Morgunblaðið - 02.02.1991, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 02.02.1991, Qupperneq 19
mælikvarði. Hefðbundið leikrit að fonni til getur falið í sér nýstárlegri sannleika en leikrit, þar sem allt er lagt upp úr frumlegheitum í formi og framsetningu. Sem betur fer eru höfundar ólíkir og fjölbreytilegir, hver skrifar á sinn hátt, það sem einum hentar vel, lætur öðrum ver. Sp.: Hvað segir það um mat á ís- lenskri leikritun að við opnun Borg- arleikhússins eru færðar upp tvær leikgerðir en ekki frumsamið leik- verk? Stefán: Mér finnst það fyllilega réttlætanlegt. Við þurfum ekkert að skammast okkar fyrir að sýna verk eftir okkar fremsta skáld, Halldór Laxness. Auðvitað væri æskilegt að eiga úr sem flestum leikritum að velja, t.d. við svona tækifæri. Og gleymum ekki að öll önnur verk þessa fyrsta árs í Borgarleik- húsi voru ný ísle'nsk leikrit. Mér finnst góð leikgerð af skáldsögum eiga sama rétt á leiksvið og nýskrif- að leikrit. Eitt albesta leikhús í heiminum í dag, Malí-leikhúsið í Leningrad, byggir sýningar sínar oftar en ekki á sérstakri úrvinnslu á afburða skáld- sögum. Epíkin er hvarvetna mjög sterk í heiminum í dag. Og við íslend- ingar höfum alltaf haft þessa sterku þörf fyrir frásögn. Það er oft betra að sýna góða leik- gerð af skáldsögu en lélegt leikrit. En auðvitað býr mestur krafturinn í frumsköpun og því duga leikgerðir aldrei til lengdar einar sér. Er Iistamaðurinn sáðmaður? Sp.: Hver á leikhúsið? Fyrir hvern er það? Stefán: Fólkið í landinu. Skylda leikhússins er fyrst og fremst við áhorfendur. En við sem störfum í leikhúsinu eru líka fólkið í landinu og leikhúsið þarf að annast sitt lista- fólk af umhyggju og alúð, annars situr það uppi með óbrú^legar sýn- ingar. Starfsfólk leikhússins þarf að sjá tilgang í því sem það gerir. Leik- húsið hefur því líka skyldum að gegna við sitt listafólk og við ungu leikarana. Það er ískyggilegt ástand, að meðal fastráðinna leikara Þjóð- leikhússins, skuli varla nokkur vera undir 35 ára aídri og liggur í augum uppi hvaða hömlur það legði á verk- efnaval, ef einvörðungu ætti að sýna leikrit mönnuð þessum aldurshópi. Það er skylda Þjóðleikhússins gagn- vart fólkinu í landinu, að bjóða upp á bestu fáanlegu listamenn landsins á sviði leiklistarinnar hveiju sinni og á öllum aldursskeiðum. Sp.: Er listamaðurinn sáðmaður? Stefán: Vissulega. Fræin eru oft ósýnileg og það líður langur tími þar til þau taka að spretta. Og það þarf að yrkja góðan jarðveg til þess að þau nái að skjóta rótum. Sp.: Hvað er æðsta valdið í leik- húsinu? Stefán: Thalía — leiklistargyðjan. Við verðum að trúa á tilgang leik- hússins og áhrifamátt. Leiklistin á að hjálpa okkur að leita sannleikans og þora að horfast í augu við okkur sjálf. Hun á að geta veitt okkur styrk, gleði og þekkingu í þeirri erf- iðu list að lifa lífinu. Leikhúsið á að byggja upp, ekki bijóta niður. Heið- arleiki og hugrekki er lykilorð lista- mannsins, ef hann ætlast til að leik- listin hafi áhrif. Galdur leikhússins og áhrifamáttur felst í hinu beina sambandi leikarans við áhorfandann. Það verður að vera heilshugar. Sp.: Hvort er mikilvægara, að leiksýning skemmti mörgum feiki- lega og breyti ekki lífi neins eða hún breyti lífi eins áhorfanda þótt enginn annar vilji sjá hana? Stefán: Það hlýtur að vera keppi- kefli hvers leikhúss að ná sem sterk- ustum tengsium við sem flesta. List- in er hins vegar í eðli sínu skírskot- un til einstaklingsins. Það að njóta listarinnar með öðrum getur gert upplifunina ánægjulegri en fræið skýtur hvergi rótum nema í bijóstum einstaklingsins. Sem væntanlegur Þjóðleikhússtjóri get ég ekki látið mér nægja að aðeins einn sé ánægð- ur því þá yrði leikhúsinu lokað snar- lega. Þess vegna skulum við sættast á að leiklistin verði að vera bæði sértæk og almenn. Viðtal: Guðmundur Steinsson og Sigrún Valbergsdóttir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2, FEBRÚAR 1991 Fríkirkjan í Hafnarfirði MEÐ NOKKRUM orðum skal minnt á það helsta sem fram- undan er í starfi Fríkirkjunnar í Hafnarfirði: Barnasamkomur verða alla sunnudaga kl. 11 eins og verið hefur. Barnakór fyrir 8 ára börn og eldri var stofnaður á síðasta ári. Viðtökur voru mjög góðar og nú eru nærri 30 börn í kórnum. Kórinn æfir í kirkjunni þriðjudaga kl. 17.15 og er Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir stjórnandi. Kristjana er jafnframt stjórn- andi kirkjukórsins sem æfir á þriðjudagskvöldum kl. 20. Eru nýir félagar boðnir velkomnir í það skemmtilega starf sem fram fer á vegum kirkjukórsins. Opið hús fyrir eldri borgara er í safnaðarheimilinu annan hvern fimmtudag kl. 14. Það er Hulda Runólfsdóttir sem annast hefur þetta starf ásamt safnaðarpresti og kirkjuverði. Kvenfélag kirkjunnar hefur mikið starf með höndum en form- aður þess er Sjöfn Magnúsdóttir og veitir hún frekari upplýsingar. Guðsþjónustur eru svo í kirkj- unni að jafnaði annan hvern sunnudag kl. 14 og verður næsta guðsþjónusta nú á sunnudaginn og er það fjölskylduguðsþjónusta. Eftir allar guðsþjónustur er svo boðið upp á kirkjukaffi í safnaðar- heimilinu og er það ætíð vel sótt og þykir ánægjulegur endir á sam- verustund í kirkjunni. Að lokum skal þess getið að safnaðarfólki fjölgaði verulega á síðasta ári eða úr 1.981 í 2.141 (samkvæmt tölum Hagstofu ís- lands). Einar Eyjólfsson fríkirkjuprestur. 19 Össur hefur nýjar hugmyndir um það hvernig bæta má lífskjör íslendinga. Hann er áræðinn og kjarkmikili - í senn talsmaður markaðshyggju og mannúðar. Kjósum hann hiklaust! OPIÐ PRÓFKJÖR ALÞÝÐUFLOKKSINS í DAG OG Á MORGUN ■mu' amisiHimii i s; rwn»mrA>->

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.