Morgunblaðið - 02.02.1991, Page 50
50
'■ HÖRÐUR Mugnússon, marka-
kóngur úr FH, hefur fengið boð frá
Sheffield United um að æfa með
félaginu. Hann mun fara til Eng-
lands um miðjan febrúar og vera
tíu daga til reynslu hjá félaginu,
sem er nú á botni 1. deildar.
■ JOHANN Cruyff, þjálfari
Barcelona, skrifaði í gær undir
nýjan samning við félagið - til
1993.
■ SOVÉTMAÐURINN Belanov
hefur verið rekinn frá Mön-
chengladbach og er hann kominn
til 2. deildarfélagsins Brauns-
chweig.
■ Þýska hlaupadrottningin
Katrin Krabbe er nú við æfingar
á eyju í Karabískahafinu. Hún
þarf að gangast undir lyfjapróf með
fjórtán daga millibili, eins og allir
afreksmenn Þýskalands. Þýska
frjálsíþróttasambandið þurfti að
senda Iækni þar sem Krabbe er
við æfingar og kostaði það sam-
bandið 180 þús. ísl-. kr.
■ GABRIELA Sabatini vann
Steffie Graf, 4-6 6-4 7-6 á innan-
hússtennismóti í Tókýó í gær og
tryggði sér rétt til að leika í undan-
úrslitum.
■ DAVID Speedie leikur að öll-
um líkindum sinn fyrsta leik með
Liverpool gegn Manchester
United á sunnudaginn.
■ DAVE Beasant leikur sinn
hundruðasta leik í marki Chelsea
þegar félagið mætir Arsenal í dag.
Arsenal hefur leikið 23 leiki í röð
í deildinni í vetur án þess að tapa.
BADMINTON
Broddi og
ÁmiÞór
berjast
íslandsmeistara-
mótið í badminton
hefst í dag
Broddi Kristjánsson verður_ í
sviðsljósinu á meistaramóti ís-
lands í badminton, sem fer fram
um helgina í Laugardalshöllinni.
Hann á möguleika á að tryggja sér
meistaratitlinn í tíunda sinn, en
Broddi hefur leikið til úrslita á ís-
landsmóti síðan 1980, en þá vann
hann meistaratitilinn í fyrsta sinn.
Efstu mennirnir á styrkleikalista
BSI eru þeir Broddi og Arni Þór
Hallgrín\sson, en þeir hafa háð
harða baráttu í einliðaleik að und-
anförnu, en aftur á móti leika þeir
samn í tvíliðaleik. Broddi lagði Árna
Þór á meistaramóti TBR, en Árni
Þór vann Brodda á einliðaleiksmóti
KR á dögunum.
Efstar á styrkleikalista í einliða-
leik kvenna eru þær Bima Petersen
og Elsa Nielsen úr TBR. Hafa þær
hvorugar unnið íslandsmótið í ein-
liðaleik, en Þórdís Eðwalds hefur
unnið meistaratitilinn samfellt síðan
1986, eða samtals fimm sinnum í
röð.
Meistaramótið, sem fer fram í
Laugardalshöllinni, hefst kl. 10 í
dag og verður keppt í A-flokki og
meistaraflokki. Á mörgun, sunnu-
dag, hefst undanúrslit í meistara-
flokki og úrslit í A-flokki kl. 10,
en kl. 14 hefjast úrslitin í meistara-
flokki.
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1991
SKIÐI / HEIMSMEISTARAMOTIÐ I ALPAGREINUM I SAALBACH
Vreni Schneider nældi
sér í þriðja HM-gullið
VRENI Schneider, fyrrum
heimsbikarhafi og ólympíu-
meistari frá Sviss, sigraði í
svigi kvenna á heimsmeistara-
mótinu íalpagreinum íSaal-
bach í gær. Þetta var þriðji sig-
ur hennar á heimsmeistara-
móti, en hún varð heimsmeist-
ari í stórsvigi 1987 og 1989.
Júgóslavneska stúlkan Natasa
Bokal kom mjög á óvart með
því að ná öðru sæti. Ingrid
Salvenmoser hélt uppi heiðri
Austurríkis er hún hafnaðií
þriðja sæti.
Schneider sýndi það í tvíkeppn-
issviginu að hún er komin í
góða æfingu og fylgdi því eftir í
sviginu í gær. Hún náði langbesta
tímanum í fyrri umferð og keyrði
síðari umferðina af miklu öryggi
og stóð upp sem sigurvegari, var
0,16 sek. á undan Natasa Bokal frá
Júgóslavíu.
Bokal náði aðeins níunda besta
tímanum í fyrri ferð og reiknuðu
fáir með að hún myndi blanda sér
í toppbaráttuna. En hún var á öðru
máli, tók mikla áhættu í síðari
umferð og náði besta tímanum, var
0,87 sek. á undan Schneider. Ingrid
Salvemoser sá um að heimamaður
kæmist á pall með því að verða í
þriðja sæti.
Sigurinn var kærkominn fyrir
Schneider, sem er 27 ár, þar sem
hún hafði ekki náð sér á strik í
heimsbikarnum í vetur. Hún vann
14 heimsbikarmót 1989 er hún varð
heimsbikarhafi og hefur engin önn-
ur skíðakona náð að vinna eins
mörg mót á sama keppnistímabili.
Hún sagði að árangurinn í
tvíkeppnissviginu á fimmtudag hafi
gefið sér aukið sjálfstraust í sviginu
í gær.
Vreni Schneider sýndi það í sviginu
frekar slakt gengi í vetur.
Hlutasði á austurríska tónlist
„Það er alltaf ánægjulegt að
vinna til verðlauna á stórmótum.
Markmiðið fyrir mótið var að kom-
ast á verðlaunapall - nú hef ég náð
því tvívegis," sagði Schneider. Hún
hlustaði á austurríska tónlist milli
ferða til að slappa af og einbeita
sér að síðari umferðinni. „Eg kann
þó betur við svissnesku tónlistina,“
sagði hún.
Það má þó segja að Bokal hafi
stolið senunni í gær. Hún hafði
aðeins einu sinni komist á verð-
launapall á heimsbikarmóti, brons-
verðlaun í svigi í Kranjska Gora í
Júgóslavíu 11. janúar. Hún er 22
ára og byijaði að keppa í heimsbik-
að hún er komin í góða æfingu eftir
arkeppninni síðasta keppnistímabil
og náði þá best 6. sæti í svigi í
Hinterstoder.
Margar stúlkur helltust úr lest-
inni í síðari umferð svigsins og þar
á meðal Blanca F’ernandez-Ochoa
sem dreymdi um að verða fyrst
spænskra kvenna til að vinna
heimsmeistaratitil í alpagreinum.
Það gekk vel hjá henni í fyrri um-
ferð er hún náði þriðja besta tíman-
um, en fór út úr í þriðja hliði í
þeirri síðari og draumurinn þar með
á enda.
Schneider sigurstrangleg
í stórsviginu
Konurnar keppa í stórsvigi í dag
og karlarnir á morgun, sunnudag.
Schneider, sem unnið hefur heims-
meistaratitilinn í stórsvigi síðustu
tvö árin, verður að téljast sigur-
strangleg í dag þar sem Kronberger
er úr leik. Það er talið að Ulrika
Maier frá Austurríki sé sú eina sem
geti komið í veg fyrir að Schneider
vinni þriðja HM-titilinn í stórsvigi
í röð.
í karlaflokki er helst veðjað á
Marc Girardelli, Alberto Tomba,
Ole- Christian Furuseth og nýju
skíðastjörnuna,.Stefan Eberharter
frá Austurríki.
ÚRSLIT
HM á skíðum
Saalbach, Austurríki:
Svig kvenna:
Fyrri brautin var 52 hlið og síðari 53 hlið,
fallhæð 168 metrar. (Fyrst er samanlagur
tími og síðan tíminn í fyrri og síðari ferð
innan sviga).
1. Vreni Schneider (Sviss)
1:25.90 (41.97/43.93)
2. Natasa Bokal (Júgósl.)
1:26.06(43.00/43.06)
3. Ingrid Salvenmoser(Austurr.)
1:6.56 (42.35/44.21)
4. Florence Masnada (Frakkl.)
1:27.30(42.53/44.77)
5. Katjusa Pusnik (Júgósl.)
1:27.53(43.09/44.44)
6. Pernilla Wiberg (Svíþjóð)
1:27.55(43.63/43.92)
7. Patricia Chauvet (Frakkl.)
................. 1:27.60(42.61/44.99)
7. Angela Drexl (Þýskal.)
.................. 1:27.73(43.56/44.17)
9. Heidi Voelker (Bandar.)
................. 1:27.73(43.52/44.21)
10. Kristina Andersson (Svíþjóð)
................. 1:27.90 (43.54/44.36)
Verðlaunaskiptingin:
Gull Silfur Brons
Austúrríki 4 2 3
Sviss 3 0 2
Lúxemborg 1 0 0
Frakkland 0 2 1
Ítalía 0 2 0
Noregur 0 1 1
Júgósl. 0 1 0
Sovétr. 0 0 1
FRJALSAR IÞROTTIR
GETRAUNIR
Lewis og Johnson
mætasl í Malmö
Einarverðureinnig
Carl Lewis og Ben Johnson, sem kemur á undan'í mark, í keppni í Róm.
Spretthlaupararnir snjöllu Carl
Lewis og Ben Johnson hafa
samþykkt að taka þátt í miklu boðs-
móti sem fer fram í Malmö i Svíþjóð
5. ágúst. Einar Vilhjálmsson, spjót-
kastari, hefur einnig verið boðið að
taka þátt í mótinu. Þetta er eina
mótið sem öruggt er að Lewis og
Johnson mætist á, en hætt hefur
verið við „einvígi" þeirra sem stóð
til að færi fram í Sevilla á Spáni
30. maí.
Þeir félagar eigast við í 100 m
hlaupi í Malmö, en þar keppir einn-
0
leikv.
Staðan á ýmsum tímum
Hálfleikur
Urslit
Mín spá
1 x 2
12
réttir
I sjón-
varpi
Aston Villa : Derby County
Chelsea : Arsenal
Everton : Sunderland
Luton Town : Q.P.R.
Norwich City : Manchester City
Notth. Forest ; Crystal Palace
Sheffield Utd. : Southampton
Totteiiham : Leeds Utd.
Wimbledon : Coventry City
Oxford Utd. : Oldham
Watford : Sheffield Wed.
Wolves : West Ham
POTTURINN verður þrefaldur hjá Getraunum í dag. Hér eru leikir dagsins á Getraunaseðlinum. Chelsea - Arse-
nal verður sýndur beint í sjónvarpinu.
á meðal keppenda
ig Bandaríkjamaðurinn Leroy Bur-
rell, sem náði bestum tíma á síðasta
ári. - 9,96 sek. Heimsmet Lewis
er 9,92 sek., en metið sem Johnson
setti í Seoul 1988 - 9,79 sek. var
dæmt ógilt eftir að upp kom að
hann hafi notað örvandi lyf.
Svisslendingar eru bjartsýnir á
að Lewis og Johnson taki þátt í
Grand Prix-móti í Zúrich 7. ágúst.
Ken Andersson, sem á sæti í nefnd-
inni sem sér um mótið í Malmö,
sagði í gær að hann gæti ekki sagt
um hvort að þeir Lewis og Johnson
eigist við fyrir mótið í Malmö. „Það
er öruggt að mótið hjá okkur er
það eina sem þeir félagar og Bur-
.rell, eru skráðir sem keppendur,"
sagði Andersson.
Um helgina
Stjörnuhlaup FH
Stjörnuhlaup FH fer fram í dag kl. 14.
Hlaupið verður í sex flokkum og verð-
ur hlaupið frá líkamsræktarstöðinni
Hress við Bæjarhraun.
Bordtennis
Stóra unglingamót Víkings verður
haldíð í TBR-húsinu á morgun, sunnu-
dag. Keppni hefst kl. 13.
Billiard
Fimmta stigamót Billiardsambands ís-
lands og Tryggiungarmiðstöðvarinnar
fer fram um helgina. 8-manna úrslit
fara fram í Sportklúbbnum á sunnudag
og hefjast kl. 9.45.