Morgunblaðið - 02.02.1991, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1991
. . .að skera niður pappírs-
kostnaðinn.
Með
morgunkaffínu
TM Reg. U.S. Pat Off.—ail rights reserved
° 1991 Los AngelesTimesSyndicate
brigði hér ...
Tvo miða sitthvoru
megin við ganginn ...
HOGNI HREKKVISI
££. þA£> fZy*:SO<2s4H SEM ÉS H&ifZ! ?
Ótækt
kvótakerfi
Til Velvakanda.
Nokkur orð um það sem ég vil
kalla „framsóknarmennsku“ í sjáv-
arútvegi. Framsókn ætlar nefnilega
ekki að gera það endasleppt með
því að koma landbúnaðinum á helj-
arþröm heldur skal nú tekið til
hendinni og láta sjávarútveginn
fara sömu leiðina. Kvótakerfið er
hreint ótrúlegt fyrirbæri - til stend-
ur að fámennur hópur fái aðal auð-
lind þjóðarinnar til ráðstöfunar um
ókomin ár svo sem um eignarhald
væri að ræða.-Til skamms tíma var
það þannig að hver sem var gat
stundað sjó án þess að spyija kóng
eða prest. En þegar ganga tók á
fiskistofnana varð nauðsynlegt að
takmarka sóknina og var það notað
sem rökstuðningur fyrir kvótakerf-
inu.
En það er heldur haldlítil rök-
semd. Auðvelt væri að hafa stjórn
á fiskiveiðum með öðrum hætti eins
og bent hefur verið á. Ég er þeirrar
skoðunar að viturlegast væri að
gefa fleirum tækifæri og taka upp
kerfi sem byggði á auðlyndaskatti..
Þannig stæðu allir jafnt að vígi.
Þetta myndi gefa skipum af ýmsum
stærðum, allt frá smátfillum upp í
togara, möguleika á að keppa um
hagkvæmni í veiðunum.
Að endingu þetta. Nú styttist í
kosningar. Vonandi fer nú að halla
undan fæti fyrir framsóknarmenns-
kunni í sjávarútveginum. Mál er að
linni.
Bátasjómaður
Þessir hringdu ...
Kraftmikil sýning
Pétur hringdi:
„Ég er á fertugsaldri hef verið
lengi aðdáandi Rocy Horror. Það
er vel gert hjá MH að taka þetta
verk til sýningar og uppfærslan
er á atvinnuleikhúsa stigi hjá
þeim. Sýningin kraftmikil og vel
heppnuð, þau nýta plássið mjög
vel, leysa öll vandamál mjög
skemmtilega og setja sinn stimpil
á þetta. Ég vil hvetja alla, sérstak-
lega fólk á mínum aldri sem fínnst
það e.t.v. of gamalt fyrir svona
sýningu, að fara og sjá þessa sýn-
ingu. Og ég ætla aftur, svo mikið
er víst.“
Gleraugu
Gleraugu með dökkri umgerð
fundust á horni Vitastígs og
Hverfisgötu. Upplýsingar í síma
626587.
Filma
Filma sem send var til Mynd-
verks tapaðist og hefur sendingin
líklega misfarist. Á filmunni eru
myndir teknar i Laugadal og
myndir af Íslandslíkani. Vinsam-
legast hringið í Jónas í síma
35050 hafi filman einhvers staðar
komið fram.
Peysa
Svört hneppt peysa tapaðist af
svölum í Hvömmunum í Kópavogi
í byijun desember. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 45254.
Læða
Lítil ómerkt hvít læða tapaðist
í Austubænum í Kópavogi. Vin-
samlegast hringið í síma 41642.
ef hún hefur einhvers staðar kom-
ið fram.
Kettlingar
Tveir kettlingar fást gefins.
Upplýsingar í síma 46320.
Aftanskin
Kona hringdi:
„Spurst var fyrir um texta, þar
sem fyrir kom hendingin „Það var
í aftanskini, ég leit þín augu blá“,
í Velvakanda fimmtudaginn 31.
janúar. Þetta er lagið Aftanskin
og samdi Jón Þorsteinsson lag og
texta. Sönkonan heitir Kristjana
Steinþórsdóttir. Þar er hjómsveit-
in Karma sem fiytur og er lagið
að finna á snældunni Sönglög á
Suðurlandi."
Gleraugu
Gleraugu með blágrænni um-
gerð voru tekin í misgripum á
Borgarskrifstofunni Skúlatúni 2.
mánudaginn 28. janúar milli kl. 3
og 4. Viðkomandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í Manntalsskrif-
stofuna í síma 12755 eða 18000,
eða heimasíma 34571.
Lyklaveski
Brúnt lyklaveski með sex lykl-
urh tapaðist í Hafnarfirði 22. jan-
úar. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 54551.
Taska
Addidas taska með blakbúning
tapaðist við Digranes. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í sima 45010.
Jakki
Tekinn var græn herra ullar-
jakki á Naustkránni um síðustu
helgi. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 11083.
Hagstæðara neytendum
Neytandi hringdi:
„Ég tel eftirsjón í því að versl-
unin Bónus hyggst hætta að selja
ávexti í stykkjatali eins og verið
hefur. Einhveijir munu hafa mót-
mælt þessu fyrirkomulagi og ekki
gert sér ljóst að það var kaupend-
um hagstætt. Vona ég að verslun-
in bjóði áfram upp á stykkjaverð
á ávöxtum."
Mappa
Blá mappa með þremur píanó-
nótubókum tapaðist í leið 2 þriðju-
daginn 29. janúar. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 17198.
Gullarmband
Gullarmband tapðaðist í Mið-
bænum. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 685693.
Víkverji skrifar
Seint á síðasta ári var tekið í
notkun nýtt og vandað orgel
í Bústaðakirkju. Víkveiji var ein-
mitt að ræða um það um daginn,
að æskilegt væri að tónleikahald
yrði gildari þáttur í kirkjulífi. Kirkj-
an getur komið boðskap sínum á
framfæri með ýmsum hætti, en tón-
listin er eitthvert sterkasta meðalið.
Tónleikahald í Bústaðakirkju næstu
vikur er óvenjulega fjölbreytt og
metnaðarfullt. Þar verða m.a.
haldnir þrír tónleikar tileinkaðir
Cesar Frank, á skírdag verða Moz-
art-tónleikar auk ýmissa annarra
tónleika sem Víkveiji er þegar far-
inn að hlakka til. Mesta fjörið verð-
ur þó trúlega sunnudaginn 14. apríl,
en þá verður „kirkjuleg sveifla" í
Bústaðakirkju: jass, blús og negra-
sálmar. Meðal flytjenda þar verða
þijár kunnar sópransöngkonur:
Ingveldur Ólafsdóttir, Stefanía Val-
geirsdóttir og síðast en ekki síst
Sigrún Hjálmtýsdóttir. Undirleik
mun hljómsveit Magnúsar Kjart-
anssonar annast ásamt orgelleikara
kirkjunnar, Guðna Þ. Guðmunds-
syni.
XXX
Víkveiji var meðal þeirra sem
hlustuðu á flutning kórs
Langholtskirkju á Jólaóratoríu
Bachs milli jóla og nýárs. Kórinn
hefur á síðustu árum flutt mörg
stórverk og ef til vill hefur fólk
vanist því að slíkt sé sjálfsagt. Vík-
veija finnst það á hinn bóginn lík-
ast göldrum hvernig kórstjóranum,
Jóni Stefánssyni, hefur tekist að
viðhalda sönggleðinni, sem skín svo
augljóslega í gegnum flutning kórs-
ins á verkefnum sínum. Það er með
ólíkindum hversu vel kórnum tekst
upp í flutningi á gífurlega erfiðum
verkum ár eftir ár.
Tónlistarskólar njóta mikilla vin-
sælda og á síðustu tveimur
áratugum hefur orðið bylting í tón-
listarmenntun þjóðarinnar. Varla
er til svo lítill kaupstaður úti á landi
að ekki sé starfræktur tónlistar-
skóli, þar sem stór hluti barna á
skólaskyldualdri stundar nám. Þessi
menntun er svo sannarlega farin
að skila árangri. Tónlistarlíf hér á
landi er með ólíkindum fjölbreytt
og flutningur metnaðarfullur og
vandaður. Með aukinni tónlistar-
menntun aukast kröfur áheyrenda,
og jafnframt hæfni þeirra til að
njóta tónlistarinnar. Við sjáum
einnig árangur þessarar auknu tón-
listarmenntunar í því hversu margir
íslenskir tónlistarmenn njóta hæfi-
leika sinna í harðri samkeppni í
útlöndum. Þar á meðal er yfirburða-
fólk eins og Sigrún Eðvaldsdóttir
fiðluleikari og Kristján Jóhannsson
tenórsöngvari.