Morgunblaðið - 24.01.1991, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANUAR 1991
STJORNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn mætir ónotum hjá
nákomnum aðila í dag, en
verður jafnframt að gæta þess
að særa ekki tilfinningar ein-
hvers óafvitandi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið verður að leggja
lykkju á leið sína í dag og
mæta maka sínum á miðri
leið. Það stoðar ekki að reyna
að fá sitt fram með persónu-
töfrunum einum saman.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn getur mætt svo
miklu andstreymi núna að
hann verði að leggja ákveðið
verkefni á hilluna í bili.
Krabbi
► (21. júní - 22. júlí)
Krabbinn þarf að afgreiða
leiðinlegt mál við náinn ætt-
ingja eða vin í dag. Hann
verður að vera vandlátur á
það hvemig hann ver tíma
sínum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ættingi Ijónsins er ekki reiðu-
búinn að fara bil beggja núna.
Tilgangslaust tal og yfir-
borðsmennska virðast- setja
■ 'strik í reikninginn.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Það stoðar meyjuna ekkert
að reyna að sannfæra þann
sem búinn er að gera upp
huga sinn. Samstarfsmaður
hennar kann að vera óþarf-
lega viðkvæmur núna.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Voginni hættir nú til að eyða
of miklum peningum. Því
veldur dýr smekkur og flott-
ræfilsháttur. Hún ætti að
snúa sér að einhverju upp-
^byggjandi.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember) ^$0
Sporðdrekinn getur ekki gert
allt í einn. Hann ætti að hlusta
á ráðleggingar annarra og
vera samvinnuþýður.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember)
Bogmaðurinn er ekki í skapi
til að leggja hart að sér í dag
og honum hættir til að ýta
hlutunum á undan sér.
Steingeit
(22. des. - ! 9. janúar) m
»Vinur steingeitarinnar er
ráðríkur og ósveigjanlegur í
dag og ef til vill best að láta
hann eiga sig. Hún hefur ekki
tíma til að ganga á eftir hon-
um með grasið í skónum.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) tfTk.
Vatnsberanum hættir til að
láta framkomu einhvers koma
sér úr jafnvægi í dag. Ástand-
ið í fjölskyldunni er ekki eins
erfitt og halda mætti.
f Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Samtal sem fiskurinn á í dag
virðist ekki leiða til neinnar
niðurstöðu. Þó að háttsemi
einhvers gangi nærri honum
ætti hann að gæta þess að
gera ekki úlfalda úr mýflugu.
Stjörnuspána á aó tesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vtsindalegra staðreynda.
\>0 Bfzr FTZBMOR FA/VÍA'-L AF
^TT/ AÐ VEIZA SBM Ge MGÖfZ OPP.
R bttUR!
DYRAGLENS
TOMMI OG JENNI
þETTA £tZ (BBIAd-TOMM'.
H.’UtJ MlKU GEtMFAR! .
TU-BÚ/NN AO FARA OT /
O/EI/HINN í <SE/AA~
SKUTLUNni S/hJN! -1 ^
„ALCT ER TILEiUlÐ.'
&S..UH-- C HQSTÖ
.. AuHH 1 .. E<S
UH CHO'ST/J *
, GE/AA-TOAAAA/
<BTT/ kS------
'ivrfi 'k-ÁtUHSH/ A1B
SKEPA LOFTGÖT
'A GEIAAFAIBJO/
1 IÓ«5KA
LJv/OlvM
FERDINAND
1
SMAFOLK
Héðan í frá ætla ég að taka lífinu Heldurðu virkilega að þú getir það? NÚ, ÞVÍ EKKI ÞAÐ?
með algjörri hugarró ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Spaði er tromp og norður á
út. Það er fljótséð að sagnhafi
fær alla slagina.
Norður
♦ G
¥96
♦ -
*-
Vestur
♦ -
¥ —
♦ 1083
♦ -
Austur
♦ 107
¥ —
♦ -
♦ 9
Suður
♦ D
¥ —
♦ -
♦ G10
Fríhjarta er spilað og það er
sama hvort austur trompar eða
hendir laufi. Mjög óvenjuleg
staða. En aðdragandinn var
þessi:
Norður
♦ G654
¥ KD10962
♦ Á2
♦ K
Vestur
♦ K8
¥87
♦ KG10843
♦ ÁD2
'Austur
♦ 1072
¥ ÁG43
♦ 96
♦ 9865
Suður
♦ ÁD93
¥5
♦ D75
♦ G10743
Spilið kom upp í viðureign
sveita VÍB og Steingríms Pét-
urssonar í Reykjavíkurmótinu.
Karl Sigurhjartarson í sveit VÍB
varð sagnhafi í 4 spöðum eftir
þessar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull 1 hjarta Pass' 1 spaði
2 tíglar 4 spaðar Pass Pass
Pass
Svavar Björnsson í vestur hitti
á góða vörn þegar hann lagði
af stað með laufás og skipti yfir
í hjarta, kóngur og ás. Tígull í
gegn og nú virðist vörnin eiga
4 slagi.
Karl drap á ásinn, spilaði
hjartatíu og henti tígli þegar
austur lét lítið. Henti svo síðasta
tíglinum niður í hjartakóng.
Vestur trompaði með áttunni og
spilaði tígli. Karl trompaði og
lagði niður spaðaás. Stakk svo
lauf og hjarta á víxl þar til ofan-
rituð staða var komin upp.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Það kemur fyrir beztu menn að
Jeika af sér, og skákfræðingar
meta venjulega alla aðra leiki en
þann bezta sem afleik. Það er líka
mjög sjaldgæft að menn leiki lé-
legasta leiknum á borðinu. I stöð-
unni hér að neðp.n telst mér til
að hvítur hafi átt 38 löglega leiki,
en hann lék þó þeim slakasta af
þeim öllum, 14. Kgl-g2?? Staðan
kom upp í síðustu umferð á opnu
móti í Zúrich í Sviss um áramótin
í viðureign heimamannsins Bau-
ert og rúmenska stórmeistarans
Florin Gheorghiu (2.500), sem
hafði svart og átti ieik.
14. — Rh4+! og hvítur gafst upp,
því hann tapar drottningunni eftir
15. gxh4 — Dg4+.
Austurríski stórmeistarinn
Joszef Klinger sigraði á þessu
móti, þriðja skiptið í röð, hlaut
6 ‘A v. af 7 mögulegum, en stiga-
hæsti keppandinn, Gavrikov frá
Litháen, varð næstur með 6 v.