991
ÚRSLIT
Handknattleikur
1. DEILD KONUR:
_ Stjarnan - Fram................16:17
íþróttahúsið í Garðabæ:
Gangur leiksins: 0:1, 3:3, 4:4, 5:6, 6:11,
8:12, 10:12, 11:15, 16:15, 16:17.
Mörk Stjörnunnar: Margrét Theodórsdóttir
5/2, Herdís Sigurbergsdóttir 3, Harpa
Magnúsdóttir 3, Erla Rafnsdóttir 3/2,
Ragnheiður Stephensen 1 og Guðný Gunn-
steinsdóttir 1.
Mörk Fram: Guðríður Guðjónsdóttir 8/2,
Sigrún Bolmsterberg 3, Iinga Huld Páls-
dóttir 2, Ósk Víðisdóttir 2 og Ingunn
Bernótusdóttir 2.
Dómarar: Guðjón Sigurðsson og Hákon
L. Siguqónsso.n.
Áhorfendur: Um 300.
Valur - Grótta.................24:19
_ Mörk Vals: Hanna Katrín Friðriksen 10/4,
" Una Steinsdóttir 5, Sigurbjörg Kristjáns-
dóttir, Ragnheiður Júlíusdóttir 3, Berglind
Ómarsdóttir 2, Ama Garðarsdóttir 1.
Mörk Gróttu: Helga Sigmundsdóttir 6/3,
Gunnhildur Ólafsdóttir 3, Elísabet Þorgeirs-
dóttir 2, Ema Hjaltested 2, Sigríður Snorra-
dóttir 2, Laufey Sigvaldadóttir 2, Sara
Haraldsdóttir 1, Brynhildur Þorgeirsd. 1.
STAÐAN:
STJARNAN. ...22 18 0 4 498:369 36
FRAM ...18 15 1 2 371:298 31
VÍKINGUR.. ...20 11 . . 2 7 400:348 24
FH ...21 11 2 8 393:382 24
VALUR ...21 9 0 12 401:425 18
GRÓTTA ...19 5 3 11 330:354 13
ÍBV ...22 5 1 16 403:487 11
SELFOSS ...19 2 1 16 338:471 5
BIKARKEPPNI KARLA:
Leikir í 16-liða úrslitum:
UBK-ÍR.......................16:23
Fjölnir- FH..................20:35
% Víkingur - KR.................22:20
■Markahæstu menn liðanna: Víkingur:
Alexej Trúfan 11/5, Bjarki Sigurðss. 4. KR:
Konráð Olavsson 6, Sigurður Sveinss. 4.
Selfoss - Haukar.............24:25
■Markahæstu menn liðanna: Selfoss: Gú-
staf Bjamason 12/3, Einar G. Sigurðsson
3, Sigurjón Bjarnason 3. Haukar: Petr
Baumruk 9/2, Snorri Leifsson 5, Sigurjón
Sigurðsson 3, Sveinberg Gíslason 3.
Fram b - KA....................23:38
Yalur- Grótta..................22:18
Aður höfðu tveir leikir farið fram:
Þór-Ármann.....................26:16
ÍBV-FHb........................28:18
■Dregið var í 8-liða úrslit í gærkvöldi:
■—Valur - FH, Þór Ak. - ÍBV, ÍR - Haukar
og Víkingur - KA.
Körfuknattleikur
‘ BIKARKEPPNI KARLA:
16-liða úrslit:
Njarðvík - Tindastóll.........96:94
Gangur leiksins:2:0, 2:2, 7:4, 14:4, 19:9,
30:9, 33:32, 43:42, 53:44, 65:50, 76:60,
80:68, 87:77, 87:84, 93:91, 95:94, 96:94.
Stig UMFN: Rondey Robinson 22, Teitur
Örlygsson 20, Gunnar Örlygsson 15, Krist-
inn Einarsson 12, Friðrik Ragnarsson 11,
Isak Tómasson 8, Ástþór Ingason 4, Hreið-
ar Hreiðarsson 4.
Stig UMFT: Ivan Jónas 30, Einar Einars-
son 28, Sverrir Sverrisson 18, Haraldur
Leifsson 11, Karl Jónsson 4, Valur Ingi-
mundarson 3.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Bergur
Steingrímsson.
Áhorfendur: Um 350.
UBK - Þrymur...................65:64
Knattspyrna
EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA
6. riðill:
Aþena, Grikklandi:
Grikkíand—Portúgal..............3:2
Borbokis (7.), Manolas (68.), Dimitriadis
(84.) - Aguas (18.), Futre (62.).
Staðan:
Holland..........3 2 0 1 10: 1 4
Grikkland........3 2 0 1 7: 4 4
Portúgal.........3 1 1 1 3: 3 3
Finnland.........2 0 2 0 1:1 2
Malta...........3 .0 1 2 1:13 1
ÍTALÍA
1. DEILD:
ACMilan-Pisa......................1:0
Daniele Massaro (20.).
Sampdoria - AC Róma...............2:1
Tempestilli (II.), Vialli (49.) - Tempestilli
(14. - sjálfsm.)
Bikarkeppnin 3. umferð:
Torínó - Inter Mílanó.............1:0
Gianluigi Lentini (15.).
■Samanlögð úrslit, 2:2. Tórínó komst
áfram í 8-liða úrslit með marki skoruðu á
útivelli.
ENGLAND
DEILDARBIKARKEPPNIN:
Coventry - Sheffield Wed......0:1
Manchester Utd. - Southampton..3:2
Tottenham - Chelsea............0:3
■ Chelsea leikur gegn Sheffield Wed. í
undanúrslitum og Manchester United mæt-
ir Leeds. Leikið verður heima og heiman.
2. DEILD:
Charlton - Notts County........3:1
HM í alpagreinum
■"» Saalbach, Aussturríki:
Risasvig karla:
(Lengd brautar 2,095 metrar, fallhæð 626
metrar og 43 hlið).
1. Stefan Eberharter (Austurríki)...1:26.73
2. Kjetil-Andre Aamodt (Noregi)... 1:28.27
3. Franck Piccard (Frakklandi).....1:28.55
4. Ole Christian Furuseth (Noregi) 1:28.93
5. Johan Wallner (Svíþjóð).........1:28.96
6. Steve Locher (Sviss).............1:29.06
7. Martin Hangl (Sviss).............1:29.13
8. UrsKaelin (Sviss).................1:29.32
9. Kristian Ghedina (Ítalíp);..'.....1:29.39
KNATTSPYRNA
Hólmbert Friðjónsson tekurvið 21 árs landsliðinu:
„Spennandi að vera með
erfiðasta landsliðið"
LANDSLIÐSNEFND U-21 árs
liðsinsV knattspyrnu leggurtil
á stjórnarfundi KSÍ í dag að
Hólmbert Friðjónsson verði
ráðinn þjálfari piltanna í stað
Marteins Geirssonar, sem
sagði starfi sínu lausu. Hólm-
bert, sem á mjög farsælan fer-
il að baki sem þjálfari í 1. deild,
hefur tekið boði nefndarinnar,
en stjórnin gengur endanlega
frá ráðningunni og afgreiðir
málið sennilega á fundinum.
Stefán Gunnlaugsson, formaður
U-21 árs landsliðsnefndarinn-
ar, sagði við Morgunblaðið að
nefndarmenn hefðu verið einhuga
um að ráða Hóimbert. „Við gerum
okkur grein fyrir að þetta er mjög
kreijandi starf og óhemju erfitt
verkefni. Það eru margir hæfir til
að gegna því, en að okkar mati
getur viðkomandi ekki verið yfir-
hlaðinn af öðrum þjálfarastörfum.
Þegar þessi staða kom upp höfðum
við strax áhuga á að fá Hólmbert
til að taka við. Það gekk saman
með okkur og því leggjum við þetta
til á stjórnarfundi."
„Hissa“
Hólmbert hefur þjálfað meira eða
minna í um tvo áratugi. Hann tók
við 1. deildarliði Keflavíkur 1969
og stóð uppi sem íslandsmeistari
um haustið. Hann var síðast með
ÍBK í lok tímabilsins 1989 eftir að
hafa tekið sér frí frá þjálfun í lið-
lega tvö ár, en áður þjálfaði Hólm-
bert KR, Fram, Víði, Njarðvík og
Ármann með góðum árangri.
„Ég kem aldrei til með að þjálfa
landsliðið, því ég er ekki nógu fínn
þjálfari til þess í augum KSI-
manna,“ sagði Hólmbert m.a. í við-
tali í Morgunblaðinu 19. maí 1987.
En annað hefur komið á daginn.
Hólmbert vildi ekki gera mikið úr
fyrri ummælum sínum, en sagði að
boð landsliðsnefndar hefði komið
sér á óvart. „Ég var hissa,*en mér
líst vei á þetta og ég hlakka til að
starfa með þessum mönnum enda
valinn maður í hverju rúmi.“
Hólmbert sagði að eftir að hafa
rætt við nefndarmenn hefði ekki
Hólmbert Friðjónsson.
verið erfitt að taka ákvörðun.
„Þetta er nýtt og öðruvísi en það
sem ég hef áður fengist við. Ég
færi ekki út í að þjálfa félagslið
nema minnka við mig vinnu, en
þetta er annars eðlis þó kreíjandi
sé.“
„Ekki stökkbreytingar“
Hann sagði að fyrsta verkefnið
yrði að afla upplýsinga um þá leik-
menn, sem hefðu verið í hópnum
og síðan myndi hann leita upplýs-
inga hjá félögunum hvaða aðra leik-
menn þau hefðu upp á að bjóða.
„Ég hef reynt að fylgjast með leikj-
um og kem að sjálfsögðu til með
að gera það áfram, en ég hef ekki
trú á að um miklar stökkbreytingar
verði að ræða. Staðreyndin er að
unglingaliðin okkar standa oft í
þjóðum, en síðan stöðnum við á
meðan atvinnumennirnir þroskast
og fá sérhæfðari þjálfun. Því er
þetta erfiðasta landsliðið, en það
er spennandi verkefni að vera með
erfiðasta landsliðið og það er góður
kostur að enginn gengur upp.“
íttémR
FOLK
SKIÐI/ /HEIMSMEISTARAMOTIÐ I SAALBACH
Stefan Eberharter
komf sá og sigraði
Reuter
Verðlaunahafarnir í risasviginu á HM í Saalbach. Frá vinstri: Kjetil-Andre
Aamodt, Noregi (sem varð annar), Stefan Eberharter, Austurríki (sigurvegari)
og Franc Piccard frá Frakklandi, sem varð þriðji.
AUSTURRÍKISMAÐURINN
Stefan Eberharter, sem aldrei
hefur unnið heimsbikarmót
kom, sá og sigraði í risasviginu
á heimsmeistaramótinu í alpa-
greinum í Saalbach í Austurríki
ígær. Hann hafði fádæma yfir-
burði, var 1,54 sek. á undan
Kjetil-Andre Aamodt frá Nor-
egi, sem varð annar. Franc Pic-
card, Frakklandi, varð þriðji.
Eberharter, sem er aðeins 21
árs, setti allt í sölurnar 'á
heimavelli og uppskar eftir því og
var ákaft fagnað af samlöndum
sínum. Hann var að sjálfsögðu mjög
undrandi og ánægður er úrslitin
lágu fyrir. „Það var draumur minn
að vinna gullverðlaun í risasviginu,
en ég átti ekki von á að hann rætt-
ist. Það er nánast óraunverulegt
að vinna með svona miklum mun,“
sagði Eberharter, sem er yngsti
meðlimur austurríska landsliðsins í
Saalbach.
Kjetii-Andre Aamodt, sem verður
tvítugur á þessu ári,- vann önnur
verðlaun Norðmanna á HM á jafn-
mörgum dögum með því að hafna
í 2, sæti. Olaf Christian Furuseth,
sem vann bronsverðlaunin í sviginu
á þriðjudag, varð í fjórða sæti, 0,38
sek. á efitr Ólympíumeistaranum
franska, Franc Piccard sem varð
þriðji. Svíinn Johan Wallner, sem
hafði rásnúmer 35, kom mjög á
óvart með því að ná fimmta sæti
því brautin var orðinn mjög slæm
er hann fór niður.
Piccard var mjög undrandi á
góðum árangri Éberharters. En
Austurríksmaðurnn hafði áður náð
best þriðja sæti á eftir Piccard í
risasvigi heimsbikarsins í Valloire
í Frakklandi í desember. „Hann
hlýtur að hafa skíðað nær óaðfinn-
anlega þrátt fyrir að tekið mikla
áhættu," sagði Piccard. Það er að-
eins einn keppandi sem unnið hefur
risasvig með meirj mun. Það gerði
Markus Wasmeier frá Þýskalandi
er hann var 1,71 sek. á undan
Martin Hangl frá Sviss í Whstler
Mountain í Kanada 1986.
Brautin var mjög erfið, mikill
hraði og krappar beygjur og fengu
keppendur að finna fyrir því. Meira
en 50 prósent fall var í brautinni.
Flestir fóru útúr í neðri hluta braut-
arinnar þar sem var tiltölulega
kröpp beygja í miklum bratta. I dag
er frí á HM, en á morgun, laugar-
dag, verður keppt í tvíkeppnisbruni
kvenna.
■ HOWARD Wilkinson, fram-
kvæmdastjóra Leeds, hefur verið
boðinn tíu ára samningur við félag-
ið. Hann á að fá 1,5 millj. punda
fyrir samninginn.
Frá Bob Wilkinson hefur
Hennessy verið hjá Leeds í 27
i Englandi mánuði og komið
félaginu upp úr 2.
deild í eitt af efstu sætunum í 1.
deild. Þess má geta að gamla kemp-
an Don Revie var framkvæmda-
stjóri hjá Leeds í þrettán ár.
■ MATTHEW Le Tissier,
markaskorari Southampton, gat
ekki leikið með félaginu gegn Man-
chester United í gærkvöldi vegna
meiðsla.
■ BRIAN Horton, framkvæmda-
stjóri Oxford hefur keypt mark-
vörðinn Ken Veysey frá Torguay,
en hann hefur verið í láni hjá félag-
inu sl. tvo mánuði. Veysey, sem
kostaði 110 þús. pund, var eitt sinn
hjá Tottenham, en fékk ekki að
leika. Hann leikur með Oxford
gegn Tottenham í bikarkeppninni
á láugardaginn.
■ JOE Royle, framkvæmdastjóri
Oldham hefur keypt miðvallarspil-
arann Paul Kane frá Hibs á 350
þús. pund.
■ BRIGHTON keypti Rúmenann
Stefan Iovan frá Steaua Búkarest
á 60 þús. pund.
■ CHRIS Turner, fyrrum leik-
maður Peterborough, hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri félagsins.
Hann er þriðji „stjórinn" hjá því í
vetur. Mark Lawrenson og David
Booth voru áður í heita sætinu.
HANDKNATTLEIKUR
Víkingar í basli með KR-inga
■Jjarki Sigurðusson tryggði Víkingum sigur á KR, 22:20, með tveimur
0 mörkum á lokamínútunni. Víkingar höfðu mikla yfirburði og höfðu
átta marka forskot þegar 20 mínúlur voru eftir. Þá snerist leikurinn við.
KR-ingar náðu að minnka muninn í eitt mark, 21:20, en komust ekki lengra.
Frosti B. Eiðsson
HANDKNATTLEIKUR
Ótmlegt sigurmark á Selfossi
Haukar tryggðu sér sigur, 24:25, á Selfossi í gær með ótrúlegu marki
úr aukakasti þegar leiktíminn var liðinn. Siguijón Sigurðsson skaut
yfir varnarvegginn og í netið. Selfyssingar voru undir nær allan leikinn en
náðu tveggja marka forskoti þegar fimm mínútur voru eftir. Haukar voru
svo einum fleiri næstu tvær mínútur og náðu að jafna og tryggja sér svo
sigurinn. Óskar Sigurösson, Selfossi.