Morgunblaðið - 24.01.1991, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1991
15
Menntamálaráðuneytið leitaði álits
Islenskrar málnefndar á þessari
breytingu, og varaði stjórn hennar
við því að gera í flýti breytingar á
reglum um svo mikilsverð málefni
við þær aðstæður' sem ríktu um-
ræddan dag. Breytingin á reglugerð-
inni var gerð til að gera lögbrot lög-
legt. Eftir að búið var að breyta
reglugerðinni ákvað Ríkissjónvarpið
svo að heíja ótextaðar fréttasend-
ingar frá annarri gervihnattastöð,
Sky-channel.
I lokin vil ég leyfa mér að árétta
það- sem er mergurinn málsins og
meginröksemdin fyrir þýðingarskyl-
dunni, en það er réttur Islendinga
til þess að fá þjónustu sjónvarps-
stöðvanna framreidda á móður-
máli sinu, þannig að vald á
íslensku dugi til að njóta efnisins.
Ef svo er komið að „íslenskir" fjöl-
miðlar selja löndum sínum þjónustu
á tungumáli sem ekki er móðurmál
þeirra, þá er fólki mismunað. Boðið
er upp á þjónustu sem ekki allir
geta notið.
Ég hef heyrt því haldið fram að
það væri einhvers konar skerðing á
mannréttindum að heimta það að
allt efni sem útvarpað er sé textað,
ekki megi banna mönnum að taka
við ensku efni heima hjá sér. Slíkt
tal er á misskilningi byggt. Það er
enginn sem bannar einstaklingum
að kaupa sér skerm til þess að taka
á móti erlendu sjónvarpsefni sem
kemur beint frá gervihnöttum. Hver
sem er getur keypt sér skerm, ef
hann hefur efni á því, á sama hátt
og menn geta tekið við útvarpi er-
lendis frá eða keypt sér erlenda bók
eða blað. En það er grundvallarmun-
ur á þessu framtaki einstaklinga til
að bera sig eftir því sem hrýtur af
borðum erlendrar menningar og því
að reka innlenda starfsemi sem
dreifir svona efni.
Það á í rauninni að snúa réttinda-
umræðunni við og benda á að það
sé óréttlátt að útvarpa efni sem ekki
allir geta notið vegna tungumálsins.
Því þrátt fyrir allt talið um ensku-
kunnáttu þjóðarinnar, er fjöldi
manns í landinu sem ekki skilur
ensku eða hefur nógu gott vald á
henni, og það er skylda þess sem
býður fram þjónustu sína að gera
hana aðgengilega sem flestum neyt-
endum. Ég minntist á það að það
fer í vöxt að vörur séu með íslensk-
um áletrunum þótt erlendar séu,
þannig að leiðbeiningar um svissn-
eskar pakkasúpur eru okkur vel
skiljanlegar. Þeim mun meiri ástæða
er þá til þess að sjónvarpsefni sé
þýtt með þeim hætti sem við á.
Pakkasúpan er nefnilega jafnæt
þeim sem les útlensku og þeim sem
ekki les útlensku, en svo er ekki um
ótextað sjónvarpsefni á ensku. Það
er ekki ætt þeim sem ekki kann
ensku. Og ef hann vill njóta þess
verður hann að drífa sig og læra
ensku. Hann getur með öðrum orð-
um ekki notað sitt eigið tungumál,
hann er annars flokks borgari í sínu
eigin landi.
Höfundur er formaður íslenskrar
málnefndar.
Ú.Ú RANNSÓKNARÁD RÍKISINS
auglýsir styrki til rannsókna og tilrauna órió 1991
Umséknarffrestur er til 1. mars nk. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu ráðsins,
Laugavegi 13, sími 21320.
• Um styrk geta sótt fyrirtæki, stofnanir eða einstaklingar.
• Styrktarfé skal varið til rannsókna og þróunar á nýrri tækni og afurðum, sem talin
er þörf fyrir næsta áratug.
• Mat á verkefnum, sem sótt er um styrk til, skal m.a. byggt á;
— líklegri gagnsemi verkefnis, m.a. markaðsgildi niðurstaðna, sem sóst er eftir,
— gildi fyrir eflingu tækniþekkingar eða þróunar atvinnugreina hér á landi,
— hæfni umsækjenda/rannsóknamanna.
Forgangs skulu að öðru jöfnu njóta verkefni, sem svo háttar um að;
— fyrirtæki leggja umtalsvert framlag til verkefnisins,
— samvinna fyrirtækja og stofnana innanlands er mikilvægur þáttur í framkvæmd
verk efnisins,
— samstarf við erlend fyrirtæki og rannsókna- og þróunarstofnanir er mikilvægt,
— líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri fyrir atvinnurekstur.
<k\>)
"»>U
rf > 4,
SLYS A BORNUM
FORVARNIR
SNÚUM VÖRN í SÓKN OG
FORÐUM BÖRNUM OKKAR
FRÁ SLYSUM
Fræðslumiðstöð Rauða kross íslands gengst fyrir
tveggja kvölda námskeiði um algengustu slys á
börnum og hvernig koma má í veg fyrir þau.
Námskeiðið fer fram á Hótel Lind, Rauðarárstíg 18,
dagana 29. og 30. janúar n.k. kl. 20-23,-
Vinsamlega skráið ykkur í síma 91-26722 fyrir kl. 12
mánudaginn 28. janúar.
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ
RAUÐA KROSS ÍSLANDS
Rauðarárstíg 18 - Reykjavík - sími: 91-26722
Heimilt er einnig að styrkja verkefni, sem miða að uppbyggingu þekkingar og færni ó
tæknisviðum, sem talin eru mikilvæg fyrir atvinnuþróun hér á landi í framtíðinni.
ÞVOTTAVEL
Model 9535, - 4.1 kg.
Tveir vinduhraðar, 500 og
1000 snúningar á mtnútu 20
þvottakerfi, t.d. sparkerfi —
hraökerfi — ullarkerfi o.s.frv.
Tromla úr ryöfríu stáli. Heitt
og kalt vatn. Hæð 85 cm -
breidd 59,5 cm - dýpt 56,3 cm.
Verft kr. 65.313.* slgr.
ÞVOTTAVÉL
Model 9525— 4.1 kg.
Vinduhraðar, 500 og 800 snún-
iogarámínútu 20 þvottakerfi.
Tromla úr ryðfrtu stáli. Hæð
85 cm - breidd 59,5 cm - dýpt
56,3 cm.
Verft kr. 55.196.- stgr.
KÆLI- 0G FRYSTISKAPAR
Model 8326
232 lltra, hæð 134,9 - breidd 55
cm - dýpt 60 cm. Verð 51.267.-
Model 8342
288 lltra, hæð 159,0 - breidd 55 cm
- dýpt 60 cm.
Verð kr. 54.626.- stgr.
UPPÞVOTTAVÉL
Model 7822
12 manna matarstell, 3 þvotta-
kerfi, hæð 85 cm - breidd 60
cm - dýpt 60 cm.
Verð kr. 56.772.- stgr.
LOKSINS AFTUR Á ÍSLANDI
Nú hefur Hekla hafiö sölu á hinum heimsþekktu Hutpöinf heimilistækjum.
Ensk afburða tæki á góðu verði.
Okkar viðurkennda varahluta- og viðgerðaþjónusta. •
UPPÞVOTTAVEL
(SLIM IINi)
Model 7800
7 manna matarstell, 3 þvotta-
kerfi. Hæð 85 cm - breidd 45
cm - dýpt 60 cm.
Verð kr. 56.772.- stgr.
HF
Laugavegi 170 -174 Simi 695500