Morgunblaðið - 02.02.1991, Side 7

Morgunblaðið - 02.02.1991, Side 7
M0BG,UN,BLAÐ1Ð II4ppÁiaXiGlÍR:2.;FEBR|J^R 1391 i 7 Listaverk Hitaveitunnar á sýningu í Bandaríkjunum LISTAVERK, sem verður sett upp í byggingu Hitaveitu Reykjavíkur á Oskjuhlíð, hefur að undanförnu verið á sýningu í Listasafni Tækni- stofnunar Massachusetts (M.I.T.) í Cambridge, Massachusetts. Hér er um að ræða höggmynd sem bandaríski myndhöggvarinn Robert Dell gerði þegar hann dvaldi hér á landi haustið 1988 sem styrkþegi á vegum Fulbright-stofnunar, Menn- ingarstofnunar íslands og Bandaríkj- anna. Hann naut einnig aðstoðar Hitaveitu Reykjavíkur, og smíðaði þetta verk, sem nú er til sýnis í lista- safni Tæknistofnunar Massachu- setts, fyrir Hitaveituna. í verkinu er heitt vatn, sem leikur um fótstall verksins, notað til að framleiða raf- magn, sem síðar kveikir á ljósum í efsta hluta verksins. Ljósið verður síflöktandi vegna þess hve raforkan verður ójöfn, og verður því skærara sem vatnið í fótstallinum er heitara; ljósið fellur í gegnum bergkristal efst í verkinu, og varpar ljóma á allt umhverfi sitt. Verkið er á einkasýningu Robert Dell í safninu, en hún var opnuð 15. desember og stendur fram í febrúar. Tæknistofnun Massachusetts (M.I.T.) er einn þekktasti háskóli' heims á sviði tæknirannsókna og kennslu, og hefur jafnframt komið upp góðri aðstöðu til að tengja sam- an tækni og listir. Stofnunin hefur þannig átt umtalsverðan þátt í þróun ýmissa nýjunga á sviði myndlistar. Listasafn stofnunarinnar nýtur mikillar virðingar fyrir sýningar á tilraunalist og hversu vel það hefur stutt við bakið á ýmsu brautryðjend- astarfi í myndlist. Því er það mikill heiður fyrir listamanninn að safnið bauðst til að halda einkasýningu á verkum hans, og einkum höggmynd- inni sem hann vann fyrir Hitaveitu Reykjavíkur, þar sem heitt vatn og rafmagn spila saman á mjög nýstár- legan hátt. Melcor Incorporated, þekkt fyrirtæki á sviði raftækni, styrkti einnig sýningu listamannsins og hannaði rafbúnaðinn í verkið. Robert Dell áætlar að koma til íslands í vor og aðstoða við uppsetn- ingu verksins í nýbyggingu Hitaveitu Reykjavíkur á Oskjuhlíð, þannig að það verði komið á sinn stað þegar byggingin verður vígð. Laugarvatn: PJOTTAPLÖNTU Uppbygging í ferða- þjónustu og útivist Laugarvatni. NÝTT aðalskipulag Laugarvatns liggur nú frammi á hreppskrifstofu Laugardalshrepps til umsagnar fyrir íbúana. Aðalskipulagið er ýtar- legt rit þar sem gerð er framtíðaráætlun um vöxt byggðar í hreppsfé- laginu og þróun atvinnumála. Er þar byggt á upplýsingum um þróun síðustu ára í búsetu og atvinnumálum svæðisins og á landinu öllu. Fram kemur að flest ársverk eru í sambandi við þjónustustörf eða 44,6% árið 1987. Mest munar þar um þjónustu við skólana á staðnum. Við verslun og banka störfuðu 20,7% mannafla, við landbúnað hafði störf- um farið fækkandi fram til 1987 voru 19%, við iðnað störfuðu 9,1%, við samgöngur störfuðu 4,1% og fisk- veiðar 2,5%. Engir atvinnuleysisdag- ar hafa verið skráðir í hreppnum síð- astliðin 15 ár. íbúatala Laugardalshrepps var mest 1973, 293 íbúar, síðan fór þeim fækkandi og árið 1988 voru þeir 247 talsins. Mikil hreyfing er á fólki, lætur nærri að 10-15% íbúanna flytj- ist til og frá hreppnum árlega. Er þar aðallega um að ræða starfsfólk skólanna, einkum kennara. Gert er ráð fyrir fólksfjölgun verði á bilinu 0,5%-l,5% fram til ársins 2010. Helsta uppbygging á svæð- inu er ráðgerð á sviði ferðaþjón- ustu, þar sem sumarbústöðum fer stöðugt fjölgandi. Eins eru miklar vonir bundnar við uppbyggingu Iþróttamiðstöðvar Islands, breyt- ingar íþróttakennaraskólans á háskólastig og þróun menntaskól- ans og héraðsskólans. Gert er ráð fyrir byggingu sund- laugar við nýja íþróttahúsið, byggður verði 9 holu golfvöllur, fjölgun bolta- valla og bætt frjálsíþróttaaðstaða. Löguð verði aðstaða fyrir siglingar á vatninu og gufubaðsaðstaðan verði endurbætt. íbúðarbyggð mun þróast í austur- átt, en iðnaðarhúsnæði verði vestan við staðinn. Lagfæringar verða gerð- ar á leikskólanum sem er í húsnæði gamla húsmæðraskólans. Byggt verði nýtt stjórnsýsluhús austan við núverandi hreppsskrifstofu þar sem verði samkomusalur og sameiginlegt bókasafn skólanna, auk skrifstofa hreppsins. - Kári. HL J ÓMLEIK AFÉL AGIÐ heldur fyrstu tónleika sína kl. 17.00 sunnudaginn 3. febrúar nk. í sal Tónskóla Sigursveins D. Kristins- sonar við Hraunberg 2. Listafólkið sem fram kemur á tónleikum fé- lagsins að þessu sinni eru Joseph Ognibene hornleikari og Krystyna Cortes píanóleikari. Josep Ognibene er fæddur og upp- alinn í Los Angeles og lauk námi á heimaslóðum. Hann stundaði fram- haldsnám hjá Hermann Baumann við Folkwang-tónlistarháskólanní Essen í Þýskalandi. Joseph vann verðlaun í alþjóðlegri keppni hornleikara í Prag vorið 1987. Hann er fyrsti hom- leikari Sinfóníuhljómsveitar íslands og félagi í Blásarakvintett Reykja- víkur. Hann hefur oft komið fram með hljómsveitum í heimalandi sínu. Krystina Cortes er fædd í Eng- landi. Hún lauk einleikaraprófi frá Konunglea tónlistarháskólanum í Lundúnum árið 1969. Ári síðarflutti Krystyna til íslands og hefur síðan tekið virkan þátt í tónlistarlífi hér sem píanóleikari með söngvurum, kórum og hljóðfæraleikurum. Á tónleikunum verða flutt verk fyrir horn og píanó eftir Robert Sc- Joseph Ognibene og Krystina Cortes. humann og Paul Hindemith, verk fyrir horn og tónband eftir Jan Seg- ers og einleiksverk. Fyrstu tónleikar Hlj ómleikafélagsins U R Sigtúni - Kringlunni Okkar árlega pottaplöntuútsala stendur nú yfir. Aldrei fyrr höfum við boðið jafn góðar plöntur á jafn góðu verði! Ótrúlegt úrval af fyrsta flokks plöntum með 20 - 50% afslætti! JUKKUR 50% DREKATRE 50% KAKTUSAR 30% Nýjar, spennandi plöntur einnig komnar fram. Sérstök tilboð í tilefni útsölunnar: KERAMIKPOTTAR 30-50% AFSLÁTTUR M.A. FALLEGIR, ÍTALSKIR POTTAR 50% AFSLÁTTUR. Landsbyggðarþjónusta - sendum hvert á land sem er. Nú er kjörið tækifæri að fegra umhverfi sitt með fallegum plöntum - og ódýrum! '0^!9ióðLí?m 9erið HVÍTA HÚSIÐ /SÍA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.