Morgunblaðið - 24.01.1991, Side 27
iííórgui'ÍSslað'ií) Fáiiií’íiiÖAÓuk 24'. JÁkbÁk''iWi
'•27
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Endurhæfingarstöð fyrir lyarta- og lungnasjúklinga var vígð á Bjargi á laugardaginn, en áður en hún
kom til var aðstaða til endurhæfingar þessara sjúklinga mjög óviðunandi.
Ný endurhæfíngarstöð fyrir
hjarta og lungnasj úklinga
Starfsfólk endurhæfingarstöðvarinnar; frá vinstri Ingibjörg H. Stef-
ánsdóttir, sjúkraþjálfari, Ósk Jórunn Arnadóttir, sjúkraþjálfari, Jón
Þór Sverrisson hjartalæknir og Friðrik E. Yngvason, lungnalæknir.
Endurhæfingarstöð fyrir
hjarta- og lungnasjúklinga var
formlega tekin í notkun á Akur-
eyri fyrir skömmu, en hún hefur
fengið aðstöðu á Bjargi við Bugð-
usíðu. Starfsfólki hefur verið
ráðið að stöðinni, tækjakostur er
góður og verður í fyrstu boðið
upp á æfingatíma tvisvar í viku.
Kristín Sigfúsdóttir formaður
framkvæmdastjórnar gerði grein
fyrir aðdraganda þess að endurhæf-
ingarstöðinni var komið upp, en
fram kom á fundi sem haldinn var
fyrir tæpum tveimur árum um þessi
mál, að óviðunandi ástand ríkti í
málefnum hjarta- og lungnasjúkl-
inga hér nyrðra eftir sjúkrahús-
dvöl, þar sem engin aðstaða væri
til endurhæfingar.
Unnið hefur verið að framgangi
málsins síðan, en fyrir tæpu ári var
formleg undirbúningsnefnd stofnuð
sem þokað hefur málinu áfram. Þá
var einnig stofnað fulltrúaráð og
framkvæmdastjórn kosin, en í henni
sitja auk Kristínar Gísli Jón Júlíus-
son og Þorvaldur Jónsson, en full-
trúaráðið er skipað 15 fulltrúum frá
stofnfélögum, sjúkrasjóðum verka-
lýðsfélaganna, Heilsugæslustöð
Akureyar, FSA og Starfsmannafé-
lagi Akureyrar.
Stöðin er sjálfseignarstofnun, en
stofnaðilar eru Samband íslenskra
berkla- og btjóstholssjúklinga,
Hjarta- og æðaverndarfélag Akur-
eyrar og nágrennis og Landssamtök
hjartasjúklinga, en þessi félög auk
Hjarta- og æðaverndarfélags ís-
lands lögðu fram stofnfé, samtals
6 milljónir króna. Tækjakostur
stöðvarinnar er góður, þar eru ýmis
sérhæfð tæki sem nýtast sjúkling-
um til endurhæfingar, en enn vant-
ar nokkur hjól og tölvu.
Æfingartímar verða á endurhæf-
ingarstöðinni tvisvar í viku til að
byija með, á mánudögum og
fimmtudögum, frá kl. 15 til 17.
í lok ávarps síns óskaði Kristín
fyrir hönd undirbúningsnefndar og
framkvæmdastjórnar starfsfólki
farsældar í starfi og skjólstæðing-
um stöðvarinnar þess að þeim ykist
þrek og bjartsýni og þeir finni á
stöðinni þá heilsulind sem auðgar
líf þeirra.
Sjómanns-
insenn
saknað
ENN hefur leit að sjómanninum
frá Grenivík, sem saknað hefur
verið frá því á sunnudag engan
árangur borið. Björgunarsveit-
armenn frá Grenivík leituðu á
svæðinu við Gjögurtá í gær.
Maðurinn sem leitað er að heit-
ir Þorsteinn Þórhallsson til heimil-
is á Túngötu 25 á Grenivík. Hann
hélt í róður snemma á sunnudags-
morgun, en bátur hans Eyfell ÞH
fannst í fjörunni við Gjögurtá
síðdegis á sunnudag. Björgunar-
sveitarmenn víða að úr Eyjafirði
hafa leitað á svæðinu síðan, en
leit ekki borið árárígúf.
Hangiket ég mikils met/ minn í vetrarforða/ punga set í súr ef
get/ síðan et án orða. Þannig kveða þeir á Kjötiðnaðarstöðinni um
þorramatinn, en á myndinni eru Óskar Erlendsson verkstjóri og
Stefán Vilhjálmsson matvælafræðingur með trogin tilbúinn.
Sex tonn af súrmeti
Á þorranum í fyrra seldi Kjötiðnaðarstöð KEA yfir 6 tonn af súr-
meti ýmis konar, en að viðbættu hangikjöti, magál, sviðasultu, há-
karli og öðru sem sett er á þorrabakka var salan um 20 tonn fyrstu
tvo niánuði síðasta árs.
Framleiðsla þorramats hjá Kjöt-
iðnaðarstöðinni hefur farið vaxandi
á undanförnum árum', en selt er til
mötuneyta, félaga og fyrirtækja
auk verslana, bæði nyrðra og á
höfuðborgarsvæðinu. Þorrabakkar
eru seldir í kæliborðum verslana,
allt frá eins og tveggja manna og
er vandað til frágangs, þannig er
til að mynda hákarli pakkað í loft-
þétta bakka svo menn þurfa ekki
að óttast hákárlskeim al' kjötinu.
Sjallinn:
Síðasta sýning á Rokki
trúði og trylltum meyjum
SÍÐASTA sýning á söngskemmt- skóla Sibbu og íslandsmeistararnir
un sem nefnist „Rokk, trúður og í rokkdansi, þau Jóhannes Bachman
trylltar meyjar“ verður í Sjallan- og María Huldarsdóttir.
um á laugardagskvöld. Á föstudagskvöld leikur hljóm-
I sýningunni koma fram söngvar- sveitin Þrír þrestir og ein lóa í Sjall-
arnir, Bjarni Arason, Berglind anum, en þar spilar hljómsveitin
Björk Jónasdóttir, Júlíus Guð- einnig í kvöld, fimmtudagskvöld, r
mundsson og Pétur Hallgrímsson. þ.e. í Mánasal, en í kjallara leikur
Rósa Ingólfsdóttir er kynnir, en auk Arnar Guðmundsson um helgina.
þess koma fram dansarar frá Dans- Fréttatilkynning
-*• ÉæFý'-'-Í
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Frá undirritun samríinga sem gera greiðendum fasteignagjalda
kleift að greiða gjöldin með greiðslukorti. í neðri röð frá vinstri:
Einar S. Einarsson framkvæmdastjóri Visa Island, Halldór Jónsson
bæjarstjóri á Akureyri og Grétar Haraldsson þjónustustjóri Euro-
korta, en í efri röð eru Þórður Jónsson frá Visa, Dan Brynjarsson
hagsýslustjóri, Valgarður Baldvinsson bæjarritari, Pétur Bjarnason
frá Eurokort og Rafn Hjaltalín bæjargjaldkeri.
Fasteignagjöld hægt að
greiða með greiðslukorti
Á NÆSTU dögum verða sendir út álagningarseðlar fasteignagjalda
og geta greiðendur nú valið greiðslumáta, þ.e. að fá sendan heim
gíróseðil eða að Iáta skuldfæra á greiðslukort.
Undjrritaður hefur verið samn-
ingur á milli Akureyrarbæjar og
greiðslukortafyrirtækjanna Visa ís-
land, Eurokort og Samkort. Dan
Brynjarsson hagsýslustjóri sagði að
með þessu væri bærinn að auka
þjónustuna við bæjarbúa, annars
vegar væri það gert með umrædd-
um samningi þar sem fólki er boðið
að láta skuldfæra gjöldin á greiðslu-
kort í svokölluðu boðgreiðslukerfi
og hins vegar hefur gjalddögum
verið fjölgað úr fimm í átta.
*
íslensk - Japanska
félagið endurvakið
ÁKVEÐIÐ hefur verið að reyna að endurvekja íslensk - japanska
félagið en það var stofnað árið 1981 í þeim tilgangi að efla menn-
ingarsamskipti íslands og Japans. Starfsemi félagsins var mikil
fyrstu árin, en hefur verið daufleg allra síðustu ár.
Starf félagsins mun sem fyrr hm sunnudaginn 27. janúar, í
verða fólgið í því að kynna Japan Odda, hugvísindahúsi Háskóla ís-
og japanska menningu á íslandi. lands, stofu 202 og hefst kl. 14.
Aðalfundur félagsins verður hald-
íslenskir innflytjendur athugið!
CoucljsitonE®
Jfme Jfooíiö
Fyrirtækið framleiðir margar tegundir eftirrétta. Þeir eru í flestum til-
fellum hringlaga eins og tertur og skerast niður í sneiðar.
Varan afhendist frosin og þarf að geymast þannig. Salan hér heima
fyrir er að stærstum hluta til mötuneyta og veitingastaða, en einnig
til verslana.
Við leitum að fyrirtæki ó íslandi til að starfa sem umboðsmenn okkar
og hafa þar af leiðandi aðgang að frystigeymslum og einnig þekkingu
ó markaðnum.
Þeir, sem hafa áhuga, vinsamlega heimsækið okkur á ISM-sýningunni
í Köln dagana 3. til 7. febrúar. Sýningarsvæði okkar er í Hall 5 -Stand
K4A, þar sem hægt verður að sjá og bragða á vörunni.
Touchstone - 9 Kinwarton Farm Road
Arden Fnrest Industrial Estate
Alcester
Warwicksltire B49 6EH
Sími 789-400644
____________________Fax 789-400657