Morgunblaðið - 02.02.1991, Side 1
72 SIÐUR B/LESBOK
27. tbl. 79. árg. LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandamenn gera linnulausar árásir á liðsafla íraka við landamæri Saudi-Arabíu:
Segjast hafa hindrað alls-
lierjar innrás Irakshers
írakar saka flugmenn fjölþjóðahersins um árásir á íbúðahverfi og stríðsglæpi
Saudi-arabískur
hermaður á verði á götu
í Iandamærabænum
Khafji, sem írakar héldu
í 36 klukkustundir en
þeir voru síðan hraktir
aftur til Kúveits. A bak
við hann er íraskur
bryndreki, sem
eyðilagðist í árásum
fjölþjóðahersins.
Nikosíu, Lundúnum, Khafji, Jerúsalem, Amman, Bagdad. Reuter, The Daily Telegraph.
HUNDRUÐ sprengjuþotna fjölþjóðahersins við Persaflóa héldu uppi
linnulausum árásum á mikinn fjÖlda íraskra hermanna og skrið-
dreka í Kúveit, sem sendur hefur verið til landamæranna að Saudi-
Arabíu. Heimildarmenn innan breska hersins sögðu að áhlaup íraka
á bæinn Khafji og fleiri staði í Saudi-Arabíu hefði verið undanfari
allsherjar innrásar í Íandið en fjölþjóðahernum hefði tekist að hindra
hana. Irakar sökuðu flugmenn fjölþjóðahersins um að hafa af ásettu
ráði gert loftárásir á íbúðahverfi í írak og sögðu þá hafa framið
stríðsglæpi.
Heimildarmenn í Lundúnum
sögðu að áhlaupið á Khafji hefði
verið liður í innrás frá fjórum stöð-
um en stórskotaliðsárásir banda-
rískra landgönguliða og loftárásir
sprengjuþotna fjölþjóðahersins
hefðu komið í veg fyrir hana.
írakar lýstu yfir því í gær að
innrásarliðið hefði verið kallað aftur
til Kúveits og sögðu að áhlaupið á
Khafji væri sigur fyrir þá. Þeir
hefðu aðeins beitt „sáralitlum
hluta“ af hernaðarmætti sínum.
íraskir skriðdrekar réðust enn
yfir til Saudi-Arabíu í fyrrinótt en
voru hraktir aftur til Kúveits.
Fréttamenn við landamærin sögðu
að um 17 km löng skriðdreka- og
brynvagnalest hefði stefnt til landa-
mæranna að Saudi-Arabíu í gær.
Bresk blöð sögðu að um 60.000
íraskir hermenn væru tilbúnir til
að hefja innrás. Bandarískar
sprengjuþotur af gerðinni B-52 og
Jaguar-þotur Frakka og Breta fóru
í um 300 árásarferðir á einum sólar-
hring gegn liðsaflanum syðst í Kúv-
eit. Skriðdrekar íraka eru sagðir
auðveld skotmörk og sovéska
fréttastöfan Interfax hafði eftir
embættismönnum í Sovétríkjunum
að írakar hefðu ekki varabirgðir
af hlaupum á skriðdrekabyssur
sínar.
Helsta flóttaleiðin frá írak er nú
því sem næst lokuð vegna loftárása
bandamanna á þjóðveginn frá
Bagdad til Jórdaníu, að sögn flótta-
manna sem hafa komist yfir landa-
mærin.
Bandamenn skutu einnig fimm
eða sex stýriflaugum á Bagdad.
Ein þeirra lenti á byggingu skammt
frá bandaríska sendiráðinu í borg-
Aðskilnaðar-
sinnarganga
af fundi
Þingmenn Ihaldsflokksins í
Suður-Afríku urðu ævareiðir og
gengu af fundi í gær þegar F.W.
de Klerk, forseti landsins, lagði
til að afnumin yrðu síðustu lög
um aðskilnað kynþátta. Talsmenn
Evrópubandalagsins sögðu vel
koma til greina að aflétta við-
skiptabanni á landið verði þetta
.gert én forsvarsmenn Afríska
þjóðarráðsins segja ekki ástæðu
til að fagna fyrr en svartir fá
fullan atkvæðisrétt.
Sjá „De Klerk boðar að ..."
á bls. 23.
inni. Ekkert benti til þess að hern-
aðarlega mikilvæg skotmörk væru
í grennd við bygginguna. Frétta-
ritari Reuters í borginni sagði að
loftárásir bandamanna undanfarn-
ar tvær vikur hefðu gert lífið þar
að helvíti á jörðu. Hver dagur væri
barátta fyrir brýnustu lífsnauðsynj-
um. Rafmagnslaust er í borginni,
vatn af skornum skammti og síma-
kerfið hefur verið eyðilagt.
írakar sögðu að flugmenn fjöl-
þjóðahersins hefðu gert grimmileg-
ar árásir á íbúðahverfi, drepið varn-
arlaus börn, konur og gamalmenni
og ættu skilið að verða dæmdir
fyrir ástæðulaus morð.
Sjá fréttir á bls. 22 og 24-25.
Evrópubandalagið;
Reuter
A *
Astæðulaust að veita Islend-
ingum einhliða tollaívilnanir
Áhersla lögð á að fyrir aðgang að mörkuðum EB komi fiskveiðiheimildir
Brussel. Prá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
til tollaívilnana ef íslendingar
heimila veiðar í lögsögu sinni,
SAMKVÆMT heimildum í Bruss-
el telur framkvæmdastjórn Evr-
ópubandalagsins (EB) ástæðu-
laust að veita Islendingum, þjóð
sem hefur 22 þúsund dollara í
þjóðartekjur á íbúa á ári, tolla-
ivilnanir án þess að nokkuð komi
í staðinn. Framkvæmdastjórnin
mun að öllum líkindum tilbúin
þó ekki verði nema til mála-
mynda.
Innan EB er lögð áhersla á að
halda í þá grundvallarreglu að fyrir
aðgang að mörkuðum EB komi
aðgangur að fiskimiðum. Bent er á
að fram að þessu hafi bandalagið
ekki gert samninga við EFTA-ríki
sem feli í sér aðgang að mörkuðum
bandalagsins án þess að veiðiheim-
ildir hafi komið í staðinn. Það sé
ljóst að ef gerð verði undantekning
í samningum við Islendinga vegna
evrópska efnahagssvæðisins (EES)
þá verði í framtíðinni að láta hið
s.ama ganga t.d. yfir Norðmenn,
slíkt sé óaðgengilegt fyrir EB. Auk
þess séu Islendingar ekki á flæði-
skeri staddir, þjóðartekjur á mann
séu þar hærri en í nokkru EB-ríki
utan Lúxemborgar. Ekkert bendir
heldur til þess að Islendingar missi
spón úr aski sínum þó svo að óbreytt
ástand verði í tollamálum á milli
þess og EB. Ljóst þykir að ef Islend-
ingar eru ekki tilbúnir til að gefa
svo mikið sem eitt tonn eftir í veiði-
heimildum, þá muni EB neita við-
ræðum um sjávarútvegsmál innan
ramma EES-viðræðnanna. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
í Brussel er álitið að staða íslend-
inga yrði mun verri ef þeir þyrftu
að semja tvíhliða við EB um þessi
efni. Evrópubandalagið eigi að
hafna því að ganga verði að afar-
kostum íslendinga til að bjarga
samningunum um EES.
Innan EFTA hefur sú hugmynd
verið reifuð að Islendingar taki sjáv-
arútvegsmálin út úr samningavið-
ræðunum og semdu upp á eigin
spýtur við EB. Talið er að Norð-
menn vilji ekki sætta sig við slíka
niðurstöðu en sjávarútvegsmálin
verða ekki tekin undan EFTA án
þess að full samstaða sé um það
innan fríverslunarsamtakanna. í
Brussei hafa komið fram efasemdir
um að Islendingum yrði meira
ágengt einum á báti en í EFTA-
samflotinu, hvort heldur með fisk
eða önnur mál. Samskiptin við Is-
land eru heldur ekkert forgangs-
verkefni innan EB. Dregið er í efa
í Brussel að málstaður Islendinga
njóti stuðnings allra framkvæmda-
. stjóranna nema Manuels Marins,
sem fer með fiskimál, en sé svo
mun framkvæmdastjórinn væntan-
lega komast að niðurstöðu íslend-
ingum í vil í atkvæðagreiðslu um
málið. Þessa dagana er verið að
kanna afstöðu aðildarríkjanna til
tollaívilnana á sjávarafurðum. Enn
sem komið er liggja fyrir takmark-
aðar tillögur frá þeim en sámkvæmt
heimildum gera flestar ráð fyrir
umtalsverðum tollaívilnunum fyrir
aðgang að fiskimiðum.
neuter