Morgunblaðið - 02.02.1991, Síða 20
teei HAUfl«3'i .S HUÖAQ3A0UAJ (3iaAJffP5tJ»30M
MORGUNBLAÐIÐ' LAUGARDAGUR ~2. FEBRÚAR 1991 ‘
20
Sfldarvertíðin fram-
lengd um eina viku
Enn óvíst um Sovétviðskiptin
SKIPUM, sem ekki eru búin að veiða sildarkvóta sína á þessari ver-
tíð, hefur verið leyft að veiða síld til miðnættis aðfaranótt 8. febrú-
ar næstkomandi, að sögn Þórðar Eyþórssonar hjá sjávarútvegsráðu-
neytinu. Síldveiðum átti upphaflega að vera lokið um áramótin en
vertíðin var framlengd um einn mánuð.
„Síldaivertíðin hefur nú verið
framlengd um eina viku, þar sem
4-5 skip hafa ekki náð að veiða síld-
arkvóta sína. Menn segjast eiga völ
á að veiða góða síld inni á Austfjörð-
um og koma henni í einhveija
vinnslu, frystingu eða söltun,“ segir
Þórður Eyþórsson. N
Samið hafði verið um að Sovét-
menn keyptu héðan 50 þúsund tunn-
ur, eða 5 þúsund tonn, af saltsíld í
vetur en óvíst er enn hvort þeir
standa við samninginn. íslendingar
hafa hins vegar ekki viljað skrifa
undir nýjan rammasarhning við Sov-
3-BÍÓ hópurinn:
Frumsýning
á Raunasögu
7:15 ídag
étmenn, nema þeir standi meðal
annars við þessi kaup. „Síldin er
orðin ansi mögur og því óvíst hvort
hún yrði söltunarhæf ef Sovétmenn
ákvæðu að kaupa saltsíld héðan í
vetur. Ef slíkt kemur upp verður að
skoða hvort hægt er að bregðast við
því,“ segir Þórður.
Samkvæmt samningnum við Sov-
étmenn þarf saltsíldin að vera með
að minnsta kosti 12% fituinnihaldi
en síldin, sem veiðst hefur undanfar-
ið, er tæplega 12% til 17% feit. Ef
saltað verður í 50 þúsund tunnur
af síld fyrir Rússlandsmarkað í vetur
þarf trúlega að auka síldarkvótann
á þessari vertíð um 10%, eða 10
þúsund tonn, en hann er 98 þúsund
tonn. Hugsanlegt er að þessi viðbót-
arkvóti yrði dreginn frá heildarkvót-
anum á næstu vertíð. Hafrannsókna-
stofnun lagði til að síldarkvótinn
yrði 90 þúsund tonn á síðustu ver-
tíð, þessari vertíð og þeirri næstu
en veidd voru um 101 þúsund tonn
af síld á síðustu vertíð.
Hin nýja sundlaug á Rútstúni. Gamla laugin er í forgrunni,
Morgunblaðið/KGA
Ný sundlaug opnuð í Kópavogi
NÝ SUNDLAUG í Kópavogi verður tekin í notkun við hátíðlega
athöfn í dag, laugardaginn 2. febrúar kl. 14.00. Hönnuður mann-
virkisins er Högna Sigurðardóttir, arkitekt.
Nýja sundlaugin er á Rútstúni,
við hliðina á gömlu sundlauginni.
Hún er 25x50 m að stærð og því
stærsta sundlaug landsins.
Með tilkomu nýju laugarinnar
batnar aðstaða til sundiðkunar í
Kópavogi verulega. í dag er
gamla sundlaugin opin um 30 klst.
á viku fyrir almenning en fram-
vegis verða báðar laugarnar opnar
í 90 tíma á viku. Sama er að segja
um sundkennslu skólabarna svo
og æfingaaðstöðu fyrir sunddeild
Breiðabliks.
Allir Kópavogsbúar eru boðnir
Viðræður um nýjan búvörusamning:
Beðið er eftir breytingar-
tillögnm sjömannanefndar
VIÐRÆÐUR um nýjan búvörusamning hefjast væntanlega á nýjan
leik í lok næstu viku, en þær hafa að mestu leyti legið niðri frá því
í haust. Að sögn Hauks Halldórssonar, formanns Stéttarsalnbands
bænda, er beðið eftir tillögum sjömannanefndar varðandi breytingar
á því uppkasti að búvörusamningi sem lá fyrir í haust, en nefndin
mun skila bráðabirgðatillögum til landbúnaðarráðherra í næstu viku.
STUTTMYNDIN Raunasaga 7:15
verður frumsýnd á veitingahúsinu
Tveimur vinum laugardaginn 2.
febrúar klukkan 21.00. Almennar
sýningar verða á Tveimur vinum
á hverju kvöldi klukkan 21.00 frá
sunnudeginum 3. febrúar.
Hópur er kallar sig 3-BÍÓ hópinn
og samanstendur af ungu fólki sem
hefur lært kvikmyndagerð eða starf-
að við kvikmyndir auk búningahönn-
uða, hárgreiðslufólks og förðunarsér-
fræðinga stendur að gerð myndar-
innar sem fjallar um hjón á fimm-
tugsaldri,' þau Svein og Maríu. Með
aðalhlutverk í myndinni fara Rósa
Ingólfsdóttir og Finnbogi Kristins-
son.
Um kvikmyndatöku sáu Ragnar
Agnarsson og Friðrik Guðmundsson
en handrit að myndinni sömdu Magn-
ús A. Sigurðsson og Guðmundur
Þórarinsson. Leikstjóri er Guðmund-
ur Þórarinsson og framkvæmdastjór-
ar Guðrún Brynjólfsdóttir og Gestur-
Ben Guðmundsson. FViðrik Guð-
mundsson stjómaði upptöku. Um
lýsingu sáu Friðrik Guðmundsson,
Ragnar Agnarsson og Sveinn Bene-
diktsson.
Myndin er með gamansömu ívafí.
Hún er tæpar 40 mínútur að lengd.
Fulltrúar frá Stéttarsambandi
bænda, ASÍ, VSÍ, BSRB, VMS og
landbúnaðarráðuneytinu eiga sæti í
sjömannanefnd, en hún var skipuð
í fyrravor til að gera tillögur um
stefnumörkun er miði að því að inn-
lend búvöruframleiðsla verði hag-
kvæmari og kostnaður lækki á öllum
stigum framleiðslunnar. Haukur
Halldórsson segir að samkomulag
hafí orðið um það í ríkisstjórninni
að nefndin fengi einnig að gera til-
lögur um breytingar á samnings-
uppkasti að nýjum búvörusamningi
sem kynnt var síðastliðið haust.
„Við höfum lagt mikla áherslu á
að það yrði hægt að skila tillögum
til ráðherra, þannig að búvörusamn-
inganefnd gæti sest niður og lagt
fram uppkast að búvörusamningi,
og þá haft tillögur sjömannanefndar
til hliðsjónar. Vinnan var stöðvuð í
búvörusamninganefndinni og beðið
eftir þessum tillögum sjömanna-
nefndar, en hins vegar eru þeir ekki
þeir aðilar sem gera nýjan búvöru-
samning. Það eru skiptar skoðanir
um nokkur atriði innan sjömanna-
nefndar, en þó eru menn búnir að
nálgast mjög mikið, og þær hug-
myndir sem til umræðu eru taka
mið af því sem reiknað er með að
muni eiga sér stað. Þannig reikna
menn til dæmis með því að samkom-
ulag verði gert innan GATT á næstu
árum, og því verða útflutningsbætur
engar verði samið um það innan
GATT,“ sagði Haukur.
Kosningaskjálftinn er
Dráttabáturinn Vakur.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Dráttarbátur á leið
frá Eyjum til Israels
Vestmannaeyjum.
DRÁTTARBÁTURINN Vakur
hafði viðkomu í Eyjum í vikunni,
en báturinn er á leið til Haifa í
Israel með grjótpramma.
Gijótpramminn er í eigu danska
verktakafyrirtækisins Phil og son
og hefur verið notaður við gijót-
flutninga við brúarframkvæmdir
hérlendis. Nú er þeim framkvæmd-
um lokið og á því að koma pramm-
anum til Haifa þar sem næsta verk-
efni bíður hans. Vakur kom við í
Eyjum þar sem pramminn hafði
opnað sig á siglingunni og ætluðu
skipverjar að lagfæra það áður en
haldið yrði lengra. Þeir ráðgera að
vera 20 daga á leiðinni, ef vel geng-
ur, og sögðust ekki bera neinn kvíð-
boga fyrir ferðinni vegna stríðsins
við Persaflóa.' Grímur
greinilega kominn í menn
-segir Sólveig Pétursdóttir sem tók sæti á Alþingi í gær
SÓLVEIG Pétursdóttir tók í gær
sæti á Alþingi í stað Birgis ísleifs
Gunnarssonar sem hefur tekið
við starfi Seðlabankastjóra. Hún
hefur oft setið á þingi enda hefur
hún verið fyrsti varaþingmaður
Sjálfstæðismanna í Reykjavík á
þessu kjörtímabili. Sólveig sagði
að þingmennskan leggðist ágæt-
lega í sig, hún gerði sér fyllilega
grein fyrir því að þetta væri
ábygðarmikið starf og vanda-
samt.
„Eg tek sæti af stjómmálamanni
sem nýtur mikills álits og vil nota
tækifærið og óska honum velgengni
í nýju starfi. Ég á von á að þetta
þing verði frábrugðið öðrum sem
ég nef setið. Þetta er svokallað
kosningaþing og það er alveg grein-
ilegt að það er kominn kosninga-
skjálfti í menn. Málefnastarfið mun
eflaust bera einhvem lit af því og
það verður fróðlegt að sjá hvernig
stjómarflokkunum gengur að vinna
saman.
Ég tek full réttindi og skyldur
sem Birgir ísleifur hafði og tek því
sæti í þeim nefndum sem hann sat
í. Þetta eru menntamálanefnd og
iðnaðarnefnd neðri deildar og fé-
Sólveig Pétursdóttir
lagsmálanefnd sameinaðs þings. í
þessum málaflokkum eru ýmis stór
mál sem athuga þarf mjög vel.
Aðalmarkmiðið hjá Sjálfstæðis-
mönnum í dag er að koma þessari
ríkisstjóm frá, fá kosningar sem
fyrst og vinna þar góðan sigur.
Miðað við skoðanakönnun sem birt
var í dag virðistganga illa hjá sum-
um að koma Islandi í A-flokk,“
sagði Sólveig.
Sólveig verður í sjötta sæti Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík í næstu
kosningum. „Ég vonast að sjálf-
sögðu til að komast inn þá og auð-
vitað er gott að hafa fengið undir-
búning fyrir þetta starf, en ég hef
áður sinnt þingstörfum þannig að
þetta er ekki nýtt fyrir mér.“
Sólveig er lögfræðingur að mennt
og hefur starfað við lögfræðistörf,
bæði hjá borgarfógeta og sem full-
trúi á lögmannsstofu. Hún kenndi
verslunarrétt í þiju ár í Verslunar-
skólanum og var í borgarstjórnar-
flokki Sjálfstæðisflokksins á árun-
um 1986 til 1990. Hún gegnir enn
ýmsum störfum fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn 'á sviði Borgarmála.
Sólveig er fædd 11. mars 1952.
Foreldrar hennar eru Pétur Hann-
esson, deildarstjóra hjá Reykjavík-
urborg og Guðrún Árnadóttir, hús-
móðir. Eiginmaður Sólveigar er
Kristinn Björnsson forstjóri olíufé-
lagsins Skeljungs hf. og eiga þau
þijú börn, 9 ára dóttur og 12 og
15 ára syni.