Morgunblaðið - 24.01.1991, Qupperneq 18
91
18
mt XAUMf.1 ,í<& HUOAatíTMKM GK5AJ8K: JDJÍOM
MÓRGUNBLÁÐIÐ "FIMMf UDÁGUR 24.’ JÁNÚÁ'R T99T
PERSAFLOA
Sjö írakar skotnir þegar þeir reyndu
að ná sjónvarpinu á sitt vald;
Vildu uppreisn
gegn Saddam
segja íraskir stjórnarandstæðingar
London. Daily Telegraph.
SJÖ írakar voru skotnir þegar
þeir reyndu að ná á sitt vald
byggingu sjónvarpsins í Bagdad
en þeir ætluðu að senda út áskor-
un til þjóðarinnar um að steypa
Saddam Hussein af stóli. Flutti
breska blaðið The Guardian
þessa frétt í gær.
Blaðið hefur það eftir Sayyid
Abdul Aziz Hakim, íraka af shíta-
grein íslams, að tveir mannanna
hafí verið félagar í Baath-flokknum,
stjórnarflokknum í Irak, og hafi
þeir viljað binda enda á styijöldina.
Segir Hakim, að í fyrirhugaðri
áskorun mannanna hafi Saddam
verið sakáður um steypa Irökum°út
í annað stríð og þjóðin hvött til að
rísa upp gegn honum. Rafmagns-
leysi kom hins vegar í veg fyrir
sendinguna og mennirnir féllu loks
fyrir byssum öryggisvarða.
The Guardian sagði einnig, að
Sami Abdulrahman, fulltrúi kúrd-
neska minnihlutans í Irak, hefði átt
viðræður við fulltrúa breska ut-
anríkisráðuneytisins, þær fyrstu
Strandhögg undirbúið
milli Breta og íraskra stjórnarand-
stæðinga síðan íraski herinn réðst
inn í Kúveit.
Fótgönguliðar úr bandaríska flotanum undirbúa sig undir fyrirhugað strandhögg í Kúveit. Var myndin tekin
af hermanni sem æfir sig í því að bjarga særðum félaga og koma honum undir læknis hendur og er ekki að sjá
að burðurinn sé ýkja erfiður. Myndin var tekin í eyðimörk Saudi-Arabíu í gær.
Franskur verkfræðingur í viðtali við France Soir:
Neðanjarðarbyrgi Saddams
á að standast kjamorkuárás
Er á 16 hæðum og nær 40 metra niður í jörðina
París. Daily Telegraph.
FRANSKUR verkfræðingur, sem vann við að byggja höll Sadd-
ams Husseins í Bagdad og byrgið undir henni, segir í viðtali við
fraínska blaðið France Soir, að jarðhýsið nái 40 metra niður í
jörðina, á 16 hæðum, og hann teiur, að Saddam geti hafst þar við
í allt að eitt ár.
„Úr skrifstofu Saddams er farið
í gegnum þykkar dyr og síðan
með lyftu niður í jörðina. Þá taka
við nokkur smáherbergi, sem að-
eins verður komist um með því
að nota lykilnúmer og segulkort
Stjórnmálin hefta heim-
ferð hijáðra flóttamanna
Aqaba. Reuter.
550 súdanskir flóttamenn frá
írak máttu þola 1.500 km göngu
yfir eyðimörkina, loftárásir,
kulda og sult, áður en þeir kom-
ust í bát sem beið þeirra í Jórd-
aníu til að flytja þá til Egypta-
lands. Eldrauninni var þó síður
en svo lokið því Egyptar, sem
hafa sent hermenn í fjölþjóða-
herinn við Persaflóa, neituðu
þeim um vegabréfsáritun þar
sem súdönsk stjórnvöld hafa
stutt Saddam Hussein íraksfor-
seta. .
Flóttamennirnir þurftu því að
ferðast 1.000 km til viðbótar í
rútu til Damaskus í von um að
hægt yrði að leigja þar flugvél,
sem eru þó fágætar á þessum slóð-
um.
„Við höfum þjáðst af hungri og
kulda 5 tíu daga og glatað öllu
sparifé okkar,“ sagði einn flótta-
mannanna með . grátstafinn í
kverkunum. „Við erum fórnardýr
stríðs og vafsturs stjórnmála-
manna,“ bætti annar við og kvaðst
dauðþreyttur á þessari göngu fram
og aftur eyðimörkina.
og að því tilskildu, að varðmenn-
irnir við sjónvarpsskjáinn sam-
þykki,“ sagði Jean-Yves Leberre
í viðtalinu við France Soiren hann
er rafmagnsverkfræðingur og
starfar nú við smíði þriggja stórra
sjúkrahúsa í Dhahran í Saudi-
Arabíu.
Leberre sagði, að allar dyr væru
loftþéttar og loftrásir búnar síum
svo unnt sé að hafast við í byrginu
jafnvel þótt til kjamorkustyijaldar
komi. Vatn er tekið úr neðanjarð-
arbrunni, sem tengist grunnvatni
á 400 metra dýpi og því ólíklegt,
að það mengist. íbúð Saddams
einkennist af miklum íburði og
stjórnstöðvarnar, þaðan sem hann
hefur samband við herinn, era
búnar miklum og fullkomnum fjar-
ERLENT
skiptatækjum. Segir Leberre, að
ekki verði auðhlaupið að því að
vinna þetta vígi.
„Eina leiðin til að svæla Saddam
út er í gegnum loftrásirnar og
reykháfínn en þessar leiðir eru vel
faldar og allar teikningar af bygg-
ingunni vora unnar á staðnum til
að sem fæstir vissu um þær. Að
þeim unnu aðeins fjórir útlending-
ar, ég sjálfur, annar Frakki, Þjóð-
veiji og ítali,“ sagði Leberre og
bætti því við, að í nokkur hundruð
metra fjarlægð frá forsetahöllinni
væri annað byrgi og líklega það
þriðja í borginni Mosul í Norður-
Irak.
í viðtalinu við France Soir sagði
Leberre ýmislegt um daglegt líf
Saddams áður en til stríðsins kom,
meðal annars, að um helgar hefði
hann haldið til í glæsilegri villu.
Ef hann fór á veitingahús snerti
hann ekki matinn fyrr en einhver
fylgdarmanna hans hafði bragðað
á honum.
Leberre, sem starfaði í írak á
árunum 1980-’85 á vegum þriggja
franskra stórfyrirtækja, segist
meðal annars hafa unnið að við-
gerðum á kjarnakljúfnum í
Tammouz, sem ísraelar réðust á
og sprengdu upp árið 1980.
HátækniKernaður
Gervitungl
Gervihnettir ó borð við KH-11, sem hér sést, eru
ómetanlegir fyrir bandamenn. KH-11 eða Keyhole
(Skróorgot) eins og hann er nefdur f daglegu tali, tekur
litmyndir, sem unnt er að sjó somstundis ó skjó ó jörðu KH” 11
niðri. Talið er að myndavélin greini hluti, sem eru 10 cm
í þvermól og stærri. Ólíkt KH-11 er LaCrossegervi-
tunglið óháð dagsbirtu eðaskýjafari, því þoð notar rotsjó
til þess að „sjá" niður fyrir sig. Ratsjóin greinir hluti, sem
eru yfir einn metri í þvermól. Fjöldi DSCS-gervihnatta
annast fjorskipti.Gervitungl af fegundunum Vortex
og Magnum hlero öll fjorskipti óvinarins. 16 GPS-
gervitunal ó brout um Jörðu nýtast bondamönnum, en
þau eru nluti af NAVSTAR miðunarkerfinu (kom í stoð
LORAN). DSP-gervitungl eru með innrauðum sjóna,
sem er 4 m í þvermál. Hann greinir öll eldflaugaskot og
er þonnig hægt að staðsetja færanlega eldflougapailo
Scud-eldtlougarinnar nokkrum sekúnaum eftirskot.
Aleð beium ougum... og með hitosiónauko
Hitasjónauki
Bandamenn hafa að mestu othafnoð sig á
nóttinni og þegar að landhernaði kemur mun
hið soma verðo upp ó teningnum. Sjónauki
þessi nema hitaúfgeislun, hvort sem þar um
ræðir mannslikamann eða tækjnbúnað og
skiptir engu móli hvort myrkur, þoka eða
reykur byrgir annars sýn. Hægt er að koma
slíkum tækjum fyrir í skriðdrekum, skipum,
flugvélum, þydum eða handvopnum og eins
er til sérstök útgáfa, sem menn bera líkt og
ofvaxin sólgleraugu. Á hinn bóginn er fremur
auðvelt að villo fyrir hitasjónoukanum með
einföldum róðum ó boið við þou að
kveikjo eld.
F-117A
Torséóa orrustuvélin
Torséða orrustuvélin (Stealth) F-117A hefur verið mikið
notuð I lofthernaði bondamonnn undanfarna daga. 27 sllkar
vélar eru í SaudFArabíu. Vélin er úr efni, sem gleypir
ratsjórgeisla, en auk þess eru allir fletir á henni litlir og halla
sitt á hvað, þannig að þeir ralsjórgeislar, sem endurvarpast
af henni, eru of veikir og dreifðir til þess að koma fram ó
ratsjó. Vegna þessaro eiginleiko hafa vélarnor sérstaklega
verið notaðar til óróso ó stjórnstöðvar, ratsjárstöðvar og
eldflaugaskotpalla.