Morgunblaðið - 02.02.1991, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1991
15
Yfirvikt hjá Flugleiðum vegna skíða og golfsetta
Eydís og Brynhildur á æfingu.
Obótónleikar
í Norræna
húsinu
EYDÍS Franzdóttir, óbóleikari,
mun halda tónleika mánudaginn
4. febrúar í Norræna húsinu og
hefjast tónleikarnir kl. 20.30. Með-
leikarar Eydísar erh þau Bryn-
hildur Ásgeirsdóttir, píanóleikari,
Elín Guðmundsdóttir, semballeik-
ari, og Rúnar Vilbergsson, fagott-
leikari.
Efnisskrá tónleikanna hefst á til-
brigðum um spánskt danslag, Les
Folies D’Espagne, eftir 17. aldar
tónskáldið Marin Marais. Verkið var
upphaflega samið fyrir bassa-fiðlu
með lútuundirleik, auk bassafylgi-
raddar, en er hér flutt í þeirri útgáfu
sem einna mest er leikin í dag, útg-
áfu fyrir óbó, sembal og fagott.
Næst á efnisskránni er Adagio og
Allegro eftir R. Schumann fyrir óbó
og píanó og síðan Temporal Variati-
ons eftir Benjamin Britten, en það
verk hefur líklega aldrei verið flutt
hérlendis áður. Þá leika þær Eydís
og Brynhildur Nostalgie eftir J. Ed.
Barat fyrir enskt hom og píanó og
ljúka svo tónleikunum á hinni stóru
sónötu eftir franska tónskáldið Henri
Dutilleux.
ÞEIR sem taka skíði eða golfsett með sér þegar þeir fara úr landi
með Flugleiðum, mega búast við því að þurfa að greiða fyrir yfir-
vikt. Skíði og golfsett verða hér eftir viktuð með öðrum farangri.
Þetta eru reglur sem mörg flug-
félög hafa og nú hafa þær verið
teknar upp hjá Flugleiðum. Fyrir-
tækið ætlar þó að leyfa starfsfólki
sínu á Keflavíkurvelli að innrita
aukalega allt að 5 kg fyrir hvern
farþega í skíðaferð og 12 kg fyrir
þá sem eru í golfferð. Þessi viðbót-
arkíló verða í gildi út þetta ár. Á
heimleiðinni er hins vegar ekki
hægt að veita þessa undanþágu og
því verða menn að vera undir það
búnir að greiða fyrir yfirvikt.
Ef farið er til Bandaríkjanna
mega menn hafa með sér tvö stykki
og má hvort um sig vega 35 kíló.
Fyrir hvern hlut sem settur er á
vogina umfram það skal greiða um
3500 krónur. Þegar flogið er til
Sviss þurfa menn að greiða 680
krónur fyrir hvert umframkíló.
Flugfarþegum er heimilt að hafa
20 kg með sér ferðist þeir á al-
mennu fanými en 30 kg séu þeir
á Saga farrými. Kylfingur, sem er
í sérstakri golfferð, á almennu far-
rými má því hafa 32 kg með sér
og er þá golfsettið viktað með.
Breiðholtskirkja.
Tónleik-
ar í Breið-
holtskirkju
Á MORGUN, sunnudagskvöldið 3.
febrúar kl. 20.30, verða tónleikar
í Breiðholtskirkju. Þar koma fram
unglingar úr „Ten Sing“ söng- og
leikhópnum, sem starfandi er í
kirkjunni. Aðgangur er ókeypis,
en tekið verður við samskotum til
starfsins.
Tónleikar þessir eru hluti af átaki
í unglingastarfí sem nú stendur yfir
á vegurn KFUM & K, Æskulýðssam-
bands kirkjunnar í Reykjavíkurpróf-
astsdæmum og Fræðsludeildar þjóð-
kirkjunnar.
„Ten Sing“ er alþjóðlegt heiti á
söng- og leiklistarstarfi unglinga.
Þetta starf hófst fyrir 20 árum í
Noregi og munu nú vera um 10.000
unglingar stárfandi í „Ten Sing“
hópnum þar í landi. Þá á „Ten Sing“
starfið einnig sífellt vaxandi vinsæld-
um að fagna víða í Evrópu.
Átta unglingar úr „Ten Sing
Norge" eru nú staddir hérlendis til
að aðstoða við „Ten Sing“ starfið.
Hópurinn hefur meðal annars farið
í skólaheimsóknir og fengið mjög
góðar viðtökur. Tónleikarnir í Breið-
holtskirkju annað kvöld eru enda-
punkturinn á „Ten Sing“ námskeiði
sem haldið er í samvinnu við Norð-
mennina í Skálholti nú um helgina.
(Frcttatilkynning)
4 t_
Frestur til að skila
skattframtali
rennur út 10. febrúar
Síðasti skiladagur skattframtals
vegna tekna og eigna á árinu 1990
nálgast nú óðum. ítarlegur leiðbein-
ingabæklingur hefur verið sendur til
framteljenda sem kemur að góðum
notum við útfyllingu framtalsins.
Fylgiblöð með skattframtali liggja
frammi hjá skattstjórum sem jafn-
framt veita frekari upplýsingar ef
óskað er.
Mikilvægt er að framteljehdur varð-
veiti launaseðla áfram eftir að fram-
talinu hefur verið skilað. Ef þörf
krefur eiga launaseðlarnir að sanna
að staðgreiðsla hefur verið dregin
af launum.
Skattframtalinu á að skila til skatt-
stjóra í viðkomandi umdæmi.
Forðist álag vegna síðbúinna skila!
RSK
RÍKISSKATTSTJ ÓRI