Morgunblaðið - 02.02.1991, Page 51

Morgunblaðið - 02.02.1991, Page 51
KNATTSPYRNA England, Frakkland og Marokkó sækja um HM1998 ENGLAND, Frakkland og Marokkó eru einu þjóðirnar sem hafa sótt um að halda úrslitakeppni heimsmeist- aramótsins í knattspyrnu 1998. Alþjóða knattspyrnu- sambandið (FIFA) býst þó við að fleiri þjóðir eigi eftir að bætast í hóp umsækj- enda áður en fresturinn rennur út næsta föstudag. Frakkar og Englendingar hafa áður haldið úrslita- keppni heimsmeistaramótsins, Frakkar 1938 og Englendingar 1966. Marokkó, sótti um að halda keppnina 1994, en var hafnað þar sem Bandaríkin hrepptu hnossið. Englendingar, sem einnig hafa sótt um að halda úrslita- keppni Evrópumótsins 1996, vonast eftir að FIFA velji Eng- land 1998. „Nú hafa ensk liði öðlast keppnisrétt í Evrópu- keppni félagsliða og enskar knattspyrnubullur hafa haft hægt um sig. Þess vegna held ég að FIFA og UEFA sýni um- sóknum okkar meiri skilning," sagði David Blöomfield, tals- maður enska knattspyrnusam- bandsins. ÍÞRÓmR FOLX ■ MÁR Hermannsson varð í þriðja sæti í 3000 m hlaupi á móti í Gautaborg í vikunni. Hann hljóp á 8.33,25 mín., sem er sek. frá hans besta tíma á vegalengdinni. Jóhann Ingibergsson varð í fimmta sæti á 8.42,12 mín. H ANDREAS Thom hjá Bayer Leverkusen fór ekki í æfingaferð með félaginu. Hann var lagður inn á sjúkrahús til rannsóknar. Thom hefur verið með höfuðverkjaköst að undanförnu. I ALAN Mclnally, miðheiji hjá Bayern Munchen, verður frá keppni í sex vikur. Hann meiddist á kálfa í æfingaleik í vikunni - lið- bönd tognuðu. H WOLVES keypti í gær Paul Brich á 400 þús. pund. ÚRSLIT Handknattleikur 2. deild karlii: ÍBK - Ármann .....'..............21:26 2. deild kvenna: ÍBK- Ármann......................16:12 Körfuknattleikur Úrvalsdeild: Snæfell - Þór....:...............frestað Knattspyrna Frakkland 1. deild: Bordeaux - Marseille............1:1 C. Dugarry (21.) - Chris Waddle (74.). Áhorfendur: 35.000. ■Marseille lék einum leikmanni færri mest allan síðari hálfleik þar sem Bernard Ca- soni var rekinn af leikvelli á 54. mínútu. Stada efstu iiða: Marseille.......25 16 4 5 50:20 36 Mónakó......:...24 11 8 5 29:21 30 Auxerre.......24 11 7 6 35:23 29 Lyon............24 11 5 8 27:30 27 Montpellier........24 9 8 7 37:25 26 /MiÓlTOÍLAL'CAmisffiffi.ffiétófAÍ! ii.il' ág KORFUKNATTLEIKUR Valur ekki í banni gegn KR Aganefnd KKÍ var áður búin að úrskurða Val í leikbann gegn KR, en málið var endurupptekið í gær og þá var fallið frá leikbanninu FORRÁÐAMENN úrvalsdeild- arliðs Tindastóls frá Sauðár- króki óskuðu eftir þvívið aga- nefnd KKÍ að mál Vals Ingi- mundarsonar yrði endurupp- tekið, en hann hafði verið úr- skurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar sl. þriðjudag. Aganefnd KKÍ samþykkti þessa málaleitan og tók málið aftur fyrir i gær og úrskurðaði þá að Valur fengi ekki leikbann. Valur átti að vera í leibanni í ieik Tindastóls og KR á sunnu- daginn. Forráðamenn Tindastóls vissu ekki af kærunni á hendur Val, sem hann fékk eftir bikarleik- inn gegn Njarðvíkingum og fóru þess vegna fram á að málið yrði tekið fyrir aftur svo þeir gætu hald- ið uppi vörnum. Það var svo tekið fyrir hjá aganefnd KKÍ í gær eins og áður segir. Að sögn Þorgeirs Inga Nálsson- ar, formanns aganefndar KKI, seg- ir í starfsreglum aganefndar að leikmenn skuli fara í eins leiks bann við brottrekstur. í- máli Vals var ekki um það að ræða, heldur fékk hann kæruna vegna. ummæla við annan dómara leiksins eftir leik. „Ef það flokkast undir ofsafengna framkomu má úrskurða leikmann í bann. En þar sem það kom í ljós í gær að ekki var um ofsafengna framkomu að ræða var fallið frá kærunni á Val,“ sagði Þorgeir Ingi. Mál Ivan Jonas, leikmanns Tina- stóls, var einnig tekið fyrir í gær að ósk Tindastóls og var hann úr- skurðaður í eins leiks bann og tek- ur bannið gildi á hádegi næsta föstudag. Jonas tekur því út leik- bannið gegn Haukum 17. febrúar. Fimm leikirá sunnudag HEIL umferð verður í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á sunnudag. Snæfell og Grindavík mætast í Stykkishólmi kl. 16.00. Hinir fjórir leikirnir hefjast kl. 20:00. Þór og Haukar leika á Akureyri, Valur og Njarðvík að Hlíðarenda, ÍBK og IR í Keflavík og Tindastóll og íslands- meistarar KR á Sauðárkróki. Valur Ingimundarson í leik gegn KR-ingum. KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN || HANDKNATTLEIKUR Isiah Thomas undir hnffinn Isiah Thomas, leikstjórnandi meistaraliðs Detroit Pistons, inun ekki leika með félaginu fyrr en í úrslitakeppni NBA-deildarinn- ar. Thomas varð að Frá fara undir hnífinn Gunnarí vegna meiðsla á Valgeirssyni hægri hendi. Hann i Bandaríkjunum ^ ^ ,ejk - bQrði og lét laga liðbönd á hægri fæti um leið. Þetta hefur orðið til þess að breytingar hafa verið gerðar á bytj- unarliði meistarana. „Örbylgjuofn- inn“ Vinnie Johnson er kominn á ný í byijunarliðið og leikur í stöðu Isiah Thomas. skotbakvarðar, en þá stöðu lék Joe Dumars. Hann hefur nú tekið stöðu Thomas sem leikstjórnenda. Hans marka- hæstur - hefurgert7,8 mörk að meðaltali í leik Hans Guðmundsson úr KA er markahæstur í 1. deild karia, VÍS-keppninni í handknattleik, þeg- ar 19 umferðum er lokið. Hann hefur gert 148 mörk, eða 7,8 mörk að meðaltali í leik. Hans hefur einu sinni orðið markakóngur íslands- mótsins í handknattleik, árið 1988. Hér á eftir fer listi yfir marka- hæstu leikmenn deildarinnar: Hans Guðmundsson, KA.............148/19 Valdimar Grimsson, Val..........14t)/23 Konráð Olavson, KR...............137/17 Stefán Kristjánsson, FH..........127/40 Petr Baumruk, Haukum.............115/26 Gylfi Birgisson, ÍBV.............112/30 Gústaf Bjamason, Selfossi....1...110/11 Guðjón Amason, FH................106/ 5 Hans Guðmundsson. Páll Ólafsson, KR...................105/16 Karl Karisson, Fram.................100/11 Birgir Sigurðsson, Víkingi 98 Magnús Sigurðsson, Stjörnunni...... 98/33 Sigurður Bjarnason, Stjörnunni..... 94/ 7 Sigurður Gunnarsson, IBV............ 88/21 Alexej Trúfan, Víkingi.............. 88/32 Halldór Ingólfsson, Gróttu.......... 86/40 Stefán Arnarson, Gróttu............. 85/20 Sigurður Sveinsson, KR.............. 84/ 2 Ólafur Gylfason, ÍR................. 83/23 EinarG. Sigurðsson, Selfossi........ 82 2 Jakob Sigurðsson, Val.............. 81/ 1 KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNIN KSI ætlar ad gera Mjólkurbikar- keppnina veglegri Nýrsamningurvið markaðsnefnd mjólkuriðnað- arins gefur KSÍ níu milijónir króna Við munum gera allt til að gera Mjólkurbikarkeppnina sem veglegasta í framtíðinni," sagði Stefán Konráðsson, framkvæmda- stjóri Knattspyrnusambands ís- lands, eftir að sambandið og mark- aðsnefnd mjólkuriðnaðarins gerðu í gær nýjan þriggja ára samning í sambandi við bikarkeppnina í knatt- spyrnu - Mjólkurbikarkeppninnar. Markaðsnefnd Mjólkuriðnaðarins greiðir KSÍ árlega þrjár milljónir kr., sem er verðtryggð upphæð, vegna Mjólkurbikarkeppninnar. „Við skuldbindum okkur að leggja meiri vinnu í Mjólkurbikarkeppnina og að gera hana sem veglegasta og spennandi fyrir leikmenn og áhorfendur," sagði Stefán. Markaðsnefndin . mun leggja meira en áður til að kynna Mjólkur- bikarkeppnina út um allt land. Samningur Mjólkarbikarinnar undirritaður. Neðri röð f.v. Oddur Helga- son, markaðsnefnd, Óskar Gunnarsson, forstjóri Osta og Smjörsöiunnar, Eg- gert Magnússon, formaður KSÍ, Páll Svavarsson, markaðsnefnd. Efri röð: Ólaf- ur E. Ólafsson, markáðsstjóri, Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri KSÍ og Þórarinn E. Sveinsson, markaðsnefnd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.