Morgunblaðið - 02.02.1991, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGÚR 2. FEBRÚAR 1991
39
Ung giftist hún Gunnari Páli
Jóhannessyni, nú starfsmanni hjá
Flugleiðum á Húsavík. Þau eignuð-
ust tvö börn, Sigurð og Guðrúnu
Sigríði. Sigurður er búsettur í Sví-
þjóð, kvæptur sænskri konu, Ann-
elie, fædd Kallqvist, og eiga þau
tvær dætur. Guðrún Sigríður býr á
Húsavík, gift Sigurði Illugasyni, og
eiga þau þijá syni.
Svo vildi til að við Adda fluttum
til Húsavíkur um svipað leyti. Þar
bjó hún æ síðan en ég í átta ár.
Það var fljótt mikill samgangur
milli heimila okkar og Gunnar Páll,
eiginmaður Öddu, varð mikill vinur
okkar hjónanna. Við áttum marga
ánægjustundina á heimili þessara
góðu og samhentu hjóna. Synir
okkar léku sér saman. Og ennþá
geymum við skemmtilegt bréf sem
Siggi, þá sjö ára, skrifaði Leifi,
syni okkar, til Noregs eftir að við
fluttum frá Húsavík.
Það varð að hefð hjá okkur að
halda upp á bóndadag og konudag
til skiptis á heimilunum, þar sem
eiginmennirnir sáu um matinn á
konudaginn en við Adda á bönda-
daginn. Og eru margar okkar
skemmtilegustu minningar tengdar
þessum dögum.
Það er gott að eiga góðar minn-
ingar um samferðamenn sína. Eg
veit að þið, ástvinir Öddu, eiginmað-
ur, börn, litlu barnabörnin og systk-
ini hafið misst svo mikið og eigið
um sárt að binda. Megi góðu minn-
ingarnar lýsa ykkur veginn áfram.
Innilegar samúðarkveðjur frá okkur
Stefáni.
Hólmfríður Árnadóttir
Það var eins og ský drægi skyndi-
lega fyrir sólu þegar við fréttum
að Adda frænka væri dáin. Hún
hafði átt við mikil veikindi að stríða
en einhvern veginn trúðum við á
mátt læknavísindanna sem urðu þó
að lúta í lægra haldi. Eftir sitjum
við og spyijum: Hver er tilgangur
þess að kona á besta aldri er hrifin
svo snögglega á brott?
Endurminningar um góða konu
sækja að okkur. Það var alltaf gott
að koma á Skólagarðinn til Öddu
og Gunna. Þar var ferðalöngum að
vestan tekið opnum örmum og allt
gert til að hveijum liði sem best.
Skilningsríkari og æðrulausari
manneskju en Öddu er vart hægt
að hugsa sér. Alltaf gaf hún sér
tíma fyrir okkur. Hún hlustaði af
alúð og ræddi af skynsemi hvort
sem það voru persónuleg málefni
eða heimsmálin. Við erum ríkari
hóf aftur kennslu haustið 1929 og
nú við húsmæðraskólann á Laugum
í Suður-Þingeyjarsýslu þar sem hún
kenndi f þijú ár. Hún kenndi eftir
það í Stykkishólmi í tvö ár og fór
þaðan til kennslu við héraðsskólann
á Reykjum í Hrútafirði haustið 1935
og kenndi þar einn vetur.
Kristjana hafði alla tíð brennandi
áhuga á aukinni menntun kvenna
bæði til munns og handa. Hún hafði
kynnt sér húsmæðrafræðslu á Norð-
urlöndum, sótt námskeið í handa-
vinnu, kjólasaumi og garðyrkju.
Sjálf var hún snillingur í allri handa-
vinnu hvort sem um var að ræða
vefnað, útsaum, fatasaum eða aðra
handavinnu. Það var því engin tilvilj-
un að hún gerðist umferðakennari
hjá Sambandi sunnlenskra kvenna
og Sambandi breiðfirskra kvenna í
saumum, vefnaði og garðyrkju árið
1937. Þessa kennslu stundaði hún
með góðum árangri og við miklar
vinsældir um sex ára skeið.
Veturinn 1943/44 kenndi hún í
Varmahlíð í Skagafirði á húsmæðra-
námskeiðum sem þar voru haldin
og um haustið 1944 gerðist hún
skólastjóri húsmæðraskólans á Stað-
arfelli á Fellsströnd í Dalasýslu. Hún
lét af störfum árið 1949 vegna
heilsubrests og flutti til Stykkis-
hólms þar sem hún bjó óslitið til
æviloka.
Þegar hún flutti til Stykkishólms
var hún að flytja heim. Þar lágu
rætur hennar, þar var æskuheimilið
og þar vildi hún eiga heima. Hún
hafði alla tíð mikinn áhuga á velferð
Stykkishólms og ræddi mál sveitar-
félagsins af miklum áhuga og hafði
á þeim ákveðnar skoðanir.
Kristjana var móðursystir mín og
að hafa kynnst Öddu og minningin
um hana mun lifa í hjörtum okkar.
Þó að fundum fækki
er fortíð ekki gleymd
í mínum muna og hjarta
þín minning verður geymd.
Heima í húsi þínu,
sig hvíldi sálin mín
ég kem nú, kæri vinur
með kveðjuorð til þín. (K.N.)
Elsku Gunni, Gurra, Siggi og
fjölskyldur, okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur, megi ykkur veitast
styrkur í sorginni.
Hulda, Arna, Linda
og Kristmann
Mig langar til að minnast vin-
konu minnar Öddu er lést 27. jan-
úar. Það er margs að minnast en
við höfum verið vinkonur frá því
að kynni okkar hófust á Húsmæðra-
skóla Þingeyinga Laugum, og
áfram öll árin er við báðar vorum
giftar og búsettar á Húsavík.
Fyrir fímm árum, einmitt um
þetta leyti, stóð hún við hlið mér
boðin og búin til að gera mér lífið
léttbærara er ég missti manninn
minn og eftir að ég varð ein sendi
hún mér jólagjafir sem þannig eru
að ég prýði stofuna mína með þeim
og þær ylja mér og lýsa eins og
hennar viðmót og hið hlýjá bros
ætíð gerði.
En vegir Guðs eru órannsakan-
legir og hvað ég hefði viljað að hún
hefði getað heimsótt mig eftir að
ég flutti burt frá Húsavík, séð nýja
heimilið mitt og við spjallað saman
eins og áður.
Er ég kom í sumarfríinu mínu
norður í sumar bauð hún mér í bílt-
úr til Akureyrar ásamt manni sín-
um. Var það ánægjulegur dagur
en alltof stuttur, var hún svo hress
að mér fannst og þó búin að beij-
ast við Iasleika, þó ekki hafi mig
grunað að hveiju stefndi.
Eg vil á þessari stundu þakka
elsku vinkonu minni allt, þó ekki
verði það rakið hér. Ég votta þér,
Gunni minn, börnum og barnabörn-
um ykkar mína dýpstu samúð.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V.Briem)
Jóna Gunnlaugsdóttir
fóstra um tveggja vetra skeið. Hún
bauð mér að búa hjá sér í Stykkis-
hólmi svo ég gæti sótt þar skóla og
lokið þaðan landsprófi miðskóla, sem
þá var lykillinn að framhaldsnámi.
Þessir tveir vetur hjá Kristjönu
eru mér ógleymanlegir og ómetan-
legir. Ég þekkti hana lítið þegar ég
kom til hennar haustið 1949. Ég
kunni strax mjög vel við mig á heim-
ili hennar og mér fannst fljótlega
að þar hefði ég eignast annað heim-
ili. Hún lagði mér engar lífsreglur
en ræddi við mig um þau atriði sem
máli skiptu varðandi dvöl mína á
heimili hennar og lét mig um að
draga mínar eigin ályktanir af þeim
umræðum. Okkar á milli þróaðist
gagnkvæm vinátta, virðing og tillits-
semi. Hún aðstoðaði mig við skóla-
námið, benti mér á atriði sem skiptu
máli en skipti sér ekki af því að
öðru leyti hvernig ég hagaði mínu
námi. í öllum okkar samskiptum var
hún jákvæð, glaðvær og gefandi.
Hún var alltaf tilbúin að ræða við
mig um hvaða mál sem var og hún
hafði á flestum málum rökstuddar
skoðanir. Oftast lét hún rök sín koma
fram og sagði af hverju hún hefði
þessa skoðun en ekki hina. Sú
menntun sem hún veitti mér með
því að ræða við mig með þessum
hætti og þau áhrif sem hún hafði á
skoðanir mínar og hugsunarhátt
hefur orðið mér varanlegt veganesti
á lífsleiðinni.
Kristjana hafði mikinn áhuga á
menningu og listum. Hún las mikið
og sótti alla þá menningarviðburði
sem hún hafði tök á.
Kristjana var félagslynd og mann-
blendin. Hún átti mjög mprga góðq
vini og kunningja. Hún tók virkan
„Okkur er víst öllum skammtaður
tími í þessu lífi. Minn tími er víst
að verða búinn.“
Þessi orð lét Arnbjörg Sigurðar-
dóttir, eða Adda, eins og kunnugir
jafnan kölluðu hana, falla nokkrum
dögum fyrir andlát sitt við kunningj-
akonu sína er heimsótti hana á
Sjúkrahús Húsavíkur. Engin æðru-
orð_ fylgdu.
Á sjúkrahúsinu lést Arnbjörg eftir
hálfsmánaðarlegu þar 27. janúar sl.
er kraftar hennar höfðu þrotið á
ótrúlega skömmum tíma.
Okkur er tamt að tala um tíma
og kvóta nú á dögum. Oft varð mér
á að segja við Öddu mágkonu mína:
„Nú er kvótinn búinn,“ þegar við
hjónin heimsóttum Öddu og Gunna
og höfðum notið veitullar gestrisni
þeirra hjóna á Skólagarði 10.
Hver var aflinn? — var gjarnan
spurt á árum áður á lokadegi er
vertíð lauk. Var þá átt við aflamagn-
ið á vertíðinni. Á það hafa menn
löngum mænt þegar skýrslur eru
skoðaðar. En hver var hluturinn og
hvernig var honum varið?
Þá kann ýmislegt að verða uppi
á teningnum. Það er ekki sjálfgefið
að hann sé mestur þar sem aflamag-
nið er hæst skráð. Og þegar talið
er fram verður hluturinn oft rýrari
en ætla mætti miðað við aflamagn,
af því að gæðunum var nokkuð
ábótavant. Stundum finnast engar
skýrslur, engin embætti tíunduð né
vegtyllur, engar auglýsingar um
hjálpsemi eða greiðasemi við náung-
ann.
Sínum augum lítur víst hver silfr-
ið í þessum efnum.
Arnbjörg Sigurðardóttir var fædd
í Rauðuskriðu í Aðaldælahreppi í
Suður-Þingeyjarsýslu 28. september
1934. Foreldrar hennar voru hjónin
Sigurður Friðfinnsson og Hulda
Kristjánsdóttir sem bæði eru látin
fyrir fáum árum. Eignuðust þau
fimm börn, Guðrúnu, Friðfinn, Arn-
björgu, Hólmfríði og Sigurð Kristj-
án. Var Arnbjörg þriðja í röðinni.
Eru nú þijú á lífi. Friðfinnur lést
fyrir nokkrum árum langt um aldur
fram, hinn mestu elju- og atorku-
maður.
Tvíbýli var í Rauðuskriðu á upp-
vaxtarárum Öddu. Þar bjuggu einnig
hjónin Árni Friðfinnsson, bróðir Sig-
urðar, og Guðný Kristjánsdóttir,
systir Huldu, ásamt sex börnum sín-
um. Þar var samvalinn hópur þar
sem ríkti bróður- og systurkærleikur
eins og hann getur bestur orðið.
Mér er minnisstætt er ég kom í
Rauðuskriðu fyrsta sinn og kynntist
fólkinu af báðum búum sem þar var
þá og spjallaði við öldunginn Friðfinn
Sigurðsson, þá á tíræðisaldri og leg-
þátt í starfi kvenfélaga, átti sæti í
stjórnum þeirra, var m.a. formaður
Hringsins í Stykkishólmi í mörg ár
og var gerð þar að heiðursfélaga.
Þá var hún einnig heiðursfélagi í
Sambandi breiðfirskra kvenna og í
Kvenfélagasambandi Snæfellsness-
og Hnappadalssýslu.
Þegar Kristjana fluttist heim til
Stykkishólms árið 1949 keypti hún
lítið einbýlishús við Skólastíg. Hand-
an götunnar stendur gamli skólinn
og á næstu lóð við húsið hennar
Kristjönu var reist heimavistarhús
fyrir skólanemendur. Þegar ekki var
lengur þörf fyrir heimavist við skól-
ann var heimavistarhúsinu breytt í
dvalarheimili fyrir aldraða. Þar átti
Kristjana athvarf þegar á þurfti að
halda síðustu árin sem hún bjó í
húsinu sínu og þangað flutti hún svo
árið 1989. Húsið sitt færði hún dval-
arheimilinu að gjöf þegar hún flutti
úr því eftir 40 ára dvöl.
Það voru mikil viðbrigði fyrir
Kristjönu að flytja úr húsinu sinu
en hún gerði sér ljóst að heilsan
leyfði ekki að hún byggi þar lengur.
Hún bar starfsfólki og forstöðukonu
dvalarheimilisins ákaflega vel sög-
una og var mjög þakklát fyrir þá
umhyggju, umönnun og aðstoð sem
hún naut frá þeim bæði fyrr og síðar.
Kristjana setti svip á samtíð sína.
Hún var ávallt reiðubúin að leggja
sitt lóð á vogarskálarnar til þess að
koma góðum málum fram. Hún gift-
ist aldrei og eignaðist ekki börn, en
hún bar mikla umhyggju fyrir systk-
inabörnum sínum og sýndi það í
verki bæði fyrr og síðar. Þar get ég
trútt um talað því ég á henni ómet-
anlega skuld að gjaldá fyrir þá leið-
ið hafði rúmfastur um árabil, blindur
en sálarkraftar lítt skertir, hve nær-
gætið heimilisfólkið var við hann og
augljós virðing borin fyrir þessum
hára öldungi.
í glaðværum og góðum hópi
systkina og frændfólks ólst Adda
upp undir sterkum áhrifum þess
bræðralags sem þar ríkti og hefir
orðið henni og öðrum í hópnum hollt
veganesti er út í lífið kom eins og
þeim er kunnugt er til þekkja. Á
þessum stað fékkst Adda við aígeng
sveitastörf, lærði að umgangast
menn og málleysingja og taka tillit
til annarra. Hún var við nám í Alþýð- ,
uskólanum á Laugum og síðar í
Húsmæðraskólanum þar. Meðan
hún dvaldist í heimabyggð söng hún
í kirkjukór Grenjaðarstaðarsóknar
og þurfti þá oft að ganga yfir háls-
inn yfir í Lindahlíð, æðispöl oft í
ófærð og misjöfnu veðri. Úr Linda-
hlíð var reynt að fá far með bíl í
Grenjaðarstað og síðan farin sama
leið til baka. Adda taldi aldrei eftir
sér sporin ef á þurfti að halda.
Kynni mín af Öddu hófust er hún
giftist bróður mínum, Gunnari Páli,
árið 1959, og þau hófu búskap á
Húsavík. Fyrstu árin voru þau í
leiguhúsnæði, m.a. hjá okkur hjón-
um. Fljótlega byggðu þau sér sitt
eigið hús á Skólagarði 10, Húsavík
og hafa átt heima þar síðan. Þau
eignuðust tvö börn, Sigurð, sem
búsettur er í Svíþjóð, kvæntur An-
ellie Kallqvist, og eiga þau tvær
dætur, og Guðrúnu Sigríði, sem gift
er Sigurði Illugasyni og eiga þau
þijá syni.
Öll kynni við Öddu hafa verið á
einn veg. Hún var mikil mannkosta-
kona, hjálpsöm, greiðvikin, ráðholl,
trygglynd, glaðvær og glettin. Hóg-
vær, stillt og athugul. I hennar fari
gætti aldrei hroka, drambs eða of-
lætis. Kærleikur ávallt ríkjandi. Því
leið öllum vel í návist hennar.
Heimili þeirra hjóna stóð jafnan
opið öllum sem þangað leituðu enda
ófáir sem þangað sóttu bæði úr
frændgarði og annars staðar frá.
Þar var ástúð og hlýju að mæta og
mikilli gestrisni.
Adda hlúði að foreldrum sínum
öldruðum í sveitinni með tíðum ferð-
um sínum þangað eftir að hún yfir-
gaf feðraslóð og ekki síst studdi hún
foreldra sína eftir að þau brugðu
búi eftir fráfall Friðfmns og fluttu
til Húsavíkur. Þá hafa dóttursynirn-
ir verið tíðir gestir á Skólagarðinum
hjá ömmu og afa og einn þeirra
dvalið þar löngum. tengdaforeldrum
sínum var Adda eins og besta dóttir
og eftir að faðir minn féll frá reynd-
ist hún móður minni hin mesta hjálp-
arhella enda mat móðir mín hana
sögn, aðstoð og umhyggju sem hún
sýndi mér bæði fyrr og síðar.
Blessuð sé minning hennar.
Helgi Jónasson
í dag, 2. febrúar, verður jarðsett
frá Stykkishólmskirkju, Kristjana
Valgerður Hannesdóttir, fyrrver-
andi skólastýra á Staðarfelli. Þegar
ég var um tvítugt flutti ég til Stykk-
ishólms og dvaldist þar í um 5 ár.
Ég átti því láni að fagna að fá leigt
hjá Kristjönu stuttu eftir að ég kom
vestur. Ég var hálf kvíðinn fyrir
að leigja hjá Kristjönu sem í mínum
huga var virðuleg eldri kona, fyrr-
verandi skólastýra á Staðarfelli,
formaður kvenfélagsins, áhrifakona
í samtökum breiðfirskra kvenna
o.s.frv. En sá kvíði var ástæðulaus,
því með okkur tókst mikil vinátta
og hún hugsaði eins vel um mig
og ég væri hennar sonur. Nú, þeg-
ar hún er öll, rifjast upp fyrir mér
ýmsar ánægjustundir, sem við átt-
um saman. Þær voru margar stund-
irnar sem við sátum saman inni í
stofu og ræddum um landsins gagn
og nauðsynjar. Umræðuefnin voru
fjölbreytt allt frá því hvort fyrst
ætti að byggja kirkju eða félags-
heimili í Stykkishólmi til þess að
ræða áhrif Bítlanna á skemmtanir
unga fólksins. Oft vorum við ekki
sammála og stundum hitnaði í
umræðunum. Það kom fyrir að al-
varlegar hádegisumræður enduðu
ekki fyrr en við garðhliðið. Krist-
jana var fróð og hafði ferðast mik-
ið bæði innanlands og um Norður-
lönd. Ég tel ekki ólíklegt að hún
eigi þátt í að ég ákvað að halda
mikils.
Hve óræð eru örlögin og skammt
sem við sjáum. Hvem skyldi hafa
grunað fyrir réttu ári er við kvöddum
móður mina, 94 ára, hinstu kveðju,
að ári síðar værum við að kveðja
Öddu, aðeins 56 ára?
Hjálpsemi hennar og vinátta við
okkur hjónin svo og börn okkar verð-
ur aldrei fullþökkuð.
Það er gifta hvers manns að eign-
ast traustan lífsförunaut, góða eigin-
konu, hafa átt ástríka móður og
kynnst kærleiksríkri ömmu. Adda
bjó yfir mörgum þeim eiginleikum
sem dýrmætastir eru í mannlegum
samskiptum og lífi, eðliskostum sem
aldrei verða keyptir, ómetanlegir og
við skynjum oft best þegar þeir eru
horfnir sem þeim voru búnir. Þess
vegna er hennar nú sárlega saknað
af svo mörgum sem henni kynntust
en eiga henni jafnframt svo margt
að þakka því á bak við aflahlutinn
bjó meira en tíundað verður í tölum
og skýrslum. Slíkra er gott að minn-
ast í heimi þar sem skuggahliðar
blasa hvarvetna við í samskiptum
milli manna og þjóða.
Til góðs vinar liggja gagnvegir
og þar sem góðir menn fara eru
guðsvegir.
Arnbjörg verður jarðsungin í dag
frá Húsavíkurkirkju. _
Sigurjón Johannesson
Nú fækkar í hópnum, sem forðum sér lék
■í Fellinu ofan við bæinn,
og horfði út á Fljótið, sem framhjá rann
í fjarskann - og hvarf í sæinn.
(H.G.)
Með söknuði og eftirsjá kveð ég
kæra frænku, Arnbjörgu Sigurðar-
dóttur, sem nú fer frá okkur um
aldur fram. En allar góðu minning-
arnar munu lifa. Hlýja viðmótið
hennar, glaða einlæga brosið og
smitandi hláturinn mun ylja okkur
um hjartarætur þegar við minn-
umst hennar. Góðir vinir eru éitt
af því dýrmætasta sem við eign-
umst í lífinu. Við erum svo lánsöm,
hópurinn frá Skriðu, að vera bund-
in traustum vináttuböndum og nú
syrgjum við saman þau þijú sem
farin eru. Eiginmanni Öddu, Gunn-
ari Páli, og öllum öðrum ástvinum
hennar, sendi ég innilegar samúðar-
kveðjur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Þóra Karitas Árnadóttir
utan til náms eftir að hafa gert hlé
á skólagöngu í hálfan áratug. Mig
furðaði oft á því hversu Kristjana
var víðsýn og fylgdist vel með. Hun
var óvenju greind og sjálfstæð kona
eins og starfsferill hennar sýnir.
Hún giftist aldrei og taldi sjálf að
hún hefði aldrei getað aðlagað líf
sitt að venjum einhvers karls. Til
þess væri hún alltof sjálfstæð. Hér
erum við komin að ríkum eiginleika
í fari Kristjönu. Sjálfstæði Kristjönu
birtist á margan hátt. Hún vildi sjá
um sín mál án afskipta annarra og
eins lét hún ekki aðra hafa áhrif á
skoðanamyndun sína. Ef hún taldi
sig órétti beitta þá lagði hún ekki
árar í bát heldur gerði hvað hún
gat til að fá sínu máli framgengt.
Æviskeið Kristjönu spannar
mestu breytingartíma í sögu mann-
kynsins. Hún mundi það þegar ís-
lendingar fengu fyrsta ráðherrann,
síðan fullveldi og að lokum sjálf-
stæði. Kristjana lagði sitt af mörk-
um til þeirra þjóðfélagsbreytinga
sem orðið hafa með því að helga
líf sitt aukinni menntun kvenna og
baráttu þeirra fyrir auknum réttind-
um.
Ég þekkti lítið til þessara starfa
Kristjönu þar sem hún var að draga
sig í hlé sem forystumaður þegar
við kynntumst, en áhugi hennar var
mikill og hún hélt áfram að miðla
af sinni reynslu til þeirra sem á
eftir komu.
En ég mun minnast Kristjönu
fyrst og fremst sem hlýrrar og ynd-
islegrar konu sem tók mig inn á
heimili sitt og hugsaði um mig sem
sinn eigin son.
Sigurður Björgvinsson