Morgunblaðið - 02.02.1991, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1991
17
Hvað ungnr
nemur, gamall
temur
Jónína Lárusdóttir
eftirJónínu
Lárusdóttur
I tilefni af tannverndardegi er
ekki úr vegi að tíunda hvað leikskól-
inn gerir til að stuðla að bættri
tannheilsu barna.
I leikskólanum grundvöllum við
starfið á hinu þríþætta hugtaki:
„leikur — vinna — nám“. Forsenda
fyrir árangursríku námi barna er
að þau upplifi hluti og atburði af
eigin raun. Það gera þau fyrst og
fremst í leik og starfi við aðstæður
sem þau þekkja vel. Daglegt líf á
leikskólanum markast mjög af
venjubundnum athöfnum sem lúta
að líkamlegum þörfum bamanna
og heilsu þeirra. Börnin matast, þvo
sér, sofa o.s.frv. á vissum tímum
dags. Þessar daglegu venjur em
fastir liðir í dagsskipulaginu. Skipu-
lagning og tímasétning daglegra
venja gefur uppeldisstarfinu reglu-
bundið og ákveðið form sem skapar
öryggi og festu í lífi bamanna.
Brýnt er fyrir bömunum að
hugsa vel um tennumar. Við fáum
tannfræðing í heimsókn reglulega.
Á leikskólunum er hægt að nota
ýmiskonar fræðsluefni og leiki
varðandi tannhirðu. Börnin em
frædd um hvers kyns matur fer vel
með tennur og hvað er óæskilegt
að borða. Foreldrar em áminntir
um að nesti barnanna sé hollt. Mik-
ilvægt er að börnunum lærist að
tannhirða er jafn mikilvæg og sjálf-
sögð og annað hreinlæti. Bömin
tala saman um ferðir til tannlækna,
þau lýsa reynslu sinni og bera sam-
an bækur sínar. Þarna nýtir fóstran
góð tækifæri til fræðslu og stuðlar
að jákvæðum umræðum.
Á íslandi er því miður ekki ein-
hugur um hvernig tryggja á að öll
böm hafi aðgang að vel búnum leik-
skólum með sérmenntuðu starfs-
fólki. Fyrir vikið fara forgörðum
dýrmæt tækifæri til að gera börnin
okkar að enn betri einstaklingum.
Höfundur er fóstra.
ECONOLINE
Bfll möguleikanna
FeiðabíU • Fjölskyldubfll • Sendibfll
Ford Econoline, sem •
kosinn hefur verið best
hannaði bíllinn af sinn:
gerð í Bandaríkjunum,
fæst nú fjórhjóla-
drifinn sem eykur til
muna möguleika
bílsins. Hann kemur
með hemlalæsivörn
(ABS) að aftan, 145 ha
bensínvél V6, 3ja gíra
sjálfskiptingu, lituðu
gleri, vökvastýri,
hábaksstólum, styrktri
fjöðrun, teppi á fram-
gólfum, öflugri
miðstöð, stórum úti
speglum, klæðningu á
framhurðum, fallegu
mælaborði, AM/FM
stereo-útvarpi m/klukku
o.fl. ofl. Auk þess
fáanlegur með ýmsum
viðbótarbúnaði,
s.s. V8 bensín- eða
díselvél, samlæsingu
á hurðum, rafdrifnum
rúðum, veltistýri,
hraðafestingu o.fl.
Ótrúlega gott verð,
frá kr.:
1.518.000 stgr.
1.219.000 án VSK.
Ástæður þess að leggja þarf
mikla áherslu á tannhirðu barna eru
margar. Það er útbreiddur misskiln-
ingur að barnatennumar skipti litlu
máli því síðar komi fullorðinstenn-
ur. Lélegar barnatennur geta haft
ýmsar líkamlegar afleiðingar svo
sem tannskekkju síðar á ævinni og
óeðlilega lögun kjálkanna. Slæm
áhrif á andlegan þroska bárnanna
eru enn alvarlegra mál. Heilar
framtennur eru nauðsynlegar til að
ná framburði vissra hljóða. Á Ieik-
skólaaldri eru börnin að læra málið
og löngun þeirra vaknar til að tjá
sig með orðum. Þau eru hvött til
að segja sjálf frá atburðum, lýsa
þeim og tala við aðra um þá. Barn
með ónýtar eða afbrigðilegar tenn-
ur nær ekki vissum h(jóðum og
gæti þar af leiðandi orðið fyrir
áreiti sem hefur slæm áhrif á sjálfs-
traust þess.
Hér hefur verið fjallað um hlut-
verk leikskólans í tannhirðu bama.
Þetta er einungis eitt af mörgu, sem
leikskólinn í samvinnu við foreldra
getur gert til að búa börnin okkar
sem best undir lífið. Það er von
mín að yfirvöld skilji mikilvægi leik-
skólans og búi að honum í samræmi
við það. Leikskólinn er fyrsti skóli
barnsins, og ef til vill sá mikilvæg-
asti ef rétt er að staðið.
SÍFELLT
NART
. SKEMMIK j
TENNUR
Hvers vegna er tannhirða
barna mikilvæg
VJOlSVONISLlOnV flN 1 ipH